Ísafold - 22.04.1908, Page 2

Ísafold - 22.04.1908, Page 2
74 ISAFOLD Fimleg fataskifti. Þar eiga að sjálfsögðu ýmsir högg í annars garði, sem eru stjórnarliðar og stjórnarandstfcðingar. Enginn þarf að ímynda sér, að stjórnarandstæðingar hafi alt rétt fyrir sér og hinir alt rangt. Enginn óhlutdrægur dómari mundi vilja halda því fram. Eg tel mig að miklu leyti milli flokka, og mér finst stjórninni stund- um gjört rangt til af mótstöðumönn- um hennar. En það verð eg þó ^ð segja, að ekki getur mér annað en blöskrað einn löstur á hennar ráði og hennar flokksmanna. Hann er þessi: Hvert skifti er stjórnarandstæðing- ar fá þokað sínum málum það á veg með þjóðinni, að von er um sigur, þá hoppa hinir yfir um, rétt áður en til úrslita kemur, og hremma sigur- launin. Sjáum nú t. d. sjálfstæðismálið. Minnumst þess, hvernig stjórnarmenn (í Lögréttu, Rvík, Norðra og víðar) æptu í móti því í fyrravetur og vor, gerðu gys að Þingvallafundinum og ristu naprasta nið þeim er að honum studdu o. s. frv. Minnumst ennfremur árangurslausra tilrauna þeirra til að draga úr ein- beittum sjálfstæðiskröfum stjórnarand- stæðinga á þingmálafundum síðasta vor. En nú, þegar augljóst er orðið, að þjóðin er samhuga um kröfur Þing- vallafundarins í sjálfstæðismálinu, — þá tjá þeir sig af hug og hjarta fylgj- andi því máli, i söviu viynd, sem áð- ur var bannfærð, og stendur nú ekki sá öðru en að hafa sem fimleg- ast fataskifti. Auðvitað er það höfuðatriðið, að málið nái fram að ganga, — vér fá- um fulla viðurkenningu fyrir rétti vor- um til fullkomins sjálfstæðis, hvernig sem flokkarnir leika hvor á annan. En þess er að gæta, að auk þess sem leikurinn er ranglátur gagnvart minni hlutanum, hefir hann spillandi áhrif á þjóðina alla og dregur úr eðli- legum þroska hennar. Þeim heiður, sem heiður heyrir. En þann veg erflestum kappleikum háttað. Óá sterkari ræður — lætur kné fylgja kviði, beitir valdi þegar annað þrýtur og hlífist ekki við mið- ur sæmilegum tökum. En við hverja kappglímu eru glímu- dómarar, nú orðið. Og þótt glímu- menn vilji beita óleyfilegum tökum, þá eiga dómendur að afstýra því og dæma þeim sigurinn, er knálegast glímir með viðurkendum brögðum. Hér á pjóðin að sitja í dómarasæt- inu. Hún á að skipa á óæðra bekk þeim, er bolast og níðast á keppi- nautum sínum. En eg er hræddur um, að hana vanti til þess nægan þroska. Því er nú ver og miður. Rykið af aðganginum sezt í augu henni, svo að hún missir sjónar á því, hvernig glíman fer fram í raun réttri. Og hún gleymir hinum réttu glímulögum. En hver kveður þá upp hið rétta dómsorð? Það gerir auðvitað sagan, — á sin- um tima. G. B. nokkur hefir tekið sig til í Lögréttu nýlega og farið að gera grein fyrir stefnumun þjóðmálaflokka vorra, stjórnarliða og stjómarandstæðinga. En meiri fjarstæðu hefi eg aldrei rekið mig á. Þar er gjörsamiega rangt skýrt frá. Stejnimunur með flokkunum, eins og par er lýst, er alls ekki til. — Skikuð -aill pnpriniy npma spm neyðarknct — þegar alt þrýtur annað. Ékki af því, að skilnaður sé beint frágangssök; því fer fjarri; heldur hinn, að mjög er óhyggilegt að reyna ekki annað áð- ur. En G. B. parý að ýta stjórnar- andstœðingmn undan sér og yfir á skiln- aðarbrautina, til pess að hans flokkur hafi sœti í »Frjálsu sambandslandi<c og si par einn uvi hituna, — pvi landi, sem stjórnarandstceðingar hafa jyrstir manna og einir numið og rcektað. Þann veg er að pví jarið, að haja buxnaskijti á stjórnmálavísu. Dæmi nú hver sem vill um aðferð- ina. Eg tel hana ósæmilega hverjum manni, og þá ekki sizt þeim, sem van- ur er að rita með þessu fangamarki (G. B.). Hitt var sjálfsagður drengskapur, eins og nú er högum háttað, að rétta bróðurhönd þeim, sem fyrir sátu í »Frjálsu sambandslandi« og bjóða þeim samvinnu. Veritas. Snmarfagnað ætlar Ungmennafélagið hér í bæ að hafa á morgun með þeim hætti, að ganga i sbrúðgöngn nndir islenzka fánannm nm stræti borgarinnar og stað- næmast i Lækjargötu fyrir framan hús Magn. Blöndahl verksmiðjustjúra kl. 8 sið- degis. Þar flytja þeir ræðnr á veggsvölnn- nm, Einar Hjörleifsson ritstjóri og Guðm. læknir Hannesson. Leikhús fyrir i&ndið. Indriði Einarsson hefir verið það djarfari en aðrir, sem hafa verið að hugsa um þetta mál síðustu árin, að hann hefir látið það uppi. Hann sem- ur um það rækilega ritgjörð í júlíhefti Skírnis í fyrra. — Tilgangurinn með línum þess- um er, segir hann, að vekja menn til að hugsa um leikhús fyrir landið, eða þjóðarleikhús og jafnframt að gera eins konar áætlun um, hvað slík stofn- un mundi þurfa að kosta. Og höf. býst við, að fyrsta svnrið, sem slík tillaga muni fá, sé það, að enn sé ekki kominn timi til þess. Það er skýlaust þokusvar — háís- lenzkt. Honum þykir ekki líklegt, höf., að neinn muni svara að hér vanti leik- ara. Hitt verði fremur fundið til, að íslenzk leikritasmið sé enn á svo lágu stigi. En mótbáran er barnaskapur, ekk- ert annað. Ef vér eigum að bíða eftir leikhús- inu þangað til skáldleikasnillingarnir eru komnir, þá megum vér vafalaust biða nokkuð lengi. Leikhúsið er eitt aðalskilyrði þess, að þeir komi. — Skáldið, segir hr. I. E., sér hér leikritin sín sjaldan eða aldrei leikin; en það er bezti skólinn, sem hann getur gengið í. Af því sér hann bet- ur en af nokkuru öðru, hvað hann á að varast, hvað áhorfendunum þóknast bezt og hvað tekur þá bezt um hjart- að. Leikritahöfundur, sem fer þess á mis, á ákaflega brattan og erfiðan gang upp í fullkomnunarhjallann. Það liggur í augum uppi, að því lengur sem vér látum dragast að koma oss upp leikhúsi, því lengur dregst það, að vér eignumst leikrita- höfuud — og því seinna komumst vér í tölu menningarþjóðanna í þeirri grein. Einn hinn mesti skaði, sem nú er gerður bókmentum vorum, hann er áreiðanlega sá, að hér vantar leikhús. Fyrir io árum var miklu minna mein að því. Þá voru efni-viðirnir miklu smærri í viðburðaríka skáldleika. Nú er efnið nóg. Nú finna það allir. Og Indriði Einarsson hefir bent á það öllum öðrum betur. Og menta- mennirnir tala um það sín í milli, að við þetta sé ekki unandi lengur, þjóð- in hafi ekki lengur efni á því að vera leikhúslaus. Leikskáldin koma á eftir — rétt á eftir eða samtímis. Hér eins og annarstaðar. Skáldsagnalistin er alt af að þrosk- ast hér á landi. Vér megum búast við að eignast ef til vill upp frá þessu fyrirtaks-sagnaskáld á hverjum manns- aldri. En munurinn á sagnaskáldi og leikskáldi er enginn annar en sá, að annar þarf að alast að kalla má upp við leikhús; hinn ekki. Ekkert er líklegra en að Einar Hjörleifsson væri nú leikskáld, ef leikhús hefði verið I bænum þegar hann var í skóla. Og hugsum oss menningarbraginn, sem færðist á bæinn, ef hér kæmist upp leikhús. Hugsum oss muninn á fólkinu, þegar það færi að sjá hugs- unum sínum veitt eftirtekt af lands- ins frægustu skáldum. Og ekkert er jafnvíst sem það, að aðsóknin að slíku leikhúsi mundi stórum margfaldast við það, sem nú er. Fæstir þeirra skáldleika, sem hing- að til hafa verið samdir og leiknir hér á landi — fæstir þeirra hefði í raun og veru getað staðið af sér nokkra gagnrýnisskúr, sem úr lofti hefði kom- ið. Og auk þess hafa þeir verið leikn- ir í þessum leikhúsgrenjum, sem allir vita nú, hvernig eru. En samt sem áður er húsfyllir áhorfenda kvöld eftir kvöld, viku eftir viku, hvenær sem íslenzkt leikrit er leikið. Indriði Einarsson segir í ritgjörð sinni: — Svo ann landsfólkið þjóðerni sínu, þjóðsögum og íslenzkri menn- ingu, að hvenær sem einhver getur vakið óminn frá einhverjum streng í þjóðarhörpunni í leikriti, þá streyma allir að, sem komið geta, hundruðum saman, til að sjá það, og þó getur höfundurinn kept við hvern útlendan meistara, hvort sem hann er gamall eða nýr. Eg segi ekki nema það: Hvað þá ef hér væri leik'iús sem yndi væri í að koma fyrir allra hluta sakir — í stað þessa kumbalda, sem hundruð manna fælast — og leiknir væri ís- lenzkir skáldleikar, sem hver þjóð þættist af að eiga. Hvað verður gert? Næstu ár verður ekkert undanfæri undan því, að komið verði upp nýju húsi — ef ekki á algerlega að hætta að leika í þessum bæ. Þessi leikhúsnefna, sem nú er, er með öllu óhæfileg lengur. Það var gert fyrir io árum og var rúmgott í byrjun. Það þótti þá ekki vera neitt grýtukorn, fremur en Templ- arahúsið, þegar það var reist, eða Breiðfjörðshús. En nú er þar óver- andi orðið fyrir þrengslum, bæði leik- endum og áhorfendum, fyrir utan alt annað ilt, sem að því er. Þrír leikhúsnefnu-kumbaldar hafa verið reistir á síðustu 20 árunum. Allir hafa þeir átt að duga helmingi lengur en raun hefir orðið á. Og enginn þeirra hefir vitanlega verið boðlegur: hvorki skáldleikunum né leikendunum, né áhorfendunum. Úr tveimur hefir verið flúið. Og úr hinu þriðja verður flúið — ef ekki næsta ár, þá hitt. Og hvað verður pá gert? Eg veit það ekki. En hitt veit eg, hvað vér eigum að gera, ef vér viljum sjálfum oss vel. Kvöldið, sem leikendurnir leika 1 síðasta sinn í Iðnaðarmannahúsinu, leikendurnir, sem lagt hafa á sig 15 ára erfiði og fyrirhöfn, og ekkert feng- ið að launum annað en hlýleg orð þakklátra áhorfenda, en oft óþökk, — kvöldið það eigum vér að leiða þá inn í nýtt leikhús, sem vér hefð- um reist á fallegasta óbygðum bletti í bænum — pjóðarleikhús —, leikhús, sem endist að minsta kosti 100 ár og væri búið hinum bezta leikhúsbúnaði að nútíðarháttum. Það eigum vér að gera og ekkert annað. Ekki að fara að reisa fjórða kumbaldann — í guðs bænum ekki fjórða kumbaldann. Indriði Einarsson hefir sjálfur gert og fengið húsgerðameistara til að gera kostnaðaráætlun um slikt hús, nokk- urn veginn eins nákvæma og hægt er, og honum telst svo til, að það mundi kosta uppkomið 164 þús. krónur. Leikhúsið verður að eiga sig sjálft, og landssjóður yrði að lána féð. Danir, segir hann, hafa lagt fram til síns þjóðarleikhúss (kgl.leikh.) eftir 1870 fé sem þvi svarar, að kostnaður slíks leikhúss, sem hér er um að tefla, væri lagður fram af landssjóði, og 10 þús. kr. árlega að auki. Þetta ættum vér að vera aurnari, að geta ekki komið oss upp leikhúsi, þó að ekki væri nú farið fram á annað en að landssjóður lánaði féð til húsgerðar- innar. Hr. I. E. leiðir svo góð og skýr rök að sinu máli, að það er engum manni ofætlun að sannfærast um, að það er handvömm, ef landið kemur sér ekki upp leikhúsi sem fyrst. Nú parj að reisa einhvers konar leikhús mjög bráðlega. Vér gjöldum þess á marga lund, að það var látið ógert fyrir 100 árum, sem þá var hægðarleikur, en nú erum vér að bis- ast við. Sú ættjarðarást, sem nær ekkert út fyrir samtíðina, hún er ekki mikils virði. Ef vér kæmum oss upp sæmilegu leikhúsi, mundi leikritahöfundum ekki verða eftir 40 ár greiðari vegurinn að frægðarmarkinu heldur en Jónasi Hall- grímssyni var? Vér verðum að muna eftir því, að vér getum eignast aftur Jónas Hallgrímsson, og þá megum vér ekki fara illa með hann — vér megum ekki fara illa með hann tvis- var. Þá vita aðrar þjóðir, að vér skiljum hann ekki og að vér höfum ekki átt skilið að eignast hann. Allri þjóðinni verður leikhúsmálið að verða áhugamál. Og þeir, sem er það orðið áhuga- mál, mega ekki þegja. Þjóðinni verður að skiljast, hverja braut hún á að halda, til þess að veg- ur hennar verði sem mestur. Hún verður að læra það af þeim þjóðum, sem eru lengra komnar en hún. Hún verður að eignast og ala upp syni, sem bera frægð hennar út um heiminn. Hún, eins og aðrar þjóðir. Og hún má ekkert láta ógert til þess, sem í hennar valdi stendur. — Sú þjóð, sem hefir ekki efni á að eiga fræga syni, hún hefir ekki efni á að lifa, sagði Guðm. Finnbogason einu sinni, og það er eitt hið snjallasta, sem nokkur íslendingur hefir sagt. greiðir til að eignast fræga syni — ej hún vill pað sjálj. Einn er sá, að það sé nú ekki lát- ið dragast lengur, að komið sé hér upp leikhúsi. íslenzkur maður er suður í Kaupmannahöfn og yrkir leik- rit á dönsku, af því að hér er ekkert leikhús til. Honum er það sómi — en oss er það minkun. Engin þjóð kannastvið oss í menta- þjóða tölu, fyr en vér eigum leikhús. Og þangað til úthýsum vér öllum leikritaskáldskap. Óskandi væri, að rriálið yrði rætt sem mest þangað til í febrúar næsta ár. Þá er alþingisár. Listavinur. Millilandanefndm. Einhver tíðindi úr henni var verið að fleipra með hér um bæinn und- anfarna daga, og borin fyrir hraðfrétt til Austra, höfð þar eftir dönsku blaði. En það er áreiðanlega eintóm mark- leysa. Væri eitthvað úr nefndinni að frétta, sem hljóðbært hefði orðið eða mætti verða, mundi Blaðskeytabandalagið hér hafa fengið óðara vitneskju um það, og sömuleiðis landritarinn, sem nú er æðsti stjórnandi landsins innlend- ur. En hann hafði ekkert skeyti feng- ið í gærkveldi. Um fullkomna eindrægni Islend- inga í nefndinni er það eitt við að styðjast, að stjórnarandstæðingar hreyfa sig hvergi. Það er mikið að marka. Þeir mundu ella naumast hafa verið lengi að binda skóþvengi sína og halda heimleiðis aftur. Heíðu ekki talið sig hafa neitt að gera þá í nefnd- inni framar. Erl. ritsímafréttir til ísafoldar. Kh. 18. april kl. 8'/, árd. Borgarbruni. Voðabruni í Boston. — Skaðinn skift- ir tugum miljóna í dollurum. Höfíingjavig. Landstjóri i Galliziu myrtur. Það gerði rúthenskur stúdent og af stjórn- mála-ástœðum. Frá Marokkó. Bardagar i Marokkó. Samein.félag. Eitt höfuðskip Samein.félags United States, ósjófœrt i New York fyrir árekstur. * * * Boston er höfuðstaður í Massa- chusettsríki í Bandaríkjum, stórauðug borg og mestur verzlunarstaður þar í landi annar en New York. Þar fædd- ist Benjamín Franklín. Gallizía er eitt af löndum Austur- ríkiskeisara, gamalt konungsríki. Rúm- ur hel'mingur landsbúa er Pólverjar, en Rúthenar hitt og sæta álögum og yfirgangi af Pólverjum. Rúthenar eru grískkaþólskir, en Pólverjar rómversk- kaþólskir. Gufuskip United States (Bandaríkin) var stærsta skip Samein.félagsins danska, nokkuð meira en 10,000 smá- lestir alls. Oscar II. og Ólafur helgi eru viðlíka stór, fám smálestum minni. Ella eru stærstu skip félagsins ekki nema tæpur 7» á við þau. Fréttin segir ekki, hvort skipið er beint ónýtt orðið, eða gera má við það. Veðrátta vikuna frá 12. til 18. apríl 1908. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh. s F 5.3 h 3.9 h 3.5 h 0.8 h 1.6 h 5.7 M - 3.8 - 4.8 - 6.0 h 3.5 - 7.0 - 6.1 Þ þ 6.3 h 4.2 - 4.8 h 2.5 - 1.0 - 4.6 M h 4.3 h 5.1 - 7.5 h 4.0 -10.0 _ - 6.5 F F 7.3 h 6.6 - 6.2 - 2.4 - 8.4 - 7.3 F - 5.9 - 5.0 h 5.5 - 4.8 - 3.3 - 8.5 L h 2.5 h 2.5 h 2.6 h 2.2 h 6.7 h 1.6 Hvergi á landinu frost vikuna sem leið, alla dimbilviku. Sama bliðan síðan bér um bil. Þó of- urlitið frost i morgun alstaðar, sem siminn tii nær, með þvi að bjartviðri er mikið og við norðurátt, frá 2 til 6 stig (Akureyri). En norðankafald i Eæreyjum (Þórshöfn) í morgun með nær 5 stiga frosti. Vetrarlok. Veturinn, sem kveðnr í dag, hefir verið svo mildur og vægur, að varla gerast slíkir fleiri en 3—4 á öld. Enginn þvílíkur nú síðan 1879—80. Flann hafði verið þessum öllu vægari þó. Heyjaskorturinn eftir sumarið komið hvergi að gjaldi. Orðið unnið að jarðabótum og jafnvel húsa mest- an veturinn, líkt og vor eða haust. Sama árgæzka til sjávarins. Land- burður af fiski í helztu veiðistöðum, bæði á opin skip og þilskip, ekki sízt botnvörpungana íslenzku, þessa fáu sem vér eigum. En þungan toll hefir Ægir tekið af oss í móti, svo sem hann á oft vanda til: nær 3 tigu vaskra drengja á litlu svæði og á 1—2 vikum. Feita letrið i ráðgjafa-málgagninn. Innan um venjulegan illindavaðal í garð ísafoldar og stjórnarandstæðinga prentaði ráðgjafa-málgagnið (Rvík) í síðustu viku með feitu letri heilmikla klausu um eitthvað, sem á að hafa gerst í millilandanefndinni, og full- yrðir um leið, að ísafold hafi einnig fengið fregnir af því, en haldi því leyndu. Nærri má geta, að málgagnið tnuni ekki vita mikið um það, hvort ísa- fold hefir frétt nokkuð úr nefndinni eða ekki neitt. Þann veg einn er sú vitneskja hugsanleg, að íslendingar allir í nefndinni hafi komið sér saman um, að rjúfa þagnarskyldu þá, er þeir höfðu undirgengist í upphafi, og að þeir hefðu ennfremur komið sér saman um, hverju þeir ættu að ljósta upp af því, sem þar hefir gerst, og rita eða láta rita bæði ísafold og öðrum blöðum landsins. Hefði hitt verið, að stjórn- arandstæðingar í nefndinni hefði brugð- ið trúnaði sínum og gerst lausmálir við ísafold, fer enginn maður að ímynda sér, að þeir hefðu rokið til samtímis og skriftað það fyrir ráð- gjafanum og hans mönnum. En öðru visi gat ekki ráðgjafamálgagnið fengið neitt um það að vita, hvað ísafold hefði spurt eða ekki spurt. Sannleikurinn er nú sá, að skýrsla blaðsins um, hvað ísafold hafi spurt úr nefndinni eða ekki spurt, er ein- tómur reykur og uppspuni. Þar er eng- inn flugufótur fyrir. Annaðhvort skáldar blaðið þetta sjálft hér, eða það á séreinhvern kunningja suður í Khöfn til að skálda handa sér. Msrgurinn málsins í þessari »spurn«, sem blaðið lætur svo mikið með, virðist vera það afrek dýrlings þess og yfirdrotnara, »yfirvaldsins mikla«, að hann (L. H. B.) hafi »samið ritkorn um réttarstöðu íslands, sem lagt hefir verið fram í nefndinni af hálfu ís- lendinga«(l). Ritkorn það mun eng- inn maður hafa heyrt nefnt á nafn, hér fyr en þetta í ráðgjafamáltólinu. Að minsta kosti hefir ísafold ekki borist nokkur stafur um það né nokk- ur fregn um nokkurt handarvik þar eftir áminst »mikilmenni«; hann hefir ekki verið nefndur á nafn í nokkru bréfi, sem hún hefir fengið frá Khöfn í vetur. Sennilegast er, að frásögn þessi um frammistöðu hans eigi rót sína að- rekja til alþekts sjúk- dóms, er hann hefir þjáðst af langa hríð og virðist þá því miður ekki vera rénaður enn. Öðru aðalatriðinu í spurninni, að »íslendingar í nefndinni séu sam- mála«, er ótrúlega einfeldnislega til getið að ísafold vilji leyna, með því að naumast hefði hún nokkurn tíma átt meiri sigri aó hrósa en ef sú frétt væri sönn og áreiðanleg. Því hvað merkti hún? Það, að ráðgjafinn og hans menn hefði steingefist upp við sirin mikla og látlausa andróður gegn stefnuskrá stjórnarandstæðinga í sjálfstæðismál- inu, gegn Þingvallafundarályktuninni o. s. frv., og gengið i lið með vor- um mönnum. Það væri hvorki meira né minna. Það væri því ekki lítilsvert, ef treysto mætti frásögn blaðsins um það atriði. En mun nokkurum manni þykja það eigandi undir, sem les um leið það sem á eftir fer í feitu klausunni ? IV

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.