Ísafold - 05.09.1908, Page 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisvar l
viku. Verö árg. (80 arkir minst) 4 kr., er-
lendis B kr. eBa 1 */* dollar; borgist fyrir
mibjan júli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD
Uppsðgn (skrifleg) bundin viö áramót, er
ógild nema komin só til útgefanda fyrir
1. okt. og kaupandi skuldlaus vib blabib.
Afgreibsla: Austurstrœti 8.
XXXV. árg.
Reykjavík laugardaginn 5. sept. 1908.
55. tölublað
I. O. O. F. 898219.______________________
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 i spítal
Forngripasafn opib & mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2 x/t og 6*/*—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */* siöd.
Landakotskirkja. öuösþj. 91/* og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10llt—12 og 4—5.
Landsbankinn 101/*—21/*. J^-xkastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 ogr l -6,
Landsskjalasafnið á þi«t., fmd. og Id. »2—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasain k sd. 2—3.
Tannlækning ók. i Tósthússtr. 14, l.ogS.md. 11- '
Faxaflöabáturinn Ingölfur
fer til
Borgarness
sept. 6.
Keflavikur
sept. 8. og 10.
Garðs
sept. 10.
Tillögur Norðmanna.
Andvígir Uppkastinu.
Feir sjá hættuna.
Fylgja Sjálfstæðismönnnm
að máli.
Svofelt símskeyti til Blaðskeyta-
bandalagsins barst hingað frá Krist-
janiu fyrir tveim dögum (sent af dr.
Jóni Stefánssyni):
Kristjaníu 2. sept. 1908, kl. 6 síðd.
Ajtenposten (eitt helzta blað Norð-
manna) flytur grein móti Uppkastinu,
ejtir G j e l s v i k, prójessor í pjóða-
rétti, jrægan mann um Norðurálju.
Vill pað nefnist samningur (Traktat),
en ékki lög, svo að gerðardómurinn
(Voldgijtsdommen) i Haag dœmi i
milli.
Vill að sambandið verði pjóðréttar-
legt, en ekki ríkisréttarlegt.
Gamli sáttmáli enn i gildi.
Sambandið verður ríkisréttarlegt, ej
Island á að verða partur úr ríkisheild-
inni dönsku (det samlede danske Rige).
Ejtir uppkasti (tillögu) Gjelsviks eiga
Danmörk og lsland að vera jrjáls,
sjáljstæð riki, sameinuð undir einum
konungi meðan arjgengur prins aj
Gliicksborgarættinni lifir.
Utanrikisstjórn sameiginleg 2/ ár. Þá
uppsegjanleg aj alpingi eða rikispingi.
Sameiginlegar hervarnir hættulegar
báðum. Getur hvorugt hjálpað hinu.
Danmörk getur neyðst til aðláta
Island aj hendi, prátt jyrir ákvæðið
um, að pað megi ekki.
Það er hvorki meira né minna en
tvö einna lang-áhrifamestu og við-
lesnustu blöð Norðmanna, Dagbladet
og Ajtenposten, sem flytja nú hvort
eftir annað greinar um Uppkastið eins
og þær væru runnar frá hjartarótum
Sjálfstæðismanna hér heima, frumvarps-
andstæðinga.
Til dæmis að taka urn annað þetta
blað, Ajtenposten, hefir Bj. Björnson,
stórskáldið heimsfræga, kosið sér það
um langan tíma til að rita í um sín á-
hugamál.
Höfundur greinarinnar í Ajtenposten,
sem símskeytið hér að ofan greinir
frá, er háskólakennari í pjóðarétti við
háskólann í Kristjaníu og frægur mað-
ur i þeirri grein um alla Norðurálfu.
Það verður naumast kosið á æski-
legri mann til að láta uppi hlutdrægn-
islaust álit á Uppkastinu heldur en
einmitt slikan mann sem þennan.
Mann, sem hefir allra manna bezt
vit á því, hvað það er, sem felst í
tilboði Dana, er jrægur sérjræðingur í
þeirri grein, sem langmest hnígur að
að Uppkastinu, þjóðréttarfræðingur, og
auk þess útlendingur, sem ekki verð-
ur brugðið um í vitsmun^hrakinu
samskonar góðgæti og oss islenzku
andstæðingum frumvarpsins, hvað
fegnir sem menn vildu.
Og hvað segir svo þessi maður?
Hann segir flest nákvæmlega hið
sama og allir Sjálfstæðismenn hér hafa
verið að segja í alt sumar.
Hann segir alt gagnstœtt því, sem
stjórnarliðið hér hefir verið að reyna
að blekkja með þjóðina mánuðum
saman, eða alla tíð síðan er Uppkast-
ið kom.
Fyrsta athugasemd þessa hins merka
þjóðréttarfræðings er ein þeirra, sem
vér höfum margbent á: að frumvarp-
ið er nefnt lög en ekki sáttmáli eða
samningur. Hann telur og sjálfsagt,
að úrskurðarvaldið í ágreiningsmálum
beggja þjóða sé í höndum gerðardóms
utanríkja, en ekki f höndum nejndar,
eins og ætlast er til í Uppkastinu, og
það vitanlega því síður, sem meiri hluti
nefndarinnar er danskur og úrskurðar-
valdið því algerlega í höndum annars
samningsaðiljans, þ. e. Dana.
Þá vill bann að sambandið sýni, að hér
hafi tveir fullvalda þjóðareinstaklingar
samið sín í milli; tvö ríki en ekki eitt.
Það vildu Danir ekki að sæist, því
að þeir taka það fram í athugasemd-
unum við frumvarpið af hræðslu við
íslenzka titilinn á Uppkastinu, að rík-
isréttarsamband skuli merkja nákvæm-
lega hið sama og »det statsretlige
Forhold mellem«, þ. e. að sambandið
sé ríkisréttarlegt. Það var eitt af þvi,
sem þeir vildu halda hvað fastast í,
eitt á borð við ríkisheildar-orða-
tiltækið.
Ekki er höf. alveg á sama máli og
sumir sagnameistararnir hér og upp-
gjafa-landsréttindaverðir, að hann vilji
ekki gera neitt úr Gamla-sáttmála.
Hann kallar hann hvorki myglaða
skræðu, sem ekkert sé farandi eftir,
né heldur hefir hann sannfærst um,
að vér værum algerlega réttlausir með-
an vér hefðum hann, svo framarlega
sem vér látum ekki ginnast til að
semja réttleysið á hendur þjóðinni með
Uppkastinu.
Hann segir þvert á móti, að sátt-
málinn frá 1262, Gamli-sáttmáli, hann
höfum vér aldrei brotið af oss alt
fram á þennan dag, sem vér gerum,
ef vér göngum að Uppkastinu. Svo
að vér eigum enn óglataðan rétt vorn,
hvort sem það verður mikið lengur en
fram yfir kosningar í haust. En því
ráðum vér sjálfir.
Höf. kveður ríkið vera eitt eftir
Uppkastinu; ísland sé partur úr dönsku
rikisheildinni, og sambandið verði því
r/fó-réttarlegt, en pjóðaréttur nái ekki
til þess eins og milli tveggja sjálf-
stæðra ríkja.
Próf. Gjelsvik vill kveða svo á um
konungssambandið sem vér Sjálfstæð-
ismenn, að Danmörk og ísland séu
tvö frjáls og sjálfstæð ríki, þetta sem
forðast er eins og heitan eld í öllu
Uppkastinu. Og lausa vill hann láta
oss vera allra mála við Dani um sam-
eiginlegan konung eftir það, er eng-
inn ríkisarfi af Glticksborgarættinni
(konungsætt þeirri, er nú situr að
völdum) er til, svo sem vér sórum
með Gamla-sáttmála Hákoni konungi
hollustu og einum hans niðjum. Það er
með öðrum orðum, að vér afsölum
oss ekki í hendur Dana réttinum til
að kjósa oss sjálfum konung.
Þá vill höf. hafa utanríkismál-
in sameiginleg um 25 ára skeið. Úr
því geta þau staðið þjóðinni fyrir þrif-
um, ef þau eru í höndum Dana. Eft-
ir þann tíma á hvor þjóðin um sig
að geta sagt þeim upp, ef hún vill.
Og ekki að þurfa til þess nema sam-
þykt meiri-hluta þings annars hvors
ríkisins. Enda er það hið eina, sem
íslendingar geta gengið að, svo fjarri
sem það er þeim smánarkjörum sem
í boði eru.
Þá minnist höf. á hættuna, sem
stafað geti af sameiginlegum hermál-
um; hvorugu landinu til gagns, en
báðum til tjóns og vandræða. Af
ákvæðinu um það, að vér eigum að
hafa sameiginlegar hervarnir með Dön-
um, leiðir það meðal annars, að Dan-
mörk getur orðið neydd til að láta
ísland af hendi til annarra þjóða,
vinna það til þess að fá sjálf að vera
til í tölu þjóðanna. Svo ósjálfráðir
og ósjálfbjarga verðum vér eftir þessu
frumvarpi, ef því verður ekki breytt,
auk annarrar hættu, sem yfir þjóðinni
vofir, af hermálasambandi við Dan-
mörku.
*
* *
Svona taka þá Norðmenn í streng-
inn, hver eftir annan.
Þjóðkunnustu sérfræðingar. Áhrifa-
mestu blöð.
Svona er hljóðið í þeim, þegar þeir
hafa ihugað frumvarpið rækilega.
Þeir eru ekki i neinum vafa um,
hvert það stefnir.
Þeir blekkjast ekki af íslenzkri
þýðingu á því, rangfærðri og gyltri
þar, sem rétt þýðing gat orðið til
þess, að miklu færri menn vildu leggja
því liðsyrði.
Þeir hnýta það með afteknum orð-
um, að frumvarpið sé óhæjt eins og
það er.
Þeir segja, að það sé íslenzku þjóð-
inni til margfaldrar hættu, ef hún taki
við því, en Dönum til minkunar að
bjóða þetta íslendingum, — bjóða
þetta þjóðfélagi með sinu djúpmót-
aðu þjóðarséreðli og óglötuðum sjálf-
stjórnarrétti á slíkum tímum sem nú
eru, þegar reynt er að friðhelga slíka
kjörgripi hvers þjóðfélags, sem Is-
lendingar eiga.
Vér getum bætt við öðru, sem
Norðmenn gera sjálfsagt ekki fyrir
kurteisi sakir.
Bætt því við, að það er s j á 1 f u m
o s s til háðungar og engis annars,
að vera að deila um það, hvort oss
sé betra að glata fullveldisrétti vorum
um ókomnar aldir eða gera það ekki.
Það er vottur um svo hörmulegt
þroskaleysi í stjórnmálum.
Það er höfuðstaðnum til því meiri
sæmdar, sem hann er óskiftari í
því máli, sem hann greiðir réttleysis-
postulunum færri atkvæði kjördaginn,
10. september.
Próf. X. M. Gjelsvik,
sá er greinina hefir ritaS í Aften-
posten, norska blaðið, og skýrt er frá
hér í skeytinu á undan, varS háskóla-
kennari í þjóSarétti viS háskólann f
Kristjaníu fyrir fám árum ; tók viS af
Hagerup.
Hann er einn meS lang-helztu þjóS-
róttarfræSingum á NorSurlöndum; og
aukadómari í hæstarótti. Einkar skarp-
skygn og stórmikils metinn vísindamaSur,
fastúSugur, róttsýnn og háfrjálslyndur.
Hann var mikiS viS riSinn deiluna milli
NorSmanna og Svía og þótti koma þar
viturlega fram sem annarstaSar ; gat sór
frægan orSstír í þeirri deilu.
Og jafnviturlega kemur hann fram í
þessu máli, deilunni milli Islendinga og
umboSsmanna Dana hér, íslenzku stjórn-
arinnar svo nefndu.
En ætli hún hafi ekki einhver ráS,
sú lita, aS hola honum niSur í einhver-
jum flokkinum, sem allir hans skoSun-
arbræSur hór eiga aS vera i eftir henn-
ar höfSi, gera hann t. d. að angurgapa
eSa spekúlant?
Einhverju verSur hún aS launa hon-
um löSrunginn.
Opnar það ekki angnn
á öllum?
Hvað er það, sem hefir ýtt svo
undir þessa þjóð, að hún tekur alt í
einu til, fyrir nokkrum áratugum, að
heimta frelsi og sjálfstæði sér til handa,
— krefjast þess, að hún fái s j á 1 f
að ráða landinu sínu ?
Það er það, að þá rennur það
upp fyrir henni með óvenju-miklum
skærleik og birtu, að í öllum hörm-
ungunum hafi hún þó aldrei glatað
réttinum til þess að eiga með sig
sjálf. Það er þá, er hún finnur gim-
steininn í sorpinu, sjálfstjórnarrétt-
inn.
Öll þau ár hafa flestir mestu og
beztu snillingar landsins setið við að
fága þennan gimstein, mann fram af
manni enn sem komið er.
Öll þau ár hafa íslenzkir stjórn-
málamenn og sagnfræðingar — hver
í kapp við annan — lagt sig í fram-
króka um að sanna það, að landið
væri óglötuð óðalseign þeirra, sem
landið byggja, landsmanna sjálfra, ís-
lendinga einna.
Vér höfum lært að elska þá mest,
sem bezt hefir tekist að sanna það,
svo sem er um Jón Sigurðsson.
Vér höfum lært að elska hann fyrir
það, að hann hefir staðið allra manna
fastast við þá stefnu, að vikja aldrei
jrá rétti landsins.
Og þegar hans naut ekki lengur
við, þá hlupu aðrir undir merkið; það
mátti ekki falla niður. Það hefði ver-
ið að týna aftur gimsteininum, sem
var nýlega fundinn.
Á hvað er nú lagt mest kapp með
þjóð vorri?
Annars vegar á það, að afsala sér
ékki þessum dýrmæta rétti vorum,
hvað miklum brögðum og ginningum
og glæsilegum svika-loforðum sem
heitið er í staðinn. Gera það ekki
vegna þess, að á honum getum vér
flotið til lands að fullveldis-ströndinni.
Og hinum megin er kappið lagt á
það, að leggja sig i framkróka um að
sanna réttleysi landsins. Það er ekk-
ert sparað til þess nú, að reyna að
koma þjóðinni til að finnast það, að
hún eigi ekkert með sig sjálf.
Mennimir, sem hafa skrifað hverja
bókina á fætur annarri um forn lands-
réttindi vor, ríkisréttindi, fullveldis-
réttindi; menn, sem hafí verið að
ljúka við það fyrir nokkrum mánuð-
um, að færa sönnur á þau óskoruð;
menn, sem þá hafa enn fremur tekið
það fram, að þau séu hinn eini samn-
ingsgrundvöllur, sem vér eigum að
viðurkenna svo sem undirstöðu nýrra
sambandslaga milli vor og annarrar
þjóðar, — þeir hafa ekki verið annað
að gera í alt sumar en að ganga á
bak orða sinna upp á landsins kostn-
að.
Þeir hafa verið einstaklega frakkir
og framir að t a 1 a um markið, sem
þjóðin eigi að keppa að, en þegar
reynt hefir á — þegar þeir eiga
s j á 1 f i r að fara að hjálpa henni til
þess, fara að leggja á sig að berjast
fyrir hana gegn erlendum yfirráðum
og ósvífnu innlendu kúgunarvaldi —
hverir eru þá fljótastir að hlaupa frá
hugsjónum þeirra ?
Þeir sjálfir.------
Svo alúðlegur málaflutningsmað-
ur Dana er ráðgjafinn, að hann læt-
ur þýða fyrir íslenzka alþýðu eina hina
lang-illgirnilegustu árás á Gamla-sátt-
mála, sem nokkurs staðar hefir sést,
eftir danskan lögfræðing, og ætlasttil
að það hjálpi eitt með öðru til að
sannfæra landsfólkið um réttleysi þess.
Og sumir þeir íslendingar, sem áður
hafa hampað hæst fornum landsrétt-
indum vorum, slást nú í lið með
þessum mönnum til að rífa þau niður
ögn fyrir ögn.
Og hvers vegna er það gert?
Það er gert af því, að það sem nú
er verið að bjóða þjóðinni, Uppkastið
fræga, er svo hraklegt í alla staði, að
fylgismenn þess vita, að sú þjóð, sem
á einhvern rétt til að eiga með
sig sjálf, hún missir hann, ef hún
tekur við þvi, sem Uppkastið hefir að
bjóða.
Það er pess vegna. að nú verður að
snúa öllu við.
Það er þess vegna, að sömu menn-
irnir verða nú að segja sama hlutinn
svartan, sem þeir sögðu áður hvítan;
að þeir, sem áður stóðu á þvi fastara
en fótunum, að Gamli sáttmáli væri
frelsisskrá vor íslendinga, verða nú að
gera hann að innlimunarskjali.
Það verður fyrst aðskrökva
því að þjóðinni, að hún hafi afsalað
sér réttinum í hendur annarri þjóð,
áður en hugsanlegt er að hún verði
gint til að ganga öðrum eins voða í
greipar og Uppkastið er.
Þetta verða þeir að gera, sömu
mennirnir, sem hafa haldið eindregið
fram landsréttindum íslands, áður en
Uppkastið kom til sögunnar.
Opnar petta ekki augun á öllum
óháðum kjósendum ?
Sjá þeir ekki, hvað verið er að
vinna ilt verk, þegar verið er að ginna
landsmenn til að semja á hendur sér
þennan órétt með því að reyna að
telja þeim trú um að þeir eigi ekki
heimting á öðru?
Sjá þeir ekki á því, hvað smánar-
lega lítið felst í Uppkastinu, þegar
þjóðinni er ógerningur að líta við
því, nema hún gleymi pví áður, að
hún á fulla heimting á að eiga með
sig sjálf?
Erl. ritsímafréttir
ti] ísafoldar.
(Kristjanfuskeytin þrjó prentuð á öðrnm
stað hér í blaöinu).
Khöfn «/» kl. 1286.
Bólan eykst í Kristjaniu.
Fáninn á Esjutindi!
Núna í vikunni gengu þær upp á
Esju, jungfrú Laufey Vilhjálmsdóttir
kennari og frú Jóhanna Jónsdóttir á
Reykjum í Mosfellssveit. Þær voru
1 klst. og 40 mín. frá hlaðinu á
Mógilsá upp á hæstu eggjar. Jung-
frú Laufey hafði með sér islenzka
fánann á stöng og festi stöngina á
efstu brún, og má sjá fánan frá bæ-
jum á Kjalarnesi.
Atkveeðagreiðslan um
aðflutnings-bannið.
Gleymið henni ekki i þingkosninga-
hitanum, góðir hálsar! Hún fer fram
jafnhliða alþingiskosningum og er með
öllu vandalaus.
Auk kjörseðils, sem nöfn þingmanna-
efna eru letruð á, fær kjósandi ann-
an seðil, sem á er skráð Já og Nei.
Sé kjósandi meðmæltur aðflutnings-
banni, þá gerir hann X fyrir framan
Já. Sé hann banninu mótfallinn,
setur hann X við Nei. Annars er
farið með þennan seðil að öllu leyti
eins og kjörseðilinn, hann brotinn
saman þann veg, að letrið snúi inn
og stungið niður í atkvæðakassann
svo að enginn sjái hvernig hann er
merktur.
Athöfnin er smávægileg, en þó mik-
ilsverð.
Þegar þér setjið merkið á seðilinn
þá minnist þessara orða hins finska
vísindamanns:
Það er óhugsanlegt að mannkynið
eigi bjarta og jarsæla jramtíð i vænd-
um, nema öruggum lokum verði skotið
jyrir alla ájengisnautn. — a.