Ísafold - 16.07.1910, Blaðsíða 2
178
ISAFOLD
Hljómleikar
Arthurs Shattucks.
Hljómleikar hr. Arthurs Shattucks i
Bárubúð í fyrra kvöld voru mætavel
sóttir af bæjarbúum og mikil ánægja
að heyra hann leika á hljóðfæri sitt.
Má með sanni segja, að þar kyntust
Reykvíkingar sannnefndum meistara í
sinni grein.
Undirritaður hefir áður hlýtt á er-
lenda snillinga í píanóleik, en verður
að játa, að hr. Skattuck ber af þeim
sem gull af silfri. Leikur hr. Shatt-
ucks er svo látlaus, smekklegur, inni-
legur og fimur, að með orðum verður
ekki lýst, svo að lýsingin verði á
nokkurn hátt nákvæm og svo sann-
gjörn sem hann á skilið. Til einskis
er að fara nokkuð út í efnisskrána og
tala um einstaka liði hennar, með-
ferðin á því öllu á þar alt jafnt lof
skilið og aðdáun. Þó get eg ekki
stilt mig um að nefna sérstaklega
»Fuga* eftir Brach, lögin eftir Chopin,
Sinding og tilkomumikið preludium
eftir Rússann Rachmaninoff, en eins
og áður er drepið á, er engin leið
að gera upp á milli einstakra liða
efnisskrárinnar — þar var meistara-
bragurinn á öllu. Það var gæfustund
fyrir okkur, þegar hr. Shattuck datt
í hug að ferðast hingað, og vildi eg
óska, að honum litist svo vel á sig
hér og áheyrendur sína, að hann eins
og viss tegund himinstjarna hyrfi
hingað til lands aftur einhverntíma
eftir ekki alt of langan umferðartima.
Hr. Arthur Shattuck er sannnefnd
stjarna á músikhimni vorum.
J. Th.
Landar erlendis.
Heimspekisprófi hafa þeir lokið ný-
lega, Halldór Þorsteinsson úr
Mjóafirði með ágætiseinkunn, Teódór
Jakobsson frá Svalbarðseyri með
I. einkunn og Símon Þórðarson
frá Hóli með II. einkunn.
Ólafur læknir Þorsteinsson Tómas-
sonar, sá sem undanfarið hefir lagt
stund á eyrna- háls- og neflækningar,
er væntanlegur heim til íslands i næsta
mánuði.
Sem stendur gegnir Ólafur starfl
kennara síns, Schmiegelows pró-
ferssors, á klinik haus. Prófessorinn
er fjarverandi og hefir trúað Ólafi fyrir
læknisstarfi sínu á meðan. Er Ólafi
þar sýnt traust mikið, því að Schmiege-
low er, sem kunnugt er, frægasti og
fjöllsóttasti læknir á Norðurlöndum í
sinni grein.
Páll Egilsson er sem stendur læknir
á Sundby-spítala í Höfn.
Ásgríinur Jónsson og Þórarinn
Þorláksson málarar eru hoðnir til
Noregs í haust af Listamannafólaginu
þar til þess að halda s/ningu á verk-
um sínum. Er þetta að þakka Bjarna
Jónssyni viðskiftaráðunaut.
Viðskiftaráðunauturinn hefst við í
Höfn um þessar mundir og dvelst þar
fyrst um sinn út þennan mánuð.
Skipaferðir:
Sterling kom hingað miðvikudags-
kvöld, 13. þ. m. Farþegar: prófessor
Schoffield frá Harvard, viðskiftaráðunauts-
frú Guðlaug Magnúsdóttir, frú Ólafsson
(kona Sigurj. Ól. sn.), frú Guðrún Wat-
hne, Henriksen kaupm., Chr. F. Nielsen
umboðssali, frk. Hemmert, dr. Rannone,
Mendelssohn blaðamaður, Haraldur Sig-
urðsson hljómleikari (frá Kallaðarnesi),
Júlíus Havsteen stud. jur., Vigfús Einars-
son cand. jur. (frá Kirkjubæ) Mc. Donald,
frú Anua Bjarnason (Nic. Bj.), frú Rig-
mor Ófeigsson (kona J. Óf.), frú Helge-
sen með dóttur, bankastjórafrú Sigurðs-
son með börnum sínum, stórkaupm.
LeonH. Tang, o. fl. (útlendingar).
Biskupsvigslan á Hólum.
Hún íór fram eins og til stóð síð-
astliðinn sunnudag, að viðstöddu miklu
fjölmenni, um iooo manns.
Þrjátíu prestar sóttu vigsluna. Sira
Arni Björnsson á Sauðárkrók lýsti
vígslunni, en sira Bjarni Þorsteinsson
tónskáld stýrði söngnum.
Athöfnin hafði að öllu leyti farið
prýðilega fram. (Simfr. frá Sauðárkrók).
Heilsuhælisgjaíir og áheit.
Aíhent Sighv. Bjarnasyni féhirði
Heilsuhælisfélagsins:
Frá N. N..................kr. 16.00
Samskot frá Bárðdælum
árið 1900 .... — 118.75
Gjöf frá Hans Guðmunds-
syni, Bakkast. ... — 3.00
Frá ónefndum á Vatns-
leysuströnd .... — 22.00
Frá Súgfirðingum (sent af
sr. Þorv. Br.) ... — 15.00
Gjafir frá Hvanneyri (afh.
af Stef.kenn. Baldvinss.) — 56.75
Aheit frá ón. Reykvíking — 10.00
Gjöf frá ónefndum . . — 5.50
Gjafir frá Víðivöllum. . — 11.50
Gjafir frá Miklabæ . . — 5.00
Áheit frá Gunnari Hall-
dórssyni í Vigur . . — 5.00
Ennfr. æfitillag frá Halld.
Danielssyni yfirdómara — 200.00
Samkv. skýrslu frá Jóni Rósenkranz
lækni:
Safnað af ljósmæðrum
Ölfushrepps . . . . kr. 126.67
Samskot úr Árneshreppi
í Strandasýslu ... — 53-oo
Húsfrú Steinunn Bjarna-
dóttir, Rvík . . . . — 5.00
N. N. áheit .... — 1.00
Frá Vestmannaeyjum. . — 5.00
N. N. — 2.00
J- J........................— 2.00
L. G. Laxdal .... — 5.00
Frú Ágústa Bjarnason, Rv. — 10.00
N. N........................— 2.00
kr. 211.67
í Ártíðaskrá hælisins voru i júní-
mánuði skráðir 13 manns af 16 gef-
endum; stærst gjöf kr. 30.00. Alls
á mánuðinum kr. 111.50.
j Týndi drengrurinn.
Kvittur gaus upp um það hér
í bæ snemma i vikunni að Stefán
litli Kolbeinsson úr Hafnarfirði væri
fundinn — hafi komið sjálfur austur
að Nesjavöllum. — Eitt blað hér
(Lögrétta) sagði þetta fullum fetum.
En því miður reyndist þetta alger-
lega tilhæfulaus uppspuni — ein af
þessum sögum, sem enginn veit hvað-
an stafa, en fá þegar í stað þúsund
fætur að labba á.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði sendi
austur til að fá hið sanna að vita og
reyndist það þá svo, að enginn hafði
neitt spurt til drengsins.
Guðm. á Geithálsi biður þess getið
að Runólfur bóndi hafi komið þang-
að kl. 1 á sunnudaginn og ætlaði að
síma til Hafnarfjarðar, en síminn þá
verið lokaður.
En því hélt hann þá ekki beint til
Hafnarfjarðar — úr því að hann gat
ekki símað?
Gassýning.
Síðastliðinn þriðjudag var gastöðin
opnuð til afnota — og síðustu fjögur
kvöldin hafa gasljós og notkun suðu-
gass verið sýnd í Goodtemplarhúsinu
— fyrir almenning.
Ljósin eru falleg — hvít og róleg
og af þeim hin bezta birta.
Enn hefir fólki gefist kostur á að
HVERFISGÖTU 4 REYKJAVÍK
Nýjar vörur með s/s Sterling
Blúsur kr. 2.25 til 19.45
úr sirzi, ull, og blúnduefni.
Hálsskraut úr blúnduefni o. fl.
Vasaklútar fyi ir dömur og herra
Sokkar, mikið úrval
af öllum stærðum og verði.
Drengjafatnaður.
Karlmannsfatnaður.
Nærfatnaður
fyrir konur, karla og börn.
Stormslæður í mörgum litum.
Nýjir Mótor-hattar
í mörgum litum á 1.85.
Miklar birgðir af
VEFNADARVÖRU
góðri og ódýrri.
Hálslin,
Regnkápur,
Höfuðföt
o. m. m. fl.
er bezt að kaupa
í verzl.
Dagsbrún.
sjá gasljósin í dómkirkjunni við hljóm-
leika herra Foss. Þar var ljómandi
bjart, en ekki laust við suð dálítið frá
ljósunum.
Iþróttamót
var haldið við Þjórsárbrú 9. þ.m. Þar
talaði fyrstur Heigi Valtýsson kennari,
Einar Hjörleifsson skáld o. fl. Glím-
ur fóru fram og hlutu þessir verð-
laun: 1. Haraldur Einarsson frá Vík
í Mýrdal, 2. Ágúst Andrésson frá
Hemlu í Landeyjum, 3. Bjarni Bjarna-
son frá Auðsholti í Ölfusi. Grísk-
rómverska glímu sýndu þeir Haraldur
Einarsson og Sæmundur Friðriksson
frá Stokkseyri.
Hörmulegt slys
vildi til í Vetleifsholti í Holtum þ.
30. júní. Barn á öðru ári brendi sig
til bana.
Heiðurssam sæti
var Þórði Guðmundssyni hreppstjóra
og fyr alþingism. haldið laugardaginn
2. þ. mán. Hann lætur nú af hrepp-
stjórn, vegna heilsubilunar (augnveiki),
eftir 35 ára starf. Fjörutíu manns
voru í samsætinu, og var Þórði flutt
kvæði, er ort hafði Þorsteinn Erlings-
son, og ennfremur honum og konu
háns færðar góðar gjafir.
Kir kj uh 1 j ómleik ar
herra Júlíusar Foss fóru fram í
dómkirkjunni í gærkveldi við mesta
fjölmenni. Herra Foss er óefað mjög
dugandi orgelleikari og því mjög þess
verður, að hlustað sé á orgelspil hans.
Nánari dómur í næsta blaði.
GLIMUFOT (Trícot),
gérstaklega til báin fyrir islenzka glimn, falleg að lit, vel vöndnð. verð kr. 7.95
Þeir sem panta vilja ntan af landi sendi brjóst- og innanfótarm&l.
Verzl. DAGSBRÚN, Revkjavík.
Kviknað í húsi.
Undif kl. 10 árd. í dag kviknaði í
vinnustofu kaupm. Jónatans Þorsteins-
sonar, en varð slökt samstundis eða
þvi sem næst, án þess til þyrfti að
kalla slökkviliðið. Glerloft var í stof-
unni og sprakk víða, og féll í höfuð
kaupmanni, svo að hann meiddist til
skemda. Upptök eldsins ókunn.
Hákarlaskip ferst.
12 menn drukna.
Hákarlaskipið »Kjærstine«, eign
Gránufélagsins á Oddeyri, sem lengi
hefir þótt uggvænt um að hafi farist,
er nú talið vist að hafi týnst í veðr-
inu mikla 7. júui, þegar öðrum skip-
um nzrðra var hætt og tveir menn
druknuðu af einu (á Siglufirði). Skips-
báturinn hefir fundist, talsvert brotinn.
Skipshöfnin var þessir 12 menn:
1. Jóbann Jónsson, Litla-Árskógi (sbipstj.)
2. Arngrímur Jónsson, Jarðbrú.
3. Q-nnnl. Jóbannsson, Litla-Arskógssandi.
4. Jakob JónSBon, Birnunesi.
5. Jóh«.nn Jóhannsson, Litla-Árskógssandi.
6. Jóhann Þorvaldsson, Árbakka.
7. Jón Friðriksson, Tjarnargarðshorni.
8. Jón Sk&rphéðinsson, Litla-Árskógssandi.
9. Ólafur Jónsson, Litla-Arskógi.
10. Sigurbjörn Gissursson, Hjalteyri.
11. Sigurpáll Guðmundsson, Hauganesi.
12. Stefán Hansson, Hauganesi (stýrim.)
Þúsund ára hátíð
Svarfdæla.
Svarfdælir héldu hátíð mikla 26. júuí
1910, í minniugu þess, að nú hefir sveit
þeirra verið bygð i 1000 ár.
Vestri fór þann dag aukaferð frá
Akureyri og kom til Dalvíkur með hátt
á annað hundrar farþega.
Hátíðarsvæðið var á slóttum velli nær
Böggversstoðum, hliðið á svæðinu skreytt
og áletruð nöfn landnámsmanna, frum-
byggja dalsins.
Stundu eftir hádegi hófst skrúðganga
af vestanverðum Böggversstaðasandi og
inn á hátíðarsvæðið. Hornaflokkur Akur-
eyrar lék l broddi fylkingar. Syslu-
nefudarmaður (Gísli Jónsson á Hofi)
sté fyrstur í ræðustólinn og setti hátíð-
ina, þá flutti síra Stefán Kristinsson á
Völlum guðsþjónustu, þá mintist síra
Kristinn E. Þórarinsson Svarfaðardals,
þá Sigurjón læknir frá Ásgerði íslands.
Þá flutti Kl. Jónsson landritari ræðu,
og bar Svarfdælum kveðju ráðfférra ís-
lands. Þá flutti ræðu H. Hafstein
bankastjóri.
Glímur og kapphlaup voru s/nd, en
sund ekki, með því að veður var kalt
og hvast. Þá var sungið. Og enn töl-
uðu Vilbjálmur Einarsson bóndi á Bakka,
Matth. Jochumsson og Normann Han-
sen, augnlæknirinn danski, nokkur hl/-
leg orð til landsins og um hátíðina.
Þá var dans með lúðraþyt. S/ndur
fyrst þjóðdansins íslenzki, v i k i v a k i.
Hátíðin stóð fram undir miðnætti.
Landsyfirréttaryiðureignin.
Til ritstjóra ísafoldar.
I grein með fyrirsögn »Landsyfirrétt-
arviðureignin« í síðasta tölubl. ísafoldar I
2. þ. m., segist þér, hr. ritstjóri, hafa
heyrt alveg nyverið, að eg hafi í vetur
tekið þátt í Fram-æsingafundinum einum,
og meira að segja greitt þar atkvæði
með tillögu, er byrjaði á þessum orðum:
»Af því að nú er e k k i 1 ö g I e g gæzlu-
stjórn starfandi í Landsbankanum«, og
sé þetta satt, hafi eg bundið mig opin-
berlega í máli, sem eg hafi vitað, að eg
ætti að gefa úrskurð um í dómarasæti
skömmu síðar, — gert það á ð u r en eg
var búinn að heyra ástæður þær, er fram
voru færðar fyrir réttinum.
Þessi söguburður, sem yður finst eigi
rétt að dylja lesendur yðar, er rangur,
og þá auðvitað einnig þær ályktanir, er
þér leiðið af honum. Eg hefi ekki verið
á neinum Fram-fundi í vetur og ekki á
neinum æsingafundi. En eg var á kjós-
endafundinum í Templarahúsinu 8. febr.
í vetur; sá fundur var eigi boðaður af
félaginu Fram og ekki boðaður sem
flokksfundur, en allir kjósendur í mið-
bænum og vesturbænum, hvort sem þeir
voru í nokkrum flokki eða ekki, áttu
kost á að koma þar, og eg er einn af
þeim kjósendum. Fuudurinn fór fram
með stillingu og alvöru, og eg sá þar
engan mann æstan ; það er því rangt að
kalla fundinn œsingafund, því að það
eitt, að þar var samþykt ályktun, er
gekk á móti ráðherranym, getur eigi
réttlætt það að velja honum þetta nafn.
Þá er það og rangt, að eg hafi greitt
atkvæði á fundi þessum, því eg tók eng-
an þátt í umræðum þar, nó atkvæða-
greiðslu.
Þessa leiðréttingu verð eg samkv. til-
skipun um prentfrelsi 9. maí 1855, 11.
gr., að krefjast að þór birtið í öðru af
tveimur næstu tölublöðum ísafoldar.
Reykjavík 5. júlí 1910.
Halldór Daníelsson.
Athugas.
Ekki þarf neinum blöðum um það að
fletta, að sami er fundurinn, sem ísafold
á við og hr. H. D. Hann kallar hann
aðeins öðru nafni. Vór höldum fast við,
að fundur sá hafi verið æsingafundur,
sem til var stofnað af Fram-liðinu, hvað
sem nafninu líður. Og vér höldum þvl
einnig fram, að viðkunuanlegra hefði
verið, að hr. yfirdómarinn stöðu sinnar
vegna hefði eigi s/nt sig í þeim fólags-
skap. Hinn yfirdómarinn, hr. Jón Jens-
son hélt sig alveg fyrir utan fundahöld
þessi.
En hr. H. D. afsakar sig með því,
að hann hafi eigi tekið þátt í atkvæða-
greiðsluuni. Vór sögðum og um það
atriði, að vér tryðum því naumast.
En sögumaður vor hermir svo frá,
að hr. H. D. hafi ekki greitt atkvæði
móti fundartillögunni, sem byrjaði á
orðunurn: Af því að nú er eigi lög-
leg gæzlustjórn starfandi f Landsbank-
anum .... Eri Fram-menn töldu alla
þá með tillögunni þar á fundunum,
sem ekki greiddu atkvæði móti þeim,
eða eigi lótu sórstaklega getið þess, að
]>eir eigi greiddu atkvæði.
Gerði hr. H. D. það?
Ef ei — þá hefir hann m e ð þ ö g n-
i u n i samþykt tillöguua.
Ritstj.
------•*-----
Heimsmeistari i hneíleiknm.
Sigur Svertingjans.
Víg og óeirðir.
----- Kh. 7. júlí 1910.
í fyrra dag fór fram bardagi í
Ameríku milli Svertingjans Johnsons
og hvíts manns Jeffries að nafni —
og var þar verið að berjast um hvor
meiri væri i hnefleikum. Johnson
þessi er sem stendur heimsmeistari
i þeirri íþrótt, en hinn hafði verið
það áður, en var hættur fyrir nokkr-
um árum að fást við hnefleika, án
þess að vera sigraður af nokkrum.
Seinna varð Svertingi þessi heims-
meistari og nú var Jeffries fenginn til
þess að fást við hann með því móti,
að hann fengi stórfé hvort sem hann
ynni eða tapaði. Sú glima fór fram
í fyrra dag og henni lauk svo, að
Svertinginn bar hærra hlut.
Út af þessum sigri hafa orðið skærur
miklar viðs vegar í Ameríku og Af-
ríku, milli hvítra og svartra manna,
og hafa hvítir menn oftast átt upp-
tökin, þótt leitt sé til að vita, og
ráðist á saklausa Svertingja, ofsótt þá
og drepið. í ýmsum borgum í Ame-
ríku, jafnvel í New-York, hefir slegið
í bardaga á götum úti milli hvitra
manna og svartra og heiftin verið
geisileg á báða bóga. Hafa hundruð
manna fallið af hvorumtveggja og
fangelsin fylst af óróaseggjum.
í Suður-Afríku hefir lika horið á
þessum óeirðum milli kynflokkanna—
og víða hefir verið bannað að sýna
lifandi myndir af viðureign þeirra
Johnsons og Jeffries til þess að æsa
eigi upp fólkið.
Reykjavikur-annáll:
Arthur Shattuck, pianésnillingurinn, fer
heðan úr bænum á morgun og ætlar að
ferðast til Geysie og Gullfoee og eiðan
norður Kjöl til Aknreyrar. Þaðan fer
hann svo á skipi til Kaupraannahafnar. —
Með hr. Shattuck er vinur hane einn, Rogers
að nafni, organisti frá Albany i Bandarik-
junum. Hann fer og norður með honum.
Oánir: Guðfriður Ólafsson, 66 ára. Dó
i L&ndakotsnpitala 2. júli.
Hólmfriður Kr. Signrðardóttir, ekkja frá
Bíldudal, 50 ára. Dó i Landakotsspitala 9.
júli.
Margrét Einarsdóttir sjúklingur á Kleppi,
43 ára. Dó 9. júli.
Helgi Jónsson þurrahúðarm. Lindarg. 16,
53 ára. Dó 11. júli.
Guðsþjónusta: 1 dómkirkjunni: kl. 12
sira B. J. Kl. 5 dómkirkjuprestur.
í frikirkjunni: hádegismeesa.
Hjúskapur: Jón Ófeigsson cand. mag. og
ym. Rivmor Julie Frederikke Schulz. Gift
14. júli.
Hljómleikakonurnar frú Ásta Einarsson og
frú Yalborg Einarsson fara til Jsafjarðar
með Flóru í dag og ætla að efna þar til
hljómleika.
Prófessor Schoffield, íslenzkukennari við
Harvardháskólann, kom hingað á Sterling,
og ætlar að ferðast eitthvað um landið 1
sumar.
Skautafélag Reykjavikur ætlar i skemti-
ferðalag á morgun upp að Mógilsá. Lagt
verður af staðfrá Lækjartorgi kl. 9 árdegis.
Launakrafa
Kristjáns Jónssonar, sem hann hefir
gert gagnvart bankastjórum Lands-
bankans um útborgun á gæzlustjóra-
launum frá nýári, var útkljáð fyrir
yfirrétti síðastliðinn mánudag, og þann
veg, að honum bæru launin.
Við öðrum úrslitum var ekki að
búast eftir dómsúrslitin í úrskurðar-
málinu um daginn. Úr því að yfir-
dómur taldi manninn löglegan gæzlu-
stjóra, hlaut hann einnig að dæma