Ísafold - 22.10.1910, Side 3
ISAFOLD
263
Þingmálafundir
í Árnessýslu.
Þingmenn Árnesinga Hannes ÞorsteinB-
son fyrv. ritstj. og Sigurður Sigurðsson
ráðunautur, hafa haldið nylega tvo þing-
málafundi í kjördæmi sínu, við Ölfusár-
brú og á Húsatóftum á Skeiðum.
Hór fara á eftir fundargerðir á þess-
um fundum.
I. Ölfusárbrúarfundurinn.
Hann sóttu um 60 kjósendur. Fundar-
stjóri var valinn Eggert bóndi Benedikts-
son í Laugardælum, en fundarskrifari
síra Ólafur Magnússon í Arnarbæli. ,
1. Til umræðu var fyrst tekið sjálf-
stæðisinálið. Svohtjóðandi tillaga kom
fram < því frá Hannesi Þorsteinssyni
alþm :
Fundurinn er eindreginn þeirrar skoð-
unar, að þjóðinni sé eigi scemandi að
hvika í nolckru frá sjálfstœðis- og rétt-
arkröfum landsins gagnvart Danmörku
i sambandsmálinu, og leggur sérstáka
áherzlu á, að alþingi stígi ekkert spor
í þá átt, er gœli orðið til hnekkis fullu
sjálfstœði landsins í framtiðinni; telur
öldungis ótælct að viðurkenna stöðulög-
in sem þann grundvöll, er þingið megi
á nokkurn hátt byggja á ilöggjöf sinni,
og telur œskilegt að gerð verði endur-
skoðun á stjórnarskránni, og verði und-
irbuin sem rœkilegast á nœsta þingi;
en bráðabirgðar kákbreytingar því að
eins tiltœkilegar, að af þeim stafi eng-
inn réttarspillir á afstöðu vorri gagn-
vart Dönum i sjálfstæðismáli þjóðar-
innar.
Samþykt með samhljóða atkvæðum.
Ekkert á móti.
2. Skattamál. Eftir nokkrar um-
ræður var samþykt, að kjósa fimm manna
nefnd, til þess að íhuga skattamál lands-
ins og gera um þau tillögur síðar. Þess-
ir voru kosnir í nefndina: Si'ra Ólafur
Magnússon < Arnarbæli, Eggert Bene-
diktsson < Laugardælum, síra Gísli Skúla-
son á Stóra-Hrauni, Helgi Jónsson kaup-
fólagsstjóri á Stokkseyri og Guðmundur
Sigurðsson verzlunarmaður á Eyrarbakka.
3. Aðflutningsbann. Samþ. þessi
tillaga (frá sr. Ólafi í Arnarbæli):
Fundurinn skorar á alþingi að halda
fast við gjörðir síðasta alþingis að þv<
er snertir lögbann á innflutningi áfengis,
og hvika í engu frá þeirri stefnu, hvorki
með frestun bannlaganna, nó tilslökun
á þeini, þótt hagfelt kynni að þykja að
breyta einstökum atriðum þeirra. —
Samþykt með litlum atkvæðamun.
4. Fjármál. Fundurinn skorar á
þingið að sjá einhver heppileg ráð til
að fá fó inn < landið með sem allra bezt-
um kjörum, sórstaklega til nauðsynlegra
og arðberandi fyrirtækja.
5. Landbúnaðarmál.
a. Fundurinn skorar á búnaðarfólag
íslands að hraða svo undirbúningi Flóa-
áveitnmálsins, að það geti lagst fyrir
næsta þing.
b. Funduriun álítur, að smjörbúin
megi ekki enn sem komið er við því að
vera Bvift landssjóðsstyrknum, og skorar
á alþingi að lækka ekki þennan styrk
fyrst um sinn.
C. Fundurinn skorar á alþingi að
auka styrkinn til búnaðarfélaga.
d. Fundurinn skorar á þingmenn
sína að hlutast til um, að næsta þing
skipi ullar-vöru-matsmenn á líkum grund-
velli og fiskimatsmenn.
6. Saingöngur á sjó. Fundurinn
telur þeim samgöngum á sjó, sem verið
hafa í sumar með Buðurströndinni, mjög
ábótavant, og skorar á Landsstjórnina
að hlutast til um, að þeim verði komið
< betra horf.
7. Sanigöngur á landi.
a. Fundurinn skorar á alþingi að
nema úr lögum skyldu Árnessýslu til
þess að halda við aðal þjóðbrautinni
gegnum sýsluna. Ennfremur að brúað-
ar sóu þær tvær ár < Ölfusinu, sem eru
óbrúaðar; og hinar tvær brýrnar þar
endurnýjaðar.
Loks, að ruðningurinn undir Ingólfs-
fjalli só lagður niður, sem vegur, en <
þess stað komi bein braut frá Kögunar-
hól niður á holtið ofan við Ölfusárbrú.
b. Fundurinn skorar á alþingi að sjá
um, að fjárveiting til Grímsnessbrautar-
innar verði tekin upp á fjáraukalög fyr-
<r árið 1910 svo að ekki verði hló á
brautargjörðinni.
C. i undurinn telur afhendingarákvæði
nugildandi vegalaga ótæk, og skorar á
alþingi að breyta þeim og láta nýja af-
hendingu fara fram.
d. Fundurinn skorar á alþingi að
binda styrkinn til póstvagnferða þv<
skilyrði, að póstvagninn gjsti í báðum
leiðum við Ölfusárbrú og fari þaðan kl.
9 að morgni dags á báðum leiðum, og
hafi að öðru leyti eins fastákveðua áætl-
un og framast er unt.
8. Heilbrigðismál (tillaga frá sfra
Gfsla á Stórahrauni);
a. Fundurinn skorar á alþingi að
veita styrk alt að 2500 kr. til spítala-
stofnunar austanfjalls fyrir suðurlands
undirlendið.
b. Fundurinn skorar á alþingi að
stofna lögbundna sjúkrasjóði og gjöra
öllum jafnt að skyldu að tryggja sig í
þeim.
Samþykt með litlum atkvæðamun.
Undir fundarlok urðu nokkrar um
ræður um hvenær næsta alþingi kæmi
saman. »Loks var borin upp svofeld
tillaga frá Jóh. V. Daníelssyni: Fundur-
inn skorar á ráðherra að kalla næsta
þing saman á róttum tima. Tillagan
feld.í1
II. Húsatóftafundurinn.
Hann sóttu um 30 kjósendur. Fund-
arstjóri var Ágúst Helgason bóndi <
Birtingaholti, en skrifari síra Kjartan
Helgason í Hrtina. Flestallar tillögurn-
ar er samþyktar voru á Ölfusárbrúar-
fundinum voru einnig bornar upp og
samþyktar á Húsatóftarfundinum. Þar
á meðal tillaga H. Þ. < s a m b a n d s
m á 1 i n u, og tillagan < aðflutningsbanns-
málinu, er var samþykt með 18 atkv.
gegn 7. Eti auk þeirra, voru samþ. á
fundinum á Húsatóftum þessar tillögur.
Peningamál. Fundurinn skorar á
alþingi, að sjá einhver heppileg ráð, til
að fá fé inn í laudið með sem allra
beztum kjörum, sórstaklega til nauðsyn
legra og arðberandi fyrirtækja, og séu
umráð þess fjnr algcrlega í höndum
landsmanna sjalfra.
Eftirlann. Fundurinn sltorar á þing-
menn kjördæmisins að gera sitt ýtrasta
til, að eftirlaunalögum embættismanna
verði breytt þannig á næsta þingi, að
ekkert embætti verði veitt framvegis
með eftirlaunarótti.
Járnbrautarlagning. Fundurinn skor
ar á alþingi að veita fó til þess að rann-
sakað verði til hlýtar járnbrautarstæði
frá Reykjavík austur yfir heiðar.
Nefnd var kosin eins og á Ölfusár-
brúarfundinum til að íhuga skatta-
m á 1 i n. Kosningu < haua hlutu : Ágúst
Helgason < Birtingaholti, síra Ólafur
Briem á Stóra-Núpi, Guðm. Lýðsson í
Fjalli, Böðvar Magnússon Laugarvatni
og Þorf. Þórarinsson Spóastöðúm. Á
þessum fundi kom einnig næsta þing-
hald til umræðu, en menn vildu
enga ályktun gera um það mál.
Á báðum fundunum hafði aðskilnaður
ríkis og kirkju komið til umræðu, en
engin tillaga hafði komið fram < því
máli. Þó talið víst að fundirnir, (eða
meiri hluti þeirra) hafi verið fylgjandi
skilnaði.
Þessir þingmálafuudir sem eru þeir
fyrstu — að minsta kosti sem greinileg-
ar fréttir eru komnar af — er haldnír
eru fyrir næsta þing, eru sórstaklega
eftirtektaverðir fyrir þetta: 1 a ð kjós-
endur vilja eindregið og hiklaust vernda
róttindi og fult sjálfstæði landsins, og
hopa ekki minstu vitund á hæl fyrir
Dönum í sjálfstæðisbaráttunni, 2 að
þeir vilja sýnilega gefa stjórninni alveg
< sjálfsvald hvenær hún kallar saman
næsta þing. 3 a ð þeir vilja halda fast
við gerðir sfðasta þings < aðflutnings-
bannsmálinu, og 4 a ð þeir virðast álíta
bankamálið — sem minnihlutinn
gerði hæztann hvellinn út af — smá-
mál, eins og það í raun og veru er, þvi
um það var engin ályktun gerð.
!) Þessi tillaga ásamt afdrifum hennar,
er tekin orðrótt upp úr fundargerningn-
um; er < honum skrifuð skýrum stöfum
með bleki, og undirskrifuð af fundar-
stjóra og skrifara.
Minnihlutablöðin fara því eigi með
rótt mál er þau segja að tillaga þessi
hafi ekki verið feld. Það er hægt að
sanná það með nægum vitnum að hún
var f e 1 d eins og fundargerðin skýrir
frá.
Þjóðólfur segist flytja fundargerðina
»orðrétt«, en hann gerir sér litið fyrir
og klippir aj henni halann.
Reykjavikur-annáll:
Aðkomumenn síðusta viku: Sira Sigurð-
ur GunnarsBon Stykkishólmi. Sira Ólafur
Magnósson Arnarhæli, Tómas hreppstjóri
Sigurðsson Barkarstöðum o. fl.
Dánir: Sira Hjörleifur próf. Einarsson,
13. okt.; Jón Guðmundsson tómthúsmaður
Brunnholti 73 ára, 15. okt.; Arni Jónsson
72 ára, 16. okt.
Fasteignasala. Þingl. 20. okt.
Guðjón Jónsson járnsmiður selur Gunn-
ari kaupm. Gunnarssyni, Hafnarstræti 8,
húseign nr. 9 við Yitastig með tilh. Dags.
15. okt.
Landsbankinn selur Sveini Magnúsi Hjart-
arsyni hakara húseign nr. 1 við Bræðra-
borgarstig. Dags. 10. okt.
Sami selur Halldóri Högnasvni Njálsgötu
52 og Jóni skipstjóra Magnússyni Yestur-
götu 36 húseign nr. 67 við Laugaveg með
tilheyrandi. Dags. 10. okt.
Guðsþjónustur i dómkirkjunni á morgun:
Hádegismessa: sira Bjarni Jónsson.
Siðd. (kl. 5) cand. theol. S. Á. Gislason.
Frikirkjunni kl, 12 frlkirkjupresturinn.
Hjálpræðisherinn biður þess getið, að
»sjálfsafneitunarvika« sin sé frá 23.—30. þ
m. Vonast hann eftir að fólk vilji »láta
eitthvað af hendi rakna til þeBS að ljós-
geislar kærleikans geti i verkinu seilst til
þess fólks, sem að öðrum kosti mundi verða
ljósvana bæði hið innra og ytra.«
•Vilji fólk gefa til einhverrar sérstakrar
starfsgreinar, verður tillit tekið til þess.«
Hjúskapur: Geir Guðmundsson frá Geir-
landi Vestmanneyjum og ym. Guðrún Pét-
ursdóttir, gift 15. okt.
Óskar Lárusson verzlunarm. Ingólfsstræti
3 og ym. Anna Sigurjónsdóttir, gift 15. okt.
Sveinbjörn Oddsson prentari og ym Vik-
toría Ingibjörg Pálsdóttir Nýlendugötu 13,
gift 16. okt.
Jón Björnsson kaupm. og ym. Jakobina
Sigurveig Guðmundsdóttir frá Grjótnesi á
Sléttu, gift 16. okt.
Arent Claessen verzlunarm. og ym. Helga
Kristin Þórðardóttir Tjarnargötu 3, gift 20.
okt.
Jörundur Brynjólfsson kennari og ym.
Þjóðbjörg Þórðardóttir Nýlendugötu 23,
gift 20. okt.
Jakob Guðjón Bjarnason vélastjóri og
ym. Guðrún Sesselja Ármannsdóttir Berg-
staðastræti 66, gift 21. okt.
Rausnarleg gjöf til Heilsu-
hælisins. Guðrn. landlæknir
Björnsson skýrir frá því í síðasta tbl.
Lögréttu, að íslenzkur maður vestur i
Washington í Bandaríkjunum, að
nafni Guðm. Magnússon, hafi sent
Heilsuhælinu á Vífilsstöðum ioo kr.
að gjöf, og loforð um að gefa því
ioo kr. árlega æfilangt. Gjöf þessi
og loforð, er stórhöfðinglegt, um leið
og það lýsir hugarþeli gefandans til
ættjarðar sinnar.
Uppboð! Uppboð!
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu
og byrjar föstudaginn 28. þ. m. kl. 11 árdegis.
Selt verður töluvert af nýrri álnavöru o. fl. sem hefir blotnað dálítið
á leið hingað til lands, t. d.:
Flonei — Tvisttau — Hálsklútar — Prjónapeysur
Prjónagarn — Hnndklæði — Slöraefni o. m. fl.
^ Dömur, munið að fjölmenna! %
Búsáhöld - Eldhúsgögn
ýmis konar: þar á rneðal JLampar og Lampaáhöld, Taurullurnar
frægu, Olíumaskínur, Sprittmaskíuur, Gaspottar o. m. fl. er
nýkomið með »Sterling« til
verzl. B. H. Bjarnason.
Viljið þið
ekki nota góða og
hreina sápu.l Minar ven*
julegu sápur, sem skemma
engu minna en þær hreinsa,
eru ekki taldar í húsum
hæfar, þar sem Sunlight
sápan hefir einu
sinni verið reynd.
1691
Dans
Við undirritaðar kennum dans (börn-
um og fullorðnum) í Iðnaðarm.húsinu
í næstk. nóvember og desembermán.
Nánari upplýsingar gefur Stefanía
Guðmundsdóttir, Laugaveg 11. Heima
kl. ii-
-i.
Guðrún Indriðadóttir,
Stefanía Guðmuudsdóttir.
JTlafsöfufjúsið
Tfverfisgöfu 2B
selur mönnum gott fæðí með sann-
gjörnu verði. — Miðdagsborð frá
12—4. Einstakar máltíðir seldar.
Þorkell Þorláksson
gjaldkeri
er fluttur í Austurstræti nr. 5, hús
Tílufavelfa
til ágóða fyrir Fríkirkjuna í Reykja-
vík verður haldin í Iðnaðarm.húsinu
laugardaginn 29. og sunnud. 30. þ.m.
Þeir sem styrkja vilja þetta fyrirtæki
með gjöfum, eru vinsamlega beðnir að
koma þeim til undirritaðra eöa í Iðn-
aðarm.húsið föstudaginn 28. þ. m. í
síðasta lagi.
Ætlast er til, að allir þeir sem unna
Fríkirkjunni styðji þessa hlutaveltu
með gjöfum og annari hluttöku.
Guðrn. Gíslason Laugaveg 12, frú
Þorbjörg Þórðarson Þingholtsstræti 1,
Filippus Amundason Bergst.stræti 30,
Sigríður Jónsdóttir Grettisgötu 46,
Kristján Jónsson Laugnveg 38, Rann-
veig Sigurðardóttir Vesturgötu 32,
Sighvatur Brvnjólfsson Bergst.str. 26 B
Olöf Þorsteinsdóttir Laugaveg 39,
Guðrún Olafsdóttir Bræðraborgarstíg,
Halldór Olafsson Nýlendugötu, Þórð-
ur Narfason Nýlendugötu.
Málaravörur
ýmiskonar, þar á meðal
Zinkhvltan góða
og Málarapenslar, er nú komið aftur
með »Sterling« til
verzl. B. H. Bjarnason.
Eldfæri.
Undirritaður hefir til sölu nokkra brúk-
aða ofna og eldavélar.
K. Ziinsen.
Chika
er áfengislaus drykkur og hefir beztu
meðmæli.
Ólafs Sveinssonar gullsmiðs. Inn-
gangur í vesturenda hússins).
Alþýðufræðsla Stúdentafélagsins:
Fyrirlestur i Iðnaðannannahúsinu
sunnudaginn 23. þ. m. 1910 kl. 5 e. h.
Matthías fornmenjavörður Þórðarson
talar um: skáldskap Islendinga í jornöldi
II. Á 10. og 11. öld.
Inngangseyrir ioaurar.
Undirrifuð kermir
Guifarspií.
figústa TUagnúsdóffir,
í bókaverzl. Sigf. Eymundssonar.
Gœrur og haustull
er keypt i verzlun
Jóns Þórðarsonar.
Inngangur frá Ingólfsstræti.
L oðkápa,
ný og falleg, með sæljónskraga, fóðr-
uð með Bicamskinni, fæst með góðu
verði í Njálsgötu 16; er of stór eig-
anda.
Martin Jensen,
Kjöbenhavn.
'
Beztu ávextirnir
% # % í borginni.
PERUR, E P L I,
V I N B E R
komu með »Sterling« til
verzl. B. H. Bjarnason.
Þakkarávarp.
Þegar eg undirritaður varð fyrir þvi
slysi í sl. Apríl, að fótbrotna á botn-
vörþungnum »Valur«,urðu góðir menn
til að rétta mér hjálparhönd. Það yrði
oflangt mál að telja upp nafn hvers
einstaks, þvi alt verkafólkið í Viðey,
ásamt félögum mínum á »Valnum«,
hljóp undir bagga og skaut samán
yfir 90 kr., er mér voru færðar sem
gjöf.
En forgöngumennina fyrir þessari
hjálp og samskotum vil eg nefna, og
voru það þeir hr. Ólafur Briem ráðsm.
í Viðey, Sveinbjörn Egilsson og Árni
Jónsson yfirmenn þar, og skipstjórinn
á »Valnum«, hr. Hrómundur Jóseps-
son. Þessum heiðursmönnum, er
reyndust mér hver öðrum betur, ásamt
öllum þeim, er hluttöku áttu í gjöf-
unum, færi eg hér með mitt innileg-
asta þakklæti.
Reykjavík l8/10 1910.
Eyvindur Eyvindsson.
Kartöflur, Laukur
og alls konar Kryddvörur, beztar
og ódýrastar í
verzl. B. H. Bjarnason.
vönduð og fjölbreytt, sömul. mikið
úrval af fataefnum í verzlun
H. Andersen & Sön.
Jarðarför mfns elskaða eiginmanns, Jóns
Guðmundssonar, sem andaðist hér i bœnum
15. þ. m„ fer fram miðvikudaginn 26. þ. m.
að heimili hans, Brunnholti við Brekkustig.
Sigriður Jónsdóttir.
Rlómlauka, svo sem Hyacinter,
Tulipaner o. s. frv. selur Ragnheiður
Jensdóttir, Laufásveg 13.
1 stofa til leigu í Tjarnargötu 3.
Stúlka óskar eftir vist. — Afgr.
visar á.
Sjal í óskilum í dómkirkjunni.
Arni Arnason, Laugaveg 46 A.
Stúlka óskast sem allra fyrst
til Halldórs Guðmundssonar rafmagns-
fræðings, Vesturgötu 25 B.
Handavinnukensla mín hófst
1. október. Mig verður að hitta í
Pósthússtræti 14 til siðustu daganna í
þessum mánuði, eða þá á Laugavegi
11 (gengið inn af Smiðjustíg).
Kristjana Markúsdóttir.
Hér eftir skrifa eg nafn mitt
svo: Helgi Þórðarson Steinberg.
Verkmannafélagið Dagsbrún
heldur fund sunnud. 23. þ.m.
kl. 6 síðd. í Bárubúð.
Ágætt lierbergi með götudyra-
inngangi til leigu. Riistj. visar á.
Leiðbeining
fyrir þá, sem skifta við Aburðarfélag
Reykjavíkur:
Hreinsunum
verður hagað þannig:
Mánud.: Skuggahverfið fyrir neðan
Laugaveg.
Þriðjud.: Laugavegur allur og hús
þar fyrir ofan.
Miðvikud.: Bærinn fyrir ofan Þing-
holtsstræti að meðtöldum Skóla-
vörðustig.
Fimtud.: Þingholtin niður að Læk.
Föstud.: Miðbærinn frá Læknum
að Aðalstræti og Tjarnargötu.
Laugard.: Vesturbærinn að með-
töldu Aðalstræti og Tjarnargötu.
Húsráðendur eru ámintir um að hafa
opinn aðgang að salernunum frá
kí. 9 að kvöldi þess dags, sem á
að hreinsa.
Hreinsunarseðlar
eru seldir hjá:
kaupm. Jóni Helgasyni frá Hjalla,
Þorsteini Sigurðssyni Laugaveg 22,
kaupm. Jes Zimsen,
kaupm. Einari Amasyni Aðalstræti 8,
Talsímanúmer
ökumannsins er 32,