Ísafold - 30.03.1912, Page 1

Ísafold - 30.03.1912, Page 1
Kemui út fcvisvttr i vibu. Verð árg. (ÖO arkir minst) 4 kr. erlendia 5 bi» eða llj* dollar; borgist fyrir miðjan júl» (©rJ.enAia fyrir fram). ISAFOLD UppsOgn (abrideg) bundin vib áramót, ev ógilð nema komin »é til útgefanda cfyvix 1. okt. ng aaapandi flknldlaua viö blabiö AfgreiÖala: Auataratrnti 6. XXXIX. árg. Reykjavík 30. marz 1912 21. tðlublað I. O. O. P. 93549 Alþýöufél.bókasttín Pósthússtr. 14 kl. 5—8. Augnlækning ókeypis í Lækjarg. 2 mvd. 2—3 Borgarstjóraskrifstofan opin virka d»ga 10—8 Bsffjarfógotaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12 8 og 6 7 Eyrna-,nef-og hálslækn. ók. P0stb.str.14A fíd.2 3 ífllandsbanki opinn 10—2 4/s og 5l/»—7. K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 Ard.—10 söd. Alm. fundir fld. og sd. 8 */s siödegis. Landakotskirkja. Guösþj. 8 og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5 Landsbankinn 11-2lla, Bi/s-61/*. Bankastj. viö 12-2 Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—3 Landsbúnabarfólagsskrifstofan opin trá 12—2 Landsfébiröir 10—2 og 5—6. Landsskjalasafnib bvern virkan dag 12—2 Landsiminn opinn daglangt [8—0] virka daga, belga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str. 23 þd. og fsd. 12—1 Náttúrugripasafn opiö l1/*—2»/s á sunnudögum Stjói-narráösskrifstofurnar opnar 10—4 daglega. Talsimi Reykjavíkur (Pósth. 8) opinn daglangt (8—10) virka daga; belga dagn 10—9. Tannlækning ókeypis Póstb.stÆ. 14B md. 11—12 Vifilsstabahælið. Heimsóknartimi 12—1. Þjóömenjasafniö opið á sd., þrd. og fmd. 12—2 Tliðurjöfnunarshráin 1912 fæst hjá bóksölum. Verð: 25 a. Bæjarshrá Heijhjavíhur er ómissandi handbók fyrir hvern mann. Fæst hjá bóksölum. Verð kr. 1.50. Sigur sj álfstæðissteftmnnar. Eins og ísaf. hefir áður skýrt frá, flutti Guðm. Hannesson prófessor er- indi um það mál á stúdentafélagsfundi 15. marz síðastl. Hér fer á eftir ofur- lítið ágrip af því erindi, sem væntan- lega verður síðar prentað annarstaðar í heild sinni. Ræðum. gerði ráð fyrir, að sumum kynni að þykja kynlegt, að talað væri um sigur sjálfstæðisstefnunnar eftir siðustu kosningar, og þegar Danir væru að steyta hnefann framan í okkur. Samt sem áður hafi sjálfstæðisstefnan unnið glæsilegan sigur, en innlimunar- stefnan orðið landræk. Skilgreining ræðumanns á »innlim- un< og »sjálfstæði« var sem hér segir: »Innlimun tel eg það, ef landið er danskur ríkishluti. Danir hafa þá æðsta valdið yfir landinu, sjálfstjórn vor er oss veitt af þeim, án þess að vér hefðum réttarlega kröfu til henn' ar. Um önnur landsréttindi er þá ekki að tala en yfirráðin yfir sérmál- unum og þau undir umsjón og eftir- liti Dana. Sjálfstceði eða fullveldi er það, ef landið er utan danska ríkisins sem sérstakt, sjálfstætt ríki með æðsta valdi yfir öllum sínum tnálum. Þá er sjálf- stjórn vor viðurkenning á rétti vorum, sem ekki nær eingöngu til sérmál anna, heldur allra vorra mála, einnig sameiginlegu málanna*. Þessa merkingu kvaðst ræðumaður ávalt hafa lagt í orðin; en annars hefði hún verið á reiki hjá ýmsum. Sumir t. d. kallað það eitt »innlimun«, el' sjálfstjórn í sérmálunum væri tekin a;' oss, og það »sjálfstæði«, ef vér réð- um þeim undir umsjón og eftirliti Dana. Meðan þessi ruglingur sé á merkingunni, sé nauðsynlegt að taka skýrt fram, við hvað sé átt. Ræðum. rakti því næst nokkuð sögu sjálfstæðishugsjónarinnar síðan 1903. Þá var takmarkið yfirráð sér- málanna. »Danski ríkishlutinn íslanc átti að hafa sína heimastjórn í þeitn en öll önnur mál voru að sjálfsögðu dönsk og komu oss ekkert við«. Til þess að sýna, hvernig Heima- stjórnarmenn litu á málið þá, tilfærði hann þessi orð úr nefndaráliti Ed um stjórnarskrármálið: »Vér getum ekki með réttu and mælt því, að Danir hafi eftirlit með Ibgýbf vorri og stjórnarráðstöfunum að þær stofni ekki einingu ríkisins hættu eða misbjóði jafnrétti ríkisborg aranna«. Ríkisráðssetan var talin hættulaus vegna þess að ráðherra hefði »sérstöðu« í ríkisráðinu. Sérmál vor væru í raun og veru ekki undir danska ríkisráðið lögð. Vér réðum þeim eigi að síður. Þessu mótmæltu Landvarnarmenn einir. Samt var aðaltakmark þeirra íið sama og annarra. Þeir mótmæltu ekki ríkisráðssetunni af því að hún riði í bág við ríkisréttindi landsins, íeldur að eins vegna þess, að sérmál vor kæmust með þeim hætti undir dönsk yfirráð, sérmálaráðherrann yrði með þessu blátt áfram danskur ráð- rerra með ábyrgð fyrir rikisþinginu. Ræðum. sýndi með ýmsum tilvitn- unurn úr Landvarnarblaðinu Ingólfi, að þann veg hefðu Landvarnarmenn á þeim tíma litið á málið. 1904 fer sjálfstæðiskröfunni að bregða fyrir. En hún kemur ekki að fullu fram fyr en 1905 í Norðurl. í fyrirlestrum, sem blaðið flutti, eftir G. H. Hér syðra vakti þetta litla eftir- tekt í fyrstu. En altaf færast menn meira og meira i sjálfstæðisáttina. 1906 flytur Norðurl. rnikið af riti G. H. »í afturelding*. Sunnanblöðin verða sammála smátt og smátt, Ing- ólfur, ísafold, Fjallkonan og Þjóðólfur. Andróðurinn kemur glöggast fram í Reykjavíkinni. Ritst. segir meðal ann- ars: »Það takmark, sem allir sannir ís- lendingar stefna að, er fullkomin sjálf- stjórn Islands i sérmálum pess. Það væri beinasti sjálfsmorðsvegur að tylla oss upp sem ríki með 80.000 ibúa«. Um kröfu stúdenta í Khöfn um sér- stakan ísl. þegnrétt er sagt: »Nú hafa landvarnarmenn fundið það út, að enda pótt ísland og Danmörk séu eitt ríki, þá skuli þó vera sinn þegnréttur í hvoru landi«. Lögr. segir margt hlýlegt um sjálf- stæðishugsjónina, en samt verður ofan á að halda sér við sérmálin. Blaðið tekur það meðal annars fram, að »með orðunum frjálst sambandsland er ekki farið fram á skerðingu á rikisheild- inni«, »og yfir öllum öðrum en sam eiginlegum málum skuli landið hafa fult vald«. Þessi umbrot í hugum manna og reik á skoðunum, þrátt fyrir það, þó að mikið miði í sjálfstæðisáttina, kem- ur ljósast fram i Blaðamannaávarpinu. Það heggur nærri fullri sjálfstæðis- stefnu, en orðin svo óljós og það vantar á þau það smiðshögg, sem skýr hugsun gefur, enda misjöfn grein gerð þess í blöðunum, hvað í Ávarpinu væri fólgið. Þetta árið fóru þingmenn vorir i heimboð til Danmerkur. Bezti mæli- kvarðinn fyrir því, hve hátt allur þorri minnihlutans hugsaði, er grein Skúla Thoroddsens í »Politiken«. Þar er farið fram á þrjár kröfur og ann- að ekki, 1. að stöðulögunum sé breytt og í staðinn komi lög, sem báðir sam þykki; 2. að nafn íslands sé tekið upp í titil konungs; 3. að sérmálin séu látin íhlutunarlaus af Dönum. Þessar kröfur mundu ekki þykja ægilegar nú En 1906 fullnægðu þær flestum. 1907, Þingvallafundarárið og kon- ungskomuárið, er teningunum kastað að tullu um þjóðræðismenn. Að vísu ritar Sig. Stefánsson í ársbyrjun i ísa- fold, að »aldrei verði þjóðarsjálfstæði voru borgið, fyr en síðustu úrslit allra sérmála eru i vorum höndum«, en skömmu síðar er hann horfinn frá sérmálatakmarkinu og krefst þess, að sambandslögin »trvggi jafnrétti við Dani í sameiginlegum málurn, en ein ræði vort í sérmálunum«. Einar Benediktsson telur það tilætlun Land varnarmanna, að ísland standi undir »dansk Overhöjhed« í grein i Poli- tiken, en fekk ekki undirtektir hér heima. Nú halda 5 stærri blöðin fram ríkishugsjóninni: Norðurland, Ingólf- ur, ísafold, Fjallkonan og Þjóðólfur. Stefnan sést glögt í Þingvallafundar ályktuninni, eða enn betur í »Frjálsu sambandslandi« eftir Einar Hjörleifs- son. Lögr. segir flest hlýlega 1 garð sjálfstæðishugsjónarinnar, þó að Þing- vallafundurinn væri lastaður, sennilega af flokksástæðum. Hver þingmála- fundur af öðrum samþykti sjálfstæðis tillögur, og sjálfur kóngurinn lenti í sjálfstæðisöldunni og talaði um »bæði ríkin« á Kolviðarhóli. Aðeins eitt blað á landinu stóð eins og klettur úr hafinu. Það var Reykja- vík. Hún segir: »Verksvið vort er hin íslenzku sérmál og ekki annað«, og flytur langan og beisk-orðan rit- dóm um »í afturelding«. Þó er það auðfundið, að undir niðri og þrátt fyrir öll stóru orðin er ritstj. stefnu ritsins hlyntur. »Ef urn takmarkið er að ræða, hygg eg að enginn ágrein- ingur sé« — en hann hyggur það svo langt undan landi, að það sé þýð- ingarlaust að svo stöddu. Árið 1908 falla síðustu vígi sér- málastefnunnar. Þá er deilt þrotlaust um frumvarp millilandanefndarinnar og í þeirri deilu er fullum sjálfstæðis- kröfum haldið mjög stranglega uppi af öllum blöðum Sjálfstæðisflokksins. En öll blöð Heimastjórnarmanna verja, áður árinu lýkur, frumvarpið á þeim grundvelli, að það geri landið að sjálf- stæðu ríki. Sjálfstæða ríkið, með rétt- arlegu jafnrétti við Dani, er orðin þeirrar framtíðar hugsjón í stað yfir- ráðanna í sérmálunum. Reykjavíkin hélt fast við sína fyrri stefnu fyrsta ársfjórðunginn og segir t. d. í marz um landvarnarmenn: »011 þeirra mikla agitation um sjálfstæði og sérstakt ríki er enn sem komið er staðlaus þvættingur — tilraun til að steypa þjóð vorri út í hreina og beina æfintýrapólitík*. Fyrst þegar milli- landafrv. kom til sögunnar telur ritstj., að »fullveldið verði auðsóttara á sín- um tíma«, ef það verði samþykt, en rétt á eftir telur hann fullveldi fengið með frv. og brátt eru »heimastjórn- armenn hinir sönnu sjálfstæðismenn að dómi ritstjórans*. Hvernig sem á Uppkastið er litið, þá verður það tæplega vefengt, að síð- au hefir ekkert Heimastjórnarblað horf ið frá kröfunni um fullan ríkisrétt. Ekkert þeirra lætur sér nægja yfirráð sérmálanna undir eftirliti Dana. Ræðum. tilfærði sem dæmi orð minnihluta sambandslaganefndarinnar á þingi 1909: »Það eina, sem báðum hlutum nefndarinnar kemur saman um, er að hvorir um sig vilja, að ísland verði frjálst og sjálfstætt ríki . . . konungs- ríki jafnrétthátt Danmörku og jafn hliða hennic. Eg kalla, að þetta sé mikið, ótrú- lega mikið samkomulag. Stjórnmála- takmark allra íslendinga, að minsta kosti beggja þingflokka, er orðið hið sama: fult sjálfstæði landsins. Deilan er ekki lengur um þetta, heldur hve mikið vér af eigin full- veldi eigum að fela Dönum af málum vorum, og hve lengi, að réttarlega óskertu æðsta valdi voru yfir öllum vorum málum. Þetta er mikilsvert atriði, en tæplega svo, að það réttlæti tvískiftingu um þetta mál, sem ætíð hlýtur að styðja Dani stórum. Ef Danir væru fúsir á að semja við oss um jafnréttissamband, þá ætti það ekki að vera ofætlun ísl. þingflokkum að koma sér saman um kröfur vorar. Réttara væri, ef til vill, að krefjast þess af þeim sem sjálfsagðrar skyldu, og nota ekki lengur þetta mál til þess að keppa um völdin, er svo rnjög hefir saman dregið, og annars vegar víst, að samkomulag milli íslendinga er óhjákvæmilegt skilyrði fyrir því, að Danir láti nokkuð af hendi rakna. Að endingu veik ræðum að því, með stuttu sögulegu yfirliti, að þó að sjálfstæðisstefnan hafi risið úr dái síð- ustu árin og orðið einvöld í landinu, þá sé hún ekki ný uppfunding, held ur hin forna islenzka stefna. En síð- an 1905—06 hafi hún magnast meira en nokkru sinni áður, og ekkert lík- legra en sigur hennar á siðustu árum sé sigur að fullu og öllu, sem skifti tímabilum í stjórnmálasögu landsins. Aths.; ísafold mun innan skamms gera þetta erindi G. H. að umtalsefni. Ritstj. Mannskadasamðkutiu. Þessum samsk. hefir ísafold tekiO viö: Gfisli GuOmunds- son bókb. 5,00, 2+7 50,00, N. N. 10,00, Sigr. SigurOard, Yg. 46 2,50, Sig. Ingi- mundarson Vg. 26 2,50, Ludv.Bruun Skjald- breiö 15,00, L'bombreparti 2,00, Ónefndar 5,00, A. Andrésson SuÖurg. 10 20,00, N. N. 2,00, A. W. E. 20,00, Gh. Þ. P. 2,00 *27ísur <3slenóinga. Þegar sólin vermir um sumardag, pegar syngja fuglar í mó og lyngi, pegar fossarnir dynja frjálsan brag, pegar freyðir hafið sitt aldna lag, pá finst hverjum óspiltum Islendingi, setn létt sé af öUutn lúa’ og harmi. Þá andar svo hjartfólginn, hressandi blar yfir dal, yfir gruttd, yfir sval-köld sund og í hjarta hvers drengs og i drósar barmi. Þegar stormar aða og stynur mar, pegar storðin reyrist í klaka-bingi, pegar skálmar um himininn skýja-far, pegar skrautritar gaddur á rúðurnar pá finst hverjum óspiltum íslendingi, setn treyst sé d kraftinn í ungum armi. Þá líður frá kólgunni karltnensku-blar yfir dal, yfir grund, yfir sval-köld sund, og í hjarta hvers drengs og í drósar barmi. Þegar kreppir að pér, tnín unga pjóði pegar órlög veitast að nýgraðingi — pegar sagt er: »láttu pitt líf og blóð, eða lagðu rostann, pú veika pjóðD — pá finst hverjum óspiltum íslendingi, setn prútni aðar af helgum harmii Þá streymir frá landnámstið lýðveldisprd yfir dál, yftr grund, yfir sval-köld sutid, og i hjarta hvers drengs og í drósar bartni. B. Þ. Gröndal Erl. símfregnir. Kolaverkfallinu lóttir af. --- Kh. M/, ’12. Frumvarpið um lágmark á verkkaupi samþykt og orðið að lögum. I»ar segir, að menn, kvaddir til gerð- ar, skuli ákveða lágmarkið í einstökum héruðum. At- kvæðagreiðslu námuverk- manua verður væntanlega lokið á miðvikudag 3. apríl. Horftst vel um sættir. Konom synjað kosningarréttar á Bretlandi- I neðri málstofu parlamentisins hefir trumvarpið um að veita konutn kosn- ingarrétt verið felt. Nýr rannsóknardðmari í gjaldkeramálinu. Þau tiðindi gerðust á fimtudaginn, að hinn reglulegi dómari, Jón bæjar- fógeli Magnússon var samkv. beiðni leystur frá dómarastörfum í gjaldkera- málinu. Mun hann hafa talið sig hafa alt of miklar annir til þess að hafa svo yfirgripsmikla og tímafreka rann- sókn með höndum. Dómari var skipaður í hans stað af stjórnarráðinu Magnús Guðmtmdsson, cand. juris, aðstoðarmaður í stjórnar- ráðinu, og tók hann þegar við störf- um rannsóknardómara. Rannsóknar dómara til aðstoðar við forvaxtaút- reikning o. fl. eru þeir Þorst. Þor- steinsson cand. polit. og Georg Ólafs- son cand. polit. Hinn nýi rannsókn ardómari mun, að þvi er Isafold hefir haft fregnir af, gefa sig allan við rann' sókninni, svo að vænta má, að henni miði rösklega áfram. Innieign Landsbankans hjá Landmandsbankanum. Fyrir því voru færð skýr rök i Isajold, 16. tbl., að fé það, 800,000 kr.; sem Landsbankinn átti inni hjá Landmandsbankanum um nýárið, hefði eigi verið unt að lána út hér á lattdi og einnig af öðrum ástæðum réttust meðferð þess, að látaliggja á vöxtum í Landmandsbankanum. Þetta er vefengt af miklum móði, en minni getu, i málgagni þvi, sem nú virðist til þess ætlað fyrst og fremst, að ríða niður bankastjóra Landsbankans, hvað sem það kostar. Greinarhöf. Lögr. nefnir sig X. Hann fer fullum fetum með tölur, sem enginn getur um vitað, nema starfsmenn Landsbankans, sem þar voru um nýár, t. d., hvað mikið hafi verið i sjóði i bankanum þá. Ein- hver þeirra hlýtur því að standa bak við greinina. Þeim, sem til þekkja, þykir harla ótrúlegt, að nokkur þeirra starfsmanna, sem ntí eru í bankanum, hafi átt hlut í grein þessari, þessari nýjustu ofsókn á hendur Landsbanka- stjórunum. Og þá þykir mönnum eigi önnur úrlausn líklegri en að það sé enginn annar en Landsbankagjald- kerinn, Halldór Jónsson, sem ritað hafi þessa grein eða standi að minsta kosti mjög náið að henni. Og ætlum vér þá lesendunum sjálf- um að dæma um hversu viðkunnan- legt og viðeigandi það sé, að sakborn- ingur skuli, meðan sakamálsrannsókn stendur yfir gegnjhonum, vera við ofsókn- arstörf riðinn á hendur bankastjórun- um Landsbankans — og hversu mikið muni mega byggja á þeim staðhæf- ingum, sem undan þeim rifjum eru runnar og til miska mega verða banka- stjórunum. Enda rekur hver fjarstæðan og vit- leysan aðra í þessum vandræðalega of- sóknarvef. T. d. er höf. að fárast mjög um og kallar fjarstæðu vera, að bankinn þurfi að hafa 100,000 kr. fyrirliggj- andi i Landmandsbankanum til inn- lausnar Landsbankaseðlum um nýárið En hver er reynslan? Árið 1910 voru í janúarmán. inn- leystir Landbankaseðlar í Landmands- bankanum fyrir 99000 og árið 1911 í janúarmán. 77000. Það virðist því fjarri því að vera ófyrirsynju, er Landsbankinn áætlar um nýársleytið nál. 100,000 kr. í þessu skyni, — ekki sízt þar sem sjá verð- ur fyrir að til sé fé um nýár til inn- lausnar seðlum eigi að eins fyrsta mán- uð ársins — heldur fyrstu mátiuðina. Ætti að einhverju að finna í þessu efni væri það, að áætlun Landsbanka- stjóranna væri of lág. Þá eru akkreditivlinm 135,000 kr, alls, sem ísafold taldi að liggja hefði þurft fé fyrir í Laudmandsbankanum um nýár. Greinarhöf. segir þar um, að eigi hefði þurft að liggja fé i sjóði um nýár fyrir akkreditivlánum, sem borga hefði átt út í febrúar eða marz — og er eigi annað að sjá, en hann viti, að það hafi átt að gera þá, — en fyr ekki. En þarna fer hann rangt með, hvort sem visvitandi er gert eður ei; því að þessi akkreditivlán voru greidd að fullu j. og 9. jan., og sýnir það, að bankastjórarnir hafa rétt fyrir sér, en greinarhöf. rangt — í þessu atriði sem öðrum. Lögr. höf. heldur því geyst fram, að 300,000 kr. i Landmandsb. hefðu verið nægilegar »til þess að innleysa bankavaxtabréf, greiða vexti af veð- deildarbréfum og vexti af bankaskulda- bréfum* — ef b*tt hefði verið við

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.