Ísafold - 01.05.1912, Qupperneq 3
ISAFOLD
99
Vor- oq sumar-
frakkaeftii — faíaefrti — buxnaefni og vestisefni
nýkomið i stóru og fallegu úrvali i klæðaverzlun
71 . Jlndersen & Sön,
TJðatstræti 16.
Tækifæriskaup.
Til l. júní næstk.
Til að rýma fyrir nýjum birgðum af betrekki, sem koma í
júní næstkomandi, verða nú frá í dag og til i. júni seldar minar smekk-
legu og afaródýru birgðir af betrekki með stórkostlegnm af-
slætti, 3O°/0, og er því sjálfsagt, að þeir, sem þurfa, noti nú tækifærið
til að gera góð kaup.
Sveinn Jónsson.
Templarasundi 1.
Fataefni nýkomin
mikið úrval eftir nýjustu tízku til
Andrésar Andréssonar, Þingholtsstræti 1.
Yfirlýsing.
Svo sem kunnugt er, hefir sá orðið
árangurinn af störfum nefndar þeirrar,
sem skipuð var af síðasta alþingi til
að athuga miili þinga hver ráð mætti
finna til að afla landssjóði aukinna
tekna, að hún ræður löggjafarvaldinu
til þess, að lögbjóða einokun á kolum
og selja kolaverzlunina á leigu, þann-
ig, að kolin séu seld innlendum mönn-
um við nánar ákveðnu verði gegn i
kr. 50 a. afgjaldi, er greiðist lands-
sjóði fyrir hvert tonn af kolum, sem
selt er, og að kol þau, er útlendir
menn kunni að þurfa að kaupa hér á
landí, megi einokunarhafi selja við
þvi verði, er honum þóknast, gegn 2
kr. 50 a. afgjaldi til landssjóðs aí
hverju tonni af kolum, er þannig
seljist.
Útaf þessum tillögum milliþinga-
nefndarintiar viljum vér undirrritaðir
iýsa því yfir, að ef það er talið nauð-
synlegt, að afla landssjóði tekna af
kolaverzluninni hér á landi, þá teljum
vér allir æskilegra og viljum miklu
fremur hlíta þvi, að lagður verði 1
kr 50 a. eða 2 kr. tollur á hvert
tonn af kolum, sem flyzt hingað til
landsins, og að verzlunin með kol
verði frjáls framvegir eins og hingað
til. Á þann hátt yrði landssjóði aflað
jafnmikilla tekna, eins og hann fengi,
ef tillögur nefndarinnar um einokun
á kolum næði fram að ganga, en hins-
vegar væri þá synt fram hjá öllum
þeim annmörkum, er vér teljum vera
á einokunarfyrirkomulaginu. Með
þessu móti væri þá einnig girt fyrir
það, að útlendingum verði, með að-
stoð laganna, seld kol við hærra verði
en öðrum, og þar með afstýrt þeirri
hættu, að oss verði gerð lik skil, eða
önnur enn verri hjá öðrum þjóðum,
er vér eigum viðskifti við.
Reykjavík í aprílmánuði 1912.
pr. H/F P. J. Thorsteinsson & Co.
Thor Jensen..
p. p. Fiskiveiðahlutafél. ísland
Jes Zimsen.
pr. Bræðurnir Thorsteinsson
P. J. Thorsteinsson Th. Thorsteinsson.
pr. fiskiveiðahlutafél. Draupnir
Thor Jensen.
pr. fiskiveiðafélagið Alliance
M. Magnússou Gunnar Gunnarsson.
pr. h/f. Fram
Elías SteJánsson.
Jes Zimsen. G.Zoega. P.J.Thorsteinsson
Th. Thorsteinsson. Helgi Zoéga.
B. H. Bjarnason. O. Johnson & Kaaber.
p. p. H. P. Duus
Jakob Jónsson.
f. J. P. T. Brydes verzlun
N. B. Nielsen.
Ben. S. Þórarinsson Bj. Guðmundsson.
H/F. Timbur- og kolaverzl. Reykjavík.
T. Frederiksen.
Egill Jacobsen. Guðjón Sigurðsson.
pr. Rich. N. Braun
L. Milller.
Verzlunin Björn Kristjánsson
Jón Björnsson.
R. P. Levi. Jón Brynjóljsson.
Siggeir Torjason. H. S. Hanson.
p. pr. Verzlunin Jón Þórðarson
Þórður L. Jónsson.
Jón Bjarnason. E. Chouillou.
Jóhann Jóhannesson. Jón Helgason.
H/F. Kveldúlfur Verzl. Vöggur
Richard Jensen. Þórður Bjarnason.
G. Olsen. Garðar Gíslason.
Forthescottish icelandic fishing Co. Ld.
G. Gíslason.
Kr. Torjason frá Flateyri.
pr. Gufubátsfélag Faxaflóa
Oddur Gíslason,
p. t. form.
allan sannleikann. Eg játaði fyrir
honum, að ekki væri nokkur atburður
í þessari sögu, sem í raun og veru
hefði gerst. Hann yfirheyrði mig eins
og dómari. Eg meðgekk eins og
sakamaður.
Hann fór út stórreiður og andlega
aflvana, eins og maður, sem orðið
hefir fyrir hinum átakanlegustu von-
brigðum. Honum var alt af illa við
mig eftir þetta, var mér sagt. Hann
hafði verið fagnandi út af því, að
hafa nú fengið inn í hugann þann
merkilegasta fróðleik, sem hann hafði
nokkuru sinni rekið sig á alla æfi
sína. Og alt reynist fíetta tál og
heilaspuni. Honum fór líkt og einum
manni, sem eg hefi þekt. Hann vakn-
aði við það að hljóðfæraflokkur af
herskipi var að leika á lúðra rétt fyrir
utan gluggann á herberginu, sem hann
svaf í. Hann hélt, fyrst eftir að hann
vaknaði, að hann væri kominn til
himnarikis. En þá varð honum litið
á kerlinguna sína fyrii 0fan sig í
rúminu. Þá vissi hann, að í hitnna-
riki gat hann ekki verið. Og honum
var megnnsti ami að hljóðfæraleiknum.
Þeim mönnum sérstaklega, sem
ekki hafa náð þeirn þroska, að þeir
beri neitt skyn á list, er sannsögu-
legur fróðleikur nokkurs konar himna-
ríki. En hamingjan hjálpi okkur, ef
alþýðumenn okkar fara að fá ímugust
á Njálu og öðrum beztu sögunum
okkar, þegar þeir fá vitneskju um það,
Gjafir og álicit
til Heilsuhælisfélagsinc.
Afhent féhirði þess Sighvati banka-
stjóra Bjarnasyni.
Gjöf frá ón. konu í Kjós kr. 2,00
Áheit frá S. þ............— 3,00
— — Hólmavík . . — 10,00
Gjöf frá skipshöfn.»Snorra
goða«..................— 190,00
Gjöf frá Ólafi Jónssyni frá
Skálholti..............— 10,00
Gjöf frá Katrínu Árnad. á
Steinum................— 30,00
Gjöf frá Rannv. Oddsd. s.st — 20,00
Frá Islaudsbanka fyrir seld
notuð ísl. frimerki . . — 31,50
---------
Bókafregn.
Hdkon Finnsson: Stefna
og framtið ungra manna.
Rvik 1911.
Bæklingur þessi er erindi, sem höf.
— bóndamaður af Austurl. — flutti
hér í Rvik í síðastl. desbr. Er það
fátítt, að menn úr bændastéttinni komi
til höfuðstaðarins og flytji þar erindi,
en séu þeir margir því eigi miður
vaxnir en þessi maður, þá væri sann-
arlega óskandi að slíkt væri tíðara en
er — þ. e. a. s., ef Reýkvikingar
væru þá ekki upp úr því vaxnir að
hlusta á þá. Það er fátítt, að kynn-
ast jafn heilbrigðri lifsskoðun eins og
hjá þessum alþýðumanni, sem alla
æfi hefir átt við fátækt og erfiðleika
að búa, en þó tekist það, sem alt of
fáum tekst, að verða mentaður maður.
Eg ætla ekki að fara að gagnrýna
erindi þetta — þess gerist ekki þörf.
Það hefir ekki aðrar kenningar inni að
halda en þær, sem hverjum manni
eru hollar. Og það er jafnt talað til
yngri sem eldri. Að eins óskandi að
erindið gæti komist í sem flestra
hendur og má vænta, að barnakenn-
arar og aðrir alþýðuleiðtogar vilji
stuðla að því. Verðið er einir 25
aurar og því fáum ofvaxið að eignast
kverið.
Prentvillur eru vandræðalega marg-
ar í kverinu og lýtir það talsvert, en
eigi skulu þær tíndar upp hér, enda
flestar þess eðlis, að athugull lesandi
mun lesa þær í málið. S.
Reykjavikur-annáll.
Aflabrögð hafa verið góð undanfariS.
Þilskipin komið inn með góðan afla. Eitt
þilskipið, Asa eign Duusverzlunar, hefir
aflað rúm 34000 á vertíðinni. Botu-
vörpungar sömuleiðis aflað vel. Baldur
kom inn í fyrradag með 43000 eftir 10
daga.
Alliance franyaise, frakkneska félagið
hór í bænum, lifir og dafnar mikið vel.
Fólagið er sífelt að auðgast af bókum,
sem ýmist eru gefnar félaginu af ein-
stökum fólögum eða keypt. Frakknesk
tímarit ýms hefir félagið einnig, t. d.
Revue de Paris og Revue hebdomadaire.
Yfirleitt er þetta fólag lyftistöng góð
undir frakknesku kunnáttu í höfuðstaðn-
um.
íþróttasamband Rvíknr heldur aðal-
fund sinn annað kvöld. Ur þessu hefjast
sumarBkemtanir á íþróttavellinum. í
ráði að Ungmenuafólag Rvikur efni þar
til 8kemtuuar á sunnudaginn til ágóða
fyrir Olympíuforina, og ennfremur mun
íþróttasambandið sjálft ætla sór að hafa
þar skemtun í þessum mánuði til ágóða
fyrir íþróttavallarfyrirtækið, sem hinn
mildi vetur hefir leikið hálfilla.
að atburðirnir hafi í raun og veru
ekki gerst eins og þar er frá skýrt.
Frá manninum, sem varð svo reið-
ur við mig út af því, að Námar Saló-
mons konungs reyndust ekki sönn saga,
barst hugurinn þarna i rúminu að
íyrstu útlendu sögunni, sem eg setti
i blað. Eg var þá nýlega kominn
frá Kaupmannahöfn til Winnipeg, og
Heimskringla var stofnuð með mér
sem meðritstjóra. Eg átti að sjá um
einhverja sögu i blaðið. Winnipeg
var þá mjög ólík þvi sem hún er nú.
Nú löðrar þar i skrautlegum bóka-
búðum, sem hafa allar bókmentir á
boðstólum, fornar og nýjar og það
allra-nýjasta, sem veröldin er að tala
um í öllum greinum. Þá var ekki
um auðugan garð að gresja í þeim
efnum. Eg þóttist hafa himin hönd-
um tekið, þegar eg rakst þar á eina
sögu eftir þýzka höfundinn heims-
fræga, Paul Heyse, Lotku. Af öllum
nóvellum hans þótti mér Lotka einna
yndislegust. Og eg fór að leggja
hana út í Heimskringlu.
Aldrei hefir nokkur maður orðið sér
til meiri minkunar fyrir þess konar
verk en eg varð þá — nema ef það
kynni að vera Tónas Hallgrímsson
fyrir að setja Æfintýri aj Eggerti glóa
i Fjölni. Menn, sem annars kom
aldrei saman um neitt, urðu sammála
um það, að það væri beinlinis skömm
að því að bjóða alþýðu manna jafn-
Veggfóðursbirgðir
nýkomnar
afarfjölbreyttar og fallegar
í Bankastræti 7.
Þ.Sigurðss.& Kr.Sveinss.
Kvöldskemtun frú Joliansen á laug-
ardagskvöldið var fyrirtaksgóð. Frúin
söng þar heila syrpu af sænskum þjóð-
vísum og gerði það svo vel, að unun
var að. Hefði maður helzt kosið að
heyra þær allar aftur. Þjóðdansarnir 3,
sem dansaðir voru, vöktu eigi síður fögn-
uð, enda ljómandi fallegir og nýstárlegir
fyrii fólk hór. — Vonandi verður kvöld-
skemtun þessi endurtekin, svo að fleirum
en þeim, sem þetta sinni komu, gefist
færi á að sækja hana.
Skipafregn: B o t n í a kom á sunnu-
dagsmorgun. Meðal farþega: Richard
Braun kaupm. með heitmey sinni, stú-
dentaruir Skúli S. Thoroddsen og Sig.
Sigurðsson (frá Vigur), jungfr. Anna
Thorsteinsson (frá íaafirði). Frá Vestur-
heimi: Jón Finnbogason með fjölskyldu
og Brynjólfur Þórarinsson (úr Norður-
Múlasýslu).
Skipa-árekstnr. Hafsteinn, þilskip
Duusverzlunar, rakst í gærmorgun á
brezkan botnvörpung í Eyrarbakkaflóa.
Skemdust hvorttveggju allmjög.
Verkfræðingafélag íslands heitir
yngsta fólag höfuðstaðarins. Það var
stofnað 19. apríl og er tilgangur þess
að efla fólagslyndi meðal verkfróðra
manna á íslandi og álit vísindalegrar
mentunar 1 sambandi við verklega þekk-
iugu, að gæta hagsmuna stéttarinnar í
hvívetna og styrkja stöðu hennar < þjóð-
fólaginu. Tilgangi sínum leitast fólagið
við að ná með því að halda fundi með
fyrirlestrum og umræðum, og þess utan
á hvern þann hátt, sem heppilegur þykir
á hverjum tíma til eflingar þessum eða
þvílikum tilgangi.
í fólaginu er ætlast til að verði verk-
fræðingar og lærðir byggingameistarar.
Stjórn fólagsins skipa: Jón Þorláks-
son (form.), Tb. Krabbe, Paul Smith og
Rögnvaldur Ólafsson (ritari).
Tíðindasmælki
handan um haf.
— Af reyk- og neftóbaki hafa Bretar
meiri tolltekjur en nokkurri annarri að-
fluttri vörutegund. Næst tóbakinu kem-
ur sykurinn.
— A eynni Róm við ströndina á Slés
vík og Holtsetalandi er einhver ein-
kennilegasta járnbraut sem til er. Hreyfi-
aflið er ekki eimur, heldur vindur. Á
hverjum járnbrautarvagni eru 2 segl. í
stinningsvindi fer leatin 22 rast. á klukku-
stund, en í roki getur hún komist 35
rastir. Við stöðvarnar er lestin stöðvuð
og seglin hefluð, eins og á skipi.
— Amerískur miljónaeigandi, Edward
Green að nafni, lofaði móður sinni því,
að kvongast ekki fyr en hann væri orð-
inn fertugur. Nú er hann orðinn það
fullorðinn og hugði því að staðfesta ráð
sitt. Þegar þetta kvisaðist^ bárust hon
um eigi færri en 6242 hjúskapartilboð,
1331 þeirra frá öðrum löndum. Svo er
að sjá sem Green hafi snúist hugur af
að lesa þessa brófahrúgu, því að nú
kveðst hann ætla að lifa ókvæntur eftir-
leiðis sem áður. Mörg af brófum þess-
um eru harla kátbrosleg, ýmist barna-
leg eða ósvífin ; en allar fullyrða stúlk-
urnar, að hann verði sæll með sór.
— í Berlín er mest fjölbýli af öllum
borgum í heimi. Mönnum er þar káss-
að samau svo, að til vandræða horfir
um heilsufar. Eigi alls fyrir löngu var
tekin skýrsla um íbúðir í Berlín, og er
undur að heyra það, er hún skýrir frá.
Alls voru taldar 524.000 íbúðiriBer-
vitlausa og leiðinlega sögu. Eg gleymi
fráleitt, svo lengi sem eg lifi, einum
skýrum fróðleiksmanni, sem kom heim
til mín, til þess að telja um fyrir mér
og gefa mér áminning fyrir þessa
vitleysu. Eg var svo ógætinn að
stynja þvi upp, að eg héldi, að það
væri ekki nema óþroskaða fólkið,
sem ekki gæti með nokkuru móti lesið
sögu eftir heimsfrægan höfund eins
og Heyse. Hann lét þess þá getið,
að hann vissi ekki betur en að hann
hefði mestan vitsmunaþroska í sínu
nágrenni — og svona liti hann á
málið. Því varð eg að lúta. Eg var
eins og hundur dreginn af sundi. Til
allrar hamingju hætti Heimskringla
um tíma að koma út, og eg varð
ekkert við hana riðinn. Lotka hætti
með öllu í miðju kafi — til mikils
fagnaðar fyrir lesendurna.
Litlu betur tókst mér með næstu
tilraunina. Hana gerði eg þegar Lög-
berg var að byrja. Þá valdi eg frá-
nmnalega skringilega sögu eftir Charles
Dickens. Sú sannfæring virtist festa
rætur hjá fjölda manna, að sú saga
hefði ekki getað verið upphaflega sam-
in, né nú lögð út, i neinum öðrum
tilgangi en þeim, að gera alþýðu manna
óvirðing.
Og frá þessum Vesturheims-endur-
minningum hvarflaði hugurinn að skila-
boðum, sem eg fekk einu sinni á
lín. Um helmingur þeirra, eða réttar
257.000 voru ekki nema eitt herbergi,
25.700 ekki nema örlítið eldhús. í 120
þús. íbúðum höfðust 5 menn viðí hverju
herbergi, l 18.571 íbúð 6, í 8.393 íbúð-
um 7, í 3.485 íbúðum 8, í 1.281 íbúð 9,
i 428 íbúðum 10, í 126 íbúðum 11 og
í 134 íbúðum 12 menn eða fleiri i hverju
herbergi. Megnið af þessum herbergj-
um eru kytrur, Ijós- og loftlausar. í
Berlín er hvert hús bygt að meðaltali
77 manns, en í London er meðaltalið 8
manns. Þrátt fyrir þetta er húsaleiga
afarhá í Berlín.
Merkir hagfræðingar og stjórnmála-
menn telja það mál málanna nú, að ráða
bót á þessu böli og krefjast, að það sé
gert með lagaboði.
— Ung stúlka í Mílanó höfðaði fyrir
skömmu mál gegn söngvaranum Caruso
fyrir að hann hefði rofið við sig hjú-
skaparheit og krafðist 200.000 franka
skaðabóta. Caruso var sýknaður með
dómi, en jafnframt tekið fram, að fram-
koma hans gagnvart stúlkunni hefði ver-
ið siðferðislega hörmuleg, því að stúlk-
an hefði verið sannfærð um, að hann
ætlaði að ganga að eiga sig. En sam-
farir þeirra voru eigi holdlegar, svo að
skaðabótakrafan varð eigi tekin til greina.
— Fyrverandi amerískur miljónaeig-
andi, W. Belwin að nafni, var tekinn
fastur á götu f New-York á dögunum
og dæmdur í 10 daga fangelsi fyrir öl-
musubænir. Nítján ára að aldri erfði
Belwin yfir eina miljón dollara og tókst
honum að auka þenna auð sinn stórum
með ráðdeild og hepni. Hann var járn-
brautarstjóri um eitt skeið, og fyrir 15
árum talinn einhver mest metni fjár-
málamaðurinu í New-York. Síðar stofn-
aði hann banka í Lundúnum, en sá
banki varð gjaldþrota, og ýmsar gróða-
tilraunir < Amerfku brugðust Belwin svo,
að hann varð smámsaman öreigi og komst
á vonarvöl.
— í borginni Hillsville í ríkinu Yir-
giníu í Amerfku bar það við nýlega f
Akureyri, frá mikils metuum og greind-
um bónda. Hann ráðlagði mér að
hafa sögur í Norðurlandi. En við því
yrði eg að gjalda varhuga, að taka
enga sögu eftir norsku höfundana,
Björnson og Lie, því að það væri sér
kunnugt um, að íslenzk alþýða væri
mentaðri en svo, að slík vitleysa væri
á borð berandi fyrir hana.
Og nú skal eg segja ykkur, að
hverju hugurinn vék síðast, út úr
þessum endurminningum, áður en eg
sofnaði. Hann vék að einum af mín-
um þungu efasemdum, sem sjálfsagt
eru í augum margra ykkar kynlega
vitlaus heilabrot — efanum um það,
hvort ekki hefði mjög mikið af því,
sem ritað er í veröldinni, gagnstæð á-
hrif við það, sem til er ætlast. Það
er ekkert þægilegt né uppörfandi fyrir
mann, eins og mig, sem ekkert hefir
annað fyrir stafni en að rita, að finna
til slíkra efasemda. En eg fór að
hugsa um, hve mikla reynslu eg hefi
um þetta á sjálfum mér — hve títt
það hendir mig, að það sem eg les
veki fremur hjá mér mótspyrnuhug
en samhug. Eg gæti sagt ykkur mý-
mörg dæmi um það, ef eg tefði þá
ekki of mikið fyrir ykkur. Eg ætla
að sleppa þvi. En væru það ekki kyn-
leg og skringileg hausavíxl og enda-
skifti á mannlífinu, ef mennirnir væru .
i raun og veru að einhverju mjög !
miklu leyti að styðja það, sem þeir j
dómsstofu bæjarins, að þá er dómarinn
hafði kveðið upp dóm yfir glæpamannl
einum, Allan Lloyd, hófst skothrfð; það
voru ættingjar og vinir sakbornings, sem
voru að hefna sín. Þeir drápu dómar-
ann, lögreglustjórann, sóknarann og for-
mann kviðdómsins, en særðu yfir 20
manns, suma til ólífis. Allan Lloyd og
vinir hans komust allir undan. Lloyd
hafði særst þrem svöðusárum í skot-
hríðinni, og náðist litlu sfðar < húsi, sem
hann hafði leynst í, skamt frá borginni.
Bróðir hans, Sydney Allen, sem skaut
dómarann, hefir og náðst eftir langa
skotvörn, en hafði áður myrt ekkju, sem
vitnað hafði g?gn bróður hans. Ýmsir
vinir þeirra bræðra hafa flúið til fjalla.
Landsstjórinn hefir nú sent herlið til
höfuðs þeim.
Vor nýja verðskrá
er komin út og verð-
ur send ókeypis þeim
er þess óska. Odýr-
asti og bezti sölustaður reiðhjóla og
hjólahluta m. m. Hektorhjól frá 42 kr.
Stellahjól Irá 62 kr. Hjóladekkfrá 1,90.
Aktieselskabet »Candor«, Kompagnistr.
20. Köbenhavn.
Kvenhattur litið notaður, er
sölu Smiðjustíg 9.
Til leigu 2—3 stofur mót sólu,
með forstofuinngangi, með eða án hús-
gagna, nú þegar eða frá 14. maí. Fá-
menn fjölskylda getur einnig fengið
nefnda íbúð með eldhúsi. Bergstr. 3.
Talsími 208. Asgr. Magnússon.
Jarðarför minnar elskulegu móður, húsfrú
Þórdisar Berentsdóttur, fer fram föstu-
daginn 3. þ. m. og byrjar á heimili hennar,
Skólastræti 5, ki. I e. h.
Elsa Vigfúsdóttir.
berjast á móti af alefli — ef til dæmis
að taka blöðin hér og þar úti um
heiminn væru að jafnaði beztur stuðn-
ingur þeim sem þau tala verst um og
mestur voði þeim sem þau hæla —
eða ef prédikanir og guðsorða bæk-
ur ynnu mest að því að efla trúleys-
ið, en vantrúarrit lykju upp lindum
trúarinnar. Við skulum segja, að þetta
sé ekkert annað en vitleysa. En margt
getur manni til hugar komið — ekki
sizt þegar svefninn og draumarnir eru
í nánd.
Nú ætla eg að hætta. Þetta hefir
alt verið sundurlaust. En öðru vísi
gat það ekki verið, þar sem fyrirætl-
unin var sú ein, að segja ykkur frá
því, hvernig hugsanirnar runnu eitt
andvökukvöld út úr alveg eða að mestu
óskildum hugsunum — hvernig fáein-
ar blaðsíður i Njálu, í stað þess að
svæfa mig, hleyptu huganum á gand-
reið aftur og fram um rúmið og tím-
ann, þeyttu honum inn í endurminn-
inga-dans, og lokkuðu hann að lok-
um út í fjarstæðu-þoku, Eg dreg eng-
ar ályktanir. Þetta átti ekki að vera
annað en frásögn.
Mér láðist víst að segja ykkur, að
eg sofnaði að lokum út úr þessum
heilabrotum. Sælan tel eg mig þess,
ef ekkert ykkar er líka sofnað.
Einar Hjörleijsson.