Ísafold - 17.07.1912, Page 3
ISAFOLD
175
Kosn i ngarlögleysan
í Vestur-lsafjarðarsýslu.
Hún reyndist vera eina verulega
missmíðin á siðustu kosningum til
alþingis, enda kveður að henni svo um
munar, og Virðist þurfa beint lúalega
stigamensku til að taka hana gilda,
þ. e. meiri hluta ofbeldi og tröðkun á
öllu réttlæti.
Sýslumaður Barðstrendinga, sem
kept hafði um þingmensku þar og far-
ið flatt eins og fyrri daginn gegn f.
ráðherra Birni Jónssyni, gerði reynd-
ar tilraun til að fá kosningu þar ónýtta,
með því að senda til þings kæru út
af einhverjum missmíðum á kjörseðla-
skrinunum úr 3 hreppum, Rauða-
sands, Barðastrandar og Flateyjar, en
fór svo neyðarlega flatt á þvi„ að þing-
deild sú, er þá kæru fekk til með-
ferðar, kvað svo fjarri fara, að hún gæti
nokkur hin minstu áhiif haft á kosn-
ingarúrslitin, að þó að öll atkvæðin i
þeim 3 hreppum væri gerð ógild, þá
hefði B.J. samt meiri hl. atkv. Atkvæða-
munurinn hefði verið svo geysimikill
milli hans og sýslumanns. Enda dæmdi
allur þingheimur þá kosningu gilda.
Ekki nokkur einn flokksbróðir sýslu-
manns dirfðist að greiða atkvæði gegn
henni!
Aðalandmælandi kosningarlögleys-
unnar í Vestur-ísafjarðarsýslu var
Björn Jónsson. Hann kvað
kosningu þá vera svo meingallaða,
að slíks mundu ekki dæmi finnast í
allri þingsögu vorri.
Fyrst og fremst hefði maður sá,
sem kallaðist hafa verið kosinn þar,
haft þá óhæfu í frammi, að segja sig
ekki úr yfirkjörstjórn, er hann bauð sig
fram til þings, heldur hefði setiðþarsem
fastast og notað síðan atkvæði sitt í
kjörstjórninni til að úrskurða sjálfum
sér þingmensku, þótt bæði guð og
menn vissu, að keppinautur hans,
síra Kristinn Daníelsson, fyrv. þm.
þess kjördæmis, hefði haft miklu fleiri
atkvæði. Einfalt velsæmi kiefðist þess,
að þingmannsefni sæti ekki í kjörstjórn,
enda mundi þess fá dæmi, að þau
gerðu það, t. d. kvaðst ræðumaður
vilja benda á einn valinkunnan sæmd-
armann hér á þingi, Jens prófast Páls-
son, er verið hefði i yfirkjörstjórn síns
kjördæmis í hverri kosningu eftir aðra
hin síðustu árin, — að hann hefði óðara
sagt sig úr henni, er hann bauð sig
fram, og látið varamanninn taka við.
Sjálfsagða réttarbót taldi ræðum. (B.
J.) að lögbanna setu þingmannaefna í
yfirkjórstjórn, úr því að reynslan sýndi,
að þeir væri hvergi nærri allir því vel-
sæmi gæddir, að segja sig úr henni jafn-
skjótt sem þeir byði sig fram. Slíkt
hið sama meðmælenda.
Sömuleiðis ætti að gera þá stjórn-
arskrárbreyting næst, að færa stað-
festingarvald á kjöri þingmanna al-
þingis til landsyfirréttar, undan óhjá-
kvæmilegri flokkahutdrægni á þingi,
auk þess að þá mætti útkljá slík mál
fyrir þing.
Aðferðin, sem þessi vestfirzki þm.,
Matthías Ólafsson, er hér væri kom-
inn með þingmanns nafni, hefði notað
og fengið framgengt, með fulltingi ann-
ars mannsíyfirkjörstjórninni, sem væri
leikmaður eins og hann, en með ein-
dregnum andmælum löglærða mannsins
þar, oddvitans, hefði verið sú, að gera
ógilda fjölda seðla fyrir þá sök, að
þeir hefði verið meira en einbrotnir,
en það hafði sést, erhvolft var úr kjör-
seðlaskrínunum, að mest var um slíka
seðla einmitt úr þeim hreppi, er kunn-
ugt var um, að keppinautur hans, síra
Kr. D., hafði flesta fylgismenn (Súg-
andafirði). En að láta margbrot varða
ógilding kjörseðils væri skýlaus lög-
leysa, svo sem sæist harla greinilega
á því, að þó að sagt væri í 35. gr.
kosningarlaganna, að þeir ættu að
vera einbrotnir, þá væri sá galli, að
seðill væri meira en einbrotinn, hvergi
nefndur í upptalningunni í eftirfarandi
greinum á kjörseðlagöllum þeim, er
varða skyldu ónýtingu. Enda hefði
ræðum. ekki heyrt getið um, að sá
galli hefði nokkurn tíma verið látinn
varða ógilding í nokkuru kjördæmi
landsins frá upphafi þessara laga. Og
sýndi það, að lagastafur þessi hefði jafnan
verið skilinn svo, að hann væri að eins
leiðbeining fyrir kjörstjórnir, að þær
skyldu tjá það kjósendum, að n ó g
væri að einbrjóta seðlana, með þvi að
tilgangurinn væri sá einn, að láta nafn
hins kosna þingmanns ekki sjást; þess
vegna væri einbrot nóg, en margbrot
vitaskuld ósaknæmt. Vér hefðum og
frásrgn þeirra um það, er lögin sömdu,
að hugsunin hefði verið sú ein, að búa
sem bezt um kosningarleyndina. Þetta,
aðleggjaseðilinneinusinni saman, gæti
vel farið svo óhöndulega fyrir feim-
num kjósanda, að í rauninni veitti hon-
um ekki af að hafa bókbindara sér
við hönd, ef vera skyldi öruggur um,
að það yrði gert nákvæmlega rétt.
Oddviti þessarar kjörstjórnar, sýslu-
maður ísfirðinga, hefði og verið svo
fjarri því að meta margnefnt brot
ólöglegt, að hann hefði tekið það gilt
áhorfslaust i þeim kjördæmum öðrum,
er hann hefir undir höndum, ísafirði
og Norðurísafjarðarsýslu. Ræðumaður
kvaðst og muna það gjörla, að hér í
Rvík hefði fyrst er kosið var eftir
þessum lögum kjörstjórnaroddvitinn,
sem þá var, og hvorki var meiri né
minni maður en háyfirdómari landsins,
tekið margan kjörseðil af kjósanda og
margbrotið hann sjálfur, áður en hann
stakk honum í kjörskrínuna. Þann
veg hefði hann skilið lögin, þá ný-
ílaupin af stokkum. Hér mundi eng-
um réttsýnum manni blandast hugur
um, hvernig lögin bæri að skilja, og
cvaðst ræðumaður vilja hér segja frá
dálitlu, er sér hefði borist til eyrna
í gær og skýrði þetta mál allgreinilega.
Hér greip aldursforseti, Júlíus Hav-
steen, framm í fyrir ræðumanni, og
bannaði honum að segja frá þessu,
með því að það væri málinu »óvið-
tomandi að segja sögur«, —gersam-
ega skilningslaus á það, að einmitt
)ess kyns dæmisögur’getur verið hvað
mest í varið til að skýra umræðuefni,
og vitandi ekkert um það, að hverju
sagan laut. —
Það vakti almenna undrun og víða
flátur um land alt, er þessi uppgjafa-
maður var skipaður í vor konung
cjörinn þingmaður til 6 ára, og var
)ó kyrt látið. Frammistaða hans í
forsetastóli sameinaðs þings við þing-
setninguna sannaði það á margan hátt,
að sú undrun þjóðarinnar var ekki á-
stæðulaus. Því síður virtist á honum
sitja, að hefja starf sitt úr forsetastól
með ástæðulausri ertni við mikilsvirt-
an þingmann, nota forsetavaldið til að
skeyta skapi sínu á andstæðingi sín-
um og varna honum máls. En sér-
staklega var þessi framkoma forset-
ans ruddaleg fyrir það, að henni var
beitt gegn þingmanni, sem honum var
fullkunnugt um að kominn var upp i
þingsalinn úr rúmi sínu eftir langa
og hættulega legu.
Ræðukafli sá, er þessi blessaður
uppgjafa-amtmaður lagði bann fyrir
hjá B. J., var hér um bil á þessa leið:
Mér var sagt i gær, að þinglið það,
er hann er einn i, þessi af sjálfum
sér kjörni þingmaður Vesturísfirðinga
(M. Ó.), hefði fastmælum bundið með
sér, að taka hann gildan og demba
honum inn á þing, hversu meingölluð
sem kosning hans væri. Eg svaraði
sögumanni þvi, að slíkum ósóma
fengi eg mig ekki til að trúa um
nokkurn þingmann, hvað þá heldur
um heilan mikinn og voldugan þing-
flokk, er fylla gerðu og prýða þings-
ins mestu höfðingjar, þar á meðal
landsins mestu stórvitringar í lögvísi.
Nú kvaðst ræðumaður og heyrt hafa,
að til stæði að gera þessum af sjálf-
um sér á þing úrskurðaða garp (M.
Ó.) enn hærri skil: þau, að hefja hann
upp i hæðir, i hávirðulega lávarða-
deild, og láta hann ljóma þar í dýrð
þeirra að visu að eins jarðnesku upp-
hæða á þessu og næstu þingum, ef
lifir, svo sem skínandi vott bæði um
sigurfrægð hávirðulegs heimastjórnar-
liðs og dásamlega réttvísi þess.
Málinu var að umræðu lokinni
— en hún hafði staðið eigi skemur
en 3 kl.stundir — skotið á frest og
vísað til kjörnefndar, er í voru kosnir
þeir Björn Jónsson, Jens Pálsson,
Guðjón Guðlaugsson, Guðlaugur Guð-
mundsson og Jón Magnússon.
-----------
Kolamálið.
Svo heitir bæklingui nýútkominn,
er gefinn hefir verið út að tilhlutun
milliþinganefndarinnar 19n. Er hann
allmikið mál og röksamlegt. Bækl-
ingurinn skiftist í þe:sa 4 kafla. 1.
Þörj landssjóðs á tekjuauka. 2. Hvern-
ig á að fá jéð? 3. Mótbárurnar
gegn einkasölu á kolum. 4. Mótbárur
annara ríkja. Fyrir þessu öllu er
gjörð allítarleg grein frá sjónarmiði
nefndarinnar. Bæklingur þessi mun
verða sendur viðsvegar um land og
gefst þjóðinni þá kostur á að íhuga
þetta mikla og vandasama mál.
Mótmæli stórveldanna gegn kola-
einkasölunni munu verða þess vald-
andi að málið kemur ekki til umræðu
í þingsölunum í þetta sinn. Engu
að siður er það skylda þjóðarinnar
við sjálfa sig að íhuga vandlega rökin
með og móti málinu. Ættu menn þvi
að lesa bæklinginn vandlega.
Meðal annars gerir nefndin ráð
fyrir ýmsum breytingum á frumvarp-
inu um kolaeinkasöluna og gerir hún
grein fyrir þessum tillögum sínum á
þessa leið:
Samninginn þarf að bæta.
Ekki gkal því neitað, aS samnings-
uppkast nefndarinnar þurfi umbóta við.
Nefndinni kom aldrei til hugar, að samn-
ingurinn yrði í öllum atriðum eins og
hún hafði frá honum gengið. Hún hafði
ekki átt þess kost að tala við viðsem-
janda; alt varð að gerast með brófa-
skriftum og símskeytum. Hún gekk að
því vísu, að þegar þingið færi að semja
við manninn sjálfan, mundi mega kippa
ýmsu í lag, sem alt of mikinn tfma hefði
tekið fyrir hana að rekast í. Viðsemjandi
lofaði að koma til viðtals um þingtímann.
Leyfishafi og ótlend skip.
Þegar hefir fengist leiðrótting á ein
um agnúa, sem mörgum hefir þótt veru-
legur. í 6. gr. samnings-uppkastslns
stendur, að leyfishafi ráði verðlagi á kol-
um, sem hann selur til útlendra skipa,
en jafnt skuli það vera til allra slíkra
skipa, er kol taka á sömu höfn og á
sama verðlagstímabili. Síðan er nefndin
skilaði af sór störfum sínum, hefir leyfis-
hafi tjáð sig fúsan til þess að ganga að
samningnum, þó að verðið á þessum
kolum verði ákveðið fast, eins og á inn-
lendum koium. En í ráði er, að eitt-
hvað verði það hærra til útlendra skipa
en til íslendinga.
Rosslyn Hartley kol og ensk kol.
Sanngjarnt virðist líka að taka til
greina mótbáru gegn því, að Rosslyn
Hartley kol skuli vera einu »almennu
kolin«, einu kolin, sem leyfishafi er
skyldur til að hafa nægar birgðir af
pantanalaust. Þau kol eru vitaskuld
valin, af því að þau hafa reynst hent-
ugust í þá ofna, sem hór eru alment
notaðir. En botnvörpuútgerðin notar
ensk kol; og það verður ekki talið sann-
gjarnt nó hentugt, að útgerðarmenn geti
þvf að eins fengið þau, að þeir hafi til-
kynt fyrir 1. júlf ár hvert, hve mikið
þeir ætli af þeim að kaupa. Trygging
þess verður að vera alveg jafnmikil og
fyrirstaða þess alveg jafn-lítil, að ávalt
sóu nægar birgðir af þeim kolum, eins
og hins, að þau kol vanti ekki, sem
menn nota til þess að hita hús sín.
Yór göugum að því vísu, að samningn-
um megi fá breytt í þessa átt.
Lágmark kolaverðsins.
Þá hefir það verið fundið að samnlngi
nefndarinnar, að lágmark kolaverðsius só
fast ákveðið, svo að vór höfum ekkert
gagn af því, ef kol falla í verði á samn-
ingstímanum. Að sönnu eru litlar líkur
til þess, að svo fari. Ekki er sennilegt,
að þau Spitzbergen-kol, sem mest hefir
verið talað um, síðan er hreyfing komst
á þetta kolamál, muni hafa áhrif á verðið,
eftir því sem fullyrt er af mönnum, sem
skyn bera á málið. En óhugsandi er
það samt ekki, að kolin kunni að verða
ódýrari en þau hafa ódýrust verið, eða
flutningskostnaður minni en hann hefir
verið minstur. Fyrir því virðist oss, að
þessa mótbáru ætti að taka tll greina.
Verðið ætti að færast alla leið niður á
við, að tiltölu við markaðsverð, eins- og
það færist alla leið upp. Það virðist
ekki nema sanngjörn krafa af hálfu ís-
lendinga. Og sóu líkurnar í augum
leyfishafa litlar eða engar til þess, að
verðið lækki frá því sem það hefir verið
lægst, þá ætti honum ekki heldur að
vera kappsmál að halda ákveðnu lág-
marki í samningnum.
Kolasala á liöfninni,
Ennfremur virðist og sanngjarnt að
taka til greina þá aðfinslu, að kolin sóu
seld jafn dýr, hvort sem þau hafi verið
flutt á land, eða kaupandi taki við þeim
beint úr flutningsskipi eða »húlk« á
höfninni. Reyndar hafa kaupmenn ekki
æfinlega gert mun á þessu að undan-
förnu, svo að það situr að minsta kosti
illa á þeim að gera háreysti út af þessu
efni. En saungjarnt væri að fara fram
á verðmun, eftir því, hvar við kolunum
er tekið. Enda taka þeir einir kol hér
úti á höfninni, sem m i k i ð kaupa af
þeim, og fyrir því ekki nema eðlilegt,
að þeir komist að nokkuð betri kjörum
— þó að svo hafi reyndar ekki verið
hingað til um kolakaupin, að minsta
kosti ekki nema stundum, eftir því sem
áreiðanleg vitneskja hefir fengist um frá
kolakaupmönnum sjálfum.
Nýir verzlnnarstaðir.
Sömuleiðis er það ekki óskynsamlega
athugað af andstæðingum einkasölunnar,
að nýir verzlunarstaðir geti risið hór upp,
þeir er þarfnist allmikilla kola, t. d.
til botnvörpuútgerðar, og að menn yrðu
annaðhvort að hafa kostnað við að koma
kolunum á þá staði, eða að öðrum kosti
flytja sig burt þaðan. Fremur er það
að sönnu ólíklegt, að til þess komi. En
óhugsandi er það ekki, jafn-miklar og
breytingarnar gerast hór á landi f ýms-
um efnum. Undir þennan leka mætti
setja með því, að leyfishafi yrði skyldur
til þess að flytja kol á nýja staði, þegar
þörfin á því væri sönnuð með þeim
hætti, að eitthvert tiltekið lágmark kola-
magns yrði notað þar.
■ oco ■
Greinar.
VII.
Það var einu sinni seint í fyrravet-
ur, sem mér heyrðist eitthvert undar-
legt marrandi hljóð, að eg hygg líkt
því sem sumir hafa þótst heyra stund-
um þegar norðurljós eru. Jafnframt
skaut því upp í meðvitund minni, að
einhversstaðar á öðrum himinhnetti
væri með vélum, sem óþektar væru
hér á jörðu, verið að reyna að koma
á sambandi við mennina. Ef til vill
væri réttara að segja: skaut því inn í
meðvitund mína; mér fanst svo greini-
lega að þessar undarlegu og ótrúlegu
hugsanir kæmu utan að, en risi ekki
af minni eigin viðleitni. Að hugsanir
annara geta einstöku sinnum smeygt
sér inn í huga minn svo að eg get
»lesið« þær, veit eg, held eg mér
sé óhætt að segja með vissu. Eg
hef mikið um þetta efni hugsað, og
ekki sízt síðan eg las fyrir nokkrum
árum, að Goethe hélt að hann hefði
stundum getað fengið aðra til að
hugsa sumar hans hugsanir, þó að
hann þegði alveg yfir þeim.
Nú hefir mér að vísu fyrir löngu
fundist það mjögheimskulegt, sem menn
hafa stundum verið að stinga upp á, að
mannkynið ætti að reyna til að gera
Marsbúum vart við sig með einhverju
því sem stjörnufræðingar á Mars gætu
athugað. Eins og Marsbúar, væru
þeir nokkrir, mundu ekki fyrir löngu
hafa vitað að á jörðinni er mannabygð.
Og eins og þeir mundu ekki fyr
reyna til að komast í samband við
jarðarbúa, en þeir við þá. Og þegar
menn hugleiða svolítið Marconitækin,
sem bygð eru á uppgötvun Heinrichs
Hertz á magnöldum þeim sem við
hann eru kendar, og ekki þarf að lýsa
hér, enda gera það margir betur en
eg, þá virðist, að minsta kosti eftir
á, ekki erfitt að hugsa sér hvers-
kyns sambandstilraunir það mundu
vera, sem Marsbúar gerðu, og heldur
ekki að þeir mundu ætlast til, að það
væri mannshöfuð sem á jörðunni tæki
við skeytunum, í stað einhverskonar
Marconitækja, sem einnig hér á jörðu
mundulíklega þykja fremur steinaldarleg
eftir t. a. m. 500 ár.
Þetta sem eg hef drepið á stuttlega,
hugsaði eg mér nú ekki undir eins
og eg þóttist verða var við þessi skeyti
frá »öðrum heimi« eða réttara sagt,
annari jörðu. Hugsun mín lá fram
eftir vetrinum eins og í lamasessi og
hvíldi sig. En seinna, þegar eg fór
aftur að hugsa af alvöru, þá fór eg
að virða þetta fyrir mér og í því ljósi
sem þá brá upp, ýmislegt af því, sem
eg hafði geymt í huga mínum frá
því um haustið og veturinn.
Eitt af því var þetta. Jeg sat einn
í herbergi. Þóttist eg þá sjá yfir út-
hafið, eyðilegt og endalaust ólgandi.
Og yfir hafinu leið fram sveimur af
einhverju lýsandi og blikandi; var það
glæsileg sjón; getur vel verið að eg
hefði kallað þetta stjörnur, hefði mér
ekki, með undarlegum hætti, komið í
hug að þetta mundu vera einhvers-
konar flugvélar; síðan sá eg þessar
»stjörnur« líða eða hrapa niður á
hafið, og þykist eg ekki vita hvort
af slysi var eða ásettu ráði.
Löngu seinna var eg að lesa í opin-
berunarbókinni, það er að segja opin-
berunarbók þeirri, sem kend er við
Jóhannes; opinberunarbækurnar eru
annars margar; ein slík bók er Ilions-
kviða, innanum og samanvið, önnur
heitir Edda, og í biblíunni eru opin-
berunarbækur Esekiels og Daniels.
En í opinberun Jóhannesar standa
þessi orð (9. kafli): »Og fimti eng-
ilinn básúnaði, og eg sá stjörnu, er
fallið hafði af himni ofan á jörðina,
og henni var fenginn lykillinn að
brunni undir djúpsins«.
Þetta er undarleg lýsing; stjarna
sem hrapar ofan á jörðina og er þá
auðsjáanlega alt í einu orðin að manni
eða einhverri slikri veru, sem fer og
lýkur upp stað sem er nefndur brunn-
ur undirdjúpanna. En alt verður þetta
skiljanlegt hafi það sem Jóhannes sá,
verið blikandi flugvél, sem í hans aug-
um var eins og stjarna; Jóhannes sér
flugvélina lenda, og sá sem flugvél-
inni stýrði er það, sem lýkur upp
»brunni undirdjúpanna*. Og úr þess
um brunni köma »engisprettur« sem
eru ekki síður ólíkar engisprettum en
»stjarnan« stjörnu. »Engispretturnar«
voru að ásýndum »svipaðar hestum,
búnum til bardaga, og á höfðum
þeirra voru eins og kórónur, líkar
gulli, og ásjónur þeirra sem ásjónur
manna. Og þær höfðu hár sem hár
kvenna, og tennur þeirra voru eins
og ljónstennur. Og þær höfðu brynjur
eins og járnbrynjur, og vængjaþytur-
inn frá þeim var eins og vagnagnýr,
er margir hestar bruna fram til bar-
daga. Óg þær hafa hala likan sporð-
drekum«. Þegar eg las þetta kom
mér i hug »gandreiðin« sem Hildi-
glúmur sér fyrir Njálsbrennu og er
eldshringur utan um; líka komu mér
i hug japönsku vængjavélarnar fyrir
einn mann, sem Herbert Wells lýsir
i framtíðarsögu sinni, striðið í loftinu.
En það er getgáta mín, að bæði »engi-
spretturnar« og gandreiðin sé flugvél-
ar sem birtst hafi í fjarsýn, en raun-
ar verið á ferð á öðrum himinhnölt-
um, þar sem slíkt er lengra komið
en á þessari jörð. Halinn á »engi-
sprettunum er stýrið, »stélið« á flug-
vélinni, eða vélflugunni. Og vel hugs-
anlegt er að þessar flugvélar hafi þar
á staðnum verið nefndar sama nafni
og engisprettur, sem eru .fleyg skor-
kvikindi. — Þessa getgátu mína byggi
eg á mjög mörgu og margvíslegu,
sem ekki er tekið fram i þessari grein,
og virðist mér hún æ því sennilegri
sem eg hugsa betur málið.
Ekki kemur mér á óvart, þó að
margir muni telja það markleysu sem
eg er að fara með. Menn eru svo
vanir að álíta ýmislegt sannleik, sem
er heimska, að þeir hafa skemt á því
skynsemi sína, og halda oft að það
sé heimska sem er sannleikur, eins
og saga visindanna og heimspekinnar
sýnir svo vel og hryggilega og saga
trúarbragðanna ennþá betur og enn-
þá hryggilegar. Annað er það, að sé
þessi getgáta rétt í aðalatriðinu, þá er
hér að ræða um uppgötvun sem meira
mun af leiða en flestum öðrum. En
það má heita alþjóðatrú, að á íslandi geti
ekkikomiðuppnýjar hugsanir, og marg-
iríslendingar hafa þar sjálfir kúgast látið,
eins og varla er að furða, því að hér hefir
illa viðrað fyrir þá sem helzt geta
hugsað nýjar hugsanir, þó að margan
slíkan hafi þjóðin eignast og útlægan
gert, á ýsman hátt.
15. júlí 1912.
Helgi Pjeturss.
Reykjavikur-annáll.
Aðkomumenn: Arnbjðrn Ólafsson, Kvík,
Arne Lönnbeck blaflamaður frá Stokkbólmi
(ætlar aðferðast til Þingvalla og Q-eysis) o.fl.
Dánir: Ingibjörg Þorsteinsdóttir Lindar-
götu 6, 63 ára. Dó 15. júli.
Hermann Stoll, binn svissneski landkönn-
uður, fór fyrir skömmu í sumarferðalag sitt
upp i óbygðir i landkönnunarerindum. Ætl-
aði hann að vera 2 mánuði í þvi ferðalagi,
aleinn eins og hans er venja, en kom hingað
aftur í bili fyrir nokkurum dögum vegna
óveðurs ; gat ekkert aðhafst fyrir rigningum
og súrviðri. En hann ætlar eigi að gefast
upp, heldur halda á stað aftur eftir nokkra
daga og vita hvort eigi hætist um veður.
Ferðinni heitið m. a. kringum Langjökul
og siðar austnr á bóginn að Vatnajökli.
Hljómleíka efnir hinn ungi islenzki lista-
maður Haraldur Sigurðsson frá Kallaðar-
nesi til nú um helgina i Bárubúð. Þar
mun kostur á að heyra leikið á planó af
BÓrstakri snild.
Skipafregn. Sterling kom hingað i fyrra-
kvöld. Fjöldi farþega, einkum erl. ferða-
menn. Meðal íslenzkra farþega voru: frú
Augusta Thomsen, Júllus Stefánss. disponent,
jungf. Soffía Thorsteinsson, jungfr. Hólm-
fríður Jónsdóttir (frá Múla), Haraldur Sig-
urðsson pianóleikari frá Kallaðarnesi, Hjálm-
týr Sigurðsson kaupm., stúdentarnir: Gunnar
Sigurðsson (frá Selalæk), Helgi Guðmunds-
son og Samúel Thorsteinsson. Ennfremur
Ólafur Magnússon ljósmyndari, Gfsli Gnð-
mundsson (eigandi gosdrykkjaverksm. Sani-
tas), Gregersen, danskur stúdent og fri-
merkjakaupm. 0. fl.
Flora kom i gær. Meðal farþega: sira
Einar Jónsson alþm., Sveinn Björnsson yfir-
dómslögm., Þorvaldur Jónsson læknir frá
Isafirði, Guðm. Bergsson bóksali 0. fl.
Botnía fór utan i fyrradag. Fari tóku
sér til útlanda m. a. Gísli Brynjólfsson læknir
frá Khöfn, Jón Kristjánsson prófessor með
sinni frú.
Til Vestmanneyja: Halldór Gunnlaugsson
læknir, ásamt frú sinni.
Taurullurnar
þægilegu, tvær stærðir, eru komnar
aftur til verzlunar undirritaðs. Verðið
er að vanda hið lægsta í borginní
B. H. Bjarnason.
Almennur kvennafundur
verður haldinn i Bárubúð föstudaginn
19. júlí kl. 9 e. h.
Fundarefni: Stjórnarskrármálið o.fl.
Konurl Pjölmermiðl
Kvenréttindafél. islands i Reykjavik.
Öllum þeim, er sýndu okkur hluttekningu
við jarðarför móður okkar, Margrétar Páls-
dóttur, vottum við kærar þakkir.
Ágústa Magnusdóttir. Jórunn Magnúsdóttir.
Kristin Magnúsdóttir. Magnús Magnússon.
Húsmæðraskóli
á ísafirði.
1. október—31. jan. verður haldið
4 mánaða námssKeið fyrir ungar stúlk-
ur í hússtjórn. Borgun fyrir kenslu
fæði og þvott er 25 kr. á mánuði.
Nánari upplýsingar hjá undirritaðri, er
tekur á móti umsóknum til 1. sept.
næstkomandi.
ísafirði 11. júli 1912.
Fyrir hönd kvenfél. Ósk.
Camilla Torfason.
Bambusstangir
til silungsveiða eru aftur komnar til
verzl. B. H. Bjarnason.
4 eða 5 herbergja
íbúð
óskast til leigu sem fyrst. Ritstj. vísar á.
Majór Westergaard
stjórnar vakningasamkomu í kvöld
kl. 8»/t.
Aðgangur ókeypis.
Ung stúlka, sem vill læra hjúkr-
un, getur fengið pláss i Heilsuhælinu
á Vifilsstöðum frá 1. september._
Hnakkur með tösku hefir
týnst af hesti, sem tapaðist frá Bald-
urshaga siðasta sunnudagskvöld, en
fanst nálægt Elliðavatni. Finnandi
beðinn að skila gegn fundarlaunum til
Einars Hjörleifssonar, Ránargötu 29,
Reykjavik, ___________________
Málaravörur
ýmis konar, þar á meðal fernisolían
góða pt. á 0,85. Terpentinolía pt. á
0,90, kom með »Kong Helge« til
verzl. B, H. Bjarnason.