Ísafold - 13.12.1913, Page 3
IS AFO LD
389
Jóíabazaritm
í verzí. B. Tí. Bjarnason
er sá, sem uppfyllir megin-kröfur kaupendanna. Þar er fjölbreytt og gott
Úrval af jólagjöfum handa fuilorðnum og börnum, sem alt er selt
með svo lágu verði, að samkepni er gersamlega útilokuð.
Jólin eru hátíð barnanna. — Jafnvel hinir allra-fátækustu geta
glatt börn sín, ef þeir koma til vor, því vér seljum t. d. klæddar brúður
frá 12 au. og fögur hús frá 25 a. o. s. frv.
t£B~ Verðlaunagrip verzlunarinnar, vasaspegil með minnis-
bók, fær hver sá, sem kaupir í einu fyrir 4—5 kr.
Jóíabazarinn
í Bókaverzlun Ísafoícfar.
Hvergi jafnmikið af gullfailegum og eigulegum munum, 1 d.:
Bréfageymar — Hreyfanlegar bókahyllur (til að snúa) — Dokument-möppur — Skrifmöppur
(margar tegundir) — Poesi-Album — Ýmsar nýtízku skinnvörur (ljómandi fallegar).
Skrauíbréfaeftii, margar nýjar teg. Krijstalls-sVAax og vasar.
Húbín -vasar, skálar, bonbonier. Jlapoíeons-vzsax og skálar.
Siffur-x&mm&x, Btekbyffur úr faguðum
blýantar, hnífar, pennasköft. steini, postulíni etc.
Pá eru enn ótaídar aííar bækurnar,
innbundnar i silki, skinn og eftirgert filabein,
1 þýzkar — franskar — danskar — norskar — sænskar — tslenzkar: -
Schiller, Goethe, Heine, Shakespeare, Byron, Sheliey, Dickens, Hugo, o. s. frv., o. s. frv.
T. d.: öll verk Schillers á 4.50, öll verk Heines á 5.00, öll verk Wellhavens á 12.00,
* §
öll verk Wergelands á 18.00, Björnsons Mindeudgave.
Of langt yrði alt upp að telja, en lítið í gluggana í
Bóhaverzíun fsafoídarf
Dvergur,
trósmiðaverksmiðjaogtimburverzluix
(Flygenring & Co.)
Hafnarfirði. Simnefni: Dvergur. Talsími 5 og 10.
hefir jafnan fyrirliggjandi: Hurðir — Glugga — Lista og
yfir höfuð alls konar timburvörur til húsabygginga og annarra
smíða. —- Húsgögn, ýmiskonar, svo sem: líúmstæði — Fata-
skápa — Þvottaborð og önnur borð af ýmsum stærðum.
Pantanir afgreiddar á ailskonar húsgögnum. —
Bennismíðar af öllum tegundum.
Miklar birgðir af sænsku timbri, cementi og pappa,
Timburverzlunin tekur að sér byggingu á húsum úr timbri og stein-
steypu, og þar sem vér höfum fengið betri kaup á timbri í þetta skifti
en alment gerist, væntum vér að geta boðið viðskiftamönnum vorum hin
allra beztu viðskifti, sem völ er á.
heller været minHensigtspecielt at ud
tale nogen Dom om Herr Maurit-
zens Forhold«). Þessi viðurkenning
hr. Thor E. Tuliniusar kemur enn-
þá greinilegar fram í bréfi hans til
fyrgreinds hæstaréttarmálaflutnings-
manns, dags. 5. maí þ. á. Þarseg-
ir hr. Tulinius: »Herra Mauritzen
er mér með öllu óviðkomandi í þessu
máli, og samkvæmt þvi, sem upplýst
er orðið einnig á annan hátt, hefi eg
— eins og tekið var fran. í síðasta
bréfi mínu — ástæðutil að halda, að
herra Mauritzen hafi ekki notað hina
útgefnu reikninga með tilbúnu verði
á nokkurn þann hátt, sem skaðlegur
megi beita fyrir lögleg verzlunarvið-
skifti (á dönsku: »Jeg har intetsom-
helst med Herr Mauritzen at göre i
denne Sag, og efter det ogsaa paa
anden Maade oplyste har jeg, som i
min sidste Skrivelse bemærket, Grund
til at tro, at Hr. Mauritzen ikke har
benyttet de udstedte Facturaer med
fingerede Priser paa nogen for den
legitime Handel skadelig Maade«).
Eg vona að það sjáist af framan-
sögðu, hversu gersamlega rangur og
ómaklegur hann er þessi orðróqaur,
sem hér kvað ganga um mig út af
þessu máli. Treysti eg þvi, að menn
trúi því, sem eg hefi skýrt frá, og
undir öllum kringumstæðum ætti all-
ur vafi að hverfa, þegar menn lesa
hina tilvitnuðu kafla úr bréfum hr.
Thor E. Tuliniusar sjálfs, þess manns-
ins, sem komið hefir öllu þessu máli
af stað.
Staddur í Rvík 10. des. 1913
Ckarles Mauritzen.
ReykjaYíkur-annálI.
Aðkomumenn. Meðal þeirra, er á Botniu
komu um daginn að austan var Hermann
Þorsteinsson kaupm. frá Seyðisfirði. Hann
hélt heimleiðis á Botníu í fyrradag. —
Hér eru nú staddir nokkrir menn úr stjórn
Sláturfélags Suðurlands m. a. Ágúst frá
Birtiugakolti. Ennfr. Guðm. bóndi frá
Skipholti og Hallgr. hóndi frá Grimsstöðum.
Botnía fór héðan i gær síðdegis. Með
henni tóku sér fari: Mr. Hobbs, Petersen,
skipstjóri af Lord Carlington, C. Sæ-
mundsen umboðsm., Andrés Guðmundsson
og Mauritzsen stórkaupmenn frá Leith,
Friðþjófur Thorsteinsson verzlm., Sveinn
Árnason. fiakimatsm. á Seyðisf. og skozki
verkfræðingurinn sem hsfir staðið fyrir
smíði Skerjafjarðarbryggjunnar 0. fl.
Bæjarsiminn. Margir hafa minst á það
við Isafold, hve vænt þeim þætti að fá
bæjarsímann opinn lengnr en nú, eða minsta
kosti til kl. 12 á kvöldin. Hafa oss einn-
ig borist tilmæli, um að gangast fyrir á-
skoranasöfnun meðal símnotenda hér í bæ
um þetta. Eu vér fáum naumast skilið,
að þess sé þörf og berum það traust til
Bimastjórnarinnar, að hún sjái þörfina
og láti því ekki á sér standa.
Eldur kviknaði i húsinu nr. 40 við
Laugaveg i fyrradag. En von bráðar tókst
að slökkva hann.
Fisksalan. Baldur seldi afla sinn nýlega
i Englandi fyrir rúmar 11000 kr.
Lá við manntjóni. I fyrradag bvolfdi
stórum bát við steinbryggjuna; var hlað-
inn vörum héðan, og var á leið út
að Botníu. Brim var mikið, og lenti því
stór alda á bátnum, er ýtt var frá bryggj-
unni og hvolfdi. Þrjá menn tók út, en
fengu borgið sér. Vörurnar i bátuum
skemdust meira og minna.
Messufail verður i Frikirkjunni hér i
Rvik á morgun, vegna þess, að frikirkju-
presturinn verður við kirkjuvígslu í Hafnar-
firði.
Nýjasta bifreiðin bilaði í fyrradag litils-
háttar á leið héðan auður i Keflavik.
Hrökk suudur eion partur vélarinnar á
leið upp flamarinn i Hafnarfirði og kyr-
settí bifreiðina. Nú kvað vera búið að
gera við þessa bilun og heldur bifreiðin
áfram tilKeflavíkur i dag.
Skipafregnir B otnvörpungarnir
Apríl og Ingólfur Ainarson eru nýfarnir
til Englands. Pari tók sér á Ingólfi Arent
Claessen verziunarinaður.
Kong Helge er nú á leið hingað
frá Leith. Kemur væntanlega á morgun.
Til frikirkjuvigsluhátiðar i Hafnarfirði á
morgun eru ýmsir Reykvikingar boðnir.
Sennilega fá bifreiðarnar nóg nð gera á
morgun að flytja fólk milli bæjanna, ef
veður leyfir.
Umsóknarfrestur um stöður Fiskifélags-
ins var útrunninn 1. des. Um ráðanauts-
stöðuna hafa þessir sótt: Matthias Ölafs-
son fyr alþingism., Haukadal, Gnðmundur
Kristjánsson, fyr skipstjóri á Vestra, Arn-
björn Ólafsson kaupm. Keflavik, Anton
Jacobsen verzlunarstjóri á Eskifirði og
einn, sem eigi vill láta sln getið.
Og um stöðnna Sem eftirlitsmaður með
meðferð og hirðing á vélum, sækja þessir:
Bjarni Þorkelsson skipasm., Ólafur Sveins-
son vélastj., Flateyri, Jón Brynjólfsson,
mótoristi Rvik, Jón Sigurðsson motoristi,
Hrisey og Jón Guðmundsson Patreksfirði.
--------------------------
Strandferðir 1914.
Eins og kunnugt er, tekur Björg-
vinjarfélagið að nokkuru strandferð-
irnar að sér næsta ár, og fær fyrir
30.000 kr. En þar á móti stendur
til, að komi 30.000 króna tillag úr
ríkissjóði Norðmanna.
En auk þess hefir ráðherra gert
samning við Þórarinn Tulinius, um
að hafa í förum skip, sem ætlað er
hinum minni höfnum, og á að fara
7 strandferðir alls.
Nánari áætlun og annað fyrirkomu-
lag ókunnugt enn.
Fyrir þessar ferðir á að greiða 30
þús. kr.
Hraunáburðar-fyrirtækið,
sem mikið var talað um í fyrra,
virðist nú ætla að komast í fram-
kvæmd. Hefir nýlega verið stofnað
félag í Hamborg til þess að reka
það. Félagið heitir: Islands Vulkan
Phonolith Syndikat. J
Af þessu fyrirtæki hlýtur Hafnar-
fjörður að hafa miklar.tekjur og gagn,
ef blessast. Auk þess mun hraun-
áburðurinn verða mjög til þess að
auka flutninga með skipum héðan
til útlanda.
Stefáni Stefánssyfii
skólameistara var haldið fjölment
samsæti á Akureyri á miðvikudags-
kvöld, til þess að minnast þrefalds
»afmælis« hans á þessu ári, silfur-
brúðkaups, 25 ára kennara-afmælis
og 50 ára aldurs-afmælis.
„Sambands“-erindi
mikið flutti skáldið á Sandi nýlega
á Akureyri, og hafði mjög »lagt
mönnum liðsyrði* — á sinn hátt —
þeim er eigi fylgja fagnaðar-erindi
Sambands-flokksins.
Öðruvísi mér áður brál
Níræð
verður frú Thora Melsted þ. 18.
þ. mán.
Jólin og hinir bágstöddn.
Það er 'áreiðanlega fátækt á mörg-
um heimilum hér í bæ, og þessvegna
ávalt þörf á hjálp góðra manna. En
jólin gefa mönnum ágætt tækifæri
til þess að gleðja aðra. A undanförn-
um jélum höfum við séð, að gjafir
bæjarbúa hafa vakið gleði á mörgum
heimilum og gjört jólin bjartari hjá
mörgum fátæklingum.
Brátt koma jólin og það er okkur
enn sem fyr gleðiefni, að taka á móti
gjöfum í þessu skyni. Biðjum við
menn að senda gjafirnar til okkar
sem allra fyrst.
Þessari beiðni hefir áður verið vel
tekið, og svo mun enn verða.
Með kærri kveðju.
Jóhann Þorkelsson. Bjarni Jónsson.
Áskorun til íslenzkra
alþingiskjósenda.
A fjölmennum fundi í »hinu is-
lenzka stúdentafélagi« í Reykjavík
föstud. 5. þ. m. var svofeld álykt-
un samþykt í einu hljóði.
»Fundurinn skorar á íslenzka kjós-
endur að fela þingmönnum að styðja
að því af fremsta megni, að alþingi
veiti ríflegt fé til þess að samdar
verði sem fyrst íslenzkar kenslubæk-
ur í öllum námsgreinum handa skól-
um landsins, sérstaklega þó handa
alþýðuskólum og gagnfræðaskólum*.
Reykjavik 7. des. 1914
Matthías Þórðarson
núv. formaðar Stúdentafélagsins.
Jolaglaðning handa fátæk-
um. Kvenfélag Frikirkjusafnaðar-
ins í Reykjavík hefir áformað, að
verja allmikilli fjárhæð úr sjóði sín-
um til að gleðja fátæklinga fyrir jól-
in. En það veit, að mörgum er að
miðla, og vill taka höndum saman
i þessu skyni við sem flesta hjarta-
góða og örláta menn í bænum.
Mælist það nú til, að góðir menn
skjóti saman og auki á þá leið fjár-
hæð þá, sem félagið ætlar að hafa
til jólaglaðningar fátækum. Fénu
verður útbýtt, ef nokkuð safnast, án
tillits til þess, i hvaða söfnuði fá-
tæklingarnir eru.
Fríkirkjupresturinn veitir gjöfun-
um móttöku.
Tíeyringurinn og fimmeyringurinn
eru teknir með þökkum.
Lofskeytastöðin
fyrirhugaða hvað væntanleg í vor
hér í Rvík. En þó með öðrum
hætti en alþingi gerði ráð fyrir, að
því er ráða má af viðtali ráðherra
við Morounblaðið.
Vill ráðherra hafa stöðina í sam-
bandi við stöð, sem Danir ætla að
reisa á Færeyjum.
Mun það samt ærið viðsjárvert,
svo sem betur skal að vikið hér í
blaðinu.
Góður afli.
Þeir sem hafa áhuga á fiskiveið-
um mun þykja fróðlegt að frétta
hvaða botnvörpungur hefir selt bezt
afla sinn í Hull úr þrem seinustu
ferðunum. Pickerings & Haldane’s
fél. eiga botnvörpung kallaðan »Sir
James Reckitt«, honum stýrir P.
Christensen (danskur maður) vana-
lega kallaður meðal fiskimanna »Pet-
er Tipp«. Ur öllum þrem ferðun-
um var sölu-upphæð pd. sterl. 4250.
2 seinni. ferðirnar námu 6 vikna
tíma; aflinn úr fyrri ferðinni var pd.
sterl. 1509 og úr seinni ferðinní,
selt þ. 26. þ. m. pd. sterl. 1723 sem
er »Record Trip«. Aflinn var mest
allur koli. í seinustu ferðinni fisk-
aði Christensen 1,100 kit af kola,
sem var fiskað og kom undir þiljur
á 24 kl.stundum. Christensen hefir
fundið ný fiskimið einhverstaðar
nyrzt við Noreg, þar sem hann
mokar upp fiskinum. Skipstjórarnir
á hinum botnv. hérna eru auðvitað
forvitnir að komast eftir hvar blett-
urinn er, og hefir Christensen átt
fult í fangi með að komast undan
þeim. Christensen fór 1 eina ferð-
ina enn þ. 27. þ. m. og býst við
góðum afla á sama stað og áður.
Hull, 28. nóv. 1913.
K. O. S.
Frú Hólmfríður Sigurðard.
á ísafirði lézt á miðvikudagsmorg-
un, eftir stutta legu, að afstöðnum
holdskurði. Hún var dóttir Sigurð-
ar sál. Jónssonar fangavarðar, af hinni
nafnkunnu Þorvalds-ætt, myndarkona
mikil, eins og hún átti ætt til. Hún
var gift Maríusi Guðmutidssyni verzl-
unarmanni.
■■ -------- 1 —