Ísafold


Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 4

Ísafold - 08.08.1914, Qupperneq 4
242 1 S A F 0 L I) en að farga góðum ám af stofnin- um. Stofnsuppeldi er orðið svo dýrt, og þegar fénaðurinn fækkar taka viðskiftin til sín alla framleiðsl- una, svo menn eiga erfitt með að fjölga fé sínu aftur þegar batnar í ári. — Einnig er ekki ólíklegt að borgað geti sig að fjölga fénu með korn- gjöf, einkum í sambandi við beit. Bendir ýmislegt á að svo sé, en til þess að sanna það þarf tilraunir, og skal því eigi að því vikið hér. En svo kemur spurning um það, bvort fleiri fóðurtcgundir geti eigi komið til greina. Þær fóðurtegundir, sem framleidd- ar eru í landinu sjálfu, eru lýsi og síldarafurðir. Eftir skýrslu stjórnar Búnaðarfél. íslands, er iögð var fram á ársfund- inum í vor, má sjá að hún hefir eigi talið síldarmjöl ódýrt fóður. Þó má telja liklegt, að þar sem sérstak- lega vantar holdgjafa í fóðrið eigi það heima. Um lýsið hefir Torfi í Ólafsdal ritað í áðurnefndri grein í Búnaðar- ritinu. Telur hann að 33 pd. af lýsi muni jafngilda 100 pd. af rúgi til skepnufóðurs, og verði þá lýsið um 2r/2 sinnum ódýrara skepnufóður en korn, ef lýsis pundið er 12 aura, en rúg pundið 10 aura. Samkvæmt áðursögðu um kornið ættu þá 40—60 gr. af lýsi að svara tii hálfrar heygjafar. Þar sem lýsið er einhæf fóðurteg- und, vantar bæði holdgjafa og kol- efni, þá mun vart mega gefa svo mikið af því, vegna þess að tilraun- ir hafa sýnt, að feitin má ekki fara fram úr tilteknum hluta fóðursins, ef hún á að notast og hafa gildi sem fóður. Hámarkið er talið að vera Viooo af lifandi þunga skepn- unnar. Sauðkind sem vegur 45 kg. ætti þá að mega fá mest 45 gröm af feiti í fóðrinu. Sé nú talið að kindin þurfi á dag 1 kg. af góðu heyi og að í því séu c. 15 gröm feiti, ætti að vera óhætt að draga af heygjöfinni Va, sem yrði þá bætt upp samkvæmt framansögðu með 35 gr. af lýsi. Þyrfti kindin þá í 20 vikur tæp 5 kg. af lýsinu, sem yrðu með 24 aurum kr. i‘20. Er því auðsætt að lýsið er afar- ódýrt hjálparfóður, ef það gefur þessa raun. í vetur sem leið hefir víða um Borgarfjörð verið óáran í sauðfé, þó móg hey hafi fengið, að vöxtum. Virðist það stafa af því að heyin hröktust og verkuðust illa og svo hefir hin óvanalega langa innifóðrun á fénu hjálpað til. A bæjum sem lýsi var gefið sauð- fénu, bar ekkert á þróttleysinu, að því er áreiðanlegir menn hafa sagt mér. Enda vissi eg um einn þeirra, að féð var þar í ágætu standi. Mun þó, að því er eg veit bezt, ekki hafa verið ætlað meira lýsi til að bæta upp þann hluta heysins, sem dreg- inn var af (Ve), en svarar til þess er eg nefndi hér að ofan. En auk þess að vera ódýr kraft- fóðurtegund, þá hefir lýsið marga góða aukakosti, að sögn þeirra manna er hafa reynt það. Lýsið er gefið þannig, að heyið er leyst og dreift í þunt lag yfir gólfið. Er svo heytuggum dyfið niður í lýsið og dreift yfir heyið. Heyinu síðan vöðlað saman og látið biða í þröngri geil eða meis í fult dægur eða þar til lýsið er búið að brjóta sig um heyið. Hefir það þann stóra kost að það bindur ryk og myglu, sem í heyinu kann að vera, svo það nær eigi að sogast niður í andfæri skepnunnar og valda henni tjóni. Torfi í Ólafsdal telur reynsluna sýna, að lýsið geri léiegt hey melt- anlegra. Er það og trúlegt að svo sé, þar sem lýsið er kraftmikið og auðmeltanlegt fóður. Hefir því skepnan meiri meltingarorku til að nota sér þungmeltari hluta fóðurs- ins, og einnig er talið að fóðrið notist betur, ef gefnar eru fleiri en ein tegund. Þá er og líklegt, að fé þoli miklu betur að nota sér beit í kuldum á vetrum, sé því gefið lýsi og skal eg aðeins leyfa mér að minna á það, hvers Steingrímur læknir Matthías- son ráðlagði okkur íslendingum að neyta, áður en við færum út í mik- inn kulda. Það var einmitt feiti og hið sama gildir auðvitað um skepn- urnar. Yfirleitt telja þeir sem reynt hafa lýsið, að það verji skepnuna sjúk- dómum t. d. máttleysi eða beinsýki, sem liklegt er að stafi fremur af því að skepnan geti ekki notað sér viss efni í fóðrinu, heldur en þau vanti í það. Ræður þá lýsið bót á þvi. Einnig er það talið vörn við bráða- fári. Er það mjög trúlegt að lýsið auki lífsþrótt skepnanna, svo þær verði siður næmar fyrir sjúkdómum. Má og minna á það, hversu börn- unum er þorskalýsið holt. Eitt væri athugunarvert, ef heyið væri til muna sparað með lýsinu (t. d. að Vs) °S Það er' að lýsið er einhæf fóðurtegund, vantar bæði kolvetni og eggjahvítu. Gæti þvi verið spurning, einkum ef heyið er er ekki gott, eða vel verkað, (sjá t. d. ritgerð H. V.: Búnaðarit 27 ár, bls. 180) hvort skepnurnar, einkum lambfullar ær síðari hluta vetrar, fengju ekki of litla eggjahvitu i fóðr- inu. Fyrir því vantar reynslu. Til að fyrirbyggja það mætti benda á, að dugað gæti að gefa ögn af síldarméli, sem er mjög eggjahvítu- rikt. Til dæmis mætti hugsa að hey væri helmingur gjafar, r/3 lýsi Ve sildarmél. Allar þær tölur sem hér eru gefn- ar, eru að vísu ekki óyggjandi, þar sem þær hafa ekki fulla nákvæmni við að styðjast. En þær eru bygð- ar á þeirri innlendu reynslu, sem eg veit til að fram hafi komið um þetta efni, og mjög fjarri sanni ættu þær varla að vera. Sé gengið út frá því að svo sé, þá sýna þær bændum glögglega, að ekki er eins voðalegt og þeir hafa haldið, að tiyggja fénað sinn með hjálparfóðri í tima. Vanþekkingin á því hefir leitt til þess, að bændur hafa látið reka á reiðanum og ekki byrjað á að gefa kraftfóður fyr en of seint var orðið og hjálp forða- búra eða kaupmanna ekki gert gagn. Þessvegna er þörf á tilraunum er leiði bændur í sannleika um þetta efni og verður væntanlega að því vikið nánar á öðrum stað. G. Björnsson landlæknir, færði rök að því í fyrirlestri, er hann hélt í dag um fánamálið, að ekki væri það efnaskortur né fámenni, sem stæði í vegi okkar íslendinga til að vera sjálfstæð þjóð. Þar stæðu margar þjóðir að baki okkar, sem sjálfstæðai teldust. Er gleðiefni að heyra slíkt eftir nána rannsókn á því máli og felur í sér ljúfar framtíðarvonir. En til þess að undirstaða þeirra vona sé try^g, þurfa landsmenn að tryggja efni sín og atvinnuvegi svo að eigi verði hætta á, að eins árs harðindi geti eyðilagt arð og stofn, annars aðalatvinnuvegs þjóðarinnar og gert þar með að engu margra ára starf og framför og leitt til fækkunar á þjóðinni — útflutnings. Sé sú trygging fengin, getur þjóð in vonglöð horft fram á ókomna tímann og óhrædd valið um þá kosti, er bíða hennar. P. t. Reykjavik, 14. júni 1914. Andrés Eyjólfsson. AlþýduféLbókasafn Templaras. 8 kl. 7—9 Borgarstjóraskrifstofan jopin virka daga 1 )~8 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og í —7 Bæjargjaldkerinn Lanfásv. 5 kl. 12—8 og 5 -7 íslandsbanki opinn 10—21/* og B1/*—7. K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8árd.—10 ;ibd. Alm. fundir fid. og sd. 8*/i slbd. Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helppm Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, B1/*—6'/i. Bankastj. 12 2 Landsbókasafn 12—8 og B—8. Útlán 1—8 Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 32—2 Landsféhirðir 10—2 og B—6. Landsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 13—2 Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka ciítga helga daga 10—12 og 4—7. KTáttúrugripasafnið opið l1/*—2*/i á sunnud. Pósthúsið opið virka d. 9—7, sunnud. 9—1. Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6 Stjórnarráðs8krif8tofurnar opnar 10—4 dagl. Talsími Reykjavíkur Pósth.3 opinn daglangt 8—10 virka daga, helga daga 10—9. Vífilstaðahælið. Heimsóknartími 12—1 Þjóðmenjasafnið opið sd., þd. fmd. 12—2, Skrifstofa Eimskipafélags íslands. Landsbankanum (uppi). Opin daglega kl. 5—7. Talsími 409. Hjörtur Hjartarson yfirdóms- lögmaður, Bókhl.stig 10. Sími 28. Venjul. heima 12Y2—2 og 4— 5r/2. Föstudagsmorguninn 7. ágúst and- aðist móðir mín, Kristín Stefánsdótt- ir, fædd Stephensen, hér á heimili mínu. Jarðarför hennar fer fram hér á Meðalfelli miðvikudaginn 19. þ. m. og hefst kl. 10 árd. Þetta tilkynnist þeim er heiðra vilja útför hennar með návist sinni. Meðalfelli í Kjós, 8. ágúst 1914. Eggert Finnsson. Áiæít íml af lömpum borð- vegg- nátt- er nú í LIYERPOOL. Þar fást: Kúplar, glös, kveikir og allskonar glös og net á gas- lampa. Nærsveitamenn eru vinsamlega beðnir að vitja Isafoldar í afgreiðsluna, þegar þeir eru á ferð í bænum, einkum Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem flytja mjólk til bæjarins daglega. Áfgreiðslan opin á hverjum virkum degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á kvöldin. Minningarritið um Björn Jónsson, fyrra bindi með mörgum myndum, er komið út og fæst í bókaverzlunum. Verð: 1.50. rr‘rrTTtrrrirrrrTTrrrvTTTrFrrrTFFrTrrrFYrr.rrrrtTrTTTTri h Central Malíexírakt írá hinum samein. ölgeröum er mjög styrkjandi og gagnleg viö veikindum og \-eiklun. P r c r Styrkjandi — seðjaudi bragðgóð. Fæst nú i hverri fjölbirgðaverzlun. 00000 000 00 0 00 0 0 0 00 0 0. 0 00 000 00000%*%%% * mmm'% begar mér barst dánarfregn mannsins míns, er andaðist á Stöð- varfirði í síðastliðnum júnímánuði, þá fanst mér einstæðingsskapur minn harla tilfinnanlegur, þar sem eg heilsulasiti og efnalaus með 4 ung- börn var ein á heimili okkar, en mér til harmaléttis fann eg glögt að ýmsir nágrannar minir vildu sýna mér meðlíðan og leitast við að stytta leiðindastundir mínar, þótt eg ekki geti nafns þeirra hér, en eg get ekki látið ógetið hr. Jóns Jónassonar skip- stjóra á Eggert Ólafssyni, mér alls óþektan, er hér var á ferð og sendi mér 20 krónur að gjöf, fyrir hvað eg vil hér með votta honum inni- legt þakklæti og bið eg algóðan guð að blessa og margfalda efni hans fyrir þessa rausnarlegu og mér kær- komnu drenglyndisgjöf, sem og um- buna öllum þeim, ei mér hafa rétt hjálparhönd í raunum mínum. Gerðum 15. júlí 1914. Hansína María Senstius. H.Y. CMstensen & Co. Kjöbenhavn, Metal-og Glaskroner etc. for Electricitet. og Gas. Störste danske Fabrik og Lager FiestiS brúðkaupinu þar til þér hafið fengið tilboð frá ■; Köbenhavns Möbelmagasin. . P0UL RASMUSSEN. Vestervold 8 (Ny Rosenborg). Stærsta húsgagnaverksm. Dana. ; Kartöflur. í dag fást nýar íslenzkar kartöfl- ur á Klapparstíg 1 B. Simi 422. Hvers vegna þjást af veik- indum þegar Húsgögn Chr. VIII. frá 400 kr. Agmt dagRtofnhásgögn 1 . . Borðstofnhúsgögn úr eik ; Orll KF, Svefnherb.húsgögn pól.birkij Dagstofnhúsg. pól. mah. Borðstofuhúsgögn úr eik Svefnherb.húsg. pól. mah. Jafnan 300 ýmsar húsgagnaheildir tilbúnar. Biðjið um verðskrá. Eigin verkstæði. 10 ára ábyrgð. Reform-beltið getur læknað yður og hjálpað? Reform-beltið er nútímans bezta lækningaáhald. — Vér ábyrgjumst beltin í eitt ár. Margir læknar nota sjálfir og ráðleggja öðrum Reform- belti. — Mörg meðmælabréf fyrir hendi. — Biðjið um skrá; hún kost- ar ekkert, en burðargjaldið er 20 aurar. Þegar pantað er, verður að segja nákvæmlega til um mittismálið. Verðið er. 25 kr., 35 kr., 50 kr. og 80 kr. Þegar andvirði fylgir pöntun gef- um vér s°/0 afslátt og burðargjaldið. Ef borgað er við móttöku verður og að borga burðargjald. Reform-Bureauet, Rosenkrantzg. 19 II. Kristiania. Norge. Gaddavír. Nokkrar r/i rullur af gaddavír til sölu fyrir að eins 10 kr. rullan. Upphaflegt verð 14 kr. rullan. Óskar Halldórsson, Klapparstíg x B Reykjavik. Hyggið að! Skór: 85000 pör. 4 pör fyrir 9 kr. Vér höfum keypt mjög miklar birgðir af skóm eftir nýustu gerð og seljum því 2 pör af karlmanns- og 2 pör af kvenskóm, reimuðum, gulum eða svörtum, afar fallegum, með sterkum leðursólum, stærð eftir númeri eða*sentimetrum, öll 4 pörin fyrir einar 9 kr., er borgist við móttöku. S. Stroch, Krakau (Österr.) Krakowska 29—3. Líki eigi, má skifta eða fá andvirð- ið endursent. Klæöayerksmiðjan Alafoss kembir, spinnur, tvinnar, þæfir, ló- skér, pressar, litar, gagneimir (afdamp- ar) og býr til falleg tau. Vinnulaun lægri en hjá öðrum klæðaverksmið- jum hér á landi. Alafoss-afgreiðslan, Laugavegi 34. Rvík. Sími 404. Bogi A. J. Þórðarson. Seltirningar eru beðnir að vitja ísafoldar í af- greiðsluna í sumar.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.