Ísafold - 22.09.1915, Blaðsíða 3
T
Vélsljóraskóli íslands
Skólinn byrjar 1. október.
Þeir, sem ætla að sækja skólann, sendi umsóknir og skilríki til undir-
ritaðs. Þeir einir< fá að ganga undir vélstjórapróf, er hafa stundað járn-
smiði 3 ár, eftir 14 ára aldur, í þeim járnsmiðjum, er stjórnarráðið tekur
gildar, og þeir, sem fengið hafa véistjóraskírteini eða undanþágu til að
vera yfirvélstjórar, áður en lögin um stofnun. vélstjóraskólans öðlast gildi.
M. E. Jessen.
Konungl. hirð-Yerksmiðja
Bræðurnir Cloétta
mæla með sínum viðurkendu Sjokólade-tegundum,
sem eingöngu eru búnar til úr
fínasta Kakaó, Sykri og Vauille.
Ennfremur Kakaópúlver af beztu tegund.
Agætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum.
CARLSBER6 ÖLCERBARHÚS
mæla með:
Carlsberg skattefri
alkoholfátækt, ekstraktrlkt, ljúflengt, endingargott.
Carlsberg skattefri Porter
ekstraktríkastur allra Portertegunda.
Carlsberg gosdrykkjum.
áreiðanlega beztu gosdrykkirnir.
Innilegar þakkir vottum við undirrit-
uð öllum sóknarmönnum Þorleifs prests
Jónssonar á Skinnastað i Öxarfirði,
er heiðrað hafa minningu hans með
þvi að reisa legstein á leiði hans.
Beigalda 18. sept. 1915.
Sesselja Þórðardóttir.
Svafa Þorleifsd. Þóra Þ. Grönfeldt.
Jðn Þorleifsson. H. Grönfeldt.
Tveir óskilaliestar eru i
geymslu á Bildsfelli i Grafningi.
Rauður góðhestur, mark: standfjöður
aftan vinstra; gráskjóttur, ómarkaður.
Bildsf. 19. sept. 1915.
GuOm. Þorvaldsson.
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði heilir
+
Halldór Jónasson,
frá Hrafnagili.
F. 21. maí 1900, d. 27. ág. 1915.
Hún er nú nnnin sú þunga þraut,
er þú varst dauöaws að bíða.
Svo glaður og ungur þú gekst þá braut
i gróanda þroskatíða,
sem liggur úr sjúkdómssölum heim,
á sólfjöll horfinna lýða.
Þó varstu samt glaður, vinur minn,
og vonin þín lifði unga,
og eins er þú kvaddir mig síðsta sinn,
þótt sjúkdómsins bærir þunga.
í meutaheim undi andi þinn
og eins voru hönd og tunga.
En nú ert þú hrifinn hóðan burt
— við horfum eftir þór leugi.
Við ei fáum svör þótt að só spurt:
Hví æsku þvarr blóma gengi 1
En harpa vors jarðlífs hljómar þungt
á harmanna djúpu strengi.
Þú síðstu raununum sæll varst í
þá sorgirnar vildu mæta,
en móðurhöndin mjúk og hlý
öll meinin þín vildi hæta,
hún sveipaði skýjunum flestum frá,
þá fór alt sem vildi græta.
Nú kærleikshönd önnur þig kvaddi heim
og klappar þór mjúkt á vanga,
því drottinn þig leiðir um dýrðargeim
um dagana bjarta og langa.
Og þar er ei kvfði, þraut nó sorg,
þar þekkist ei erfið ganga.
Þó hjörtu ó skilnaðar helgri stund
ei hörmunum sínum gleymi,
og finnist sem blæði einhver und
og indæla minning dreymi,
samt andast ei von um endurfund
í eilífum kærleiksheimi.
Lárus Halldórsson.
Bftirmæli.
+
Á páskadag, 4. apríl síðastliðinu,
andaðist Ketilbjörn bóndi Magnússon
að heimili aínu, Saurhóli í Saurbæ í
Dalasýslu. fíann var sonur Magnúsar
hreppstjóra Jónssonar í Tjaldanesi, —
þjóðkunnugs manns, er lifir son sinn
og er nú orðlnn maður gamall, áttræð-
ur. Ketilbjörn heitinn var fæddur í
Gilsfjarðarmúla, 25. júní 1885, en flutt-
ist þaðan vorið eftir að Innra-Fagra-
dal, með foreldrum sínum, og þremur
árum síðar að Tjaldanesi. Þar ólst
hann upp í föðurgarði. Hinn 17. ág.
1889 kvæntist hann og gekk að eiga
Margréti Snorradóttur. Varð þeim
hjónum 5 barna auðið, en eigi lifa
, nema þrfr synir. Margrét kona hans
andaðist 22. febrúar 1897. Nokkru
síðar gekk Ketilbjörn að eiga Hall-
dóru Snorradóttur, og átti við henni 8
börn. Lifa 4 þeirra. Ketilbjörn heit-
inn bjó lengstum og var allgóður bóndi,
og þó eigi auðugur. Hann hætti eitt
sinn búskap og var þá eltt ár í Reykja-
vík. Síðan fór hann þaðan aftur og
til Saurhóls og reisti þar bú á ný
1908. Þar bjó hann síðan til daúða-
dags. Banamein hans var lungna-
bólga.
Ketilbjörn beitinn var maður greind-
nr, sem þeir frændur allir, lóttur í
lund og hvers manns hugljúfi. Fráfall
hans er því eigi aðeinS harmur fyrir
ástvini hans og náfrændur, heldur og
fyrir þá mörgu menn, sem hann hafðl
gert sór að vinum.
Erl. simfregnir.
Opinber tilkynning frá brezku
utanríkisstjórninni í London.
Skýrsla French.
LondoD, 16. sept.
Sir John French tilkynnir:
Engin breyting hefir orðið síð-
an 9. sept. Stórskotaorustur hafa
þó staðið, einkum fyrir suðaustan
Armentieres og í nánd við Ypres.
Síðustu fjóra dagana hafa 3 óvina-
loftför verið skotin niður. Tvö
voru hæfð af fallbyssuskotum vor-
um og féllu þau hjá herlínu Þjóð-
verja. Hið þriðja var skotið niður
af flugmönnum vorura og féll hjá
herlínu vorri. Var flugvél sú mjög
lítið skemd, en loftfararnir fórust.
Síðustu vikuna heflr 22 sinnum
staðið orusta í loftinu og í ellefu
skifti hafa óvinaloftförin verið
neydd til þess að lenda. 10. sept.
skaut stór8kotalið vort, með að-
stoð loftfars, á 2 njósnarloftför
óvinanna, fyrir austan Ypres. —
Annað þeirra var ónýtt, en hitt
urðu óvinirnir að láta lenda.
Sprengjuviðureign hefir staðið,
en árangur enginn orðið á hvor-
uga hlið.
London 17. sept.
Útdráttur
ðr opinberum skýrslum Rússa 14,—16. sept.
Þjóðverjar veita oss enn atgöngu
vestan við Jacobstadt á herlínunni
til Dwinsk.
Sunnan og vestan við Dwinsk
hrundum vér áhlaupum Þjóðverja, er
þeir voru komnir þétt að virgirðirg-
um vorum. Norðaustur af Sventsiany
nnnum vér sigur á Þjóðverjum. A
vöðunum á Vilia á leiðinni til War-
schau járnbrautarinnar stöðvuðum vér
áhlaup óvinanna með skothrið, og
nokkrar snarpar smáorustur urðu i
Jigury-þorpi austan við Skidel.
Norðaustur af Vilna fóru óvinirnir
yfír Vilia.
í Orany-héraði miðar Þjóðverjum
dálitið áfram, en þeir voru hraktir
aftur á bak austan við Eismonty.
Hjá Efri-Niemen hafa óvinirnir
nokkrum sinnum hafið sókn.
Hjá Pinsk hörfa hersveitir vorar
fyrir sókn Þjóðverja. A svæðinu
þaðan og suður undir Rovno sækja
þeir dálítið fram.
Austan við Kovel tókum vér þorp
eftir harða viðureign, handtókum þar
2 liðsforingja og 74 hermenn og
náðum 4 vélbyssum.
í Derason-héraði fórum vér sigri
hrósandi yfir Golwn og handtókum
þar alt 14. herfylki (Battalion) Aust-
urríkismanna og síðar handtókum
vér 1200 aðra hermenn. Óvinirnir
voru illa leiknir, en reyudu þó að
rétta við bardagann með gagnáhlaup-
urn, en hersveitir vorar sækja fram
og handtóku 1110 hermenn þ. 16.
sept. og náðu 8 vélbyssum.
í Bukowina hafa óvinirnir farið
hrakfarir, mist hvert þoipið á fætur
öðru og af handteknum mönnum
hata þeir eingöngu mist 20 liðsfor-
ingja og 2000 hermenn.
Hjá Gontow eyddum vér áhlaupi
þeirra, handtókum 140 iiðsforingja
og 7300 hermenn og náðum einni
stórri fallbyssu, 6 minni, 26 vél-
byssum og miklu öðru herfangi. Elt-
um vér nú óvinina vestur af Sereth.
Þrátt fyrir borginmannlegar fregnir
Austurríkismanna hrekjum vér óvin-
ina enn lengra vestur á bóginn vest-
an við Tornopol, þrátt fyrir liðsauka
ISAFOLD
: I I»ITM.I1 Mni'M'iw , '"«.v WMinir.i '.11 :i.. =;
þann, er þeir hafa íengið þár. Sam-
staðar hafa þeir hörfað yfir Strypa.
Dagana 30. ág.—12. sept. höfum
vér handtekið rúmlega 40,000 þýska
og austurriska hermenn.
í Svartahafi söktu tundurbátaeyð-
ar vorir stóru gufuskipi.
London, 17. sept.
Útdráttur
úr apinberum skýrslum Frakka 16.—17. sept.
Þessir dagar hafa verið merkilegir
að því leyti, að ekkert hefir verið
aðhafst annað en það, að haldiS
hefir verið áfram látlausri og öflugri
stórskotahríð á allri víglínunni. Var
hún sérstaklega áköf í Arras, Cham-
pagne, Argorine, Lothringen, hjá
brúnni yfir Aisne-Marne-skurðinn hjá
Sapignol og í Belgiu.
A Meuse-hæðum komumst vér
að því hvar þýzk fallbyssusveit var
og léttum vér eigi fyr en henni var
gereytt.
Sprengjuviðureign varð umhverfis
Neuville og stórum sprengikúlum
var skotið á St. Hubert.
í Le Prare-skógi hófu Þjóðverjar
sprengjukast, sem leiddi til þess, að
tekið var að skjóta með skotgrafa-
fallbyssum og seinast með stórum
fallbyssum.
London 20. sept.
Skýrsla French.
Sir John French sendir þessa
skýrslu 19. september:
Engin breyting hefir orðið á her-
svæði voru siðan 15. sept. Tals-
vert hefir verið gert að sprenging-
um á báða bóga, sérstaklega i sunn-
anverðum herarmi vorum. Austan
við Ypres hefir stórskotalið vort og
óvinanna haft sig talsvert i frammi.
Hjónaefni: Bjarni Sighvatssou
bankaritari og jungfrú Kristín Gísla-
dóttir frá Vestmannaeyjum.
Daníel Oddsson símritari og Jóhanna
Friðriksdóttir, símamær, Vestmanna
eyjum.
Skipafregn.
E s b j e r g kom frá útlöndum á
sunnudag með kol og steinolíu.
SkipiS fer norður um land áleiSis
til útlanda klukkan 6 í kvöld. MeSal
farþega eru alþingismennirnir:
Magnús Kristjánsson, Pótur Jónsson,
Stefán Stefánsson skólameistari og
Steingrímur Jónsson. Ennfremur
Jakob Havsteen etazráð meS frú sinni,
læknisfrú Olga Jensen o. fl.
Aðkonmmenn: Magnús Torfason
bæjarfógeti frá Isafirði, Pótur Ólafs-
son konsúll frá PatreksfirSi, Kristján
Torfason frá Flateyri, Einar Friðgeirs-
son præp. hon. frá Borg, Sigurður
Fjeldsted bóndi frá Ferjukoti, Magnús
Thorberg símastjóri frá ísafirði.
Frá síldveiðunum eru allir botn-
vörpungar vorir horfnir hingað, nema
Skallagrímur einn. Hefir sjaldan eða
aldrei jafnvel hepnast síldafli norðan-
lands.
Slysfarir. Reykvíkingur einn, Bjarni
Guðmundsson aS nafni, hefir sennilega
druknað í Hafravatni í Mosfellssveit
aðfaranótt 20. þ. mán. — Fundust
hestur hans og hundur druknaðir,
reknir á land úr vatninu í gærmorg-
un. Hefir Bjarni, sem var ölvaður,
Bennilega riðið út í vatniS í myrkri
og eigi kunnaS taumhald á hestinum,
er á sund lenti og því farið á kol-
svarta kaf i opinn dauSann.
Deilur Gíslanna.
Eins og tekið var fram í síðasta
blaði, þótti ísafold deilutónn þeirra
nafna orðinn óþarflega hvass. Vildi
þó leyfa G. Sv. að svara einu sinni,
með þvi, að mjög var á hann ráðist
persónulega, en nú vill ísafold, að
deiln þessari sé lokið i sínum dálkum.
Þakkarorð.
Innilegt þakkiæti votta eg hérmeð
hr. Skúla Arnasyni lækni í Skálholti
fyrir ókeypis læknishjálp og ágæta
aðhjúkrun á hei.nili hans i sumar,
þegar eg varð fyrir því slysi, að
brenna mig á báðum fótum. Sömu-
leiðis kann eg frú Ragnheiði systur
hans alúðarþökk mína. Mun eg
seiut gleyma nákvæmni hennar og
samúðaryl, þegai hún kom til min
að hvernum, þar sem slysið vildi til,
og hjálpaði mér heim að bænum.
Bið eg algóðan guð að launa þessum
göfugu systkinum mannelsku þeirra
og hjálpsemi mér auðsýnda.
Skálholti 16. sept. 1915.
Olafia I. Klemensdóttir.
Fjármark mitt er: And-
fjöður aftan hægra, fjöður aftan v.
og biti framan. Brennimark: Illugi.
Illugi G. Póstur,
Hvítsstöðum Mýrasýslu.
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðslnna, þegar
þeir eru á ferð i bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
Áfgreiðslan opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á
kvöldin.
tanngarðar og einstakar tennur
á Laugavegi 31, uppi.
Tennur dregnar út af lækni dag-
lega kl. ri—12 með eða án deyf-
ingar.
Viðtalstími 10—5.
Sophy Bjarnason.
Þrátt fyrir verðhækkun á efni
selur Eyv. Árnason
lang ódýrastar, vandaðastar
og fegurstar
Líkkistur.
Lítið á birgðir mínar og sjáið mis-
muninn áður en þér festið kaup
annarsstaðar.
Sími 44.
The North British Ropework Co.
Kirkcaldy
Contractors to H. M. Government
búa til
rússneskar og ítalskar
fiskilfnnr og færi
alt úr bezta efni og sérlega vandað
Fæst hjá kanpmönnum.
Biðjið þvi ætíð um
Kirkcaldy fiskilínnr og færi,
hjá kaupm. þeim, er þér verzlið við
og þá fáið þér það sem bezt er.