Ísafold - 13.05.1916, Side 4
4
ISAf OLD
Tilkynnine.
Með því að allar sáttatilraunir milli Hásetafélags Reykjavíkur
og »Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda« hafa orðið árangurs-
lausar, og sömuleiðis enginn árangur hefir orðið af málamiðlun
Stjórnarráðsins eða Bæjarstjórnar, hefir félag vort nú fastákveðið
að hætta öllum samkomulagstilraunum út af verkfallinu. —
Hinsvegar hefir félagið ákveðið að bjóða þeim hásetum, er
vilja ráða sig og lögskrá á skip félagsins, eftirfylgjandi kjör:
1. Kaup almennra háseta verði 75 — sjötíu og fimm — krónur á
mánuði.
2. Hásetum skal greidd aukaþóknun, er miðuð sé við það, hversu
mikil lifur er flutt í land úr skipi, og skal aukaþóknun þessi
fara eftir því að verð lifrarinnar telst 60 — sextíu — krónur
fyrir hvert fult fat.-Aukaþóknun þessi skiftist jafnt milli
skipstjóra, stýrimanna, bátsmanna og háseta á skipinu. Skip-
stjóri getur ennfremur ákveðið að matsveinn taki þátt í auka-
þóknuninni.
3. Verði síldveiðar stundaðar, skal hásetum, auk mánaðarkaupsins,
greidd premía, 2 — tveir — aurar á fiskpakkaða tunnu, eða
3 — þrír — aurar á hvert mál (150 lítra), og ennfremur fái
skipverjar fisk þann, er þeir draga meðan skipið er á síld-
veiðum, og frítt salt í hann.
Þeir sem vilja sinna þessu, geri svo vel að snúa sér til skip-
stjóranna.
Reykjavík 9. maí 1916.
í stjórn »Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda«.
- Thor Jensen. Jes Zimsen.
Magnús Einarson.
Jón Magnússon. Aug. Flygenring.
/. og 2. kennarasfaða
við barnaskóla Ólafsvikur er laus. Umsóknarfrestur til 15. jiilí 1916.
Kenslutími frá 1. okt. til 15. apríl. Laun eftir fræðslulögunum. Þeir
sem óska að fá 2. kennarastöðuna, að veittri 1. kennarastöðu, geti þess
í umsókn sinni, sem sendist til skólanefndar Ólafsvíkur.
Guðm. Einarsson,
p. t. form. skólan.
Klæðaverksmiðjan
MÁlafoss“
heíir nú sannfært viðskiftamenn sína um hver hagnaður er
fyrir þá, að láta hana vinna úr ull þeirra, enda hefir vinnan
stöðugt aukist, sem von er, þar sem verksmiðjan, þrátt tyrir
dýrtíðina og þar af leiðandi hækkun á öllu, hefir bætt við
sig útlendum sérfræðing (spunameistara) og hækkar þó ekki
vinnulaunin, en tekur sömu lágu vinnulaunin sem áður, sem
eru mikið lægri en annarstaðar hér á landi, t. d. eru kemb-
ingalaun 10% lægri en annarstaðar, og önnur vinna eftir því.
Nýtt er það thér á landi, að geta fengið spunnið bæði
þráð og band, en þetta gerir verksmiðjan »Álatoss« nú og
framvegis fyrir þá, er þess öska.
Bogi A. J. Þórðarson.
TJföragðsgoft að augftjsa í Ísafoícf.
U rsmíðastofa
í stóru kauptóni, sem liggur vel við lífvænlegustu sveitum landsins, fæst
’ keypt í byrjun júní n. k.
Verkfærin nýleg og af beztu gerð.
Verkefni fylgir kaupunum.
Viðskifti ná þegar mikil og viss.
Nánari upplýsingar gefur hr. úrsmiður
)ón Hermannsson, Rvík.
arstjórnarnefndarinnar í brófi henn-
ar til félagsins dagsettu í gær.
Félagið heidur því fast við sam-
þyktir sín.ar á fundi 8. þ. m., enda
hafa fólagsmenn nú þegar gert
ráðstafanir samkvæmt þeim, Bem
eru ósamrýmanlegar fyrgreindri til-
lögu bæjarstjórnarnefndarinnar«.
t>etta leyfum vór oss hór með að
tilkynna nefndinni til andsvara téðu
brófi hennar.
Virðingarfylst.
»Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda«.
Thor Jensen
p. t. formaður.
Er nú skýrt frá þeim atriðum
nefndarstarfsins, er oss þykir mestu
varða, að eigi séu rangfærð í frá-
sögnum manna á milli, en engi
þörf þykir að skýra frekara frá ráða-
gerðum nefndarinnar og málaleit-
unum margvíslegum, sem allar hafa
því miður að lokum orðið árangurs-
lausar.
K. Zitnsen. Magnús Helgason.
Kristján V. Guðmundsson.
Til
bæjarstjórnar Reykjavíkur.
Kristján Siggeirsson bifreiðarstjóri,
sem hefir dvalið í Vestmannaeyjum í
vetur við útveg, fótbrotnaði fyrir
nokkrum dögum; hafði bólga hlaupið
í fótinn og liggur hann nú á sjúkra-
húsi Vestmanneyinga.
Hjálpræðisherinn. Stabskapt. S.
Grauslund lagði hornsteininn undir hið
nýja Gisti- og sjómannaheimili hersins
fimtudag 11. maí síðastl. að viðstöddu
fjölmenni. Hefir herinn f því tilefni
gefið út smárit, sem heitir : »Sága her-
kastalans« eftir prófessor Jón Helga-
son; þar er einnig ágrip af sögu kast-
alans, síðan herinn eignaðist hann, eftir
stabskapt. S. Grauslund og myndir af
öllum deildarforingjurn Hjálpræðishers-
ins á íslandi til þessa tfma. Ritið er
bæði fróðlegt og skemtilegt.
Tilboð um leigu á Elliðaánum hafa
komið þrjú. B/ður Einar Erlendsson
kr. 3500,00, Pótur Ingimundarson kr.
4000,00 og Sturla Jónsson kr. 4100,00.
Guðm. R. Ólafsson úr Grindavík
flytur fyrirlestur f kvöld í húsi K. F.
U. M. um rétt fátæklinganna
(nýjar tillögur um stöðu sveitarstyrk-
þega í þjóðfólaginu).
»Enginn getur gizbað á« hefir
Leikfélag Reykjavíkur sýnt þrisvar og
hafa áhorfendur skemt sér ágætlega.
Og óhætt mun að fullyrða, að mis-
lyndisrugl Orækju í Morgunblaðinu á
fimtudaginn, viðvfkjandi leikritinu,
munu sárafáir eða öllu heldur alls
engir taka undir.
Frú Vilborg Sigurðardóttir, ekkja
eftir síra Magnús Jónsson í Laufási,
lézt 8. maí síðastl. á heimili sonar síns,
Jóns Magnússoriar bæjarfógeta í Reykja-
vík, 87 ára gömul.
Messað í Fríkirkjunni í Reykjavík
á morgun ki. 12 á hádegi síra Ól. Ól.
Aðkomumenn í bænum : Ingimund-
ur Magnússon póstafgreiðslumaður í
Bæ og Sigurður Eggerz sýslumaður.
Prófessor Jóni Helgasyni hefir
verið boðið til Danmerkur f sumar af
stjórn danska lýðháskólafélagsins til
þess að flytja fyrirlestra á háskóla-
námsskeiðj (Universitets Kursus) fyrir
lýðháskólakennara og kenslukonur.
Námsskeið þetta verður haldið dagana
23. ágúst til 3 septbr. á landbúnaðar-
skólanum í Dalum á Fjóni.
Prófessorinn gerir ráð fyrir að þyggja
boðið.
„Tidens Tegn“
dagblað í Kristjaníu, heftr það
eftir stórþingsforseta Kastberg, sem
nýkominn er frá Frakklandi, að 3000
Norðurlandabúar séu í stríðinu á vest-
ur-vígstöðvunnm, og þar af um 700
V estur-íslendingar.
2. hefti Eimreiðarinnar
er nýútkomin. Efni: Vald. Er-
lendsson: Böð og bakstrar. Konráð
Vijjálmsson: Jón blindi (saga). Þorv.
Thoroddsen: Sirius. Jón Trausti:
Óboðinn gestur (saga), Anna Thor-
lacius: Gamlar minningar (I. Frönsku
prestarnir). Jakob Jóh. Smári: Kvæði
I.—XI. Þorv. Thoroddsen: Tvær
meinlokur í sögu íslands. Stgr.
Matthíasson: Um viðleggi og gervi-
limi. Álfgeir Kárason: Bogga (saga).
Ennfremur: Ritsjá og Hringsjá eftir
Valtýr Guðrgundsson.
Diplomierte jung*e
Reichsdeutsche,
die 6 Jahre an einer Schule tátig
gerwesen ist, der russischen Sprache
vollkommen máchtig, schwedisch
verstehend, musikalisch, sucht Anstel-
lung als Lehrerin oder Gesell-
schafíerin.
Zeugnisse stehen zur Verífigung.
Adr.: Selma Oest,
St. Johannesgatan 6, Uppsala,
Schweden.
Tilsalgs.
Et parti Hestesko. Nærmere opl.
ved billet mrk. »3260 Sæt, 305« til
Höydahl Ohmes Annonce-
Expedition, Kristiania.
Nýlátinn (3. maí)
er Sigmundur Grímsson bóndí á
Skarfsstöðum í Dalasýslu, 77 árá að
aldri. Fæddur 30. sept. 1839. —
Hann var einn af merkisbændum
sinnar sveitar.
Tvö hlöð
koma út af Isafold í dag, nr. 34
°g 35-
Fram
skilvindan skilur 130
litra á kl.stnnd og
kostar að eins 65
krónur. A seinustu
árum hefir enginn
skilvinda rutt sér
jafnmikið til rúms vegna þess hve
mæta vel hún reynist, og hve mjög
hún stendur öðrum tegundum
Framar
Hún er mjög sterk, einföld, fljót-
leg að hreinsa, slcilur vel og er ódýr.
Bændur! Kaupið því Fram-skil-
vinduna, hún er ekki að eins öðrnm
fremri, heldur þeirra
Fremsf
Nægar birgðir ásamt varapörtum
fyrirliggjandi hjá
Kr. Ó. Skagfjörð,
Patreksfirði.