Ísafold - 29.07.1916, Síða 1

Ísafold - 29.07.1916, Síða 1
r Kemur út tvisvar í viku. Verðárg. 5 kr., erlendis 7J/2 kr. eða 2 dollar;borg- ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. XLIII. árg. ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Dlafur Björnsson. Talsími nr. 455. Reykjavik, laugardaginn 29. júlí 1916. Uppsögn (skrifl. bundin við áramót, er ógild nema kom- in sé til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus vlð blaðið. 56. tölublað Hérmeð leyfi eg mér að tilkynna að eg ('eftir að eg í meir en ij ár hefi stjórnað Slippfélaginu í Reykjavík) setii í fyrra mánuði á stofn verzlun fyrir minn eigin reikning, i Aust- ursirœti ij (gengið inn frá Kolasundi). Verzlunin mun framvegis hafa á boðstólum allan útbúnað og alt til viðgerða á trollurum, fxskikútterum, mótorbátum og opnum skipum,- einnig allskonar ináiu- Ing og málningaverkfæri til húsa og sjófot allskonar. Alt fyrsta flokks vörur, hentugar til notkunar hér. Verðið sanngjaint. Pant- anir út um land afgreiddar fljótt og nákvæmt. Vil gera mér alt far um að gera við- skiftamenn mina ánægða. — Skrifið eftir vörulista. Virðingarfyllst. O. Ellingsen. Sími 597. Símnefni: Ellingsen, Reykjavík. Alþýöufél.bókasafn Templaras. B kl. 7—9 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 11—B Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 1—7 Bœjargjaldkerinn Laufásv. 6 kl. 12—8 og 1—3 íslandsbanki opinn 10—4. JLF.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd,—10 sibd, Alm. fundir fld. og sd. 81/* sibd. Landakotskírkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12. Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8 Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsféhirbir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2 Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Listasafnib opib hvern dag kl. 12—2 NAttúrugripasaínib opib l1/*—21/* á sunnud. Pósthúsið opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1. Bamábyrgb Islands 12—2 og 4—6 •Stjórnarrábs8krifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavikur Pósth. 8 opinn 8—12. Vlfilstabahœlib. Heimsóknartimi 12—1 frjöftmenjasafnift opib hvern dag 12—2. Vandaöastar og ódýrastar Líkkistur seljum viö undirritaðir. KÍ8tur fyrirliggjandi áf ýmsri gerð. Steingr. Guðmundss. Amtm.stíg 4. Tryggvi Arnason Njáisg. 9. Klæðaverzlun H. Andersen & Sön. Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Simí 32. þar eru fötin saumuð flest þar eru fataefnin bezt rrm iimTiiinif inrf Síðan styrjöldin hófst, hafa verzl- unarmálefni vor verið á fjórum stigum: 1. Höfðum vér frjálsa verzlun. Englendingar heftu eigi vöruflutn- inga frá eða að landinu. Þessu fór fram fram yfir nýár 1915. 2. Þvi næst var það, að banda- menn hófu verzlunarstyrjöldina á hendur Þjóðverjum. Um vörur hingað settu þeir þau skilyrði, að þær mættu eigi vera frá Þýzkalandi eða af þýzkum uppruna. Ef svo var, tóku Bretar þær. Ennfremur sleptu þeir engum vörum fram hjá sér, sem samkvæmt skipsskjölunum áttu að fara til Þýzkalands. 3. Þar næst varð það sumarið 1915, að Bretar tóku að leggja svp- nefndar »klausulur« á vörur, sem héðan voru sendar til Norðurlanda, eða skuldbinding um það, að þær yrðu eigi fluttar út úr landinu, er þær voru fluttar til héðan. 4. í vetur héldu fulltrúar banda- manna fund i París, og ákváðu, að allur aðflutningur til Norðurlanda eða Hollands skyldi heftur á vörum, er þeir töldu víst eða sannað, að mundu fara þaðan til Þýzkalands. Fyrir því kom hingað gegnum brezku stjórnina fregn um, að engum aðal- afurðum vorum, svo sem fiski, lýsi, ull eða saltkjöti yrði slept til Norð- urlanda. Jafnframt var tekið að binda allan útflutning á framleiðslu- vörum frá Bretlandi, svo sem salti, kolum, veiðarfærum, striga, tunnum o. s. frv., því skilyrði, að vörur þær, sem framleiddar væru eða tilreiddar með þessum vörum, skyldu eigi verða seldar til óvina Breta eða áð- urnefndra hlutlausra landa. Ennfrem- ur hafa verið lagðar alveg samskon- ar skuidbindingar á salt, oliu o. s. frv., enda þótt eigi væri útflult frá Bretlandi, en skipið, sem flutti vör- una, kom við í brezkri höfn eða skipseigandi eða kaupandi vörunnar var upp á Bretland kominn, t. d. vegna kola, salts o. s. frv., er hann þurfti að fá frá Bretlandi. Þess vegna hafa nú svo að segja allir íslenzkir kaupmenn, sem með framleiðsluvörnr, svo sem salt, kol, olíu, veiðarfæri, striga o. s. fiv. verzla, og útgerðarmenn, gefið skuld- bindingar þær, sem á öðrum stað i blaðina eru birtar. En þær gera það að verkum, að þeim er óheimilt, og strangar sektir lagðar við, að selja eða láta af heudi vörur héðan til annara en þeirra, sem Bretar leyfa, enda stöðva Bretar vægðarlaust allar vörur, sem sendar eru héðan gagn- stætt því. Þegar hingað kom fréttin um það, að Bretar ætluðu að stöðva vörur vorar og eigi að leyfa þeim að fara til Norðurlanda, þar sem aðalmark- aður þeirra hefir verið og eini mark- aðurinn fyrir sumar þeirra, gerði landsstjórnin, með ráði Alþingisnefnd- arinnar (Jóns Magnússonar, Guðm. Björnssonar, Skúla sál. Thoroddsens, Jósefs Björnssonar og Sveins Björns- sonar) tilraun til að fá Breta til að kaupa af oss nefndar vörur. Sú til- raun hepnaðist svo, að bæði Kaup- mannaráði íslands og téðum nefnd- armöndum þótti vel við unandi yfir- leitt, þótt verðið væri eigi svo hátt, sem hæsta verð á þeim hefir verið síðan stríðið hófst, Ennfremur skuld- bundu Bretar sig til þess að láta oss hafa nauðsynjar frá Bretlandi, auk ýmislegs fleira i vorn hag. Vér átt- um að sjá um, að skip með farm héðan undirgengjust viðkomufbrezkri höfn — og það hefir verið gert. En siðan hafa Bretar gert harðari kröfur, er þeir segja að sé sam- kvæmt anda samkomulagsins við þá, er gert var í vor með ráði og samþykki Alþingisnefndar og kaup- mannaráðs. Nú hefir brezki ræðis- maðurinn hér skriflega tjáð stjórn- inni: að brezka stjórnin geri þá kröfu, að engu skipi verði leyft að hlaða þeim vörum, sem í neðati skráðri reglugerð segir, ‘ né fái afgreiðslu úr íslenzkri höfn, nema umboðs- manni Breta hafi áður verið veitt- ur kostur á að kaupa þær, og að brezka stjórnin sé neydd til að halda áfram ótakmarkað að synja um allan útflutning hingað frá Englandi, þar til þessari kröfu verði fullnægt. Þeir, sem samkomulagið þekkja, telja þetta nýja kröfu, er eigi geti bygst á samkomulaginu áðurnefnda. Sem stendur liggja í brezkum höfnum nokkur skip á leið hingað til lands með tunnur eða þau áttu að taka kol i Englandi o. s. frv. Og halda Bretar þeim þar til þessu máli er til lykta ráðið. Landstjórnin hefir borið þessar nýju kröfur Breta undir Alþingisnefndina, og hefir með ráði hennar (þeirra Jóns Magnússonar, Kristins Daníelssonar, sem tekið hefir sæti í nefndinni í stað Skúla sál. Thoroddsens, og Sveins Björnsson- ar. Tósef Bj. er nýfarinn úr bæn- um og G. B. var tekinn á Flóru) og samþykki sett reglugerð þá, er hér er prentuð í blaðinu. Má eiga það víst, að skip þau, sem nú liggja í brezkum höfnum og hingað ætla, verði skjótlega leyst, og að vér fáum leyfi til vöruflutninga frá Bretlandi, eftir þvi sem vér höf- um heyrt úr áreiðanlegri átt. Þar sem Bretar höfðu ákveðið að stöðva allar helztu afurðir vorar og hafa aflið til þess, mátti ávalt búast við því, að þeir mundu setja það sem skilyrði fyrir útflutuingi vöru hingað frá Bretlandi, að sett yrðu ákvæði um, að engin skip mætti hlaða eða afgreiða héðan nema Bret- ar fengju færi á að kaupa vöruna. Enn fremur hefir það litla þýð- ingu úr því sem komið er, þótt bönnuð sé hleðsla skipa eða afgreiðsla, þar sem framleiðsla er samkvæmt Tilkynning Nýjar vörubirgðir eru nú komnar til u. b. n. af flestum nú fáanlegum Vefnaðarvörum, i fjölbreyttu úrvali. Vegna tímanlegra innkanpa getnr verzlnnin boðið viðskiftamönnnm sin- um þau beztu kaup sem völ verður & í ár. Ennfremur hefir verzlunin: Papp og ritföng, Sólaleður og skósmíðavörur. Vandaðar vörur. Odýrar vörur. Yerziunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. ------------------------------------------------------- Bókhaldari. Æfður bókhaldari getur fengið fgóða stöðu hér i bæn- um á komandi hausti. Tilboð með launakröíu merkt: »Æfður bókhaldari« sendist sem fyrst á skrifstotu þessa blaðs. skuldb’ndingum framleiðenda og kaupmanna bundnir þeim skilyrðum, að þeir mega ékki selja hana til Norðurlanda. Allar sjávarafurðir eru bundnar þessu skilyrði vegna kol- anna, saltsins, olíunnar, veiðarfær- anna og umbúðanna, því að þessar vörur eru nú allar »klausulerað«. Kjötið sömuleiðis vegna saltsins, sem í það fer, og ullin vegna umbúðanna, sem hún er látin í. Af þessum ástæðum eru menn eigi með reglugerðinni eða ráðstöfnn- um stjórnar og Alþingisnefndar svift- ir sölumöguleikanum til Norðurlanda. Hann var farinn áður: x. vegna hafnbanns Breta á þeim löndum, og 2. vegna skuldbindinga þeirra, er framleiðendnr hér og kaupmenn hafa gefið og áður er getið. Hins vegar má nú vænta þess, að vér fáum hindrunarlitií nauðsynjar vorar frá Bretlandi samkvæmt þar um gefnum loforðum Bretastjórnar. íslenzk gufuskipakol. Sú gleðifregn barst á miðviku- daginn frá sænska verkfræðingnum, sem vinnur að Stálvikurnámunum, að þar væri fundin ný og miklu betri náma með svo góðri kolateg- und I, að jafngilda muni brezkum gufuskipakolum (steam-coals). Full- naðarskýrslu um námuna er von um miðja næstu viku. Ef þetta , álit hins sænska verk- fræðings reynist ábyggilegt, er hér um að tefla ómetanlega auðsupp- sprettu í framtíðinni. Hvern listann á eg aö kjósa? Þessi spnrning mun fljúga mörg- um í hug þessa dagana, bæði kon- um og körlum. Og mörgum verðnr erfitt að full- ráða þetta við sig af þvi hvað marg- ir eru listarnir og á þá skipað, suma, mönnum úr öllum eldri flokkum, svo úr þvi verður mesta krábull. Sjálfur hefi eg verið að ihuga grandgæfilega hvern listann eg ætti að kjósa og hefi, fyrir mitt leyti, komist að þeirri eindregnu niður- stöðu, að kjósa E-listann, lista hinna sönnu Sjálfstæðismanna, þann sem efstan hefir Einar ráðherra Arnórs- son. Hvers vegna kýs eg E-listann? Eg kýs E-listann, af því eg veit að í höndnm þess hluta gamla Sjálfstæð- islistans, sem að honum stendur, er sjáljstceðismálum þjóðarinuar bezt borgið. Þeir, sem eg vil kalla hina sðnnu Sjálfstaðismenn, hafa sýnt það, að þeir halda sjálfstæðisstefnunni á hollri braut og skynsamlegri, án þess að gera nokkura vitleysu eða villast út f þær öfgar sérvizku og þrá- kelkniskends ofstækis, sem æ mun verða málum vorum að falli, en ekki frelsi. Skýrast og ótviræðast kom þetta fram, er þeir í fyrra burgu fyrir landið þeim tveim stórmálum, sem þeim aldrei, verður fullþakkað. Þeim, hinum sönnu Sjáifstæðis- mönnum, eigum vér fyrst og fremst að þakka stjórnarskrá og fána. Ef þeir hefðu látið öfgamennina i hin- um gamla Sjálfstæðisflokki ráð3, værnm vér nú bæði stjórnarskrár- og fána-lausir. Þetta atriði finst mér svo úrslita-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.