Ísafold - 06.01.1917, Síða 1
Kemur út tvisvar
i viku. Verðárg.
5 kr., erlendis T1/^
kr. eða 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
XLIV. árg.
ísafoldarprentsmiðja. RitstjDri: Úlafur Björnsson. Talsimi nr. 4SS-
Reykjavik, laugardaginn 6. janúar 1917
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom I
in sé tll útg'fanda ;
fyrir 1. oktbr. og ,
só kaupandl akuld '
Iaus við blaðið.
3 tölnb'að
Kirkjan.
Eftir Guðm. Guömundsson.
Til sólar, til sólar í suður-átt
í svefnrofum aldar vjer mænum!
Opnið þið Mrkjuna upp d gdtt
í öllum hamingju bænum!
Sjá, kreddurnar fölvar sem liðin lik
á lausnarans ásjónu skyggja,
þær skipa sjer umhverfis altarisbrík
og út þaðan ljósi byggja.
Og hráslaga dragsug um hvelfing og kór
í hálfrökkri frá þeim leggur, —
með helbrostin augun, starandi, stór,
þær standa þar eins og veggur.
— Og vekið þið sofandi söfnuðinn,
er situr þar strjált á bekkjum.
Kreddumar út, en Jcœrleikann inn,
og kirkjuna’ úr dauðans hlekkjum!
Þá streymir fólkið þar aftur inn,
sem úti var neytt að standa,
og huga laugar og líkam sinn
í ljósbaði heilags anda.
Þá verður í hjörtunum hlýtt og Ijóst
í himneskum árdags blænum
og huggun og frið við frelsarans brjóst,
það finnur í samhuga bænum.
* *
Sje rekin úr kirkjunni rannsókn frjáls
á röksemdum trúarinnar,
er guði með ofbeldi meinað máls
í musteri dýrðar sinnar.
Hann vill að sólheimar sannleikans
við sjónum oss fái’ að blasa,
svo færri blessuðu börnin hans
á brautinni kunni’ að hrasa.
— I vísindum trúlausir sönnun sjer
í sífellu reyna’ að veita.
Hve öllu framar þá ættum vjer
þar órækra sannana’ að leita!
Nei, guði’ er siður en þægð i því,
að þroskann vjer ekki notum,
er vísindum birtist oss eitthvað i
af eilífðar geisla-brotum.
Er frumkveðum veraldar framsókn að
og framförum lof vjer gjöldum,
— á guðfræðin ein að standa’ í stað
sem steintröll frá liðnum öldum ?
— Sem Ijósperla djúpt í gulldjásn greypt,
í guðfræði trúin skal lýsa
í eldinum guðmóðsins glóskírð og steypt,
í gjallþró skal soranum vísa!
Þá fyrst verður kirkjan friðarhöll,
þar farlama yngjast þjóðir,
sem elskar og virðir veröld öll, —
þá verður hún allra móðir.
NORÐURL JÓSÍÐ,
sem er án nokkurs efa VINSÆLASTA, ÓDÝRASTA og
ÚTBREIDDASTA heimilisblað landsins, byrjar nýjan árgang
í janúarmánuði, (4. árg.).
í þessum árg. verður:
ÆERÐASAGA frá ÓFRIÐARLÖNDUM*;
ágæt saga: >RÆNINGJABÆLIЫ;
og framhald af »HEIMILISLÆKNINGUM«,
sem hafa reynst mörgum happasælar og öllum heimilum
væri gott að eiga sem hauk i horni; og margt annað fróð-
legt og gagnlegt, góðar myndir, o. fl. 0. fl.
Vegna hinnar miklu útbreiðslu blaðsins, er áskrifanda-
gjaldið a ð e i n s 60 au. (borgað fyrirfram) og er árgang-
urinn 96 bls. í stóru broti.
Sendið pöntun yðar tafarlaust til
útgefanda »Norðurljössins«, Akureyri.
Viljiróu eiga »Bíl« þá hlýddu eðliatilvíaan
þinni,*hún segir »þú skalt kaupa*
fca FORD TOURING CAR og neitaðu ekki
'•sjálfumjjþór um þann hag og ánœgju sem það
getur veitt þór.
Tíminn er peningar, og Ford Touring Car
eykur verhgildi tíma og peninga. Ford bilar
•ru'J ódýrastir allra bila, léttir ab stjórna og
auðveldastir i viðbaldi.
Ford bilar eru beztu fólks- og flutnings-
tœki sem komið hafa til landsins, og fást ab
eins hjáfiundirritubum, sem einnig selur hin
heimstrœgu DUNLOP DEKK og SL0NGUR
fyrir allar tegundir bila.
P. Stefílnsson,
Lækjartorgi 1.
AlþýðufóLbókasafn Templaras. 8 kl. 7—0
bjrgarstjóraskrifst. opin dagl. 10~12 og 1—8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—12 og 1—,5
Bæjargjaldkerinn Laufásv. B kl. 10—12 og 1—6
• tslandsbanki opinn 10—4.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 tóíöd.
Alm. fundir fld. og sd. 81/* sibd.
Landakotskirkja. Guösþj. 0 og 6 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8
Landsbúnaftarfólagoskrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka d&ga
helga daga 10—12 og 4—7.
'Listasafnib opib sd., þrd. og fimfud. kl. 12—2
Ætáttúrugripasafnib opib l*/a—2*/a A sunnud.
Póathúsió opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgb Islands kl. 1—5.
'Btjðrnarrá&sskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavlkur Pósth.8 opinn 8—12.
Yifllstabahæliö. Heimsóknartimi 12—1
.^•jóbmenjasafnib opih sd., þrd. og fid. 12—2
Alþýðufræðsla Stúdentafélagsins.
Jón Jacobson
flytur erindi:
Líf og litir,
vsnnnudag 7. janúar 1917 kl. 5 síðd.
i Iðnaðarmannahúsinu.
Inngangur 15 aura.
Vinum og vandamönnum tilkynnist
að Héðinn litli, drengurinn okkar,
andaðist í morgun. Jarðarförin verður
ákveðin sfðar.
Reykjavik 4. jan. 1917.
Ólafia G. Árnadóttir.
Herbert M. Sigmundtson.
Erl. símfregir
frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn, 2. jan.
Áköf stórskotaliösviður
eigrn á vesturvígstöðvun-
uni.
Mackensen hefir tekið
Tulzea, Isaccea og Stear í
nánd við Braila.
hýzkur liðsauki er kom-
inn til vígvallarins hjá
Saloniki.
Bandamenn haina frið-
arboðunum.
Miðríkjunum veitir bet-
ur í vopnaviðskittum.
Kaupmannahöfn. 3. des.
Bandamenn bera fram
þá ástæðu fyrir því að þeir
höfnuðu friðarboðunum,
að þar sé því haldið fram
að Miðríkin hafi sigrað.
Kaupmannahöfn 5. jan.
Bretar hafa stöðvað alla kola-
sölu til Noregs.
Frakkar eru í þann veginn
að koma á hjá sér almennri
þegnskyldu.
ZeppellR-skálinn á Tönder
brunninn. Tvö loftför ónýttust
þar.
Stjórnarskiftin.
Þau fóru fram í gær. Hafði
borist skeyti frá konungi í fyrra-
kvöld þar sem hann veitti Einari
Arnórssyni lausn frá embætti, en
skipaði Jón Magnússon forsætis-
ráðherra og þá Björn Kristjánsson
og Sigurð Jónsson ráðherra við
hlið honum.
A fundi i sameinuðu þingi í
gær tók forsætisráðherrann nýi
til máls 0g flutti ræðu þá er hér
fer á eftir, og telja verður stefnu-
skrárræðu hinnar nýju stjórnar.
Ræða forsætis-ráðherrans.
Því hefir verið haldíð fram af
mörgum hér á landi undanfarið,
að fjölga þyrfti ráðherrum, 0g eg
býzt við því, að fjölgun ráðherr-
anna verði yfirleitt vel tekið.
En að svo bráður bugur var að
því undinn á þessu aukaþingi og
þriggja manna stjórn settá*stofn
fyrirvaralaust, það hygg egaðal-
lega gert vegna Norðurálfuófrið-
arins og þess ástands, er af hon-
um leiðir. Þess vegna er og
þetta þriggja manna ránuneyti
samsett, svo sem raun er á orð-
in, þannig að hver hinna þriggja
aðalflokka þingsins eigi mann i
ráðuneytinu, svo að það í heild
sinni hafi svo sem má fylgi
þingsins í heild, líkt eins og á
sér nú stað viða erlendis, einmitt
af sömu orsökum.
Hingað til má yfirleitt segja að
hin mikla styrjöld hafi lítið kom-
ið við þetta land, nema því til
hagsmuna. ísland hefir eins og
önnur hlutlaus lönd auðgast vegna
ófriðarins. En nú horfa menn
kviðnir fram í tímann, þ vi að út lít-
ur fyrir, að mjög fari að þrengja
að hlutlausum þjóðum hér í álfu.
Það er alstaðar farið að bóla á
skorti á ýmsum nauðsynjum.
Jafnvel í Ameríku, sem einkum
2 siðustu árin hefir verið helzta
forðabúr heimsins, er farið að
tala um útflutningbann á korn-
vöru vegna skorts á henni þar.
Flutningar landa á milli eru alt-
af að verða örðugri og örðugri,
skipakostur minkar stöðugt. Þar
af leiðandi einnig örðugra að
koma afurðum vorum á markað,
fyrir utan aðra erfiðleika og
hindranir frá ófriðarþjóðunum i
þeim efnum.
Þar sem þessu er þannig hátt-
að, þá er þess nú krafist af alþjóð
manna, að alþingi og landstjórn
geri þær ráðstafanir, er verða
megi 8vo sem unt er, til að firra
landið vandræðum þeim, sem
yfir þykja vofa.
Það er þá sjálfgefið, að hið
fyrsta og helzta hlutverk hins
nýja ráðuneytis verður það, að
vinna að því af fremsta megni,
að firra landið vandræðum af
ófriðnum. Þar til teljum vér
fyrst að hafa vakandi auga á því
að landið sé birgt nauðsynjum,
og að landstjórnin geri sjálf, eins
og gert hefir verið hingað til
ráðstafanir til að birgðir séu fyi -
ir hendi, og í sambandi við þett..
að reyna að sjá um skipakost ti;
flutninga bæði milli landa og
hafna milli innanlands; að vinn
að því að afurðir landsins kon -
ist í sem bezt verð, fái sem bezt-
an markað, og að reyna að fengnu
leyfi alþingis, að draga svo mik-
ið úr vandræðum manna vegna
dýrtíðarinnar, sem unt er. Hin
daglegu störf stjórnarráðsins eð;t
framkvæmdarstarfið í stjórn lands-
ins viljum vér ástunda að gansu
sem greiðlegast.
Þegar annars kemur til undii-
búnings löggjafarstarfa, fyrir uta 1
fjárlög og þau önnur lög, scm
leggja verður fyrir hvert regi -
legt þing, þá getur ráðuney >
ekki lofað miklu að svo ðtödc.’.i.