Ísafold - 01.09.1917, Síða 2
2
ISAFOLD
Árni Eiríksson
LHeildsala. | THlíL 265 Og 554. PÓSth. 277. 1 Smásala |
Vefnaðarvðrur, Priónavörur mjög íjölbreyttar.
*oO
Saumavélar með fríhjóli
og
5 ára verksmiðjuábyrgð.
Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir.
Þvotta- og hreinlætisvörur, beztar og ódýrastar.
Tækifærisgjafir.
Rœkíunarsjóðurinti.
Landbúnaðarnefnd Nd. vill samþ.
óbreytt frv. um að verja megi nokkr-
nm hluta af vöxtum Ræktunarsjóðs-
ins handa Búnaðarfél. ísl. til að reyna
hér ný landbúnaðarverkfæri.
Hjónavíqsla.
Allsherjarnefnd Ed. hefir komið
saman um að ráða til, að frv. þetta
verði samþykt með nokkrum orða-
breytingum. »Það fer fram á, að
brúðhjón innan þjóðkirkjunnar séu
sjálfráð að, hvort þau vigjast kirkju-
legri vígslu eða ganga i borgaralegt
hjónaband, en það hefir að eins ver-
ið heimilt, ef annað brúðhjónanna
eða bæði, voru utan þjóðkirkjunnar*.
Landsbankaútibú á Austurlandi.
Þvi máli íauk svo i Ed., að sam-
þykt var eftirfarandi »rökstudd dag-
skrá< frá Guðmundi Ólafssyni:
»1 þvi trausti, að landsstjórn og
bankastjórn skipi þessu máli sann-
gjarnlega og taki fult tillit til
landshátta á Austurlandi, viðskifta-
magns og viðskiftaþarfar almenn-
ings, einkum i þeim héruðum,
sem erfiðust eiga bankaviðskifti
nú, tekur deildm fyrir næsta mál
á dagskrá*.
Bannlöqin.
Allsherjarnefnd neðri deildar
hefir komið fram með nýtt frum-
varp til aðflutningsbannlaga. Er
það Bamhljóða þeim bannlögum,
er nú gilda, nema hvað hert er
á ýmsum ákvæðum. '
Áfengi telst hver sá vökvi, sem
í er meira en 2J/4 % af vínanda
að rúmmáli. Innflutningur er
heimill á vínanda til eldneytis
svo og ilmvötnum, hármeðulum
og þess konar vökva, enda séu
þau gerð óhæf til drykkjar svo
sem unt er. — Lögreglustjórum
er heimilað að opna hirzlur skip-
verja og farþega á fyrstu höfn
er skipið kemur til frá útlöndum
og einnig aðra staði í skipi eftir
því sem þörf þykir.
Sekur verður sá um bannlaga-
brot, er eigi hefir sagt til áfengis-
birgða sinna innan 12 vikna frá
því þessi lög öðlast giLdi. — Ef
maður sést ölvaður og gerir eigi
grein fyrir því fyrir dómara af
hverju hann hafi ölvaður orðið,
sæti h^nn sektum 50—500 kr. —
Auk sekta fyrir innflutning á-
fengis, skal ennfremur beita fang-
elsisrefsingu, ef áfengi hefir verið
aflað til veitinga eða sölu í at-
vinnuskyni.
Sektir fyrir að veita, gefa eða
selja áfengi ólöglega skulu í fyrsta
sinn 200—2000 kr., sé brotið ít-
rekað 500—5000 kr. Ef nokkur
brýtur oftar á þennan hátt varð-
ar það fangelsi ekki vægara en
eins mánaðar einföldu fangelsi
auk sekta er að framan greinir.
Skipstjóri, sem segir rangt frá
hve mikið áfengi hann hefir með-
ferðis skal sekur um 500—1000
krónur.
Hver sem aflar sér áfengis und-
ir því yfirskyni að hann þurfi á
því að halda í lögleyfðum til-
gangi, en notar það til drykkjar,
skal sæta sektum frá 500—1000
kr., nema þyngri hegning liggi
við að lögum.
Áfengi, sem skotið er undan
innsiglun á skipum, skal upptækt.
Verði læknir sannur að því að
hafa látið lyfseðil um áfengi til
þess að það verði drukkið, skal
hann sekur um 200—2000 kr. i
fyrsta sinn, tvöfaldast sektin ef
brotið er ítrekað og má svifta
hann lækningaleyfi ef hann
brýtur oftar.
Bannlagafrumvarpið.
Pétur Ottesen fiytur þær breyting-
artillögur við bannlagafrv. allsherjar-
nefndar:
x. Að niður falli ákvæðið um, að
íslenskum fólksflutningaskipum
megi veita undanþágu frá að-
flutningsbanni á áfengi.
2. Að við sé bætt ákvæði um að
hver sem sést ölvaður á al-
mannafæri, sæti sektum frá
20—200 kr.
Fjárforráð ómyndugra.
Guðjón Guðlaugsson flytur svo
látandi tillðgu til þÍDgsályktunar um
endurbætur á gildandi löggjöf um
fjárforráð ómyndugra:
Efri deild Alþingis ályktar að skora
á landsstjórnina að undirbúa og ieggja
fyrir Alþingi, svo fljótt sem unt er,
frumvarp til laga um endubætur á
gildandi löggjöf um fjárforráð ómynd-
ugra.
Hakkun á launum landsyfirdóm-
enda.
Meiri hluti allsherjarnefndar Ed.,
þeir Magnús Torfason og Hannes
Hafstein, flytja nú sérstakt frumvarp
um hækkun á launum dóraeDdanna
í landsyfirdóminum, svo látandi:
1. gr. Háyfirdómarinn i lands-
yfirréttinum hefir i árslaun úr lands-
sjóði 6ooo kr. og aðrir dómendur
þar 5000 kr. hvor; hækka laun þeirra
eftir embættisaldri um 200 kr.
á hverjum 2. árum, háyfi.dómarans
upp í 7000 kr. og yfitdómaranna
upp í 6000 kr.
2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1.
janúar 1918.
Frv. um forkaupsrétt á jörðum;
2. umr.
Frv. vikið frá umr. með rökstuddri
dagskrá frá Einari Arnórssyni, svo
hljóðandi:
»í þeirri von að landsstjórnin
athugi, hvort takast megi og hvort
rétt sé að leggja almenna forkaups-
réttarkvöð á jarðeignir á landi hér,
og undirbúi ef fært þykir, frumv.
um það fyrir næsta alþingi, tekur
deildin fyrir næsta mál á dagskrá*.
Þessi dagskrártill. var samþ. með
14 : 8 atkv. að viðhöfðu nafnakalli.
Fyrirkleðsla Jyrir Þverá og Mark-
arfljót.
Frá Landbúnaðarnefnd Ed. er
komið álit um frv. stjórnarinnar um
fyrirhleðslu fyrir Þverá og Markar-
fljót.
Nefndin er í engum vafa um það,
að verk það, er hér um ræðir, er
mjög nauðsynlegt tryggingar- og
framfarafyrirtæki fyrir hlutaðeigandi
héruð og ræður til að frv. gangi
fram. »En jafnframt telur nefndin
rétt og sjálfsagt, að landsstjórnin
geri, á hæfilegum tíma, ráðstafanir
til þess, að verðhækkunarskattur verði
greiddur í landssjóð af öllum þeim
jörðum á þessu svæði, sem trygðar
eru fyrir skemdum eða taka bótum
vegna þessara mannvirkja«.
Fjáraukaiög 1914 og 191 /.
Fjárhagsnefnd Ed. fellst á breyt-
ingar þær, sem Nd., hefir gert við
sljórnarfrumvarpið; leggur hún til
að frumv. sé samþykt óbreytt, eins
og það kom frá Nd.
Flóaáveitan.
Landbúnaðarnefnd Nd. felst á smá-
breytingu, sem Ed. hefir gert við
Flóaáveitufrumvarpið, og mun það
mál því verða að lögum, eins og
frv. er nú.
Landseinkasaia á steinoiíu.
Fjárhagsnefnd Nd. felst á breyt-
ingu Ed. um, að helmingur ágóða
landsverzlunarinnar af steinolíu renni
í landssjóð, i stað a/4, og ræður
deildinni til að samþykkja frv., eins
og það liggur nú fyrir.
Hakkun vitagjalds.
Fjárhagsnefnd Ed. ræður til að
að samþ. verði frv. stjórnarinnar um
hækkun vitagjalds — telur »þá hækk-
un, sem frumvarpið fer fram á, eft-
ir atvikum, hæfilega mikla. En hins
vegar dylst nefndinni ekki, að þegar
vitakerfi landsins er komið í sæmi-
legt horf, eins og fyrirhugað er, þá
muni gjald þetta fulllágt og þá þörf
á að hækka það að mun«.
Ncjndakosning.
í stað fjármálaráðherra Sigurðar
Eggerz voru í gær kosnirí nefndir þær,
sem hann hafði átt sæti í og var
það eftir samkomulagi milli flokk-
anna:
í fjárhagsnefnd: Guðmundur Ól-
afsson. I samgöngumálanefnd: Krist-
inn Daníelsson. í fossanefnd Magn-
úsTorfason. í bjargráðanefnd: Magn-
ús Kristjánsson.
Innileg áskorun.
Af þeim 40 stúdentum, sein út-
skrifuðust síðastliðið vor, ætluðu all-
margir að sækja frekara nám til
Kaupmannahafnarháskóla. En við
uppsögn Mentaskólans þótti hernað-
arástandið og útlitið í heiminum
yfirle tt, og þá einnig í Danmörku
svo ilt og iskyggilegt, að mjög væri
hæpið og jafnvel óforsvaranlegt,
að láta þessa námsmenn fara utan
út í slíkt ástand og útlit að svo
stöddu.
Fyrir því var þá og sótt til há-
skólans í Höfn um leyfi fyrir þessa
pilta til að fresta utanför þeirra um
eitt ár, og mega taka hér heima
heimspekispróf, ef á þyrfti að halda
vegna heimsstyrjaldarinnar, og mættu
þeir þó halda öllum »Gaxðstyrk«
og öðrum háskólaréttindum óskert-
um. —
Hinn umbeðni ársfrestur er nú
góðfúslega veittur, en svarið um
heimspekisprófið ófengið enn.
En nú er fullyrt, og enda víst,
að eftir þessu ókomna svari á ekki
að bíða. Því að allir þeir nýju stú-
dentar, 14—16, er í vor hugðu á
utanför, en þorðu þó vart að fara,
eins og þá stóð, hafa nú, þrátt fyr-
ir þetttf og umgetna umsókn, pant-
að sér far utan til Hafnarháskóla
með »Fálkanum« um mánaðamótin
sept.—okt. næstkomandi. Og enginn
þessara pilta vill einn eða við ann-
an eftir sitja, en hinir allir fari. Er
slikt vorkunnarmál.
En hvernig stendur á þessari
ráðabreytÍDgu ? Er þetta ekki fásinna
og flan út í ægilegan bláinn? Eða
hefir hernaðarástandið og útlitið
batnað ytra síðan við skólauppsögn
í vor, þegar allir, bæði feður stú-
dentanna, og piltarnir sjálfir, voru
hræddir við illar horfur, og vildu,
sem forsjálir menn, ekki að nauða-
lausu í tvísýnu tefla? Til sveita
hefir þó það eitt frézt, að altaf
væri ástand og horfur I flestum
greinum að versna viðasthvar í beim-
inum — lika i Daumörku.
Þótt nú sjálf ferðin með Fálkan-
um til Hafnar sé hættulaus, sem
vonandi er, er þá nokkur trygging
eða góð likindi til fyrir þvi, að allar
brýnar líjsnauðsynjar verði tii við
Hafnarháskóla — vistina allan næsta
vetur? Eða þá fáanlegur þvi verði,
er kleift sé að kaupa við? Eða verð-
ur »garðstyrkur« þeim mun meiri,
sem dýrtíð og skortur vex? Eða er
vissa eða samileg líkindi fyrir þvi,
að unt verði að senda stúdentum
nokkra hjálp héðan, ellegar þá ná
þeim hættulaust heim aftur vetrar-
langt, ef í stórnauðir ræki i Höfn
útaf hernaðinum? Eða er nokkur
von eða vissa um nokkra sérstaka aj-
skijtu og umónnun danskrar stjórnar
um börnin okkar, ef þau verða bág-
stödd þar vegna hernaðarástands og
afleiðinga? Hví hefir nú feðrum og
sonum snúist svo hugur síðan í
vor? Hefir nokkuð nokkursstaðar i
heiminum breyzt til batnaðar um
hernaðarástand og horfur? Sé svo,
þá er okkur hér i uppsveitum ó-
kunnugt um það, enda þótt okkur
sárlangi til að vita um slikt. — Eg
var að hlakka til að umbeðin
leyfi fengist og yrðu notuð, eins og
nú stendur á. En nú er sýnt, að
ekki á að þiggja hið umbeðna, og
að margir verða nauðugir að sjá af
sínum út í þetta ástand og útlit án
þess að nokkur ánagjanleg, mann-
leg afskifti eða forsjón sjáist koma
þar nærri.
Mér finst, að landsstjórnirnar,
bæði hér og í Danmörk, bæði eigi
og þurfi að skifta sér mjög af þessu
nú, ekki síður en öðru. Kenslumála-,
stjórn Dana parj og á að þekkja
og segja rétt til um ástæður og
horfur par, og ekki taka í mái, að
óráðnir unglingar héðan, eða ann-
arsstaðar frá, sæki þangað svo langa
vist, nema hún (stjórnin) geti ábyrgst
vistina hjá sér líjvanlega og háska
litla, en vara við heimsóknum ella.
Og kenslumálastjórnin okkar á og
parj að spyrja þá dönsku um þetta,
og fá bjá henni eitthvað ábyggilegt
um það og fara eftir því, svo sem
bezt má.
Enn pá er timi til þessa símleiðina
.Því vil eg nú fyrir mitt leyti, og
væntanlega i nafni margra fleiri,
skora á kenslumálastjórnina okkar —
já, biðja hana innilega og treysta
henni til, að hafa nú vit bæði fyrir
mér og mínum, og öðrum í sömu
sporuro, að því er umrætt vanda-
mál snertir, láta sér ant um börnin
okkar, og fá hjá dönsku kenslu-
málastjórninni sem glegsta vit-
neskju um, og helzt sém bezta trygg-
ingu fyrir þvf, að sonum okkur,
sem til hennar vilja mentun sækja,
verði sem óhættast eigi að eins til
vistarinnar heldur og í vistinni hjá
henni, hvað sem uppá kann að
koma af styrjaldarvöidum, að sva
miklu leyti, sem i mannavaldi er
eða verður.
En að öðrum kosti banni hún
utanför alira hinna nýju stúdenta
að þessu sinni, eða meðan illfært
má léttilega þykja, og útvegi þeim
fyr um beðið leyfi til heimspekiprófs
hér heima, svo að næsti vetur þurfi
ekki að verða þeim ónýtur. Með
góðu samkomulagi við heimspekis-
prófessorinn okkar og velviljuðu lið-
sinni hans, geta stúdentar flestir vel
stúderað heimspekina að miklu leyti
hver heima hjá sér, með stuttu
fyrirlestraskeiði á undan prófi, ef
erfitt eða ómögulegt verður með1
skóla og námsmannahald i R.vik
mest allan veturino.
21. ág. 1917.
Einn af Jeðrum utanfararstúdenta^
Nýjar athugasemdir.
í 51. tölublaði »Isafoldar« hefit'
herra stórkaupmaður Garðar Gíslasom
ritað »Örstutt andmæli« gegn at-
hugas. mínum i 45. tölublaði. \ Þar
segir hann:
»Eg kannast ekki við, fyrir mitt
leyti, að hafa dregið rangar ályktanir
af umræddri skýrslu«. Og ennfrem-
ur: »Skýrslan er yfir ársviðskifti
félagsins 1915, og á að sýna ágóðæ
þess það ár«.
Þessar 2 tilvitnuðu setningar sýna
nú strax, að hann hefir dregið rang-
ar ályktanir af skýrslunni; því að eg
tek það upp aftur: skýrslan hvorki
sýndi né var gerð til þess að sýna
ágóða félagsins 1915. Þetta verður
hann að taka gilt, af því að eg er
höfundur skýrslunnar, nema hanir
haldi því fram, að eg staðhæfi rangt
gegn betri vitund.
En það sem eg í athugasemdum
minum benti á sem ranga ályktun,,
að likum bygða á misskilningi herra
G. G., var þetta —■ svo eg endur-
taki útdr. hans úr ársskýrslu K. Þ.
og ályktun hans á eftir —: »Vör-
ur útlendar og innlcndar seldarfyrir
kr. 442,256,97. Verzlunarágóði kr.
8650,93, eða tæklega 2 °/0 af verzl-
uninni*. — í »athugasemdum« skýrði
eð nú að nokkru þennan ágóða, og
tók það skýrt fram, að hann kæmi
ekki við nema litlum hluta vöru-
umsetningar félagsins. Þess vegna
lægi i augum uppi, að það væri
hreinn misskilningur og þar af leið-
andi blekking, að tala um 2 °/o ágóða
af allri umsetningunni (yfir 440 þús.
kr.). Af mestum hluta umsetðing-
arinnar (útfluttum vörum og pönt-
unarvörum) ar enginn samandreginn
ágóði, heldur fer ágóðinn beint (ekki
»óbeint«) til hvers einstaks félags-
manns, eins og herra G. G. veit og
útskýrði í athugas. minum. Nú vill
herra G. G. ekki kannast við þenn-
an misskilning hjá sér, og skal eg
ekkert þræta -við hann um það,»
hvort það er af misskilningi, eða
öðru verra, að hann bjó til þessa
2 % blekking; en réttara var þó að
geta hins betra til.
Um ágóða manea af útfluttum
vörum og pöntunarvörum í öðrum
félögum sagði eg ekkert í athuga-
semdnm minum, og upplýsingar
þær, sem herra G. G. hefir útvegað
sér, snerta ekkert K. Þ. og raska
þvi í engu minum umsögnum. Eg:
kannast við, að herra G. G, er mjögi