Ísafold - 01.09.1917, Qupperneq 3
ISAFOLD
3
□1=3!
m
m
Hin mikla útbteiðsla, sem Scripps-Booth bifreiðin hefir
meðal karla og kvenna af háum stigum, er óskeikull vottur
þess, að hér er um góða bifreið að ræða.
Cjcn'i
cnpps
BSooék
er sú bifieið, sem hyggnir menn velja sér, ekki einungis vegna
þess hve skrautleg hún er, smekkleg og ásjáleg, heldur og eigi
siður sakir þess, hversu sterk hún er og vel útbúin.
Það er því .Ijóst fyrir þeim sem verzla með vagna, að
Scripp-Booth bifreiðin hefir ýmsa kosti umfram aðrar tegundir;
kosti sem valda hinni síaukinni útbreiðslu hennar.
Fjögurra sylindra, þriggja manna hifreið, er 110
þnml. milli hjóla. Hefir hraðskreiða vél, með vatns-
dælu og loftkæling, stýri til vinstri h&ndar eða
hægri, sett af stað og lýst með rafmagnstækjum,
sýnir vegalengdir i kilometrnm eða föðmnm, vara-
hjól úr járnvir með logleðri, mjög ásjáleg yfirbygg-
ing, mismunandi lit; blá-svört, gráleit eða gnlleit.
Hjólin eru hvlt með járnteinnm. Olar i tjöldnm
eru smekklega litar og gerðar úr bezta leðri, ranð-
leitar, grænar eða bláar. Lúðnr er þeyttur með
rafmagni og þarf eigi annað en styðja á hnapp i
miðju stýrishjólinu. Sætin eru svört eða mosalituð.
I fám orðum sagt, frágangnr allur skrautlegur og
áhöld slíkt hið sama.
Ný gerð af G fjögurra sylindra, þriggja farþega bifreið.
Gerð D, átta sylindra, fjögurra farþega bifreið.
&&ripps~*3$ooffí Qorporation,
Export .Department
i 2 West 57th Street, New York, U. S. A.
■ II
19
sanngjarn, þar sem hann hækkar
þessar upplýsingar ótilkvaddur um
40 %, °8 það likist talsvert þvi, nð
»selja undir innkaupsverði«. Euþið
er eftirtektarvert, að stórksupmaður-
inn kallar það »6beinan« verzlunar-
ágóð j, sem rennur beint til viðskifta-
manna.
Eg mintist á i athugasemdum
minum, að K. Þ. hefði tekið upp
þá nýbreytni á fyrstu árum sínum,
að velja vörur við hæfi félagsmanna
eftir »katalogum«, verðlistum og
jafnvel vörusýnishornum. Þetta þyk-
ir herra G. G. »fátækleg rökfærsla*.
En hún er ekki eins fátækleg og
máske sýnist, einmitt af þvi, að
þetta var fyrsta sporið í áttina til
þess, að félagsmenn nefðu sjálfir
verulega hönd i bagga um vöruval-
ið á útlendum markaði, og hefir þnr
þokast svo áfram, að þeir hafa nú
eigin erindreka til þess að velja vör-
urnar, erindreka, sem engan eigin
hagnað hefir af því, að vörurnar
gangi sem mest i augu, heldur velur
þær fult eins mikið eftir notagildi.
Herra G. G. segir að eg stökkvi
upp á nef mér í athugas. minum,
og ætla eg ekkí að taka þetta upp
sem persónulega móðgun, þótt það
sé máske til þess ætlað, heldur eins
og aðra fjarstæðu. í athugasemdum
mínum er ekki eitt einasta stygðar-
yrði til neins. Eg tel ekki þar til
þetta úm »rört Vand«, þv að það var
sagt í mestu »rólegheitum« og verð-
ur skki eftur tekið, og eg meinti
það heldur ekki neitt sérstaklega til
herra G. G.
Að svo mæltu er útrætt um þetta
efni af minni hálfu.
Pétur Jónsson.
Eldur hefir sóst þessa vikuna í
Bvínahrauni. Miklir flákar af mosa
staðiS í björtu báli. Talið líklegt, að
af mannavöldum muni stafa. Er það
ljótt gaman af þeim, sem framið hafa.
Síra Sigurðnr Stefánsson úr Vig-
ur kom til þings í vikubyrjun—kom
hingað með vólbátnum Þórði Kakala.
Hjónaefni; Jungfrú Ása Kristjáns-
dóttir (háyfirdómara) og Kronika skip-
stjóri á Mjölni.
Hjúskapur. Magnús Jónsson lyf
salasveinn og jungfr. Kristensa Möller
(heit. lyfsala f Stykkishólmi). Gefin
aaman 24. ág.
Messað á morgun í Fríkirkjunni í
Rvík kl. 2 síðd. (01. 01.) og í Frí-
kirkjuoni í Hafnarfirði kl. 6 (01. 01.).
í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði kl. 5
SÍðd.
Pósthúsið. Einhvern næstu daga
mun nýja pósthúsið — þar sem Lands-
bankinn var áður, verða opnað fyrir
póstafgreiðslu.
Mjólkuraksturinn að austan gengur
ágætlega. Hefir bærinn fengið hinn
ákveðna lítrafjölda á hverjum degi, en
það hefir mikið bætt úr mjólkurekl-
unni, sem hór var orðin megn.
Guóm. Thoroddsen
læknir hefir ekki sótt um né held-
ur fengið Jasta stöðu erlendis, svo
sem talið var i ísafold á dögunum,
vegna mishermis. Hann gegnir nú
spitalalæknisstörfum erlendis i þeirri
veru , eingöngu, að búa sig undir
skurðlæknisstörf hér heima fyrir.
Er þetta embætti kjaralakara en emb-
ætti hans hér heima, en það hefir
orðið minna á metunum en hitt, að
fá sem bezta reynslu við skurðlækn-
ingar.
Síldveiðarnar
fyrir norðan hafa gengið afartregt
fram að þessu. En nú er tíðin að
batna og má þvi vel svo fara, að
sildarútvfígurinn réttt enttivað við
næstu 2 vikurnar, sem hann er
stundaður. Veitir ekki af því.
Ráðherraskiftin.
A fimtuda^inn kom konungsskip-
un ril handa Sigurði Eggeiz — i
fjármálaráðherrasess og sama dag
lausnarveiting fyrir Bjöin Kristjáns-
son.
1 dag kvað B. Kr. fara aftur inn
í Ltndsbankann sem bankastjóri.
Víkur fyrir honum Jón Gunnars-
son og gerist aftur gæzlustjóri
en Benidikt Sveinsson hættir þvi
starfi.
í bæjarfógetaembættið er settur
Vigfús Einarsson ctnd. jur.
FálkapÓHturinn kyrsettur.
Islands Falk hafði, er hann fór
héðan, allmikinn póst meðferðis til
útlanda. En á Akuteyri barst skip-
stjóra skeyti um það fiá dönsku
stjórninni, að skipið mætti engan
póst flytjt til Danmerkur, og var
öllum póstinum skipað á land á Ak-
ureyri.
Má nú heita ókleift að koma nokk-
urum skrifuðum staf til Norðurlanda,
nema uúi England — eða kanske
Ameríku.
Alþingi
hefir verið framlengt ttl 10. sept.
Biskupsvisítazía.
Herra Jón Helgason biskup kom
úr visítazíuferð um Rangárvallasýslu
laust fyrir siðustu helgi. Flutti hann
prédikun i 10 af 15 kirkjum pró-
fastsdæmisins.
Látiu
er fvrra föstudag .að Gilsbakka
frú Sigríður Pétursdóttir kona séra
Magnúsar Andréssonar præp. hon.
— 57 ára að aldri. Nánar minst
síðar.
8tjórnin vítt.
Nýlega hafa fjölmennir útgerðar-
manna- og kaupmannafundir verið
haldnir á Siglufirði og Akureyri út
af ráðstöfunum landsstjórnariunar á
atvinnu- og verzlunarmáliou.
Þessar voru helztu tillögurnar,
sem furdirnir samþyktu:
Að fundirnir lýsa óánægju sinni
yfir ýmsum aðgerðum stjórnarinnar
1 atvinnumálum þjóðarinnar, en sér-
staklega þó afskiftum hennar af
sjávarútgerðinni, og bent á, meðal
annars, að flutningsgjald á Steinoliu
með Botniu síðast var ákveðið 20
kr. fyrir tunnu. En óhæfilegust sýn-
st fundunnm sú ráðstöfun, að flutn-
ingsgjald á steinoliu til útgerðar
hækki um 300 % eða úr 5 kr.
upp í 20 kr. á tunnu með sörfiu
ferð og flutningsíjald á matvöru til
Húsavíkur er lækkað um 33 %, eða
úr 45 kr. ofan i 30 kr. á smálest
frá næstu ferð á undan. Krefjast
fundirnir þess, að flotningsgjaldið á
oliunni verði lækkað §vo mikið, að
hlutföllin verði bygð á fullri sann-
girni.
Að fundurinn lývi yfir sem áliti
sinu, að brýn þörf sé á þvi, að lands-
sjóðsverzluninni, sem nú hefir i
höndnm mikinn hluta allrar verzl-
unar landsins, sé stjórnað af reynd-
um, æfðum og áreiðanlegum mönn-
um, með sérþekkingu á verzlunar-
málum og auk þess sé hér eftir haft
betra eftirlit með afgreiðslu lands-
sjóðsskipanna út um landið en átt
hefir sér stað undanfarið.
Ennfremur mótmæla fundirnir
allri hækkun á útflutningsgjaldi af
sjávarafurðum og "kref)ast þess að
verðhækkunartollurinn verði afnum-
inn.
, Studie-
Pedal-Harmonium,
2 Man. & Ped., xo Reg., 6 St.,
4 Sw., — fæst leigt um lengri tima.
Sanngjörn leiga. *
Jón Pálsson.
Erl. símfregnir.
Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 24. ág.
Þjóðverjar eru að búa
sig undir afarmikla sókn
á Riga-vigstöðvunum.
Spænsku uppreistarior-
ingjarnir eru komnir til
Frakklands.
Bretar, Frkkar og ítalir
sækja ákaft á á öllum víg-
völlanum.
Reventlow greifl heflr
lýst því yfir. að hann bú-
ist ekki við því að Mic-
haelis verði ríkiskanzlari
nema um stundarsakir.
Kaupmh. 25. ágúst.
Italir hata gert óvenju
grimmileg áhlaup írá Tolmino
alla leið að sjó. Þeir hafa
enn tekið 20.500 fanga. Aðra
og þriðju skotgrataröð Austur-
rikismanna hata þeir tekið.
Frakkar hafa tekið Camord-
skóginn, 304. hæðina og hafa
sótt íram 3 kilómetra. 8000
menn hafa þeir handtekið í
þessari orustu.
Þjóðverjar hafa nú verið
reknir langt í burt frá Verdun.
Þjóðverjar gera gagnáhlaup
á Ypres—Menin-veginum.
Kmhöfn, 26. ágúst.
Michaelis ríkiskanzlari befir
lýst því yfir að allar breyting-
ar á stjórnarfyrirkomulagi
Þýzkalands verði að bíða
þangað til eftir ófriðinn.
Frakkar hafa sótt dálítið
fram fyrir norðan Betnincourt.
Bretar hafa hörfað dálítið á
Ypres—Menin-veginurr?
Austurríkismenn hörfa und-
an á Heiligengeist-hásléttunni.
Framsókn Miðríkjahersins á
austurvígstöðvunum hefir nú
verið stöðvuð.
Kaupm.höfn 27. ágúst.
Ríkisráðstefna sett í
Moskva.
Kerensky hefir varað
afturhaldsmenn og Maxi-
malintana við þvf1, að berj-
ast á móti stjórninni.
Forseti finska þingsins
heflr kallað saman þingið
29. ágúst.
Hin nýja stjórn Rúss-
lands er þrisvar sinnum
dýrari en gamla stjórnin.
Korniloff og Kerensky
hafa orðið ósáttir út af því,
að dauðahegning heflr aft-
ur verið innleidd í Rúss-
landi.
ítalir sækja fram og hafa
tekið Monte Santo.
Khöfn 28. ág.
Frakkar hafa sótt fram
4 kílómetra í Fosse-skógi.
Hjá Beanrnont hafa þeir
tekið 1100 fanga.
Bretar hafa sótt fram
eiua mílu hjá Hargicourt
og náð aftur stöðvum, sem
þeir höfðu mist.
ítalir eru komnir að
austurhluta Bazizza-há-
sléftunnar og hafa tekið
3100 fanga.
Yflrvöldin i Triest yflr-
gefa borgina.
— hjóðverjar hafa sótt
fram fyrir austan Czerno-
witz og hafa tekið 1200
fanga.
I»að er búist við því að
bandalag komist á með
Bandaríkjum Norður-Aine-
ríku og Japan.
Kmhöfn 29. ág.
Austurríkismenn halda
því fram, að þeir veiti
Itölum viðnám bjá Bain-
sizza.
Bretar hafa sótt fram
2000 metra hjá Julien og
Poelcapelle.
Á rlkisráðsstefnunni í
Moskva hafa flokksforingj-
arnir gefið skýrslu um
ástand hins rússneska
hers. .,
Rússneska stjórnin telur
sig bundna við skuldbind-
ingar hinnar fyrri stjórn-
ar Rússlands um það, að
semja ekki sérfrið.
Henderson setti ráð-
stefnu jafnaðarmanna og
verkamanna banda-
mannaþjóðanna i London.
Wilson Bandaríkjafor-
seti hefir bannað alla út-
flutninga til hlutlausra
ríkja nema alveg sérstök
undanþága sé fengin.
Clemenceau er formaður
nefndar, sem skipuð heflr
verið til þess að rannsaka
stjórnargerðir Poincare’s.
Eimskipafélagið fékk í fyrradag sím-
skeyti frá erindreka félagsins vestra,.
Jóni Guðbrandssyni. Er skeytið á
þessa leið:
— Lagarfoss hefir verið
fermdur 500 smálestum
af vörum, mest sykri og
kaffl.
Bandaríkjastjórn hefir
ákveðið að koma á útflutn-
ingsbanni á öllum vörum
frá 30. águst. Undanþágu
þarf einnig að fá fyrir
þær vörur, sem þegar
hata verið fluttar í skip,
en það er búist við því,
að sérstakt tillit muni
verða tekið til þeirra
skipa, sem þegar hafa
verið ferrad.
....... ■-----------------
Sökum þrengsla
verða margar greinar að biða
næsta blaðs.