Ísafold - 09.03.1918, Blaðsíða 4
IS AFOLD ___________________________
Fasfeigna-skrifstofu
höfum vér undirritaðir opnað í húsi Nathan og Olsen, hér í bænum. Tilgangur skrifstofu þessarar er-
að annast kaup og sölu fastéigna og skipa hér í bæ og út um land, mót sanngjörnum ómakslaunum (hund-
raðsgjaldi), eftir fastri gjaldskrá;
a ð mynda einskonar miðstöð fyrir slík viðskifti, sem geri kaupendum og seljendum auðveldara að ná sam-
böndum hvorum við aðra og tryggja þar með hagkvæmari viðskifti.
a ð leitast við að koma i veg fyrir, að vafasöm verðbréf og verðlitill varningur sé notað sem gjaldeyrir upp í
fasteignir, eins og um of hefir tiðkast hér undanfarið. •
Vér munum leggja áherz'lu á, að öll kaup, sem gerð verða fyrir vora milligöngu, verði bygð á sann-
gjörnum og hreinum grundvelli.
Lögfræðislega aðstoð höfum vér trygt oss, og gerum ráð fyrir að aliir stærri samningar verði gerðir
af lögfræðingi. Skrifstofutími kl. io—12 og 4—7.
>Sími 739. Reykjavík 25. febr. 1918. Póstllólf 426.
Eggert Jónsson, Páll Olafsson,
frá Nautabúi frá Hjtrðarholti.
Auglýsing
Þeir, sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar um mennina
R. Guðjónsson, G. Bergmann, B. Stefánsson eða G. Guðmundsson, sem
munu hafa farið áletðis til útlanda með skipinu Hafliða, sem lét síðast úr
höfn frá Akureyri 4. nóv. 1916, eru beðnir að snúa sér til undirr taðs
bæjarfógeta í því efni, sem fyrst.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 7. marz 1918.
Vigfús Einarsson,
settur. ,
Areiðanlega ósvikinn
Kína-Líís-Elixír
fæst enn á ný, með góðu verði
í verzlun G. Zoega.
Bæjarskrá Reykjavíkur 1918
kemur út á næstunni.
Hún verður óhjákvæmileg handbók á hverju heimili.
Tlugítjsingar eru hvergi betur komnar en í henni.
Skilið þeim næstu daga í skrifstofu Isafoldar, þar sem allar
nánari upplýsingar eru getnar.
1 sérstaka atvinnuskrá geta menn fengið sig^skráða fyrir
litla þóknun með þvi að snúa sér i skrifstofu Isafoldar,
Austurstræti 8, næstu daga.
Bftirmæli.
Hinn 5. nóv. f. á. andaðist að
Rafnkelsstögum í Garði húsfrú Elín
Árnadóttir, dórtir hins valinkunna
bændaöldungs Árna Þorvaldssonar á
Meiðastöðum, og síðar að Innra-
Hólmi. Elín sá!. var fædd 1850;
giftist 1870 Árna Grímssyni atorku-
manni miklum, en misti hann 1890.
Nokkrum árum seinna giftist hún
ísaki Bjarnasyni. Lifði hún með
mönnum sínum í ástríku hjónabandi
og f rnaðist vel. Með hvorugum
manni, varð henni barna auðið, en
ólu upp 2 börn vandalaus. Elín sál.
var greind kona, eins og hún átti
kyn til, og einkar skemtileg í við-
ræðum. Hún var nærfærin við sjúk
linga, og bar mjög gott skynbragð
á ýms húsráð, er oft voru viðhöfð,
og komu að góðu liði.
Elín sál. og mgnn hennar voru
gestrisin, og greiðvikin enda naut
þess margur bæði nær og fjær, áttu
þau því ávalt miklum vinsældum að
iagna. Hún var trúhneigð kona og
siðavönd, og vildi eigi i neina vamm
sitt vita. Mikil fjöldi fylgdi Elínu
sál. til grafar, og tóku flestir sveit-
ungar þeirra merku hjÓDa þátt :
sorg manns hinnar framliðnu, bæði
með návist siuni, gjöfam, og ýmsri
annari hluttekning, og er hann mjög
]>akklátur fyrir það.
Einn aj vinutn hinnar látnu.
Erl. simfregnir
frá fréttaritara Morgunbl.).
Khöfn, 4. marz.
Áköf stórskotahríð á vesturvig-
stöðvunum, einkum í Woevre-héraði,
>hjá Bodonvilliers og í Elsass.
Frakkar hafa sóit dálítið fram.
Friðarsamningar
Rússa og Pjóðverja.
Khöfn, 5. marz.
Hér fer á eftir aðalefni friðar-
samninga þeirra, sem Þjóðverjar og
Maiimalistar í Rússlandi gerðu með
sér.
1. grein,
Fullkomicn friður sé með þjóð
unum og vinsamleg viðskifti hefþst
aftur þegar í stað.
2. grein.
Hvor þjóðin fyrir sig lofar því,
að koma i veg fyrir allar æsicgar
og allan undirróður, sem veiki frið-
samleg viðskifti þjóðanna.
3. grein.
Oll héruð fyrir vestan þá landa-
mæralinu, sem þjóðirnar hafa þegar
komið sér saman um, hverfa að fullu
og öllu undan Rússum. Miðríkin
og þær þjóðir, sem þau héruð byggja,
eiga að ráða öllu um framtið þeirra.
Skipa skal nefnd þýzkra og iúss-
neskra fulltrúa, tíl þess að fastákveða
nánar hvernig laudamærin skuli vera.
4. greiu.
Rússar skuldbinda sig til þess að
yfirgefa þegar i stað austurhéruð
Anatolíu og afhenda þau Tyrkjum.
Ennfremur skulu þeir láta af hendi
þetta, sem þér hafið gert. Þér hafið
haldið tilraunafund með óvöldu fólki,
án þess að hafa nokkurn ákveðinn
tilgang. Þar hafið þér stungið höfð-
inn inn i tilveruna hinu megin og
þér hafið hitt einhverja götustráka.
Haldið áfram og reyuið að ná ein-
hverjum betri árangri.c Svona gerði
Drayson hershöfðingi grein fyrir
málinu, og þó að það fullnægði mér
ekki nm það leyti, þá hefi eg nú
sannfærst um, að hann hafi vitað
mikln meira en eg vissi.
(Framh.)
Erdehan, Kars og Batum og afsala
sér öllum rétti til þess að ráða
nokkru um það, hvernig um þær
borgir og héruð fer.
5. grein.
Rússar skuldbinda sig til þess að
afvopna þegar í stað allan hinn
rússneska her og'senda hermennina
heim. Þar með er talinn hinn nýi
stjórnbyltingarher Maximalista. Rúss-
nesku herskipin skulu halda kyrru
fyrir i rússneskum höfnum þangað
til alheimsfriður er saminn, eða þá
að þau skulu afvopnuð.
Sömu ákvæði gilda og um þau
herskip, sem bandamenn eiga i
Rússlandi.
Hafnbannið í íshafinu heldur á-
fram.
Rússar skuldbinda sig til þess að
slæða upp öll tundurdufl í Eystra-
salti og Svartahafi.
* 6. grein.
Rússar viðurkenna þann frið, er
Ukraine hefir þegar samið. Þeir lofa
að hverfa á burtu úr- Ukraine og
'nætta öllum undirróðri þar. Enn-
fremur láta þeir Eistland og Lif-
land af höndum. Eru landamæri þar
að austan ákveðin um Navariuer,
Peipus, Pskov-vötnin til Livensof.
Lögreglulið ÞjóðVerja hefir eftirlit í
þessum löndum til bráðabirgða.
Rússar skulu algerlega hverfa á
burt úr Finnlandi og Alandseyjum
og skuldbinda sig til þess að vinna
eigi gegn finsku stjórninni.
Víggirðingar Álandseyja skulu
látnar ónotaðar, en Þjóðverjar, Rússar
Finnar og Svíar skulu síðar koma
sér saman um það hvernig með
eyjarnar skuli farið.
. 7. grein
Báðir málsaðiljar viðurkenna full-
komið sjálfstæði Persín og Afghan-
istau.
8. grein
kveður á um það, að öllum þeim
hermönnum, sem teknir hafa verið
höndum i ófriðnum, skuli gefið
heimfararleyfi.
9. grein
Báðir málsaðiljar falla algerlega frá
öllum kröfum um hernaðar-skaða-
bætur.
• 10. grein
Stjórnmálasambandi með útsend-
um ræðismönnum skal þegar komið
á aftur.
11. grein
Sérstakir viðskifta- og verzlunar-
samningar skulu gerðir með Rúss-
um og hverju Miðríkjanna.
12. grein
Sömuleiðis skulu ríkin, hvort um
sig, korna sér satnan um viðnrkenn-
ingu á lögum hvers annars, bæði
þeim er snerta rikisheill og einstak-
lingsrétt.
13. grein
Friðarsamningarnir eru gerðir í 5
eintökum og mismunandi eftir hver
þjóðin á í hlut.
14. grein.
Ef eitthvert Miðrikjanna æskir
þess, skuldbinda Rússar sig til þess,
að gera sérstakan verzlunarsamning
í Berlín innan hálfsmánaðar.
Friðarsamningarnir ganga í gildi
undireins og þeir eru undirskrifaðir.
Wolffs-fréttastofan bætir því við,
að þegar sé fengið samkomulag um
samskonar viðskiftasamninga og Mið-
rikin gerðu við Ukraine.
Þegar fréttirnar um friðarsamning-
ana komn til Berlín, var borgin öll
fánum skreytt.
Þýzku blöðin álíta að friðarsamn-
ingar þessir, séu einhver hinn merk-
asti atburður veraldarsögunnar og
eins dæmi, þar sem að undan Rúss-
um gangi 50 miljónir manna og
Rússland skerðist um 1.400.000 fer-
kilómetra. <
Fregn frá Petrograd hermir það,
að verkamanna- hermanDa- og bænda-
ráðið ætli að boða til sérstakrar ráð-
stefnu í Moskva hinn 12. marz og
er áiitið efasamt, að sú ráðstefna
muni viðurkenna friðarsamnÍDgana.
Wolffs fréttastofan tilkynnir að
Rúmenar og Miðríkin séu i þann
veginn að koma sér saman um frið-
arsamninga.
Allir sendiherrar bmdamanna eru
farnir frá Petrograd.
Allir rússneskir hermenn hafa
verið kvaddir heim frá Finnlandi.
m
Það er nú sannfrétt að Japanar
muDÍ hefjast handa i Síberiu.
Friðarsamningar Rússa ogMiðiikj-
anna eiga að vera staðfestir af stjórn-
um ríkjanna fyrir 17. marz.
Khöfn 5. marz.
Danir hafa selt Norðmönnum
200,000 sekki af kornmat. í þess
stað hafa Norðmenn aftur selt Dön-
um 200,000 sekki af áburðarefnum.
K.höfn 6. marz
Brezk blöð halda því fram, að
Þjóðverjar hafi hertekið Narwa, borg
við Finnlandsflóa, og haldi áfram
herför sinni áleiðis til Petrograd.
Blöð sænskra afturhaldsmanna halda
því fram, að róttækustu j.fnaðarmenn
í Svíþjóð hafi tekið höndum saman
við Maximalista i Finnlandi og Rúás-
landi, til þess að koma i kring stjórn-
arbyltingu í Svíþjóð.
Lansdowne lávarður hefir birt nýtt
opið bréf nm ræðu Hertlings ríkis-
kanzlara.
Frakkar hafa gert mjög sigursælar
útrásir fyrir austan Meuse. Arang-
urinn hefir orðið mikill.
Frá Berlín kemur sú fregn, að
þýzka stjórnin hafi mótmælt því, að
dönsku yfirvöldin kyrsettu skipverja
af þýzka hjálparbeitiskipinu Wolff,
sem straudaði á Jótlandsskaga.
Svíar hafa gefið út bláa bók, sem
ræðir um Álandseyjar.
Rúmenar semja frið.
Khöfn 7. marz.
Rúmenar og Miðrikin hafa gert
með sér bráðabyrgða-friðarsamning,
og var hann undirritaður í Buffea.
Khöfn, 7. marz.
Viðskiftasamningur sá, sem Rúss-
ar gerðn við Þjóðverja árið 1904
hefir verið endurnýjaður. Þýðingar-
mestu hlunnindin fyrir Þjóðverja
eru þau, að þeir framvegis geta rek-
ið verzlun við Persiu og Afgahn-
istan um Rússland, og að Rússar
mega ekki hækka innflutningstoll á
vörum frá Þýzkalandi fyr en árið
1925. Tekið skal tillit til allra for-
réttinda Þjóðverja, þar á meðal lán-
beiðna.
Frá London er símað, að Red-
mond, hinn þekti írski stjórnmála-
maður, sé látinn.
Friðarsamningar
Rúmena.
K.höfn 7. marz
Aðalatriðin í friðarsamningum
Rúmena eru þessi:
Rúmenar eiga að leysa upp 8 her-
deildir, sem barist hafa við Mackensen
Þeir láta Dobrudscha af hendi. Landa-
mæri Ungverjalands verða »lagfærð«.
Konstanza við Svartahafið vefður
opin hafnarborg. Útlendir f herfor-
ingjar (bandamanna), sem verið hafa
með her Rúmena, verða sendir heim.
Um Bessarabíu ræðir ekkert ísamn-
ingunum. Friður á að vera endan-
lega sáminn fyrir 19. þ. m.
Þjóðverjar hafa sett her á land í
Aabo og á Alandseyjum.
Bretar hafa hrundið æðisgengnum
áhlaupum Þjóðverja hjá Lens og
Frakkar i Fosse-skóginum.
Bandamenn hafa orðið á eitt sáttir
viðvikjandi Síberiu.
Khöfn, 7. marz.
Miklar umræður hefir það vakið i
Sighv. Blöndahl
cand. jur.
Viðtalstími kl. 11—12 og 4—6.
Lækjargötu 6 B.
Sími 720. Pósthólf 2.
Tapast hefir næstliðið haust,
1917, á veginum frá Tryggvaskála
að Þjórsártúni, nýsilfurbúin svipa,
ómerkt. Finfandi er vinsamlega
beðinn að skila henni gegn ríflegum
fundarlaunum, til Einars Eyólfssonar
i Hvammi i Landmannahreppi.
blöðunum að Þjóðverjar hafa sett
lið á land á Álandseyjum.
Opinber tilkynning frá Petrograd
hermir það, að ýmsir uppreistar-
flokkar haldi tii á austurvigstöðvun-
um.
Herför Japana til Siberíu hefir
verið frestað um óákveðinn tíma.
Bandamenn vilja fá nákvæm svör
um fyrirætlanir Japana, áður en þeir
gefa sitt samþykki til þess, að her-
förin sé nauðsynleg.
/