Ísafold - 04.05.1918, Blaðsíða 2

Ísafold - 04.05.1918, Blaðsíða 2
2 ISAFOLD / □□□□□□□□□□□□□ □ Arni Eiríksson Heildsala. Tals. 265 og 554. Pósth. 277. Smásala. Vefnaðarvörur, Prjónavörur mjög fjölbreyttar. Saumavélar með fríhjóli °g 5 ára verksmiðjuábyrgð Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir. þvotta- Og hreinlætisvorur, beztar og ódýrastar. Tækifærisgjafir. □□□□□□□□□□□ Vorvísur. O, gej pú mér að gróa, pú gróðurscsla vor, með blómum pínum blítt i daggarúða, pd ber eg ajtur vorsins jagra skrúða, ó, gej pú mér að gróa, pú gróðursala, elskuríka vor. t O, 'gej mér heita geisla, pú góða, bjarta vor, og til mín veifa töjrasprota pínum, svo tendrist Ijós í hugarjylgsnum mínum, 6, gej mér heita geisla, pú góða, bjarta, himinbliða vor. t O, vertu öllutn yndi, pú endurborna vor, en bezt peim, setn n ú bera djúpu sárin og biðja pess, að líði taunaárin, 6, veit peim alt pitt yndi, pú endurborna, gleðiríka vor. Jarprúð ur Jónsdóttir. þetta góðgæti virðist þannig úr sögunni ? Eða ætlar það sér kannske að bera fram, að lands- gtjómin, sem það fylgir, gefi út ranga reikninga? — Sú ein skýr- ing er möguleg, ef »reiknings- skekkjan* er enn til í raun og veru! Alþingi. „Þrautaleiðir þesiir eru þingsins dagar enginn maðnr yrkir bögur og ekkert er að færa i sögur.“ Svo orti Jón heit. Ólafsson um árið. Og má þessi vísa til sanns vegar færa um þann tíma sem af er þesBu þingí. Framan við tjöldin gerist sama sem ekkert og bak við tjöldin er víst heldur lítið aðhafst. Því bor- ið við af þingmönnum, að þing hafi verið kvatt saman mánuði of snemma. Það hefði þurft að bíða tveggja viðburða erlendis til þess að þinginu gæti orðið eitt- hvað að verki. Séu þetta ekki viðbárur einar, má þingið stjórninni einni um kenna. Henni einni gat verið kunnugt um þessar örðugleika- hnútur. Og hafi þær verið svona afdrifamiklar, bar henni að taka hæfilegt tillit til þeirra. En ann- ars eigum vér bágt með að trúa því, að þingið hafi eigi nægileg- um nauðsynjastörfum að gegna, hvað sem þessu líður. Það eitt er ærið starf áð moka Augíasarstallinn — skakkafalla- elginn — stjórnarinnar, draga vítin fram í dagsbirtuna, svo að varnaði megi verða. En það mun nú einmitt vera það, sem allmiklir kraftar fara í af sumra þingmanna hálfu, að tefja fyrir og tálma pví, að skakka- föll axarskaftastjórnarinnar verði rannsökuð — meira en að nafn- inu — meira en kákið eitt. Það hindrunarstarf hefir minsta kosti vaxið einni helztu máttar- stoð fjármálaráðherrans svo í aug- um, að eftir að hann var kjörinn í rannsóknarnefndina á stjórnina, heimtaði hann sig lausan úr 2 nefndum er hann sat i, bæði bjargráða- og mentamálanefnd — í þeirri seinni varð Hákon éftir- maðurinn. Það þarf ekki að efa, að af hálfu sumra ráðherranna og þeirra nánustu fylgifiska, verður engis ófrei8tað látið til þess að reyna að gera starf rannsóknarnefndar- innar — að káki einu. Því meira reynir á þá nefndarmenn, sem ekki eru starblindir stjórnar- dindlar, að duga vel og láta hvergi hræðast, heldur leiða hið sanna fram hispurslaust og hlut- drægnislaust. Helztu þingfréttir þessa vikuna fara hér á eftir: Sala Gaulverjabajar. Það mál var til umr. í Nd. Málinu hafði verið vís- að til landbúnaðarnefndar en hún klofnaði um það. Meirihlutinn vildi eigi selja og hafði Sigurður Sig- urðsson framsögu fyrir hann. Urðu um málið miklar og langar umræð- ur. Þeir Jörundur og Bjarni frá Vogi mæltu á móti því að nokkrar landssjóðsjarðir yrðu seldar. Sig. Sig. mælti á móti því að þessi jörð yrði seld, en með sölu mæltu þeir Pétur Þórðarson frsm. minnihluta landbúnaðarnefndar, Einar Jónsson og Gísli Sveinsson. Þá talaði og Þórarinn Jónsson og rrælti með sölu landssjóðsjarða. Eftir að um- ræður höfðu staðið í fullar tvær klukkustundir, var samþykt eftir ósk nokkurra þingmanna að slíta þeim og höfðu þó margir fleiri beðið um orðið. Síðan var gengið til at- kvæða og var að viðhöfðu nafna- kalli samþykt rökstudd dagskrá á þessa leið: »í því trausti að landsstjórn selji ekki jörð þessa fyrst um sinn, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.* Já sögðu: Bjarni, Björn Stef., E. Arnórsson, E. Arnason, Einar Jónsson, Gísli Sveinsson, Hákon, Magn. Guðm., Magn. Pét., Matthías, P. Oi.t., St. St., Þorst., Þórarinn, Ben. Sv. og Öl. Briem. Nei sögðu: B. Kr., Jón á Hvanná, Jörundur, P. Þórðarson, Sig. Sig., Sveinn Ól. og Þorleifur. Þingsályktun um úthlutun korn- vöru- og sykurseðla og vöruftutn- inga. Flutningsmenn vilja að sveita- mönnum, sem eiga erfiða aðdrætti, sé úthlutað vörum til lengri tíma en 4 mánaða í senn og að séð sé um vöruflutninga i sumar til þeirra hafna, sem eru brimasamar eða geta tepzt af ísi. Eftir nokkrar umræð- ur var málinu visað til bjargráða- nefndar og umræðu frestað. Askorun til íslenzkra kvenna. Eins og kunnugt er fengum vér konur stjórnmálalegt kjörgengi og kosningarrétt með stjórnskipunarlög- um staðfestum 19. júní 1916. Með lögum þessum opnuðst þau svið er áður voru oss lokuð, og um leið og vér fögnuðum hinum mikils- verðu éttarbótum, hétum vér að beita oss fyrir því máli, er að voru áliti er eitthvert hið mikilvægasta nauðsynjamál þjóðfélags vors. Þaðan er sprottinn sá ásetningur íslenzkra kvenna að vinna að stofn- un almenns spitala, er landið alt njóti góðs af, og sem liðnr i þeirri starfsemi myndaðist Landsspítalasjóð- ur lslands. Stofndagur hans er 19. júni 1916, Sjóðsstofnunin gerði málið þekt og vinsælt meðal almennings um land alt, auk þess sem hún, hjá stjórnarvöldum landsins, aflaði stofn un Landsspitaia fylgis, sem málefni, er hrinda beri í framkvæmd hið fyrsta, og eru þegar gerðar ráðstaf- anir, af hálfu hins opinbera (lóðar- kaup o. fl.) til undirbúnings spítal- anum. Til þess að halda málinu vakandi og til aukningar sjóðnum hafakven- félög þau í Reykjavik, er að honum standa, ákveðið að halda stofndag hans, 19. júni, jafnan hátíðlegan minningar- og jafnframt fjársöfnunar- dag. Arangur af fjársöfnun í Reykja- vík 19. júní 1917 varð stærsti tekju- auki sjóðsins á þvi ári. Nú fer 19. júní bráðum i hönd. ■ ■ ■ Bómullarsokkar kvenna frá 0.98. Ullarsokkar kvenna og barna, stórt úrval. Saumavéíar með hraðhjóli. Verð kr. 62,00. <Sgiíl %3aco6sQti. í Reykjavik mun hann hátíðlega haldinn, og gerður svo arðberandi sjóðnum sem föng leyfa. Enn sem komið erhefir Landsspítalasjóðurinn, réttabótadagurinn, fánadagurinn að- eins verið haldinn hátíðlegur af kon- um Reykjavikur. Dagur þessi flutti þó hin sömu réttindi til kvenna hvar- vetna á landinu og málefnið sem við hann er tengt er áhugamál kvenna um land alt. Væri því vel við eig- andi að vér konur ynnum að því að 19. júni yrði viðurkendur um land alt sem minningardagur réttinda vorra og starfsdagur til eflingar áhugamáli voru. Að vér gerðum þennan eina dag ársins að þegnskyldudegi i þarfir mannúðar og liknar. Hátíðahöld og fjársöfnun handa sjóðnum þennan dag hugsum vér oss þannig, að kvenfélög eða einstak- ar konur er áhuga hafa á málinn gengist fyrir þeim hver í sinu bygðar- lagi, á likan hátt og kvenfélög ». Reykjavik hafa gert undanfarin ár eins og t. d. þau árin, sem »Over Evne< og »Paul Lange og Thora Parsberg* voiu ekki einasta leikin á öllum leikhúsum Norðurlanda, heldur og mýmörgum þýzkum leik- húsum. Þar að auki fékk hann, svo sem kunnugt er, hin miklu Nobelsverðlaun nokkrum árum fyrir dauða sinn. En Björnson var örlátur sem æfintýrakonungur. Ekki við sjálfan sig. Því að sjálfur var hann af- skaplega nægjusamur, — hann átti að eins dálítið bágt með að neita sér um að klæðast vel. Honum var yndi að því að sjá fallega búið fólk, og sjálfum þótti honum gaman að vera i fallegum fötum, Honum var það síxt dulið, hve glæsilegur hann var, og hann lagði rækt og umönnun við að vera snyrtilegur htð ytra. Sérstaklega var honum unun að fínum og dýr- um vestum. Og við skrifborð sitt sat hann í fögrum svörtum silki- slopp, sem hann bar eins og kon- ungskápu. En útgjöld til slíkra hluta voru þó hverfandi. Nei, peningarnir gengu sannarlega ekki til hans sjálfs. En í fyrsta lagi var heimili hans óhjákvæmilega mjög dýrt. Aulestad var konungsgarður, sem stóð opinn upp á gátt öllum heiminum, og þar var stöðug gest- koma. Þar sem gestir sátu daglega til borðs, og þar sem gestaherberg- in vöru alt af til taks. Þvi næst, og það var aðalatriðið, stóðu hjarta Björnsons og pyngja hans opin hvenær sem var. Þegar peningarnir streymdu til hans, streymdu þeir, ef hægt var, enn hraðara frá honum aftur. H?nn gat ekki sagt nei. Og hefði hinn ekki sjálfur fé í þann svipinu, þa tók hanti lán eða gekk i abyrgð til þess að hjálpa öðrum. Hann var í sannleika konunglegur í örlæti sinu. Hann var ekki að lauma í menn lítilræði, smá-ölmusum, eins og flestir gera meira eða minna. Nei, það var Björnson líf og yndi að hjálpa svo að hjálpin hrykki til. Hann hjálp- aði með þúsundum, stundum tug- um þúsunda. Hann gaf eins og sá, sem ekki þekkir ógrynni auðæfa sinna. Hann gaf svo að hann sjálfur komst í stökustu vandræði, og það þó að hann væri nýbúinn að taka við stærðarfúlgum fynr ritverk sin, — eða réttara sagt, svo að hin ágæta kona hans, sem var féhirðir hans og fjármálaráðherra, varð að liggja andvaka ' til þess að brjóta heilann um ráð til nýrra rikislána. Og auðvitað var níðst á honum. »A hinum si-örláta og auðtrúa vínviði lifðu sníkjuplönturnar sældarlífi*. »Svo sem kunnugr er, eru ekki allr mik'i- ! stamenn mikiir menn. V’ald og gildi Björnsons var ekki hvað sizt fólgið í því, að hann var nógu mikill til þess að meta áðra og dást að þeim. Björnson var hrifnari af Alexand- er Kielland en nokkrum öðrum, — hinum glæsilegasta og fyndnasta allra norrænna rithöfunda. Hann blátt áfram tilbað hann. Það eru engin önnur orð til yfir það: Björnson var ástfanginn af Kielland — sem rithöfundi og maniii. Sjálfsagt einmitt vegna þess, að Kielland og Björnson sjálfur voru i sumu eins ólíkir og svart og hvitt. Þegar Björnson var með Kielland, var hann altaf frá sér numinn af hrifni. Það var enginn í víðri ver- öld, sem gat jafnast á við Kielland. Hann naut hvers orðs, ,sem fram- gekk af hans munni. Hann sætti sig ekki einasta við, nei, hann var blátt áfram heillaður af öllu því stríðnisglensi, sem Kielland var van- ur að gæða hinum mikla aðdáanda sinum á. Fræg er þessi saga, og það ekki sizt veera þess að Björnson si:>ði hina sáifur hrifinn, nverjum sem var. Þó að Björnson væri ekki bind- indismaður, var hann að minsta kosti mjög hófsamur á áfengisnautn. Kielland elskaði hinsvegar allar »guðs- gjafir«. Einu sinni voru skáldvin- irnir báðir samtimis gestir Hegels á hinu fræga sumarsetri hans Skov- gaard. Fjölskyldan og gestir hennar komu reglulega saman á hverju kvöldi i hinum stóra, pálmauðga glersal, og jafnreglulega kom 'þjónninn undir eins og bar whisky fyrir Kielland. Það var lika föst regla, að Björnson sagði þá nokkur vingjarnleg viðvör- unarorð til Kiellands: »Þú ættir ekki að drekka svona mikið whisky«, sagði hann og hristi höfuðið stórinn. Kielland þakkaði honum umhyggju hans og flýtti sér að tæma fyrsta whisky-glasið Björnson til heilla. Kvöld eitt var Bjprnson sérstak- lega áhyggjufullur út af þessari heimsku Kiellands. »Þú ættir ’ að- fara þér varlega«, áminti hann vin sinn. — »Já, en þú hefir enga hug- myi 't um hvað það er gott«, svar- aði Kielland. »Af hverju viltu ekki reyna einu sinni? Vertu nú góður og drektu eitt glas með mér í kvöld*. — Björnson tók þvert fyrir það með andstygð. — »Þú ættirnú samt að reyna*, hélt Kielland áfram. »Eg skal ábyrgjast að það mundi duga til«. — »Til hvers?« spurði Björnson. — »Jú, svaraði Kielland, sjáðu til, — ef þú að eins gerir það, þá verður þú næstum þvi eins mikill og Ibsen«.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.