Ísafold - 23.11.1918, Page 1

Ísafold - 23.11.1918, Page 1
Kemur út ]—2 í viku. Verðárg. 5 kr., erlendis kr. eða. 2 dollarjborg- kt fyrlr rniðjan júlf erfeudis fyrirfram, Laueaeala 10 a. eint Uppsögn (skrifl. bundin við áramót, er ógild nema kom- in sé til útgefanda fyrir 1. oktbr. og sé kaupandi skuld- laus við blaðið. ísafoldarprentsmiðja. Ritstjórt: Ölafur Björnsson. Talsími nr. XLV. ir>~, Reykjavik, laugardaginn 23. nóvember 1918 56 tölublað. Inflúenzii-drepsóttin 'Mannskæðasta pest í sögu höfuðstaðarins Um 180 manns deyja á hálfum mánuði -ose- Undir mónaðrmótin siðustu var farið að rofa svo vel lil í heims- styrjaldar ósköpunum, að glitti i heiðan himin ýriðarins. Hér sem annarsstaðar um heim- inn voru hugir allra fagnandi friðar- voninni, sem var að verða að vissu. Vonin um, að dýrtiðaráþján og öðr- um meinum siyrjaldarinnar tæki að linna, lýsti í hugunum eins og leiftrandi blys. En því miður hefir svo farið í Reykjavik, að friðar-fögnuðurinn hefir ekki fengið að r jóta sín. Því að samfara friðartíðindunum bar hér að garði þarin illvignst.a og skæðasta vágest í sögu höfuðstaðar- ins, inflúenzu-drepsótt, sem farið hefir æðandi og drepandi um bæinn, sáð eymd og örvilnan á fjölda heimila, gert börn svo tugum skiftir munað- arlaus og höggið sárgrætilega og miskunnarlaust hvað eftir annað i sama kuérunn. Höjuðstaðurinn er á hálftim mánuði orðinn nál. 180 mannslíýum ýátakari! Þau má ótvírætt rekja Upptok tjj gotnju er hing- drepsottarmnar , , að kom um 20. okt. Um það leyti sem Botaía fór frá Khöfn, var inflúenzan þar að komast á versta stig. Farþegar á Botniu smitast þar og smitað svo frá sér, er þeir komu hér á land. Mjög er um það rætt, að heilbrigð- isyfirvölddin hefðu átt að sóttkvía Botníu og þessi örfáu önnur skip, sem nú koma hingað til lands, og að átt hefði með þvi móti að vera hægt að firra oss að miklu leyti þessum óttalega vágesti. Vér teljum árangurslaust að deila sem stendur um það. En að sjálfsögðu ber að rannsaka, þegar tími vinst til, hvott uœ vanrækslu og hirðuleysi hefir verið að tefla, og haga sér þar eftir gagnvart þeim, sem ábyrgðina bera. Það skifti engum togum Útbreiðsla ejnr ag Veikin tók að veikinnar. . , „ , _ smita frá sér, að á or- fánm dögnm lögðnst mörg þúsund bæjarbúa, féllu i rúmið eins og flug- ur. í fjölmennum vinnustofam, þar sem uppi stóðu 30 manns á laugar- dagskvöld voru kannske 2—3 vinnu- færir mánudagsmorgun. Aldrei hefir nokkur sótt hér á landi reynst eins afskaplega næm. Þegar fram i vikuna 3.—10. nóv. kom, fór uppistandandi bæjarbúum daglega fækkandi og á strætum sá ust örfáar hræður og nær einungis mjög roskið fólk. Inflúenzan hefir þau einkenni þetta sinni, að hún ræðst sérlega vægt eða alls ekki á fólk, fimtugt eða eldra. Seinni hluta vikunnar Vandræðin magnast. mátti Reykjavík með sanni heita »dauð borg<. Flestar verzlanir og vinnustofnr urðu að loka, blöðin hættu öll að koma út, opinberar skrifstofur og stofnan- ir voru fæstar opnar — lífið út á við var eins og slagæð á deyjandi manni. En innan heimilanna i höfuð- staðnum var samt ástandið hálfu ömurlegra og hörmulegra. Þar var sannkallað skeifingar ástand. Á mörgum heimilum lá alt heimilis- fólk í einni kös, og gat enga björg sér veitt, á öðrum heimilum stóðu smábörn ein eða örvasa gamaltnenni uppi. Víða engin viðbúnaður við vágestinum — ekki einusinni hægt að hita upp. Drepsóttin hlífði ekki læknunum fremur en öðrum. Þeir tíudust í rúmið smátt og smátt og gerði það ástandð r*ví lakara. En þeir fáu læknar, sem uppi stóðu fengu þær ó- skapa kvaðir á sig um sjúkravitjanir að eigi sáu út úr nótt eða dag. Matthías Einarsson lá að eins einn dag. Þórður Thoroddsen aldrei og munu þeir tveir hsfa orðið að bera langmest erfiði og þunga aagsins- og næturinnar, þegar veikin var á hæsta stigi. En aðrir læknar svo sem Maggi Magnús, Sæm. Bjarnhéðins- son prófessor o. fl. hafa og orðið að leggja alveg sérstaklega mikið að sér. Yfirleitt > mega Reykvíkingar minnast læknanna hér með ein- stakri þakklátssemi og virðingu fyrir ósérplægni þeirra, alúð og rækt þessar afar erfiðu veikindavikur. Þann 9. nóv. tók skipuð stjórnm í taumana og skipaði hjúkrunarneýnd til þess að liðsinna bágstöddum bæjar- bú»m i veikindavandræðunum. í nefndimi áttu sæti borgaistjóri, lögreglustjóri og Lárus H. Bjarnason prófessor. En hinir tveir fyrsttöldu lögðust um það leyti og lenti því alt starfið á L. H. Bjarnason og er það sammæli þeirra, er til þekkja, lækna og annara, að píófessorinn og aðstoðarmenn hans, þeir Gísli ls- leifsson fulltrúi, Þorkell Þorlákssou aðstoðarmaður, Pétur G. Guðmuuds son skrifari borgarstjóra o. fl. og síðast en ekki sizt Garðar Gíslason stórkaup maður hafi leyst af hendi svo mikið og þarft verk til líknar og hjálpar í bágindunum að eigi verði full- þakkað. Hið fyrsta, sem hjúkrunarnefndin gerði var að kynna sér ástandið í bænum með þvi að senda 13 eftir- litsmenn út, er rannsöknðu ástandið i hverju húsi. Þessu næst sá hjúkrunarnefnd um, að koma upp bráðbirgðasjúkraskýli í Barnaskólahúsinu, sem komið hefir í mjög góðar þarfir. Yfirlæknir þar gerðist Þórður Sveinsson geð- veikralæknir, en ráðsmenn spítalans Ágúst Jósefssou heilbrigðisfulltrúi og Einar Pétursson kaupmaður. í Barnaskólann hefir verið tekið móti mesta fjölda dauðveikra sjúklinga, sem ella hefðu verið, margir hverir mjög hirðulitlir úti í bæ, og áreiðan- lega hafa mörg mannslíf bjargast með þessu móti. Þegar fram i sótti kom það í Ijós, að mikil þörf var á sérsöku barnahæli fyrir sjúk og munaðar- laus börn og var því líka komið á stofn í Barnaskóíanum undir for- stöðu Fengers stórkaupmanns. Hjúkrunarnefnd sá einnig um, að jafnan væri Iæknir til taks nætur og daga, annaðist matgjafir tii sjúkra og sendi, eftir þvi, sem frekastvoru föng á, hjúkrunarfólk á heimiíin. Nefndin sá og læknunum fyrir bif- reiðum og höfum vér orð eins læknisins fyrir því, að bifreiðarnar hafi margfaldað það starf, sem lækn- arnir gátu int af hendi. En það er ekki eingöngu Hjálpfýsi hjúkrunarnefnd og að- °9, . stoðarfólk hennar, sem liknarlund. ’ drengilega hefir lagt hönd á plóginn í þessum dæmalausu erfið- leikum. Það er óhætt að fullyrða að eigi hafi annað sinn komið betur i ljós hér í Reykjavík hve hjálpfýsi og liknarlund eigi sér djúpar rætur í i hugum manna. Það mega víst að eins heita undantekningar til stað- festingar reglunni, ef einhverir hafa legið á liði sínu um að líkna og hjálpa. Óvíða gerðist meiri þörf hjálpar utan að en í lyfjabúðinni. Allur bærinn stóð á öndinni að ná i lyf, en sóttin lagði jafnóðum í rúmið afgteiðslufólkið i lyfjabúðinni og hefði þar farið illa, ef eigi hefði margir bæjarbúar gerzt ötulir sjálf- boðaliðar við lyfjaafgreiðsln. Frá Barnaskólaspítalanum mundi og mega segja mörg falleg dæmi um ósérplægni sjálfboðaliða og mörg eru heimilin út næ alla borgina, er kynnu frá að segja hjálpfýsi og liknarlund sér óviðkomandi fólks, þegar þau lentu í heljarörmum drep sóttarinnar. Þá hefir heldur ekki staðið á, að þeir sem það hafa getað hafi opnað pyngjuna til hjápar og mun þó eftir að reyna betur þar á. Nýlega hefir Thor Jensen sýnt þá stórrausn að taka algerlega á sinar herðar allan kostnað við opinbert elihús, sem kornið hefir verið á stofn í Slátur- húsinu. Geta allir, sem þurfa fengið þnr mat ókeypis. Þá hefir Ólafur Ólafsma (H. P. Duus) sýnt þá stórrausn að gefa 10.000 kr. til bágstaddra. Þegar þetta er ritað, er Veikin i ” r . inflúenzu drepsóttin, sem betur fer, mikið 1 rénun hér í Rvik. Úr þessu má fara að gera ráð fyrir, að bærinn fari að komast nokkurnneginn í samt lag, eftir því sem tiltök eru. En langt er í land unz yfir grær i hugum vorum tíðindi þau, sem hér hafa gerzt síðustu vikurnar. Yfir þær hörmnngar mun aldrei fyrnast að fullu i endurminningu þeirra, sem lifað hafa þær. Tlvarp. Neyðin er mikil hér í bæ. En vér trúum eigi öðru, en að hjálpíýsi manna sé enn meiri. Fyrir þvi hötum vér undirritaðir gengið saman i neínd til þess að safna fé til að bæta úr fjárhagsböli þvi, sem in- fluenzusóttin hefir valdið í bænum. Vér tökum allir við framlögum og blöðin væntanlega líka. Góða rkonur og góðir menn, ungir og gamlir, at öllum stéttum, allir sem aflögufærir eiuð, leggið fram skerf yðar, smáan sem störan, hver eftir beztu getu. Bælið það böl sem bætt verður! Reykjavík 21. nóv. 1918. Lárus H. Bjarnason, prófessor. Agúst Jósefsson, bæjarfulltrúi. Jón Hermannsson, lögreglustjóri. Bjarni Jónsson, prestur. Br'et Bjarnhéðinsdóttir, bæjarfulltrúi. Vilhjálmur Finsen, ritstjóri. Guðleifur Hjörleifsson, sjóm. Guðrún Lárusdóttir, frú. Jóhann Þorkelsson, prestur. Thor Jensen, kaupm. Jónína Jónatansdóttir, frú. Maria Pétursdóttir, frú. Ólafur Ólafsson, prestur. Th. Thorsteinsson, kaupm. Jes Zimsen, kaupm. Þorv. Þorvarðsson, prentsm.stj. Guðm. Guðmundsson, ritstj. Jón Þorláksson, verkfr. Elias Stefánsson, útgerðarm. Garðar Gíslason, kaupm. Guðm. Asbjörnsson, kauþm. Ólafur Lárusson, settur borgarstjóri. Guðrún Briem yfird.frú. J. Fenger kaupm. GIsli Finsson, járnsm. Guðm. Magnússon, prófessor. Hjalti Jónsson, Inga L. Lárusdóttir, skipstj. bæjarfulltrúi. Jóhannes Sigfússon, Jón Baldvinsson, kennari. Jón Ólafsson, skipstj. Kristin Simonarson, frú. Jakob Möller, ritstjóri. Samúel Ólafsson, söðlasm. Tryggvi Þórhallsson, ritstj. bæjarfulltrúi. Jón Hj. Sigurðsson, læknir. Magnús Benjaminsson, úrsm. Ólafur Björnsson, ritstjóri. Sighvatur Bjarnason, bankastjóri. Axel Tulinius, yfird.lm. Geir Zoéga, kaupm. Grímúlfur Ólafsson, ritstj. Kr. V. Guðmnndsson, verkstj. Jörundur Brynjólfsson, bæjarfulltrúi. Jóh. Jóhannesson, bæjarfógeti. Þorst. Gislason, ritstjóri. Jakob fóh. Smári, ritstj. . Ólafur Friðriksson, ritstjóri. Bened. Sveinsson, bankastjóri. Drepsúttin úti un land. Þvi er miður, að drepsóttin hefir þegar borist allvlða um land, þótt e;gt hafi hún enn gert neinstaðar eins tilfinnanlegan usla og hér i Reykjavik. Verst hefir hún farið með Akra- nes. Þaðan sögð þegar um 20 mannslát úr veikinni. í Hafnarfirði hefir hún og geysað, en vægari en i Reykjavik. Manns- lát þó nokkur, um 10. Suður með sjó hefir hún stungið sér niður um alt. Aðstoðarlæknir verið sendur til Keflavíkur. í Vestmannaeyjum hefir verið talsvert um veikina, en fá mannslát Þangað var sendur aðstoðarlæknir með Gullfossi. í sveitunum austanfjalls hefir drep- sóttin orðið allskæð, einkum í Land- sveit og breppum. Á einum hæ á Landi sögð 3 mannslát, og má bú- ast við vondum tíðindum víðar að þar um slóðir. Upp um Borgarfjörð er veikin og komin, en sögð væg. A ísafirði hefir hún og náð tök- nm, en er væg. Á Siglufirði komst hún og i land frá einhverjum vél- bátum. Mikill hugur í Norðurlands- og Austurlandsbúum að verjast veikinni. A Akureyri hefir Lagarfoss legið siðustu daga og eigi fengið neina afgreiðsln af ótta við veikina. r

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.