Ísafold - 18.10.1920, Blaðsíða 1

Ísafold - 18.10.1920, Blaðsíða 1
Slmar 499 og 500. Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja. XLVII. árg. Reykjavik, Mánudaginn 18 október 1920. | 43. tölublað. „Vér morðingjar1'. i. Svo iheitir leikur, sem nú er sýnd- ur á leikliúsinu kér- Leikunnn er eftir Guðmund Jónsson. Menn kafa ætíð vitað um Guðmund, að kann er gáfaður maður og gott skáld. Það er og á allra vitorði, að hann heldur lað hann eigi sérstakan rétt á nafni Gríms Kambans, er fyrstur nam Færeyjar, og má vera að hann ætli að leggja Færeyjar undir sig. En þótt réttur hans til þessa nafns sé mjög vafasamur, þá er enginn vafi á hinu, að hann á heimting á ,því, að verk hans séu rétt dæmd. Það er þá fyrst, að honum læt- ur illa að gefa nöfn verkum sínum eigi síður en sjálfum sér. Þetta rit ætti að heita eitthvað líkt því, sem Guðrún Ósvífrsdóttir sagði: „Þeim var ek verst er ek unna mest‘ ‘. En rangnefni gerir lítið til, þegar verkið er gott. Og þetta rit er gott. Það leysti mig undan miklum ótta. Mér er og hefir verið ant um andlegt líf hér á landi og eg veit, hve mikinn þátt skáld eiga í því, að hækka eða lækka menningarstig þjóðanna, einkum leikskáld í sam- vinnu við leikhúsin. Nú hefi eg litið svo til ungu skáldanna undanfarið, að þeim hætti við að taka sér verkið ait of létt. Og mér var og er fullkomlega ljóst, hversu hættu- legt það var. Því iað einmitt á sama tíma hefir hinn miklj meykonung- ur, heimskan, aukið vald sitt hér í landinu. Ef stafnbúar á orustu- dreka menningarinnar feynast rag- ir á slíkum tímum, þá horfir eigi til sigurs. Það hefir verið auðvelt fyrir íslendinga, sem yrkja á er- lenda tungu, að taka úr gullnámu íslenzkra þjóðsiagna og þjóðlífs og matreiða sæmilega handa útlend- ingum, sem þektu eigi áður, og fá orð á sig með því. En ljóslega hefir sézt á þessum verkum, að höf. hafa tekið sér verkið létt, eða ekki verið efninu vaxnir. Enda er það eigi á færi dauðlegra manna, að yrkja Njálu upp svo sem Jóliann heitinn reyndi. En Guðmundur hefir nú ekkj hliðrað sér hjá vandanum eða erfiðinu. Efni og atburðir leiksins getur átt heima í Nýju-Jórvík, þar sem hann lætur leikinn gerast, .og það getur átt hér heima og hvar x löndum sem er. Hann hefir því engan stuðning héðan sérstaklega, né úr nokkru öðru sérstöku landi. Hann hefir þau tæki, sem allir hafa: lífið og augu til að sjá það. Og viðfangsefnið er ekkj valið áf iéttari endamim, það er sambúð milli marms og konu og viðureign lyginnar við sannleikann í viðbúð konu við mann. í þrem þáttum, í tveim herbergjum, með fimm mönnum fyrir utan hjónin, rekur Guðmundur lundarfar og framferði þeirra svo ljóst, að mér finst eg hafa séð og þekkt þetta fólk árum saman. Hann sýnir oss hreinlífan hugvitsmann, réttlátan, viðkvæm- an og sannleikselskan. (Intyre minnir mig á integer = vammlaus). Hann á konu, sem hann ann hugást- um. En hðnni þykir leitt, að hann hefir verið fátækur öll þau níu ár, sem þau hafa búið saman. Til þess að bæta úr því, fær hann henni 500 dali til þess að ferðast fyrir, en hann vakir um nætur til þess að vinna fyrir þessu fé, meðan hún er að skemta. sér- 1 þessari ferð fer hún að daðra við axman mann. En þegar frxi Noi*ma (nafnið minnir á normal = venjulegur) kemur heim, þá finnur hann, að ekki er alt með feldu, og tekur að athuga orð hennar og gerðir. Yerður henni það fyrir, að hún svíkur hann þegar hún getur og lýgur eftir því sem við hoi*fir. Henni verður því ofraun að finna jafnan tíu lygar, sem þarf til að fóðra hverja einstaka, og því kemst hann að öllu. Dugir henni ekki, þótt móðir hennar og systir hjálpi til. Maðui’inn vill nú heldur skilja við hana en búa við hana með þessum hætti. En það vill hún með engu móti, og reynir að hreinsa sig og telja honum trú um, að hann hafi sig fyrir rangri sök. Hann kemur einn dag heim og ætlar að segja henni, að hann hafj selt nýj- asta einkaleyfi fyrir 150,000 dáli og hafi gefið henni það, en þá hittir hann þær lallar mæðgumar heima og reyna þær með öllu móti að Ijúga sig frá honum, en koma þá hrottalega upp um sig og þar við bætist, að friðillinn kemur þangað einiiig og snýr nokkra nýja sfcrök- þætti inn í. Bóndi segir því ékki konu sinni frá erindinu fyr en vin- ur hans kemur og minnist á það. Þá segir hann henni það, gefur henni féð og- fer af heimilinu. En komaa leitar hann uppi, þar sem hann hef- ir fálið sig, og nú verður sá vizku munur þeirra, að hann ginnir hana til játningar. Þegar hún verður þess vör, iþá lýgur hún því til, að hún liafi ætlað að reyna með þess- ari játningu hversu djúp væri ást hans til sín, en hafi logið á sig sekt- inni. Þá verður hann svo reiður, að hann gætir sín eigi og slær hama í höfuðið með bréfafergju og verð- ur svo bani hennar. Það er rétt, sem einhver dansltur maður sagði, að á þessu verki mætti sjá hæfileika Guðmundar. Því að hér er eigj að eins sýnt skýrlega lundarfar leik- fólksins og hvernig atvikin leiða af því á eðlilegan hátt, heldur er þetta svo vel gert, aÖ nálega ekkert er of eða van. Guðmundur hefir hér hlýtt latnesku máltæki: non multa sed multum, ekki margt, heldur mikið. Hvergi vantar orð og varla má heita að nokkru orði sé ofauk- ið, hvergi eru illa valin orð, en víða ágætlega- En hitt er mér ráðgáta, hvernig þessi danski maður getur sið á þessari bók takmörkin á gáf- uiu Guðmundar, því að hér vantar ekkert. Rosenberg sagði í vísum til islenzkrar konu: Og vaxtarins fegurð svo fönguleg og sterk sem fæddist þú að vinna hin þyngstu lífsins verk. En eg vil spá því, að þetta megi segja um Guðmund .að breyttu breytanda, ef hann heldur áfram að velja sér erfið viðfangsefni og v inn a að þeim. Þá verður þroski hans mikill. „Yér morðingjar“ þurfum vér aldrei að segja, ef vér látum unga og uppennandi menn njóta sann- mælis. En þó er betra að skaanma en að þegja í hel. En til þess að dæma rétt, þarf að sjá hlutinn með sanngjömum augum. En betra er þó að sjá með illum augum en að sjá alls ekki. Ef almenningur fer og sér þetta verk og önnur slík, þá má hann vel sanna, að ísland sé nú eigi lengur sálnamorðingi. \ J II. Eg man það nú, að fyrir nokkr- um árum sagði eg meðal iannars frá því í fyrirlestrum erlendis, að hér á landi væri leiklist til, þótt ung væri, og að vér hefðum ýmsa ágæta leikara, þótt listin gæti eigi verið nema hjáverk. Eg hneixlaði þá ýmsa íslenzka dómara í þeirri grein og hafði gaman af. Eg ætla nú að gera mér sömu ánægju sem þá, og láta það um mælt, að þetta leikrit Guðmundar mundi eigi betur leikið þar sem eg þekki til annarstaðar. Þó að leikurinn sé vel saminn, hlýtur þó mikið að vera komið und- ir leikendum, þar sem höfundur hefir verið of stórlátur til þess, að reyna að geðjast áhorfendum með fyndni eða öðrum ráðum. Alt er komið undir þeim tveim leikendum, sem hafa aðalhlutverkin með hönd- um, þeim Ragnari Einarssyní og Guðrúnu Indriðadóttur. Og þar er nú á að líta, hvemig þeim tókst. Ragnar á hér að fylla það skarð, sem orðið er við það, að Jens hætti að leika. Það skarð er eigi .auðfylt. Eg hugði þó, að Ragnar mundi eigi bresta fullkominn skilning á hlut- verki sínu, því að það kafði hann sýnt oft áður, enda reyndist svo nú. En hitt hugða eg, að röddin mundi gera honum erfitt að ná samúð áhorfenda, svo sem Jens megnaði með mýkt og innileik raddarinnar. Raunar hefir Ragnar djúpa og þægilega karlmannsrödd, en ótam- in var hún fremur hrjúf og köld. Nú sá eg á leik hans að þessu sinni, að hann hlýtur að hafa vandað sig og lagt fram það, sem skapar lista- manninn. En það er samvizkusemi og v i n n a, enda eiga flestir leikar- ar vorið það lof, ekki sízt ef tekið er tillit til þess, að listin er auka- verk og að þeir vinna þar bæði vandasamt og afarerfitt verk í hvíldartíma manna- En svo að eg hverfi eigi frá Ragniari, þá hefir vinna hans áorkað það, að hann ræður nálega alstaðar við rödd sína, svo að hún leggur sig eftir hugsunum og kendum, og að áheyr- andinn þykist sjá ósviknar og eðli- legar hugarhræringar hans eftir því sem rök atburðanna renna til. Eg hygg því að sá maður væri ekki réttlatur í dómi, er teldi hann eigi inna þetta hlutverk ágætlega a£ hendi. Eg tel óþarft að minnast á framgöngu hans á leiksviðinu, því að þar þarf hann í engu að breyta frá því, sem honum er eðlilegt, enda þótti mér sem látæði og framganga öll væri í fullu samræm við skap- ferði, orð og málfæri og raddblæ. Eg hygg að jafnvel höfundurinn sjálfur hefði verið harðánægður með leik Ragnars. Guðrún Indriðadóttir hefir sýnt það oft áður, að hún er fær um að leika hin erfiðustu hlutverk. Eg minnist þess, lað eg sá bæði frú Dybvad og Guðrúnu leika Höllu, og þótt eg hafi jafnan talið frú Dybvad fremsta allra leifcara, sem eg hefi séð, þá varð eg þó að játa, að Guðrún skákaði henni, þar sem hún fleygði ba.rninu i fossinn. Eng- um fcom því á óvart, þótt hún léki þetta hlutverk vel. Og þó verð eg að játa, að hefði eg þekt hlutverk- ið fyrirfram, mundi eg eigi hafa verið þess fullviss. Er það fyrir þá sök, að henni hefir jafnan látið einna bezt að sýna geðríki og hita og sterkar geðshræringar. En eg minnist þess eigi, að eg hafi séð hana leika konu með því lundarfari sem þessi hefir. Mér er það gleði að sjá hana víkfca nú verksviðið og takast jafnvel sem áður. Eg vil nefna eitt atriði. Þegar hún hafði gert játning sína og snéri síðan við blaðinu, þá hefði eg trúað sakleysi hennar, svo eðlilega var þar skrökvað, ef eg hefði eigi munað viðurmæli þeirra Rattigans ((Ratt- enfánger von Hameln?). Höf. hefir vafalaust sett það atriði til þess, að menn gætti sín við lyginni, af því að hann hefir ætlast til að svo væri leikið, sem Guðrún gerði. Annars var það viðtal óþarft. Um aukahlutverkin skrifa eg lít- ið, og þó ekki fyrir þá sök, að þau væru eigi vel leikin, heldur sakir þess, að höf. hefir eigi heldur gleymt þeim sjálfsagða góða kosti á leikriti, að skýrt sé greint milli höfuðhlutverka og aukahlutverfcai. Óvön stúlka lék þar og fór vel úr fcendi, en þó ekki gallalaust. Frú Soffía Guðlaugsdóttir á þakkir skildar fyrir að draga eigi úr á neinn hátt um þann andstyggilega söngstelpnabúning, sem kvenfólk leyfir sér lað vera í á almannafæri. Veit eg að frúin mun meðfram hafa gert það til viðvörunar fyrir ís- lenzkar konur, sem una nú eigi lengur íslenzkum búningi. Eg er því algerlega samþykkur, að gjalda beri varhug við því að hingað ber- ist sú ódæma tæringarsýki í allri manngöfgi og íegurðarviti, sem leitt hefir af hinni landstyggilegu rógs- ag mangarastyrjöld, er geisað hefir yfir heiminn. Það eitt harma eg, að tal leik- enda heyrðist illa. Þáð kemur aldrei fyrir hjá Friðfinni, kom ör- sjaldan fyrir hjá Ragnari og Guð- rúnu, en of oft hjá hinum flestum. Eg hefi þó hér dregið frá illt hús- rúm og óstundvísi áheyrenda í sæti, er hvorttveggja þyrfti að laga. En eg vil biðja leikendur að íhuga og muna tvent. Fyrst það, að miklu meira er undir því fcomið, hversu skýrt er kveðið að orðunum, en hinu hversu hátt lætur í mannin- um. í því er listin fólgin, að kveða skýrt að hverju atkvæði, tala ívið hægar en venjulega og svo hátt, sem húsið krefur, og sé þó fullkom- lega eðlilegt tal. Annað hitt, að það er skylda leikenda, að hreinsa tungu vora og göfga hana og fegra í allri meðferð og sjá um að eigi hverfi af tungu vorri sá málm- hljómur, sem búið hefir í henni. Til þessa er leikendum einn vegur fær eða að minsta kosti beztur, sá, að fara svo vel með tunguna sjálfir, að áheyrendur uni eigí fyrr við, en þeir hafa náð sama hljómi og ann- ari málfegurð. Bjami Jónsson frá Vogi. Rafstöðin. Fáum við strauminn á útmánuðum? Þrátt fyrir ýmsa örðugleika hefir rafstöðvarvinnunni miðað allvel áfram í sumar. Aðalstýflan er nú langt komin og skurðurinn fyrir vatnspípurnar sömuleiðis. Þessi skurður er nær einum kílómeter að lengd og liggur frá stýflunni niður að vélahúsinu. Það hefir verið sein- legt að grafa hann vegna þess að það hefir iþurft að sprengja hann gegnum klappir og hraun, en hraun ið er svo gljúpt í sér, að sprengi- efnin vinna illa á því. Húsin eru einnig kornin vel á veg. íbúðarhúsið er komið undir þafc og skamt að bíða þess að véla- húsið komist það einnig. Það sem liggur næst fyrir, er að konxa vatnsleiðslupípunum fyrir í skurðinum. Þær verða úr tré og hálfur annar meter að þvermáli. Þær eru væntanlegar með Borg núna einhvern daginn og eru í stöf- um, en verða bygðar hér á líkan hátt og þegar tunnur eru settar saman. í staðinn fyrir gjarðir er spentur járnvír utan um pípurnar og hann strengdur svo fast að staf- irnir þrýstist saman og verði vatns- þéttir. Tii þess að 'verja vírinn ryði er hann bikaður- Þessar trépípur eru sterkari en menn skyldu ætla. Þær eru notaðar allvíða erlendis og þykja reynast völ. Þær eru mun ó- dýrari en steypujárnspípur. Vélarnar eru smíðaðar í Kristins- hamn í Svíþjóð. Vatnsvélar eru tvær, önnur með 1000 hesta afli, en hin með 500 hesta. Rafvélamar era líka tvær samsvarandi vatnsvélun- um. Nú er eftir að vita hvort verk- smiðjumar geta haft vélarnar til- búnar á réttum tíma, en ætlast var til að minni vélasamstæðan gæti ver ið komin hingað í febrúar. Vélarn- ar eiga að framleiða svokallaðan víxlstrauin eða breytilegan straum með 6000 volta spennu. Þessi háspenti straumur verður síðanleiddurniðurá Skólavörðuholt eftir loftleiðsluvír. Er mönnum viss ara að koma ekki við þann vír. — Þeim manni er dauðinn vís sem fær

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.