Ísafold - 03.08.1921, Síða 3
Til drotningarinnar
frá bóndakonu.
I. Kveðja.
Velkomin sért’ á vora strönd,
sem voldugri hefir skoðað lönd.
Sko! tignarleg er hún móðir mín,
og margt á hún til í fórum sín.
í Keklu og Kötlu á hún eld,
sem ei mun sýndur þér — eg held —
þó það sé hin meeta sjón að sjá,
er samt þessi atóri galli á;
^ð fáum við það skin að skoða,
er skelfing á ferð, og alt í voða.
Þá bráðnar jökull og brennur land
og breytist ræktuð jörð í sand.
í fossunum geymir hún afiið alt,
á þá, mín drotning, likt skalt.
Því fossinn leikur svásan söng
á silfurhörpu i klettaþröng
um liðna frægð og forna neyð
og framtíðina á sigurleið.
Hann kveður lika um æsku og ást;
um ósk og von, er stundum brást,
gleði’ er að skoða fagran foss
og fá í staðinn úðakoss
og sjá á flúðum við fætur hans
flyssandi öldur stíga dans.
í dölum geymir hún skart og skraut,
skínandi /ríð er hver ein laut.
Þar skógurinn vex, og fuglafjöl
flögrandi syngur morgna og kvöld, '
og blómin spretta’ í brekkum viða,
blágresis-klasar mest þar prýða,
eyrar-rós, blóðrót, fjólan fríð,
með fegurð sinni þær skreyta hlíð.
Svo vex þar reyr, sem ilmar æ
og allir girnast á hverjum bæ.
Hann það hið besta ilmgras er,
aem íslenskar konur velja sér.
Niðri’ undir hárri hamrabrún
þar hefir bóndinn ræktað tún.
Á blettinum kringum bæjinn hanB
blómin gullfögur mynda krans.
Af sóley og fíflum sést þar mest,
svo koma þau er skreyta best:
Hrafnaklukka og Baldursbrá,
og brosandi smárar til og frá.
Þar vex svo einnig blómið blá
með blöðin fín og krónu smá;
það gefur lofuð manni mey
til minnis, það heitir: Gleym mér ei.
Læki og vötn hún líka á,
þar lax og silung veiða má;
þar spegla fjöll sinn feikna búk
með fannaslæðu yfir jökul hnjúk.
Hóla’ og blómskrýddar brekkur má
brosandi þar á höfði sjá.
Álftirnar synda og syngja þar
Sér og mönnum til ununar.
svo himneskt er þeirra ljóð og lag
um lífið, og heiðan sumardag,
að öldurnar hvísla upp við sand:
ó, hvað er fagurt þetta land!
Svo bið eg ættlands blómin min
brosandi' að fagna komu þín.
Skrúðanum græna, skógur minn,
skrýðstu nú fljótt í þetta sinn!
Vættir landsins, þið vitið best,
að vandi er að fagna tignum gest:
Látið drotningu sjálfa sjá,
að sólklæðum brosi landið á. —
Vér þökkum sýndan sóma þann,
að sækja heim okkar frónska rann. —
Þér sé auðna, ástúð lotning,
Þú íslands tignarháa drotning!
II. Ðeltis-þula.
Já, svona lítur ísland út,
sýnast þér ekki falleg fjöllin?
Á fjöllunum uppi byggja tröllin;
þar eru háir huldusteinar,
og hamrar, er byggja dverga sveinar,
þeir árshring hverjan eru þar
alt af að smíða gersemar.
Nú dvergajöfur sjálfur segir,
hann sitji við á hverjum degi
og ætli’ að setja saman band,
sem að þér gefi jökul-land.
Það kvað nú gert af góðu efni;
þess gæðin helstu’ er best eg nefni.
Áf œðstu þrá hins unga manns,
af fyrstu ást hins fremsta svanna,
af frelsis hugsjón bestu manna,
af sakleysi hins blíða barns,
af móðurdst og móðurtrygð,
því mesta hnossi í alheimsbygð.
Ef stjörnur skinu skært á kvöldin,
þá skreyttu þeir með því beltisskjöldinn.
Þannig var myndað mittisband,
sem minna skal þig á gamalt land.
sem ekki eiga eignir (kapítal í hag-
fræðismerkingu), er þeir lifa á (besid-
delseslöse), en þurfa þó alls ekki að
vera öreigar. Eignaleysingi er því
miklu heppilegri þýðing. Vonandi
er að svo óvenju snjall og efnileg-
ur höfundur sem btefán þessi vandi
betur málfæri sitt framvegis.
Frágangur bókarinnar frá hendi
útgefanda má heita góður, að und-
teknum myndunum. Verið (5 kr.) er
svo lágt að hún er liklega ódýrasta
bókin sem út hefir komið á íslensku
um langt skeið — önnur en Árs-
rit Fræðafélagsins.
Sn. J.
Mannalát. Tveir merkisbændur
hér i nágrenninu eru nýlega látnir:
Þórður hreppstjóri Guðmundsson á
Hálsi i Kjós og Ketill Ketilsson i Kot-
vogi i Höfnum. Nýlega er og dáinn
Eirikur bóndi Tjörvason i Drápu-
hlið í Helgafellssveit. 27. jiiní and-
aðist Astriður Þorsteinsdóttir ekkja
á Húsafelli i Borgarfirði.
Uii um heim.
England, Japan og Banda-
rikin.
Það er mikið talað nú um sam-
komulag milh Englands, Bnndarikj-
anna og Japans, og i sambandi við
það um takmarkanir á hernaðarút-
búnaði og alþjóðasamninga þar að
lútandi. Nýlega kom fram í auka-
blaði af »Times< safn af ummælum
ýmsra mikilsmegandi stjórnmála-
manna, et miðuðu að því, að sýna
fram á nauðsynina á góðu samkomu-
lagi og vinfengi milli hinnaenskumæl-
andi stórþjóða beggja megin Atlants-
hafsins. Harding Bandarikjaforseti
segir þar, að það sé nauðsyn fyrir
velferð heimsins, að vináttan tnilli
þeirra haldist svo sem verið hafi.
Forsætisráðherra Kanada segir að
það sé almenn ósk i Kanada, að
bandalag komist á milli Englands og
Bandarikjanna. Forsætisráðherra
Astraliu mælir einnig fastlega með
þvi, og telur það nauðsynlegt til
verndar friði i heiminum. Smtuhs
hershöfðingi vili að fulltrúar frá
Englandi og Bandaríkjunum komi
saman á fund til þess að jafna úr
þeim málum, sem nú valdi misklíð,
og segir nð mikið gott mætti afþví
leiða, ekki aðeins fyrir þessi riki ein
heldur og út í frá, og að það gæti
vel®Ieitt til þess þjóðabandalags, sem
Harding forseti vilji koma i fram-
kvæmd. Taft fyrv. forseti og Lan-
sing, fyrv. utanríkisráðherra Baida-
ríkjanna, mæla báðir með bandalagi
við England. Mc. Adoo vill að
England, Bandaríkin og Japan komi
sér saman um að draga úr herbún-
aði, og Borahs, formælandi afvopn-
unarmálsins i Sennti Bandarikjanna,
segir að það mál sé nú allra mesta
áhugamál almennings, 90 af hundr.
meðal alls almennings i Bandarikj-
unum æski afvopnunar, og hann
kveðst þora að halda þvi fram, að
sama megi segja um almenning í
Englandi og Japan. Afvopnunar-
málið sé alþýðunnar mál alstaðar og
megi ekki vera falið stjórnunum til
úrslita, heldur verði fulltrúasamkom-
ur þjóðanna að taka það í sinar
hendur. Yfir höfuð eru allar radd-
irnar, sem þarna koma fram, einn
ómur um ensk-ameriskt bandalag og
Breytingar í Rússlandi.
Khöfn 29. júli.
Uppskeran í Rússlandi hefir brugðist mjög hrapalega. Er nú
þegar orðin neyð í landinu og um 35 miljónir manna eru farnar að
svelta. Flokkar hunguróðra manna herja á þorpin og fara með
ránum og ofbeldi.
Lenin segir að þetta sé erfiðasta úrlausnarefnið, sem borið
hafi að höndum á uildanförnum árum. Getur rekið að þvi, að
sovjet8tjórnin þurfi að viðurkenna skuldir rússneska ríkisins við
útlönd, til þess að geta fengið matvæli frá öðrum þjóðum. Búist
er við þvi, að einkaleyfi ríkisins til verslunar við önnur lönd verði
ekki látið gilda framvegis.
Ameríkumenn bjóðast til að fóstra eina miljón rússneskra barna,
ef ameríkskir fangar í”Rússlandi verði látnir lausir.
Stóra norræna ritsímafélagið í Kaupmannahöfn hefir fengið
einkaleyfi til að reka rússnesku símalinurnar, sem ligga um Síberíu
til Japan.
Síðari símskeyti, frá 1. og 2. þ. m., segja að ráðstjórnin sé að
gefast upp í baráttunni við hungursneyðina og sé þess vegna fús
til að afsala sér völdum og fá þau í hendur samsteypuráðaneyti,
sem allir fiokkar eigi þátt í að mynda. Moskva sé í hervörslu-
ástandi sökum uppþota, sem stafa af hungursneyðinni. Bandaríkja-
menn bjóða matvæli undir eins og samningar komist á við stjórnina.
afvopnnn eða mikla minknn herbún-
aðarins. í sömu átt fóru ummæli
enskra blaða yfirleitt.
Það var talað um framlenging
ensk-japanska samningsins, og þau
ummæli komu fram, að hann yrði
að vera þannig úr garði gerður, að
Bandarikin gætu fallist á hann og
einnig undirskrifað hann, þ. e., að
þau kæmu inn i bandalag við Eng-
land og Japan.
Merkur enskur stjórnmálamaður,
sem nýkominn er heim frá Ameriku
og lýsir ástandinu i Bandatíkjunum,
segir, að þau ættu nú að vera ham-
ingjusamasta laud heimsins. 42%
af öllum gullbirgðum hans séu nú
þar saman komin. Hvar sem Banda-
rikjamaðurinn ferðist nú, græði hann
á gengi peninga sinna. Landið geti
sjálft framleitt alt, sem það þurfi
með. Samt séu nú sem stendur
erfiðir timar þar, mikið atvinnuleysi
og bankavandræði. Kornverðið sé
lægra en það hafi verið 19x4 og að-
staða bændanna þvi óhagstæð.
8. júli kom i útlendum blöðum
fregn um, að stjórn Bandaríkjanna
hefði fengið áskorun frá ensku stjórn-
inni una að koma með i samninga
við England og Japan. Nokkru sið-
ar, fyrir miðjan júli, kemur svo
fregn um, að Harding Bandarikja-
forseti boði til fundar til þess að
ræða um fakmarkanir herbúnaðarins,
eftir að hafa skiftst á skeytum um
málið við stjórnir Japans og Kína.
Á undan eigi þó að ganga fundur,
er ræði um mál Austur-Asfu-þjóð-
anna og um afstöðu þeirra þjóða
hverrar til annarar, sem mestra hags-
muna hafi að gæta á Kyrrahafinu.
— Þessari fregn var yfirleitt mjög
vel tekið í enskum blöðum. Blaðið
»Observer* sagði, að ef Harding
gæti leyst þetta hlutverk, mundi
nafn hans ná langvarandi frægð.
Hann hefði stuðning og fylgi í Eng-
landi, og bæði Japan og Kina mundu
taka vel undir fundarboð hans. í
sömu grein var Iögð áhersla á það,
að fulltrúar Klnverja yrðu á þessum
fundum að hafa öll hin sömu rétt-
indi og fulltrúar hinna ríkjanna, er
til samninga kæmi.
' 11. júll talaði Lloyd George um
þessi mál I enska þinginu. Hann
sagði, að á rikisráðstefnunni I Lundún-
um hefði fyrst allra raála verið tek-
ið fyrir að athuga f stórum dráttum
afstöðu Breta í Kyrrahafinu og í
Austur-Asíu, með sérstöku tilliti til
ensk japönsku samninganna og áhrifa
þeirra á afstöðu Englands til Banda-
rikjanna.
Fyrst væri þess að gæta, að Japan
væri garaalt bandaland Englands og
reynt að öllu góðu. Samningurinn
þeirra í milli hefði ekki aðeins verið
þeim aðiljunum báðum til gagns,
beldur einnig gagnsamlegur í því, að
halda uppi friði í Austur-Aslu. í
öðru lagi hefði England margs að
gæta I Klna og mikilsmegandi menn
og flokkar þar mettu vináttu þess
mikils. í þriðja lagi yrði að taka
tillit til Bandarlkjanna. Þjóðin þar
stæði Englendingum næst og því
væri það eðlilegt, að þeir vildu bera
ráð sin saman við hana og fá hana
f samvinnu með sér.
Hngsun okkar var, sagði hann,að
ná samkomulagi við alla þessa þrjá
aðilja og afstýra hættunni af mikl-
um flotaaukningum við Kyrrahafið.
Ensk-japanska samningnum hefir ekki
verið sagt upp, og meðan svo er
ekki gert, stendur h*nn í gildi. En
það er vilji beggja stjórnanna, hinn-
ar ensku og hinnar japönsku, að
samningnum verði komið í algert
samræmi við þjóðabandalagssamning-
ana og að hvar sem ósamræmi finst
þar í milli, skuli ákvæði þjóðabanda-
lagssamninganna ráða. En leiðandi
þráður í enskum utanrikismálum væri,
að halda uppi vinsamlegri samvinnu
við Bandarikin. Leitað hefði verið
umsagna stjórnanna í Bandaríkjun-
ríkjunum, Japan og Kína um af-
stöðu þeirra, hverrar um sig, f
Austur-Asíu, og af þvf leiddi, að
fund yrði að halda um þau mál.
Nú væri fundur boðaður af Harding '
forseta til þess að ræða minkun her-
búnaðar. Enska stjórnin tæki þeirri
viturlegu tillögu með mestu ánægju,
enda hefði heimurinn búist við slfku
úr þeirri átt. Enska stjórnin mundi
gera alt, sem í hennar valdi stæði,
til þess að heppileg úrslit málanna
fengjust á þeim fundi.
Harding hafði einnig boðið Frökk-
um og ítölum, að eiga þátt i fund-
inum, og talað er um þátttöku frá
hálfu Þýskalands og Rússlands.
Fundurinn er ráðgerður I nóvember
næstk. og ætlast Harding til að þá
verði lokið írsku málunum og deilu-
málunura f Slesiu. Bæði Japanar og
Frakkar hafa, auk Englendinga, svar-
að fundarboði Hardings játandi, en