Ísafold - 01.06.1926, Page 4
4
fSAFOLD
Garðar Gíslason
6 Humber Place,
Hull.
Annast kaup á erlendum vörum og sölu á
íslensktm afurðum.
Kappreiðar
(Aðrar kappreiðar ársins).
Hestamannafjelapið Fákur efnir til kappreiða á Skeiðvellinum
yið Elliðaár, sunnudaginn 4. júlí næstk.
Sú nýbreytni verður við hlaupin í þetta sinn, að au?k þess að
stbkkbestar verða flokkaðir eftir því úr hvaða hjeruðum þeir koma,
þá rerður op haft sjerstakt folahlaup, og verðlaun veitt áýrir hvert
fclaup-
Stökkhestar:
Hlaup fyrir hesta úr:
Árnes- og Eangárvalla.sýslxnn m. m.
9 Mýra-, Borgarfjarðar- og Dala^ýslum m. m.
^ Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum m. m.
Reykjavík.
HJaupvöIlur í hlaujnun þessum er 300 metrar.
6 Folahlaup: (hestar 6 vetra og yngri alstaðar að)
Hlaupvöllur 250 metrar.
Yerðlaun í ofangreindnm hlaupum eru 50, 30 og 20 kr.
1 þesSum hlaupum taka aðeins þátt þeir hestar, sem ekki kat’a
tekið 1. verðlaun á vellinum áður.
Til þess að þessi hlaup fari fram, verða rninst 4 hestar að taká
þátt í 'hverju hlaupi-
7. Aðalhlaup: He.star alstaðar að á öllum aldri. — Hiaupvöllur 300
metrar. — Verðlaun 100, 50 og 25 kr.
í þessu hlaupi geta tekið þátt hestamir, sem hafa unnið 1. og 2.
verðlaun í 1. til 6. hlaupi, auk nýrra hest.
Lágmarkskraði stökkliesta til 1. verðlauna er 24 sek. Hámark*3-
hraði til verðlauna er 26 sek. — Sá stökkhestur, sem bestan tíma fær
í hlaupunum, fær 50 kr. aukaverðlaun.
Skeiðhesiar:
Skeiðhestum A’erða veitt þrenn verðlaun, 150, 75 og 50 kr. Skeið-
völlur 250 metrar. — Lágmarkshraði til 1. verðlauna er 25 sek. — Há-
márkshraði til verðlauna er 27 sek.
Gera skal aðvart um hesta þá, sem reyna á, formanni fjelagsins,
Daníel Daníelssyni, stjórnarráðsdyraverði, (sími 306), igi síðar eu
miðvikndaginn 30. júní n. k., kl. 12 á hádegi.
Lokaæfing verður fiintudaginn 1. júlí, kl. 7 e. m.
Reykjavík, 29. maí 1926.
Stj6rnin.
FRÁ VESTMAKNAEYJUM,
(Símtal 27. maí.)
„f»ór‘ ‘ tekur togara.
Á þriðjudag hafði „Þór“ hitt
þýskan togara við ólöglegar veið-
ar austur við Ingólfshöfða og fór
með til VestmannaeÁja. Heitir
togarinn „Caroline Sprenger“ og
er frá Bremerhaven. Skipstjórinn
fjeklc 12500 kr. sekt og afli og
veiðarfæri upptækt.
Frjettir.
Fisklítið mjög, segja menn að
sje nú alla leið frá Horni og
austur á Skagafjörð. En nm þetta
leyti er fiskur vanur að ganga
austúr með Norðurlandi, því ver-
tíð byrjar þar nú um og eftir
mánaðamótin. En nú fyrir stuttu
fór línuveiðari af ísafirði um all-
an Húnaflóa og alt austur á
Skagafjörð, en varð nær því
hvergi fiskvar. Segir mönnum
þungt hngur um fiskvertíð á
Norðurlandi, ef ekki rætist úr
bráðlega.
Togaraflotinn í höfn. — Flestir
togarar, sem inn koma nú, hætta
veiðum jafnóðum og þeir koma
inn. Má sjá nokkra þeirra liggja
upp í fjöru, austan við stein-
bryggjuna, og er verið að ,banka‘
þá og mála. Hrn alls 12 togarar
hættir veiðum. Br sagt, að þeir
muni flestir eða allir hætta veið-
um nú og liggja í höfn yfir sum
arið. Einn togarinn, „Jupiter“, er
þó farinn á ísfisksveiðar, eiiiin
túr fyrir það fyrsta. Eigi er isaf.
kunnugt nm það, kvort nokkir
Notið Smára smjör-
likið og þjer munuð
sannfærast um að það
sje smjöri likast.
H.f. Smjörlíkisgeriin,
Reykjavik.
þakkarávarp.
Á síðastaliðnu vori færðu sveitung-
ar mínir, hreppsbúar Austur-Eyja.
fjallahrepps, mjer að gjöf kr. 1150.00
til þe8s að styðja mig að því að koma
upp góðu íbúðarhúsi yfir mig og fjöl-
skyldu mína, en það hefði orðið mjor
ókleift að öðrum kosti. Fyrir þessa
höfðingsgjöf leyfi jeg mjer að þakka
þeirn bjer með hjartanlega. Guð blessi
sveitunga mína og bina fögru Eyja-
fjallasveit.
Rauðafelli 10. maí 1926,
Skæringur Sigurðsson.
togaranna fer á síldveiðar í rra'Jk-
ar. —
Dánarfregn. Nýlega ljest á Víf-
ilsstöðum Kristín Tryggvadóttir
frá Dalvík, dúttir Tryggva Krist-
inssonar kennara á Siglufirði, og
bróðurdóttir sjera Stefáns Krist-
inssonar á V’öllum í Svarfaðardal.
Hún var rúmlega tvítug og var
búin að liggja á Vífilsstöðum á
þriðja ár. Hún var hin ágætasta
stúlka og er að henni hin mesta
eftirsjá. Líkið verður fíutt norð-
ur á Akureyri með Goðafossi í
dag, en jarðað í Svarfaðardal.
Siegfried, botnvörpungurinn
þýski, sem hingað íkom með áfeng-
ið í vetur, og var gerður upp-
tælnxr, var boðinn upp nýlega. —
Hann er 148 smálestir, bygður
1911 með nýlegri vjel, gengur 7
mílur á vöku. Hæstbjóðandi var
Olafur Björnsson kaupmaður á
Akranesi. Bauð hann 33 þúsund
í skipið eins og það er. Eftir verð-
lagi á slíkum skipum erlendis nú,
er þetta verð talið næsta hátt. Á
hinn bóginn hefir það frjest, að
landsstjórnin hafi í hyggju ef til
vill, að nota skipið til strandferða
innfjarða, og sje óvíst að húa
telji jafn hentugt skip fáanlegt
fj'rir það verð, sem hjer var boðið.
Fregn flaug hjer um bæinn í
laugard., að J. J. frá Hriflu væri
alveg búinn að tapa sjer. Hann
hefði sett fjórar myndir af sjálf-
um sjer í Tímann. Óhætt er að
fullyrða að fæstir hafi trúað því
að þessi myndasýning væri í blað-
inu fyr en þeir sáu hana með
eigin augum. Og til þess að leö-
endur Morgbl. tryðu sögunni, skal
þess getið, að úrklippa var af Tím-
anum til sýnis í glugga Morgbl.
1. Jónas í Berlín, 2. Jónas í Ox-
ford, 3. Jónas í London, 4. Jónas
í Reykjavík. Eftír myndunum að
dæma, er manninum sýnilega að
fara aftnr.
Heildsala. Smásala.
Verslunin hefir nú fyrirliggjandi mikið
úrval af fjölbreyttum og vönduðum, mjög
ódýrum
lfefnaðarvörum.
Pappír og ritföngum allskonar.
Leður og skinn
og flest tilheyrandi skó- og söðlasmíði.
Conklin’s lindarpennar og Víking-blýantar.
Saumavjelar, handsnúnar og stígnar.
Vegna hagstæðra innkaupa og verðtolls-
lækkunar eru vörurnar mjög lágt verðlagðar.
Pantanir afgreiddar um alt land gegn póst-
kröfu.
lersiuili lilro Krisiiiissm.
Framvegis
verða ódýrar ferðir fyrir fólk
og flutning að Olfusá kl. 10 árd^
hvern þriðjudag, ffimtudag og laugardag ffrA
Vfirubilastðð Reykjavíkur,
Við Tryggvagötu. — Símar 971 og 1971.
Afgreiðsla við Ölfusú hjá Agli Thorarensen.
Hýiir tfmar
iera nviar krifer
Legsteinar, girðingar, rammar og’
alt aðlútandi steinsmíði framleitti
fjölbreyttustu úrvali, og sam~
kvæmt nútímakröfum, á stein-
smíðaverkstæðinu „Bjarg“, I/aug-
veg 51.
Teikningar til sýnis.
Sent gegn eftirkröfum út um laná.
Geir Magnússon, Steinsmíður.
sími 764.
Thordui* S. Flygenringf
Ceile Estación no. 5, Bilbao.
Umboðssala á fiski og hrognum. Símnefni: „THORING‘A
— BILBAO. Símlyklar: A.B.C.ðth, Bentley’s, Pescadores.
Universal Trade Code & Privat.
Kappreiðar. — Hestamanna-
fjelagið „í'ákur“ efnir til kapp-
reiða sunnudaginn 4. júlí, inni
á Skeiðvelli. Gú nýbreytni verð-
iur nú tekin upp, að hestar verða
fyrst flokkaðir eftir hjeruðum í
5 flokka, og sjerstök verðlaun
veitt fyrir hvert hlaup; þá verð
ur og’ sjerstakt folahlaup fyrir
fola 6 vetra eða yngri. — Síðon
keppa hestu hestarnir úr hverj
um flokki, og fleiri hestar ef til
vill, í allslierjarhlaupi, þar sem.
hæst eru verðlaunin. Getur þá
ihestur fengið tvenn verðlaun, —
en það hefir eigi áður verið.
Enginn stökkhestur fær verð-
laun, ef hann er lengur en 26
sek. að hlaupa slkeiðið. „Fákur“
heitir alls 25 verðlaunum- á þess-
um kappreiðum, og má því búast
við, að miklu fleiri hestar verðh
reynd|r en nokkru sinni áður.