Ísafold - 25.10.1927, Síða 3
I S A F © L D
S
Ölæðið á „Esju“ „Öivaðir menu“.
og fyrirskipun dómsmála-
ráðherra.
Er atvinnumálaráðherrann gerður
ómyndugur?
Nýverið liittii tíðindamaður ísa-
foldar skipstjórann á „Esju'1,
Þórólf Beeh og spurði liann um
hvort nokkur af farþegum hafi
verið settur í land vegna ölæðis,
samkvæmt fyrirskipun dómsmála-
ráðherrans.
Kvað hann svo eigi vera. Jeg
sje ekki, segir skipstjóri, að
þessi fyrirskipun ráðherrans geri
nokkra verulega breytingu frá því
si'nr áður var. Farþegar eru sömu
reglum liáðir og sltipshöfnin. Ef
■einhver af skipverjum gerir,
óskunda í skipinu, vegna ölæðis,
og aðrir hafa ekki frið fyrir hon-!
. i
um, eða af honum stafar hætta a
|
einhvern liátt, þá er það regla
að slíkir ölóðir menn eru annað
hvort settir í járn, eða þeir eru
læstir inni.
Jeg geri ráð fyrir að dómsmála-
ráðherranum þyki þessi regla
noltkuð harðýðgisleg, og vilji hann
fremur að slíkir menn verði settir,
í land.
— Hvernig hljóðar liið marg-
luntala brjef ráðherrans.
*— Brjefið er mjög stutt og ein-|
falt. Það er ritað 1. október og
tiljóðar þannig:
„Hjermeð er yður, lierra skip-
stjóri, falið, vegna góðrar reglu á
strandferðaskipi ríkissjóðs, að láta
setja hvern ölvaðan fargest, sern
kann að vera á skipinu, þegar það
-er á strandferðasiglingu, í land
4i næsta viðkomustað, og láta end-
urgreiða um leið þann hluta far-
-gjalds, er kynni að vera ógreidd-
ur.
Jónas Jónson.
/ Sigfás Johnsen.“
í brjefinu er ekkert talað um
það, að menn, sem, rjettrækir eru
í land, þurfi að hafa raskað ró
nnnara farþega, eða brotið af sjer
ú annan liátt en þann, að hafa
neytt. víns. |
— Jeg geri ráð fyrir, segir skip-1
stjóri, að hjer sje aðeins átt við
ospektarmenn, þ. e. þá, sem sam-
kvæmt fyrri reglu liefðu verið
;settir í járn, ellegar lokaðir inni.
— Með öðrum orðum, þrátt fyr-
5r fyrirskipun dómsmálaráðherr-
ans, er farþegmn á „Esju“ óhætt'
■eftir sem áður, að neyta víns íj
hófi, ef þeir aðeins gera það til>
þess að „verða samkvæmishæfir‘ ‘,
-eins og! ráðlierrann kemst að orði
í „Tímanum", ellegar ef þeir
-drekka vínið eins og Danir eða
Suðurlandabúar, á líkan hátt eins
-og; við hjer á landi erum vanir að
*drekka kaffi og te.
Til frekari leiðbeiningar um það
I) vernig dómsmálaráðherrann vill
-íið menn drekki, ættu farþegar á
„Esju“ að hafa með sjer neðan-
málsgreinina, sem birtist í næst.
-síðasta tbl. „Tímans“.
Hafi þeir hana til hliðsjónar,
®ttu þeir að vera ugglausir um
^ð þeir kæmust klakklaust leiðar
-sinnar.
—■—
Upptæka vínið. Tveir goodtempl
nrar, Pjetur Zóplióníasson ogFelix
Huðmundsson, hafa verið skipaðir
til þess af stjórninni að rannsaka,
hvað mikið er af upptæku víni í
He gnin ga rhúsinu.
' Á öðrum stað lijer í blaðinu er
sagt frá síðustu tilk. dómsmála-
■ráðherrans viðvíkjandi „ölvuðum“
mönnum á Esju, strandferðaskipi
'ríkissjóðs.
Ekki er þess getið, samkvæmt
hvaða heimild dómsmálaráðherr-
ann gefur út skipun þessa. —
Yæri æsldlegt að skýrt yrði frá
heimildinni, því Jietta blað veit
ekki til þess að dómsmálaráðherr-
ann hafi minstu lieimild til þess
að gefa út slíka skipun, sem þessa.
Skv. 12. gr. bannlaganna má leiða
ölvaða menn fyrir dómara, til þess
’að fá vitneskju um, hvaðan þeir
hafi fengið áfengi. í lögreglusam-
þyktum kaupstaðanna er ákvæði
um það, að sekta megi þá er ölv-
aðir eru á almannafæri innan kaup
staðarins. í vorum lögum eru ekki
til önnur ákvæði um ölvaða menn.
Nú gefur dómsmálaráðherrann
út þá fyrirskipun til skipstjórans
á „Esju“, að hann skuli tafarlaust
'setja í land þá menn, er ölvaðir
finnast á skipinu. Á skipstjórinn
úr því að skera, hvort maðnr skuli
teljast „ölvaður“. Hingað til lief-
ir það verið dómstólanna að skera
xir. þessu.
Einhver kynni að líta svo á, að
þar sem ríkið á „Esju“ og gerir
hana út, þá hafi dómsmálaráð-
herrann fullkomna heimild til þess
að gefa út slíka fyrirskipan sem
þessa. En útgerð „Esju“ heyrir
ekki undir dómsmálaráðuneytið,
heldur at.vinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið. Er það því atvinuu-
málaráðherrans, en ekki dóms-
málaráðherrans, að setja reglur
um útgerð skipsins. Dómsmálaráð-
herrann er hjer farinn að færa sig
inn ,á starfsvið átvinnurálaráð-
herrans. Með slíku framhahli
verður ekki langt að bíða þess, sð
J. J. verði einvaldur í „ráðinu.“
Annars er tilkynning ]iessi eins
og hvert annað marklaust barna-
gaman, sem skipstjórinn á „Esju“
skeytir engu. Hann hefir vitaskuld
fullkomið vald til þess að halda
uppi reglu á sínu skipi, og setja
]iá menn af skipinu, er óspektum
valda um borð og ekki er hægt að
halda í skefjum þar. Hann ]>arf
ekki „leyfi“ eða „skipun“ frá
dómsmálaráðherranum til þess.
Sennilega hefir dómsmálaráð-
herrann gefið skipun þessa, vegna
-þess, að hann hefir gaman af að
íáta á sjer bera. Óhugsandi er, að
það sje ætlun hans að slík lögleysa
sem þessi komi til framkvæmda.
ÍMundi jiað geta haft margskonar
afleiðingar í för með sjer fyrir út-
gerð skipsins.
Þeir borgarar, sem taka sjér far
með „Esju“, hljóta að eiga heimt-
ing á rjettarvernd eins og aðrir
borgarar landsins. Þeir þurfa ekki
að sætta sig við það, að verða
teknir með valdi og settir á land
hvar sem skipstjóra sýnist, ef þeir
á engan liátt hafa, brotið landslög
eða óhlýðnast boði skipstjóra. En
eins og tilkynning dómsmálaráðh.
er orðuð, getur skipstjóri sett þá
menn á land, sem ölvaðir finnast
á, skipinu, án þess þeir hafi neitt
til saka unnið.
Úrslit kosninganna
í Noregi.
Vikan sem leið.
Jafnaðarmenn verða sterkasti I
flokkurinn í Stórþinginu.
Flokkaskiftingin í Stórþinginu
verður: Hægrimenn og frjáslyndir
vinstri fá 31 þingsæti, Bænda-
flokkurinn 26, Vinstrimenn 30,
róttæki þjóðflokkurinn 1, verka-
mannaflokkurinn 60, kommúnist-
ar 3.
Eftir kosningarnar 1924 var
flokkaskiftingin í Stórþinginu
þannig, að Hægrimenn og Frjáls-
lyndir vinstri höfðu 54 þingsæti,
Bændaflokkurinn 22, Vinstrimenn
34, Róttæki þjóðflokkurinn 2,
Verkámannaflokkurinn 24, Jafn-
aðarmannafl. 8 og Kommúnistar 6.
Nú er þess að gæta, að Verka-
mannaflokkurinn og Jafnaðar-
mannaflokkurinn hafa sameinast
síðan í einn flokk, Verkamanna-
flolckinn, og gengu sameinaðir til
kosninga. Þeir höfðu báðir saman-
lagt 1924 32 þingsæti, en hafa nú
eft.ir sámeininguna 60. Svo þeir
hafa unnið mikið á.
Mest er tap Hægri og Frjáls-
lyndra . vinstri. Bændaflokkurinn
hefir aftur unnið nokkuð á, náð
4 þingsætum í viðbót.
Veðráttan (vikuna 16.—22. okt.J.
í byrjun vikunnar brá til norðan-
áttar með frosti um nlt land og
snjókomu fyrir norðan og austan.
Síðari hluta vikunnar liafa geng-
ið stillur og frostlítið veður. —
Mestur hiti í Rvík 7,6 stig á sunnu-
daginn 16. þ. m., en minstur 3,6
stiga frost aðfaranótt föstud. Úr-
koman 1,8 mm.
Ráðyjaii
dómsmálaráðherrans.
t<m>-
Síðan Jónas frá Hriflu varð
dómsmálaráðherra, hefir Jón Bald-
vinsson fylg't honum, sem væri
hannj skuggi hans. Hafa menn og
orðið þess æði mikið varir í stjórn
arframkvæmduin dómsmálaráð-
herrans, að það eru menn úr flokki
bolsivikka og sósíalista, sem leggja
á ráðin, en ekki úr bændaflokki.
Daglega sit.ja þeir saman á ráð-
stefnu, Jónas og Jón Baldvins-
son. Þeir liittast ýmist í stjórnar-
ráðinu, uppi í Sambandshúsi, á
skrifstofu „Alþýðublaðsins“, eða
heima hjá Jóni Baldvinssyni.
Þurfi dómsmálaráðherrann að
bregða sjer út úr bænum i
stjórnarerindum, eða öðrum erind-
um fyrir það opinbera, tekur liann
æfinlega Jón Baldvinsson með sjer.
Fyrir nokkru fór Alþingishá-
tíðanefndin austur í Laugardal og
á Þingvöll. Var liún tvo daga í
iþeirri ferð. Jónas frá Hriflu er
meðlimur í þessari nefnd, en Jón
Baldvinsson ekki. Jónas gat þó
ekki verið án Jóns Bald. í ferð
þessari, og tók hann með. Sjálfsagt
liefir hann látið kosta ferð Jóns
af opinberu fje.
Nýverið brá Jónas sjer austnr
yfir fjall aftur, þá í stjórnárer-
indum, að athuga hinn margum-
talaða Eyrarbakkaspítala, hvort
ekki væri unt að nota hann 1il
hælis fyrir drvkkjuræfla og slæp-
ingja. Hann tók Jón Bald. með
sjer í þessa ferð, sem sjálfsagðan
ráðgjafa og leiðbeinanda.
Heyrst hefir að dómsmálaráð-
herrann muni innan skamms fara
norður á Akureyri, til þess að vera
við vígslu Kristnesshælis. Okunn-
ugt er ennþá, livort hann tekur
Jón Bald. með sjer þangað, eða
lætur liann vera. hjer syðra, til
þess að gæta þeirra „ómyndngu“
í ráðinu.
Spánarsamningurinn. Tíðindum
])útti það sæta um síðustu helgi,
er J. J. dómsmálaráðherra frá
Hi'iflu, ljet svo um mælt, að eigi
kæmi til mála eins og sakir stæðu
að hreyfa við Spánarsamningnum.
Þessi vitund af ábyrgðartilfinn-
ingu er þá komin í manninn. —
Kveður nokkuð við annan tón hjá
honum, en flokksbróður hans
Brynleýfi fyrverandi tilvonandi
þingmanni Skagfirðinga, og fyr
verandi stórtemplar. Brynbifur
sagði Skagfirðingum það í sumar
í óspurðum frjettum, að þó hag-
ræði væri að Spánarsamninguum,
þá aúi það sig upp, að því leyti til,
að þióðin skaðaðist að sama skapi
á víninnflutningnum. Gerir Bryn-
leifur allmjög lítið úr fyrverandi
sveitungum sínum, er hann ætlast
t.il þess, að þeir renni öðrum eins
fullyrðíngum niður röksemdalaust.
í sömu grein J. J. í „Tímanum1 ‘
talar hann um tvenskonar áfeng-
dsnautn; 1) þegar menn drekka
Vín daglega eins og Suðurlanda-
búar, nota það eins og við notum
kaffi og te; 2) þegar menn drekka
til þess að verða „undir áhrifum.“
Telur hann hina fyrnefndu með-
ferð skaðlausa, og vill keppa að
því. að öll vínnautn á landi hjer
verði með þeim hætti.
Er J. J. hjer á sama máli og
starfsbróðir hans Byskov kenslu
(málaráðherra Dana. Byskov held-
ur því fram, að vínið geri meira
g-agn en skaða í heiminum, því
svo margir neyti þess nú á dögiun
í hófi. Miðar hann vitanlega við
landsvenju í Danmörku. — En
kenslumálaráðherra^i lijer, tekur
og Dani til fyrirmyndar, og lætur
þá ósk og von í ljós, að íslending-
ar geti lært að neyta áfengis á
sama mælikvarða og tíðkast í Dan-
mörku.
Fróðlegt væri ef sjera Björn
Þorláksson frá Dvergasteini vildi
segja álit sitt á þessu máli, og
birta það í blaði Jónasar.
móti telur hann að kostnaður sje
liverfandi við það að pumpa
Laugavatnið upp í næga hæð, sbr.
við eldiviðarsparnaðinn.
Til þess að hiti vatnsins notist
sem best, á að haga leiðslunni
þannig, að Laugavatnið hiti stór-
liýsin tvö til fullnustu, meðan
frost. er ekki yfir 5°. Sje frostið
meira verða notaðir hitakatlar til
viðbótar.
Deila hefir risið all-þungorð
milli þeirra Metúsalems Stefá is-
'sonai' búnaðarmálastj. og Gnún.
Jónssonar búfræðiskandidats frá
Torfalæk, um tilraunastarfsemiua.
Skrifa þeir sína greinina hvor í
síðasta'tbl. Freys, og sltrifar Sig.
Sigurðsson búnaðarmálastj. síðan
atliugasemd við.
í athugasemd sinni kemst Sig-
urður þannig að orði, að tilrau ia-
starfsemin hafi undanfarinn al 1-
arfjórðung verið rekin hjer sem
undirbúningsfálm. Orsakir þessav:
Tilraunastarfsemin rekin í hjá-
verkum. Staðir óheppilega val br
til tilrauna. Bendir Sigurður á
^að þrátt fyrir þessa annmarka,
hafi reynslan kent okkur margt
nýtilegt þessi ár í jarðræktinni.
Framkyemdir ýmsra manna á þess
um sviðum hafa opnað augu
mftnna fyrir framtíðarmöguleik-
unum.
Leggur Sigurður það til, að til-
raunastarfsemin verði tekin fa-st-
ari tökum en verið hefir, og þeir
Metusalem og Guðmundur liætti
persónulegum ónotum og ræði til-
raunamálin með alvöru, svo úr
þeim verði leyst á sem tryggastan
liátt.
Er óskandi að viðleitni þeirra út
gefenda Freys beri árangur, er
þeir leitast við að draga umbóta-
mál landbúnaðarins út úr persónu-
legum erjum og hjegómlegum
flokkadráttum.
Laugahitunin. Fýrirspurn kom
fram um það á bæjarstjómarfundi
hjer í viltunni, hvað liði rannsólm-
um á leiðslu Laugavatnsins til
bæjarins.
Þeirri rannsókn er að mestu lok-
ið. Er ]?að eindregið álit Benedikts
Gröndals verkfræðings, að mikill
sparnaður verði að hitaleiðsla
þeirri, þegar not verða fyrir hana
í stórhýsin tvö, Landsspítalann og
barnaskólann nýja.
Hann býst ekki við að ástæða
sie til þess að óttast það, að skóf
setjist innan í pípurnar af Lauga-
vatninu. En því máli hreyfði Axel
Sveinsson verkfræðingur hjer í
blaðinu í fyrra, og lagði til, að
Gvendarbrunnavatn yrði hitað með
Laugavatni, og yrði upphitað
Gvendarbrunnavatnið síðan leitt
inn í bæinn. Að þessu yrði kostn-
aðarauki og mikið hitatap, eftir
útreikningum Gröndals. Aftur á
Hinar nýafstöðú norsku kosn-
ingar ættu að geta orðið bending
Ifyrir bændur og borgara bæði í
'Noregi og annarstaðar. Flokkar
ihafa þar verið 7 sem kveðið hefir
að, og af þeim 3 er aðhyllast kenn-
ingar sósíalista.
Við þessar kosningar unnu tveir
áðalflokkar jafnaðarmanna saman.
Eru nú runnir í eina heild. Við
það óx þeim svo ásmegin að þeir
unnu 28 þingsæti, liafa nú 60, en
höfðu áður 32. Frjálslyndir vinstri
menn hafa nú um skeið barist fyr-
ir því, að andstæðingar jafnaðar-
manna slægju sjer saman. En við
það hefir ekki verið komandi enu.
Sigur jafnaðarmanna nú ætti þó
að greiða fyrir þeirri hugmynd.
' Og eins fer lijer fvr eða síðar. —
! Deilt verður um það, hvort hneppa
I eigi þjóðina í kúgunarfjötra sósía-
' lista, ellegar örfa og styðja frjálst
1 framtak manna.
Frystihúsbyggingin. — Skip 'er .
væntanlegt liingað þessa dagana
með efni til frystihússins og ýms
verkfæri, sem nota á við byggingu
þess. Verkamenn hafa umsjónar-
menn verksins ráðið lijer nokkra,
en munu bæta .mörgnm við, þegar
skipið er komið og hægt er að
byrja á byggingu hússins fyrir al-
vöru.