Ísafold - 06.11.1929, Síða 2

Ísafold - 06.11.1929, Síða 2
I S A F O L D un viðvikjandi afturköllun á um- sókn minni. Mjer er óskiljanlegt að ágreiningur skuli geta risið út- a£ jafn einföldu máli og þessu. taumana gegn þeim pólitíska vit- firringsskap, sem núverandi vald- hafar ætla sjer að beitá við lækna- stjettina. Þannig skýrir þá Sigvaldi Kalda lóns sjálfur frá. Þegar hann á- kvað að afturkalla umsókn sína, veit hann ekkert hvað líður sam- töltum læknanna hjer heima. Það er eingöngu með tiUiti til heils- unnar, að hann afturkallar um- sóknina. Hann álítur að heilsan leyfi sje'r ekki að taka erfiðara læknishjerað en það, sem hann kafði. Hvað er þá orðið eftir af stór- yrðavaðli Tímans um „kúgun“ af hájfú lækna í þessu máli? Ekkert. Kúgunar verður Sigvaldi að- eins var úr einni átt: frá veit- ingavaldinu. Hann hefir sent aft- urköllun i stjórnarráðið, vegna þess að hann treystir sjer ekki til að ge'gna Keflavíkurlæknishjeraði. Auðvitað bar dómsmálaráðherra skylda til að taka þessa ósk til greina. En það gerir ráðherrann ekki, heldur tilkynnir Sigvalda gegnum sendiherraskrifstofuna í Höfn, að honum sje veitt embætt- ið. Sigvaldi vill fá leiðrjettingu á þessu tiltæki. Hann símar því dóms málaráðherra og ítrekar afturköll- unina, jafnframt því, sem hann ógkar eftir að megíl halda sínu embætti, Flateyjarhjeraði. — En dómsmálaráðherra hvorki heyrir nje sjer óskir Sigvalda í málinu. Hvað finst almenningi um þess- •ar aðfarir dómsmálaráðherra ? Ráðherrann hatar læknastjettina vegna þess að hún hefir orðið fyrst til þess að reisa skorður við uíyíki og ranglæti hans í embætta- vðitingum. Og nú á að hefna sín með nýju ofbeldi og ódrengskap. En þessar aðfarir dómsmálaráð- herrans snerta ekki aðeins lækna- stjettina, heldur og allan almenn- ing. Hermdarverk ráðherra koma fyrst og fremst niður á almenn- ingi, sem þarf á hjálp læknanna að halda. íslenska þjóðin er svo hamingjusöm, að eiga marga lækna svo færa í sínu starfi, að þeir standa fullkomlega jafnfætis fremstu læknum erlendis. Ef þjóð- in vill í framtíðinni fá að njóta starfskrafta slíkra ágætismanna, verður hún í tæka tíð að grípa í Einar Benediktsson skáld 6 5 ár a . 31. f.m. varð skáldið Einar Bene- diktsson 65 ára. Síðan fyrsta bók hans kom út, eru liðin 32 ár. — 1 henni eru fáein kvæði og nokkur þeirra með því snildarmarki, a hann mátti þá með rjettu kallast stórskáld. Síðan hefir hann aukið hróður sinn með hverri bók,er hann hefir frá sjer sent, og nú skipar liann öndvegi íslenskra skálda með þeirri vegsemd, að engúm manni er við ^ann jafnað. Það er óhugsandi, að gera grein fyrir skáldskap Einars í fáum orð- um. Hann hefir farið víðar, og sjeð fleira og reynt, en flest eða öll íslensk skáld, og lýsingar hans úr öllum áttum, bæði á lýði og lönd- um, e'ru gerðar af þeirri snild, að slíkt er einsdæmi í bókmentum vorum. En hvar sem spor hans hafa legið, hefir hann í öllu stolti sínu og andans mikilleik verið íslendingur fyrst og fremst, með brennandi ást á ættjörð sinni og höfðinglegri bjartsýn um hag henn ar í framtíðinni. Ekkert íslenskt skáld hefir meira oit í anda hinna * fornu Eddu-snillinga: Enda þótt að formið á ysta borði sje alt ann- að, þá sver speki og orðlist skálds- ins sig í ættina, og þar er og að finna fullkomnasta fyrirmynd í andlegum hreinleika, sem mjög ein kennir öll verk hans. Það er sama hvort Einar Benediktsson lýsir ís- lensku fjallalofti, eða hann leiðir menn gegnum drykkjuglaum suð- rænna stórborga, þar sem loftið et þrungið af vínilmi og ástríðurnar sjóða í blóðinu. — Alstaðar er styrkur hreinleikans svo mikill, að hvergi bregður fyrir skugga af lágri hugsun. Þegar Einar Benediktsson kom fyrst fram sem skáld, laust hann sprota sínum á glugga hins sof- andi lýðs og heimtaði menn til nytsamlegra verka. Heróp skálds- ins var þetta: Trúðu á sjálfs þíns hönd en undur e'igi! Sami karlmenskubragurinn hefir alla tíð bergmálað í ljóðum hans, sömu eggjunarorðin brenna hon- um enn á tungu, og aldrei hefir ættjarðarást hans komið fram í tígulegri myndum, heldur *en í hans nýjustu bók. Spádómar hans um hlutverk og afrek þjóðarinnar hafa aldrei verið stórfeldari en á síðustu árum. Með sívaxandi snild og vísdómi hefir hann kafað djúp mannle'gra tilfinninga og , kvæði hans fjölmörg eru svo auðug af snildarlega sögðum og ógleyman- legum spakmælum, að þar glóir perla við perlu, Mörg stórkvæði hafa birst eftir liann í blöðum og tímaritum á sið- ustu misserum og kennir þar mest heimspeki og trúarlegra viðfangs- efna. Verður ekki með sanni sagt, að almenningi sje þar hægðarle'ik- ur með honum fylgjast, sem stór- skáldið, spekingurinn og trúmað- urinn veltir fyrir sjer dýpstu rök- um tilverunnar. Margir era góðir liðsmenn en fáir afburðamenn, fæstir nema þeir, sem varpa ,öllu fyrir borð, nema því sem er þeirra háleitasta blutverk. Einar Benediktsson er í dag höfuðskáld Islands og stór- feldasta Ijóðskáld á Norðurlönd- um sökum þess, að hann hefir kastað frá sjer öllu nema list sinni. Með lífsháttum sínum hefir hann keypt íslenskri þjóð aðdá- anlegar gersemar, sem hvorki fölna nje ryðfalla þó að aldir líði. J. Sláturhúsið f Vík °s Kaupfjelag Skaftfellinga. Hæstarjettardómur slær þv! föstu, að kaupfjelagið eigi sláturhúsið. Það er svo margt og mikið bú- ið að skrifa um sláturhúsið í Vík og samband þess við Kaup- fjélag Skaftfellinga, að óþarft er um það að fjölyrða hjer. Aðeins verður vikið að örfáum höfuð- dráttum, um leið og sagt verð- ur frá hæstarjettardómi, sem S nýlega var upp kveðinn. Svo sem kunnugt er, hefir Sláturfjelag Suðurlands útbú í Vík í Mýrdal. Eru það aðallega Skaftfellingar og íbúar austasta hluta Rangárvallasýslu, er slátra í Vík. Ekkert sláturhús var til í Vík þegar byrjað var að slátra þar, en kaupfjelagið ljeði hús sín til slátrunarinnar. Var svo gengist fyrir því, að sláturfjelagsmenn kæmu sjer upp sláturhúsi. Var í fyrstu ákveðið, að þeir er slátr- uðu, greiddu fast gjald, en síðar var te'kið vist gjald af hverri kind, sem slátrað var. Var þetta gert í mörg ár og safnaðist á þann hátt mikið fje — um 70— 80 þús. kr. eða meira. Vandað sláturhús var svo reist í Vík. En þegar húsið var kom- ið upp, fór að kvisast sú saga eystra, að það væri eign Kaup- fjelags Skaftfellinga, en ekki sláturfjelagsmanna. Alt var þó þetta óljóst fyrir almenningi þar til nú, að úr þessu hefir verið skorið með dómi hæstarjettar, sem upp var kveðinn 25. okt. s. 1. í þessum dómi er því slegið föstu, að Kaupfjelag Skaftfell- inga sje eigancli sláturhússins og að sláturf járgjaldið, sem al- menningur hefir lagt fram, sje sumpart stofnfje inni hjá kaup- fjelaginu og sumpart leiga til kaupfjelagsins fyrir húslán til slátrunar. í forsendum þessa hæstarjett- ardóms segir m. a. svo: „Af gögnum þeim, sem fyrií hendi eru í málinu, verður að ganga út frá því, að Sláturfjelag Suðurlands hafi sett fjáreigendum það skilyrði, að þeir yrði sjálfir að sjá fyrir húsrúmi til slátrunar- innar. En þar sem ekki var slátur- hús í Vík, ljeði kaupfjelagið í fyrstu eitt af húsum sínum til slátrunarinnar. Má af útdráttum úr aðalfundargjörðum kaupfjelags ins, er lagðar hafa verið fram í hæstarjetti, sjá, að i fyrstu hefir verið ætlast til, að hver fjáreig- andi greiddi aðeins lítið fast gjald, er teldist sem stofnfje og varið .yrði til sláturhússbyggingar. En frá og með árinu 1917 og til ársins 1922 ákvað kaupfjelagið að taka gjald fyrir hverja kind, er slátrað væri í húsum fjelagsins, og var það gjald mismunandi og ákveðið fyrir hvert ár í senn. Skyldi einnig Þetta gjald verða hlutafje, þ. e. stofnfje í kaupfjelaginu. Var það auglýst árle'ga á deildarfundum fjelagsins og í slátrunarhúsinu, hve mikið gjald kæmi á kind hverja, og innheimti sláturfjelag- ið það hjá fjáreigendum og greiddi til kaupfjelagsins. — En kaupfje- lagði færði hverjum manni gjaldið til tekna á stofnfjárreikningi. Og á aðalfundi kaupfjelagsins 15. mars 1920 var það samþykt, að gefa skyldi út stofnbrjef fyrii sláturfjártillögum f jelagsmanna“. „.... Það verður því að ganga út frá því, að gagnáfrýjanda (þ. e, Lofti Jónssyni) hafi verið kunn- ugt um, að kaupfjelagið áskildi sje'r gjald af hverri lcind, er slátr- að var í húsum þess, og verður þá að líta svo á, að hann hafi með því að láta slátra fje sínu t húsum kaupfjelagsins umrætt tíma bil undirgengist. að greiða gjald- ið, þar sem ennfremur framan- greind fundarályktun 15. mars 1920, um að stofnbrjef skyldi gefa út fyrir sláturfjárgjöldum þess- um, verður að teljast gild, samkvæmt fjelagslögunum og skuldbindandi fyrir gagnáfrýj- Um kveöskap Jónasar Hallgrímssonar. Eftir Einar Ól. Sveinsson. I. Líf Iistamannsins er fegurst, þegar það er skammvint. Þegar honum hefir orðið þess auðið að npinbera anda sinn, og það er enn mitt sumar, er hann gengur inn um dyrnar, sem enginn kemur út um aftur. Þá sjer eng- Inn hið daprasta af öllu döpru, hnignun hans og afturför. Þá þarf hann ekki sjálfur að reyna hið þyngsta af öllu þungu, ó- frjósemi og andlega trjenun. Og jafnvel þótt örlög sumra manna sjeu svo fágætlega björt, að þeir þroskist fram á elliár, geta þeir þó ekki átt vorið nema einu sinni, gróandann, lifandi safann, töfra angandi vomætnr. Haust- ið á sína miklu fegurð til, en haustið er þó aldrei nema haust. Skáldferill Jónasar Hallgríms sonar var jafn fagur og hann var skammur. Sem skáld var Jónas frábærlega hamingjusam- ur. Honum varð þess auðið að fylla kvæði sín þeirri fegurð, sem hann sá í veröldinni, og hann dýrkaði af öllu hjarta sínu. Hann er einhver mesti lista- maður allra ísl. skálda, einhver mesti meistari formsins. Honum varð þess auðið að berjast til sigurs fyrir þeirri stefnu, sem Bjarni Thorarensen hafði haf- ið — það var ekki einungis róm- antíkin, heldur endurfæðing ís- lenskrar Ifóðalistar. Þegar Jónas kemur fyrst fram, yrkir sín íyrstu kvæði, sem varðveitt eru, virðist hann fullþroska í ljóðagerð. "Síðan yrkir hann hátt á annan áratug, þá deyr hann. Hefir skáldskap- ur hans þróast á þessum stutta tíma, hefir hann breyst? Eða hefir þetta árabil verið eitt langt augnablik, óbreytanlegt og full- komið, án þess að tannhjól tím- ans þokaði því „annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið“ ? Þetta mál mun jeg ræða nokkuð í línum þeim, sem á eftir fara, og mun jeg ekki síst líta á það, sem stöðugast virðist hjá Jón- asi: formið. II. Þrent virðist hafa haft mest áhrif á Jónas Hallgrímsson á yngri árum hans: klassicismi Bessastaðamanna, kvæði Bjarna Thorarensens, Ossían. Klassicismi Bessastaðamanna snertir einkum form Jónasar og mál — gott dæmi þess er, að hann þýðir kvæði eftir Horatíus á inndælt íslenskt mál undir fornum háttum (ljóðahætti og fornyrðislagi), líkt og Svein- björn Egilsson gerði. Má ekki ó- líklegt þykja, að frá Bessastöð- um sje Jónasi kominn hinn klassiski blær á ýmsum hinum síðari kvæðum, er vikið verður að seinna. Bjarni hefir líka áhrif á form hans, bæði hjá honum og Bessastaðamönnum lærir Jónas að beita fornháttunum, en hjá Bjarna að fara með nýrri háttu og verður honum brátt miklu fremri í því. Hjá Bjarna er enn nokkur átjándualdarkeimur í meðferð þeirra, óeðlilegar áhersl ur, mislipur kveðandi, gamalt skáldskaparmál (kenningar) — en hjá Jónasi er þetta alt horf- ið: málið er hreint, einfalt, fag- urt og fellur nákvæmlega að bragarhættinum. Með kvæðum Bjarna drekkur Jónas í sig hinn nýja anda: rómantíkina. 1 huga hans verð- ur vorleysing, ótal öfl losna úr læðingi og fá að njóta sín; hann má nú gefa sig á vald flugi hug- ansj ólgandi litbliki tilfinning- anna, þyrstri fegurðardýrkun. Og með hetjunum úr Ossían reikar hann í þunglyndi hins unga manns um einmanalega, dapurlega heiðina, og það er sem hinn rökkurmildi, keltneski tregi veiti honum svölun. En þetta er alt að mestu orð- inn hlutur, þegar Jónas yrkir hin fegurstu kvæði sín. I þeim hefir hann þegar alla aðaldrætt- ina í svip sínum. En nokkuð virðist mjer skera sig úr kvæði þau, sem ort eru fyrir 1832, þegar hann fer utan í fyrsta sinn, sjeu þau borin saman við síðari kveðskap hans.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.