Tíminn - 16.03.1980, Side 3

Tíminn - 16.03.1980, Side 3
Sunnudagur 16. mars 1980 3 þeir hétu, sem settir höföu veriö á valdastóla i Saigon voru ekki þess sauöahúss, aö yröi Bandarikja- mönnum til álitsauka austur þar. Þess er þó aö geta aö um þessar mundir voru mörg vestræn blöö farin aö sjá missmíöi á striösrekstrinum I Vietnam, og heima i Bandarikjunum var tekiö aö brydda til muna á óhug og samvizkubiti meöal fólks. Hér á landi var.aftur ekki laust viö aö andi McCarthys svifi enn yfir vötnunum sums staöar. Sú tiö var aö visu liöin, aö islenzkir blaöa- menn væru kallaöir fyrir saka- dóm til yfirheyrslu, ef þeir sögöu frá árekstrum á Keflavikurflug- velli, svipaörar tegundar og veriö hefur alfrjálst fréttaefni nú i vetur, en samt lá þaö ekki á lausu til frásagnar, þegar eitthvaö mis- jafnt geröist þar, og má til dæmis taka, aö um svipað leyti og Sara Lidman kom haföi veriö eins I klett aö klappa aö fá eftir opin- berum leiðum vitneskju um nauögunarmál, sem kom upp þar syöra. Þetta var á viöreisnar- árunum góöfrægu, og andinn var enn sá, aö þaö væri veriö að vega aö helgum dómi, ef frá einhverju misjöfnu var sagt úr þeirri átt. A sólinni var sem kunnugt er hvorki blettur né hrukka, og guölast aö halda annaö. A þessum árum var ekki heldur haldinn svo fundur um hersetu eða herforingjabylt- ingar aö ekki fylgdi i kjölfariö lögreglubardagi. Þaö hefur ekki gerzt slöan 1970. Menn geta getiö sér til hvers vegna, kannski lagt saman tvo og tvo og fengið út fjóra. Sara Lidman kom hingaö i boöi Menningar- og friöarsamtaka kvenna, sem ýmsum þótti strax tortryggilegt. Hún var nýkomin frá Noröur-Víetnam og haföi þaöan meöferöis kvikmyndir, sem hún sýndi i Austurbæjarbiói, þar sem hún flutti fyrirlestur. Hún var aö sjálfsögöu fyrir- fram fordæmd af þeim, sem ekki máttu enn heyra annaö en striöiö i Vietnam væri gott striö. Aörir voru þeir, sem tóku henni og er- indi hennar vel. Hún sat boö Rit- höfundasambands Islands og Sænsk-Islenzka félagsins, hún fór norður til Akureyrar, og hún hélt blaðamannafund, þar sem hún hlaut lof sumra fyrir „mennska hlýju”, en heldur kaldar kveöjur annarra, og hét I þeirra munni „nytsamur sakleysingi”. Morgunblaöiö sagöi frá fundin- um á þessa leiö: „Skáld geta veriö vafasamir fréttamenn, og höfum viö Islend- ingar mikla og átakanlega reynslu af þvi. Þaö var skáldiö Halldór Kiljan Laxness, sem flutti löndum sinum sjónarvotts- fréttir af réttarhöldunum i Rúss- landi á Stalinstimabilinu... Nú gistir annaö skáld land okkar og ber okkur sjónarvottsfréttir af átökunum i Vietnam. En þaö kom greinilega i ljós á fundinum i Austurbæjarbiói á sunnudaginn að þaö var skáld, en ekki frétta- maöur, sem þar flutti mál. Skáld- sýn Söru Lidman sveif ofar köldum staöreyndum veruleik- ans, og ismeygni mállipuröar hennar sveigöi hjá hverjum þeim, er stóö i vegi fyrir þeim málstaö, sem hún hefur tekiö aö sér aö túlka”. Nú bar svo til, að Stúdentafélag háskólans vildi fá hana á fund hjá sér, og hugsaöi formaöur þess, Aöalsteinn Eiriksson stud. theol., sér aö halda hann i 1. kennslu- stofu skólans. Þá sprakk blaöran. Vararektor háskólans, Halldór Halldórsson, lagði bann viö þvi, aö fundur þessi væri haldinn i húsakynnum háskólans, og haföi til þess atfylgi meirihluta háskólaráös. Nú stóö svo á, aö háskólinn haföi áöur veriö lánaöur til ráö- stefnu á vegum Atlantshafs- bandalagsins, og þess vegna dugöi ekki sú skirskotun ein, aö innan veggja hans mætti ekki fjalla um annaö eins ágreinings- mál og striöið i Vietnam. Banniö var þess vegna rökstutt á þann veg, „aö pólitískir ræöumenn, fengnir til landsins á vegum sam- taka, sem islenzka rikiö sem slikt er ekki aðili aö fái inni meö mál- flutnings sinn I háskólanum”. Þessi röksemdafærsla var þó ekki meö öllu fullnægjandi. Timinn sýndi fram á þaö 2. nóvember, aö hún stóöst ekki: „Þessi framkoma forráöa- manna háskólans er i senn furðu- legt og fáheyrt hneyksli. Þegar þaö er haft i huga, aö alls konar stjórnmálasamtök, gersamlega óháö háskólanum hafa fengið inni I háskólanum meö fundi sina og ráöstefnur, meöal annarra Varö- berg og Samtök um vestræna samvinnu, viröist bann háskóla- ráös benda til þess, aö þaö ætli aðeins aö leyfa flutning vissra skoöana innan háskólans, og ætli stúdentar aö kynna sjónarmiö, sem eru kannski andstæö sjónar- miðum ráöamanna háskólans, þá geti þeir ekki notaö húsnæöi skól- ans.” Ekki er ólíklega til getiö, aö ákvöröuninni hafi ráöiö hneigö til þess aö greina á milli skoöana. A annan veg veröur varla skiliö, aö Varöberg skyldi tekið fram yfir stúdentafélag. En fleira ýtti undir þessa ákvöröun: Þaö „haföi ekki veriö leitaö til réttra aöila um 1. kennslustofu. Þaö er rektor og háskólaráð, sem ráöa húsakynn- um háskólans”. Út af þessu spruttu harðar deilur. 1 Timanum kom fram sú uppástunga, að hart væri látiö mæta horöu: „Er vonandi, aö forráöamenn stúdenta láti ekki fámennan hóp þröngsýnna prófessora setja sér Háskóli Islands — en ekki spor Söru Lidmans á þrepunum. stólinn fyrir dyrnar og haldi fundinn innan veggja skólans, hvaösem tautar og raular. Fjötra á skoöanafrelsi i æöstu mennta- stofnun þjóöarinnar veröa stúdentar aö brjóta af sér þegar I stað”. Einhver brögð voru aö þvi, aö stúdentar hættu um sinn aö sækja tima til þeirra háskólakennara, er þeim fannst hafa misgert viö sig, og um skeiö var uppi oröa- sveimur um, að fundurinn yröi haldinn á háskólaþrepunum. Þá kallaöi vararektor formann stúdentafélagsins á fund sinn til þess aö segja honum tormerki á þvi, aö lóö háskólans yröi notuö i þessu skyni. Stúdentar sumir héldu þvi fram, aö hann heföi hót- aö þeim lögreglunni, en sjálfur kvaöst hann hafa spurt forráða- menn félagsins, hvort þeir vissu ekki, aö lögregluleyfi þyrfti til útifundar. Ofan á varö, aö fundurinn var haldinn i súlnasal Sögu, og náttúrlega varö hann fjölmennur eftir þá auglýsingu, sem hann haföi fengið. Þjóöviljinn sagöi, aö horfiö heföi veriö frá þvi aö fara inn á lóö háskólans „til aö firra frekari vandræöum”. Þetta var um þátt háskólans. En blööin komu frekar viö sögu en sagt hefur veriö. Höröustu og dónalegustu oröin, sem á prent komu um Söru Lidman á meöan hún dvaldist, birtust i Morgun- blaðinu 30. október. Þar var hún kölluð „kvensnipt” og „frænka Göbbles” og gefiö I skyn, að hún væri eiturlyfjaneytandi. I þessari grein, sem er óundir- rituö, var komizt svo aö oröi: „Hér á landi er nú stödd um þessar mundir barnaleg, sænsk skáldkona, sem þekkt er aö trú- girni... Hún er hér i boöi „friöar- kvenna”...., en áöur en hún kom hingaö var hún I Noröur- Vietnam i boöi stjórnarinnar þar. Það er gaman aö geta feröazt ókeypis á milli landa i boöi svona finna aöila.... A blaöamannafund- inum hér sagbi hún ófeimin, aö Bandarikjamenn dreiföu sprengjum yfir Hanoi.... f hvers konarástandi var þessi kvensnipt i Hanoi? Heimsótti hún lyfjaverk- smiöjur? ...Nei, viö höfum litiö aö gera við frænkur Göbbles hér á landi, jafnvel þó þær kalli Hó Chi Minh fööurbróöir!” Liklega hefur þó einhverjum þótt hér skotiö yfir markiö, og ekki meö öllu tilhlýöilega talaö, þvi aö viku siðar birtist i sama blaði viötal, undirritaö Sv. J. Þaö hófst á þessum viðurkenningar- oröum: „Þaö, sem fyrst vekur athygli mina hjá Söru Lidman, er mýktin I fari hennar. Ég fæ ekki aö þvi gert, aö þetta vekur undrun mina, þvi aö þessi kona býr yfir svo miklum krafti máls og stfls, aö orðin geta orkaö sem svipuhögg, og skarpskyggni hennar á mann- legt eöli er svo hreinskilin og glögg, aö hún er næsta óvægin á köflum”. Sjálf viröist Sara ekki hafa kippt sér upp viö þann mótblást- ur, sem hún sætti, svo aö ekki sé nefndur blindur og ódulinn fjand- skapur. 1 viötali, sem Sigriöur Thorlacius átti viö hana og birti I Timanum, sagöi hún: „Þvi fer fjarri, aö ég hafi þaö á tilfinningunni, aö hart sé aö mér veitzt, en ég vildi óska, aö ég væri svo hættuleg, aö ástæöa væri til aö hindra, aö ég flytti erindi i há- skóla Islands. 011 andstaöa gegn þvi, sem maöur er sannfæröur um, að sé rétt, hvetur mann til þess aö reyna aö gera betur”. 1 viötali viö Þjóöviljann sagöi hún um svipaö leyti: „Ég get ómögulega litiö á þess- ar smáárásir eöa þá, sem aö þeim stóöu, sem einhverja fulltrúa fyr- ir islendinga, þvi aö sú hjartan- lega hlýja, sem ég hef yfirleitt mætt, er meiri. Heföi ég verið sérfræöingur i einhverju, heföi ég kannski oröið móöguö, þegar há- skóli tslands lokaöi dyrum sinum, en þar sem ég haföi engan titil aö verja og ætlaöi ekki aö tala til stú- dentanna fyrst og fremst sem há- skólaborgara, heldur sem lifandi meðbræðra, fannst mér I raun og veru alveg eins gott, aö viö hitt- umst á staö, sem öllum var opinn. En ég var hissa, þvi aö mér fannst ég ekki vera svo hættuleg. Auk þess stóö þaö öllum opiö aö sanna, aö ég heföi skýrt rangt frá staöreyndum, ef sú heföi veriö raunin. En ég sagöi frá staö- reyndum, sem aö visu hafa mikils til verið birtar i blööum Vestur- landa, en hafa á siöustu árum sjaldan veriö dregnar fram i dagsljósiö i opinberum deilum um Vietnam-málið”. Þar meö skildi meö Söru Lid- man og Islendingum i þaö skipti. Þegar hún kom aftur, stóö há- skólinn opinn á gátt, þótt ekki væri hún fremur en fyrri daginn sérfræöingur i neinu nema mann- inum sjálfum og þeirri köllun aö taka málstaö þeirra, sem sárast eru leiknir. Hafi einhver minnzt hinnar fyrri ættfærslu, frændsemi henn- ar viö þann sálaba mann, Göbbels, þá varö enginn til þess aö flika þvi. Þaö var ekki svo mikið sem gefiö i skyn i nokkru blaöi, og þvi hefur hvergi heyrzt fleygt, aö hún sé „barnaleg skáld- kona, sem þekkt er aö trúgirni”. Hvorki rektor, vararektor né vara-vararektor öndubu á hana, og allt háskólarábiö brosti eins sætt og elskulega og nokkurt há- skólaráö getur gert. Þaö hefur lika hvort tveggja gerzt, aö striöiö i Vietnam er orö- iö eins og ljótur draumur, sem þeir, sem I þá ófæru gengu, vildu kannski flestum meira til gefa, aö aldrei heföi veriö háö, og Sara Lidman leidd til sætis meöal helztu rithöfunda Noröurlanda, ef yfirleitt einhvern þurfti til þess aö ánafna henni þaö sæti. Þannig er llfiö — þaö gerir svo vel að fara sinar götur. Og ekki allra aö ætla sér aö spá, hvert vegir liggja. En hversu sem hinir spámannlegast vöxnu náungar geta veriö skeikulir, vill svo til I þetta skipti, aö mjög nærri liggur aö botna þetta spjall meö eins konar forsögn, sem gengið hefur eftir. Lokaorö Sigriöar Thorla- ciusar i viötali þvi viö Söru Lid- man, sem birtist i Tímanum og áöur var vitnaö til, eru þessi: „En gaman væri, ef hún geröi hingað aöra ferö, aö þá þyrfti enginnaðbera kinnroöa fyrir þær viötökur, sem ein fremsta lista- kona Noröurlanda fengi, hvorki i dagblööum né af forsvarsmönn- um opinberra stofnana”. JH. Frá Byggingavörudeild S/S_ Smíðaviður 75X225 Kr. 3.884. pr. m 38 x 125 Kr. 1.086.- pr. m 38 x 100 Kr. 726. pr. m 25 X 175 Kr. 1.057.- pr. m 25 X 150 Kr. 005. pr. m 25 X 100 Kr. 604. pr. m Douglas fura (oregon pine) 4X6 Kr. 5.807. pr. m 4X8 kr. 7.861. pr. m 4X 10 kr. 0.820. pr. m 4X 12 kr. 11.787.- pr. m Unnið timbur i Valnsklæðninc 22X 110 Kr. 6.399.- pr. m' Panill 22X135 Kr. 9.208.. pr.m' Panill 20X111 Kr. 9.672.- pr. m‘ Panill 12X65 Kr. 6.156.-pr.m' Gluggacfni Kr. 1.830.-pr.m Glcrlistar 22 mm Kr. 12.v.-pr. m Grindarefni ng listar 47X90 Kr. 1.200.-pr.m Grindarefni og listar 45x40 Kr. 498,- pr. m Grindarefni og listar 35 X 80 Kr. 741.-pr. m Grindarefni og listar 35X70 Kr. 683.- pr. m Grindarefni og listar 22X145 Kr. 808. pr. m Grindarefni or listar 21 X80 Kr. 405.- pr. m Grindarefni og listar 20X45 Kr. 386.- pr. m Grindarefni og listar 15X57 Kr. 268.- pr. m Grindarefni og listar 15X22 Kr. 123,- pr. m Múrréttskeiðar 10X86 Kr. 305.- pr. m Spónaplötur 9 mm 120X260 Kr. 4.421. 12 mm 120X260 Kr. 4.796. 15 mm 120X260 Kr. 5.388,- 22 mm 120X260 Kr. 8.096. 25 mm 120X260 Kr. 9.030,- Lionspan, spónaplötur 8,2 mm 120x255 Kr. 1.196,- 6 mm 120X255 . Kr. 2.954,- 8 mm 120x255 Kr. 3.930,- Lionspan vatnslímdar spónaplötur, hvítar 8,2 mm 120X255 Kr. 2.421.- 6 mm 120 X 255 Kr. 5.668,- 8 mm 120X255 Kr. 6.950. Spónlagðar viðarþiljur Coto 10 mm Kr. 7.273,- Antik eik Kr. 8.322.- Rósaviður Kr. 8.322,- Fura Kr. 8.322. Perutré Kr. 8.322.- Hnota Kr. 8.322. Fjaðrir Kr. 212.- 4 mm filmukrossviður Universal Rosevtood 122X244 Kr. 5.846. Washingtnn Pecan 122X244 Kr. 5.846. l.and Ash 122X244 Kr. 5.846. Amerískur krossviður, Douglas fura 12 mm 122X244 Kr. 10.990. 12 mm 122X274 Kr. 13.226. 12 mm 122X305 Kr. 15.335. UtanhÚSSkrOSSVÍður með hvítri glerflber polyesterhúð 9 mm 120X270 Kr. 22.810,- 12 mm 120X270 Kr. 26.160.- UtanhuSSkrOSSVÍður með gulri phenoHilmu 12 mm 120X270 Kr. 19.067,- Birkikrossviður 9 mm 122X274 Kr. 12.686. 12 mm 122X274 Kr. 15.981,- Zaca-borð (3ja laga krosslímdir mótaflekar) 22 mm 150X300 Kr. 33.892,- Innanhússklæðning með viðaráferð Pine 10 m/m 29X274 Kr. 4.144.- F.ik 10 m/m 29X274 Kr. 4.144. Conway 6 m/m 122x260 Kr. 8.778.- Balmoral 6 m/m 122X260 Kr. 8.778,- Beechwood 6 m/m- 122x260 Kr. 8.778.- Eik 6 m/m (22x260 Kr. 8.778,- Warwick 6 m/m 122X260 Kr. 10.233.- Hardborð 3,2 m/m 122X274 Kr. 2.399,- 3,2 m/m öoliusoðið 122X274 Kr. 3.777,- Asphaltborið tex 12 m/m 120X270 Kr. 4.120.- Söluskattur er innifalinn í verðinu. Byggingavörur Sambandsins Ármúla 29-Simi 82242 W

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.