Tíminn - 02.04.1980, Side 10
14
IÞROTTIR
Miövikudagur 2. aprll 1980
George Best til
Southampton?
ólaf ur Orrason símar f rá
London. — Ensku blöðin
hafa slegið því upp, að
miklar líkur séu fyrir því
að glaumgosinn George
Best leiki með
Southampton næsta
keppnistímabil. Lawrie
McMenemy, fram-
kvæmdastjóri Dýrling-
anna frá Southampton,
vildi ekkert láta hafa
eftir sér í sambandi við
kaup á George Best.
Þaö er vitaö að McMenemy
ætlar áer aö gera stóra hluti
meö Southampton næsta
keppnistimabil og var fyrsta
skref hans I þá átt, aö kaupa
Kevin Keegan, fyrirliöa enska
landsliösins, frá Hamburger
SV. Nú eru uppi raddir um aö
hann hafi augastað á George
Best, til aö láta hann leika viö
hliöina á Keegan.
— Það væri ánægjulegt aö fá
tækifæri til að leika með George
Best — hann er mjög góöur
knattspy rnumaður, svo
Auglýsing
Með tilvisun til 17. gr. skipulagslaga nr. 19
frá 8. mai 1964, auglýsist hér með breyting
á staðfestu aðalskipulagi er varðar land-
notkun, þannig að útivistarsvæði verði
fyrir iðnað, vörugeymslur og verslun, á
afmörkuðum svæðum i austurhluta Borg-
armýrar, merktum A og B, eins og sýnt er
á uppdrætti Borgarskipulags Reykjavik-
ur, i inælikvarða 1:5000, dags. 5. febrúar
1980.
Breyting þessi var samþykkt á fundi
skipulagsnefndar Reykjavikur þ. 14. janú-
ar 1980 og i borgarráði Reykjavikur þ. 15.
s.m.
Uppdrátturinn liggur frammi almenningi
til sýnis á skrifstofu borgarskipulags,
Þverholti 15, næstu 6 vikur frá birtingu
þessarar auglýsingar. Athugasemdir, ef
einhverjar eru, skulu hafa borist borgar-
skipulagi, Þverholti 15, innan 8 vikna frá
birtingu þessarar auglýsingar, eða fyrir
kl. 16.15 þann 29. mai 1980, sbr. áður-
nefnda greinskipulagslaga. Þeir, sem eigi
gera athugasemdir innan tilákilins frests,
teljast samþykkir breytingunni.
Borgarskipula g
Reykjavikur
Þið munið hann
Jörund
Leikhúsverkið vinsæla eftir Jónas Árna-
son.
Frumsýning Skirdag kl. 21 i Logalandi.
Leikstjóri Nigel Watson.
Næstu sýningar laugardagskvöld og svo 2.
páskadag kl. 15. Miðapantanir simstöðinni
Reykholti.
Ungmennafélag Reykdæla.
Starfsfó/k óskast
Óskum að ráða starfsfólk i pökkun og
snyrtingu strax eftir páska.
Upplýsingar hjá verkstjóra i simum
94-2116 Og 94-2154.
Fiskvinnsian á BHdudai
framarlega að hann haldi sér
frá allri óreglu, sagöi
KevinKeegan, þegar hann var
spurður um þetta. Keegan sagöi
að McMenemy væri frábær
framkvæmdastjóri og hann
næöi öllu þvi besta út úr leik-
mönnum sinum. — Ég hef trú á
þvi, að hann myndi gera þaö
einnig i sambandi við Best, og
hann gæti hjálpað honum til að
taka sig á, sagöi Keegan.
GEORGE BEST
KEVIN KEEGAN
Leikmenn Liverpool
fengu reiðilestur
Ólafur Orrason simar frá
London. — Bob Paisley, fram-
kvæmdastjóri Liverpool,
messaöi heldur betur yfir leik-
mönnum slnum, eftir leik
Liverpool gegn Tottenham á
White Hart Lane hér I London,
þar sem Liverpoo! tapaöi 0:2
fyrir Liverpool.
Paisley hélt hálftima
skammarræðu yfir leikmönn-
um sinum inni i búningsklefa
eftir leikinn — þaö fékk enginn
aö koma þangaö inn. — ,,Þiö
þurfiö ekki aö leika eins og þiö
gerðuö, til aö hljóta Englands-
meistaratitilinn — ég veit að
þið getiö leikið mjög góöa
knattspyrnu og þiö þurfiö ekki
á eintómri hörku aö halda”,
sagði Paisley viö leikmenn
sina.
Leikmenn Liverpool léku
ruddalega knattspyrnu og
voru fjórir leikmenn liösins
bókaöir fyrir gróf brot og
Graham Souness, fyrrum leik-
maöur Tottenham, var hepp-
inn aö vera ekki rekinn af leik-
velli — hann lék mjög gróft.
Hetja 0L í
Berlín 1936
Jesse Owens er látinn, 66 ára
Blökkumaðurinn Jesse Owens — frjálsiþrótta-
maðurinn snjalli frá Bandaríkjunum# sem var hetja
Olympíuleikanna i Berlin 1936/ þar sem hann vann
f jögur gullverðlaun, er látinn. Owens, sem var 66 ára
lést úr lungnakrabba í sjúkrahúsi í Tucson í Arizona.
Owens vakti heimsathygli í Berlín og vakti mikla
athygli þegar hann sigraði helstu olympíuvon Þjóð-
verja — Luz Long í langstökki.
Adoif Hitler, brást mjög
reiöur viö, þegar þessi 22 ára
blökkumaöur sigraöi þýskan
aria, þvi aö þaö var ekki sæm-
andi kynþáttarkenningu nas-
ista. Hitler neitaöi i fyrstu aö
taka i hönd Owens — en hann lét
þó til leiöast.
Til gamans og fróöleiks skul-
um viö fara aftur til 1936 og rifja
upp árangur Owens:
Ekki leikur á tveimur tungum
aö maður leikanna I Berlin var
bandariski blökkumaöurinn
Jesse Owens. Jafnvel fordóma-
fyllstu Þjóöverjar gátu ekki
annaö en dáöst að þessum itur-
vaxna og kröftuga Bandarikja-
manni, sem aldrei virtist þurfa
aö hafa fyrir neinu sem hann
gerði.Fjórum sinnum varö hann
að spretta úr spori i 100 metra
hlaupinu áöur en gullverölaunin
voru hans og timi Owens var
10,3 sek. 10,2 sek., 10,4 sek. og
10,3 sek. 10,2 sek var þá nýtt
heimsmet, en afrekið fékkst
ekki viöurkennt þar sem aðeins
of mikill meövindur var er
hlaupiö fór fram. 1 200 metra
hlaupinu hljóp Owens á 21,1
sek., 21,1 sek., 21,3 sek. og i úr-
slitahlaupinu á 20,7 sek, þar sem
hann bætti eldra Olympiumet
um hálfa sekúndu.
Skömmu áður en Owens hélt
til Berlinar haföi hann sett nýtt
heimsmet i langstökki, stokkið
8,13 metra. Það kom þvi á
óvart að hann varö aö heyja
eitilharöa baráttu um gullið i
þessari grein, en andstæöingur
hans var Þjóöverjinn Luz Long,
— imyndhins sanna aria Hitlers
Þýzkalands. 1 keppninni náöi
Owens forystu eftir fyrstu um-
ferð stökk 7,74 metra og siðan
7,87 metra i annarri umferö.
Long stökk þá nokkuð styttra,
en i 3 umferð setti hann nýtt
Evrópumet meö þvi aö stökkva
7,84 metra.
Þegar úrslitakeppnin hófst
byrjaði Long á þvi aö stökkva
7,73 metra, en Owens geröi
ógilt. Skeöi þá atvik sem varö
mörgum þeim er meö þessari
keppni fylgdust ógleymanlegt.
Luz Long hljóp til Owens eftir
stökkiö og benti honum á að
merkið sem hann mældi at-
rennu sina meö heföi færst úr
staö. Aö svo búnu fór Long aö
atrennubrautinni og náöi betra
stökki en nokkru sinni fyrr, 7,87
metrum og þar með stóöu þeir
JESSE OWENS... sést hér
stökkva sigurstökk sitt á OL-
leikunum 1936 I Munchen.
kappar jafnt aö vigi. En Owens
sýndi öryggi sitt i þeim tveimur
umferöum sem eftir voru og
stökk fyrst 7,94 metra og sföan
8.06 metra sem var aö sjálf-
sögöu nýtt Olympiumet og átti
þaö eftir aö standa fram til leik-
anna iTokió 1964. Fyrsti maöur-
inn sem óskaöi Owens til ham-
ingju meö sigurinn var Luz
Long og mun þaö ekki hafa fall-
ið Hitler vel i geö. Þegar
styrjöldin braust út var Long
meöal þeirra fyrstu sem sendir
voru til Austurvigstöövanna og
þar var hann hafður i fremstu
viglinu. Þar féll þessi eftir-
minnilegi iþróttamaður, sem
allir höfðu hrifist af sem sönn-
um og góöum dreng.
Jesse Owens bætti svo fjóröa
gullinu i safn sitt á siöasta degi
leikanna, en þá hljóp hann i
sveit Bandarikjanna sem
sigraði i 4x100 metra boöhlaup-
inu á nýju heimsmeti 39,8 sek.