Tíminn - 22.04.1980, Qupperneq 13

Tíminn - 22.04.1980, Qupperneq 13
Þriöjudagur 22. april 1980 17 Bækur * FSFERRNTfl J ROJ - ÖÆKUR Árhok 1980 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Árbók tslands út. Ferðafélags 1980 er komin Þetta er 53. Arbók félagsins og ber hún undirtitilinn „Langjök- ulsleiðir”. Höfundur Árbókar- innar er dr. Haraldur Matthias- son á Laugarvatni. Efni bókar- innar er lýsing á landinu og leið- um umhverfis Langjökul. Er efninu skipt i 10 kafla: 1. Lang- jökull, 2. Þórisjökull, 3. Af Kaldadal að Hagavatni, 4. Vest- ur fyrir Langjökul, 5. Gengið of- an við Hagavatn, 6. Langjökuls- ferðir, 7. Hvitárnes og Hvitár- vatn, 8. Hrútafell, 9. Skálpanes og leið til Hagavatns, 10. Litiö yfir gönguleiðir. Auk þessa er grein um gróðurathuganir og Flórulisti úr Þórisdal, sem Gestur Guðfinnsson ritar. Þá ritar Hákon Bjarnason um Ar trésins. Auk þess er nafnaskrá og félagsmál. Arbókin er 12 arkir að stærö, prentuö á vandaöan papplr. 1 Arbókinni eru 29 litmyndir, fjöldi svart/hvltra mynda, og uppdráttur, sem sýnir Lang- jökulsleiöir, þ.e. gönguleiðim- ar. Þetta erfimmta Árbókin, sem dr. Haraldur skrifar fyrir Feröafélagiö, auk þess skrifaði hann um Hornstrandaferð 1 Ár- bók 1968 og síöast en ekki sist skrifaði hann 50 ára sögu Ferðafélagsins, sem kom út sem sérprent á 50 ára afmæli félagsins og var einnig hluti af árbók 1978. Dr. Haraldur á mik- inn heiður og þakkir skildar fyrir allar þessar Árbækur og margt fleira, sem hann hefur gert fyrir félagið á umliðnum áratugum, en Haraldur hefur aldrei þegiö neina greiðslu fyrir verk sin. RitstjóriÁrbókarinnar er Páll Jónsson, bókavörður og hefur hann haft allan veg og vanda af útgáfunni. Arbókin er gefin út i 10. þúsund eintökum, prentuö i ísafoldarprentsmiðju, mynd- irnar eru unnar af Prentmynda- stofunni Litróf, Offsetmyndum sf og litgreiningin er unnin I Myndamót hf. Gunnar Hjalta- son teiknaöi svipmyndir yfir nokkra kaflana og einnig mynd á baksiöu bókarinnar. nýliðnum áratug hefir EsperantostjTktstöðu sina viða um heim, og er nú mikið unnið að þvi, að gera esperantomæl- andi ferðamönnum kleift að komast um heiminn meö þvi sem einasta hjálpmáli, t.d. meö þvf að gefa út skrá yfir ein- staklinga, sem fúsir eru aö vetia aðstoð. THkynningar Sumarfagnaður Rang- ingakórsins Kór Rangæingafélagsins i Reykjavlk er um þessar mundir að ljúka slnu fimmta starfsári, en hann var stofnaður haustið 1975. Hefur kórastarfiö orðið til mikilla eflingar fyrir starfsemi Rangæingafélagsins, aðsókn aö samkomum hefur aukist og félagsmönnum hefur fjölgaö verulega undanfarin ár. Kórinn efnir til sumarfagnað- ar fyrir félagsmenn og gesti þeirra I Hreyfilshúsinu við Grensásveg miðvikudaginn 23. april kl. 20.30. Til skemmtunar verður kórsöngur, bögglaupp- boö og happdrætti og Grétar Geirsson I Ashól leikur fyrir dansi. Laugardaginn 10. mal er ætl- unin að fara ásamt Söngfélagi Skaftfellinga í tónleikaferð austur I Rangárþing og syngja I Gunnarshólma I Austur-Land- eyjum. Háskólafyrirlestur um flóttamannamál Miðvikudaginn 23. april flytur prófessor dr. jur. H. Gammel- toft-Hansen fyrirlestur um rétt flóttamanna til griðastaðar (Asylret). Fyrirlesarinn er prófessor i lögfræöi viö Kaupmanna- hafnarháskólan en gegnir jafn- framt störfum sem formaður Flóttamannaráðs Danmerkur. Hefur hann starfað mikið aö þeim málum á alþjóöavettvangi og mun i fyrirlestri sinum ræða um þau miklu vandamál, sem i þessum efnum hafa komið upp siöustu árin. Fyrirlesturinn er fiuttir I boði Háskóla Islands og fer fram á vegum lagadeildar. Er hann einn af fimm fyrir- lestrum sem danskir prófessorar munu flytja I þess- ari viku viö Háskóla Islands i tilefni af 500 ára afmæli Hafnar- háskóla. Fyrirlesturpróf. Gammeltoft- Hansen er fluttur fyrir al- menning og fer hann fram i Lögbergi, stofu 102 og hefst kl. 5.15. Tónleikar Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar heldur kammer- tónleika i Norræna húsinu n.k. þriðjudagskvöld 22. apríl kl. 20.30. Flytjendur veröa tveir nemendur tónskólans, þeir Óð- inn Gunnar óðinsson sem leikur á þverflautu og Orn Magnússon sem leikur á pianó. Flutt veröa verk eftir Enesco, Poulence, Bartok, Chopin og Debussy. Tónleikarnir verða eins og áður sagöi i Norræna húsinu á þriöjudagskvöldið og hefjast kl. 20.30. Styrktarfélag- ar, nemendur og aörir velunn- arar skólans velkomnir meöan húsrúm leyfir. Sýningar Fram aö næstu helgi stendur yfir á Amtsbókasafninu á Akureyri sýning á bókum og timaritum á Esperanto, og standa að henni Amtsbókasafn- ið og félag esperantista á Noröurlandi, Norda Stelo. A sýningunni eru 250 eintök, flest i eigu einstaklinga á Akureyri, en nokkur I eigu safnsins og félags- ins. Hér á landi er nú boöið upp á Esperanto sem valfrjálsa námsgrein I amk. þrem fram- haldsskólum á íslandi þ.e. I Menntaskólanum við Hamra- hlið, Menntaskólanum á Akureyri og Fjölbrautaskólan- um á Akranesi, en auk þess er hægt aö stunda Esperanto I Bréfaskóla SIS og ASÍ svo og sumstaöar i námsflokkum. A

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.