Tíminn - 26.06.1980, Page 1

Tíminn - 26.06.1980, Page 1
Fimmtudagur 26. júní 1980 137. tölublað 64. árgangur. Síðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Hægt að fá nóg rými fyrir frystan fisk i Bandarikjunum á hagstæðum kjörum: BÚR undirbýr flutning á frystum f iski til USA — til að losa frystigeymslur sínar, sem ellegar fyllast innan tveggja vikna Kás — Nýverið fór sendinefnd á vegum SH, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, til Banda- rikjanna til að kanna markaðs- aðstæður á frystum islenskum fiski þar ytra. Einnig kannaði nefndin möguleika á að útvega húsrými undir freðfisk i frysti- geymslum vcstra. Kom Iljós við könnun að Coldwater Seafood Corporation, söiufyrirtæki SH i Bandarikjunum, hefur ekki yfir miklu umfram frystirými að ráða. Hins vegar mun hægt að fá nóg frystirými leigt I Banda- rikjunum á mjög hagstæðum kjörum. Samkvæmt heimildum Tim- ans munu forsvarsmenn SH ekki vilja flika niðurstöðum þessarar könnunar, til að geta haldið áfram pressu sinni á rikisstjórnina um að gera ein- hverjar úrbætur til að bæta rekstrargrundvöll frystihús- anna, en að óbreyttu blasir við stöövun írystihúsanna, vegna skorts á frystigeymslurými. A fundi Útgerðarráðs Bæjar- útgerðar Reykjavikur i gær var samþykkt að fela framkvæmda- stjórum fyrirtækisins að útvega geymslupláss i Bandarikjunum undir þá framleiðslu fyrirtækis- ins sem framleidd er fyrir Bandarikjamarkað, til að kom- ast hjá rekstrarstöðvun, sem annars blasir við, en allar frystigeymslur BÚR fyllast inn- an næstu tveggja vikna, að öllu óbreyttu. Jafnframt var framkvæmda- stjórum falið að leita nýrra leiöa til sölu á framleiðslu fyrir- tækisins. BÚR er aðili að SH. SH mun hafa fylgt þeirri stefnu að flýtja ekki til Bandarikjanna meira magn af frystum fiski, en mark- aður er fyrir og búið er að selja hverju sinni. Vel getur þvi svo farið, að BÚR verði að flytja hluta framleiöslu sinnar til Bandarikjanna til geymslu þar á eigin ábyrgð, utan skipulags SH, ef framfylgja á samþykkt Útgerðarráðs BÚR frá þvi i gær. A fundinum var jafnframt samþykkt að BÚR tæki ekki þátt i neinum sameiginlegum aðgerðum frystihúsanna um stöðvun reksturs, svo framar- lega sem hægt yrði að komast hjá þvi. M.ö.o. að haldið yrði áfram fram i rauðan dauðann, jafnvel þótt gripa yrði til fram- lags þess sem BÚR er veitt á þessu ári úr Framkvæmdasjóöi borgarinnar, til uppbyggingar fyrirtækisins. Upp úr sauð hjá ASÍ og VSÍI gær Slitnaði upp úr samninga- viðræðum JSS — ,,ASÍ hefur með neikvæðri afstöðu sinni stöövað frekari samningaviðræður. VSí getur ekki fallist á að haida áfram við- ræðum nema ASt viöurkenni að hiutfallsiegar verðbætur eru forsenda samræmds iaunastiga og fallist á að hefja viðræður um almenn kjaraatriði i Kjarna- samningstillögunum ”. Ofangreind ákvörðun var tekin innan Vinnuveitendasambands- ins i gær að loknum fundi deiluað- ila með sáttanefnd. Þar itrekaði samningaráð VSl kröfu sina um, að ASl féllist á hlutfallslegar verðbætur á laun. Hafnaði viðræðunefnd ASÍ þessari kröfu, auk þess sem viðræðunefnd ASt neitaði að hefja viðræöur um almenn kjaraatriði i tillögum VSÍ að kjarnasamningi. Þvi taldi samningaráð VSl ekki unnt að halda áfram umræðum um samræmdan launastiga i til- lögum að kjarnasamningi nema fyrir lægi samkomulag um hlut- fallslegar verðbætur og jafnframt aö viðræður gætu hafist um almenn kjaraatriði i tillögunum. tslendingar ogFinnar léku landsleik I knattspyrnu og lauk leiknum meö jafntefli 1:1. Myndin er úr leiknum I gærkvöldi en á innfelldu myndinni er Pétur Pétursson að fagna jöfnunarmarki slnu. Sjá nánar á bls. 11 Timamynd Róbert. Fólk hvatt til að kjósa tvisvar utan kjörstaðar: „Ekkl aðeins brot á kosningalögum — heldur einnig refsivert!” JSS — ,,Það er ekki nóg með að þaö sé lagabrot að kjósa tvisvar utan kjörfundar, heldur er það refsivert”, sagði Jónas Gústavsson fulltrúi yfirborgar- fógeta, er Timinn spurði hann að þvl i gær, hvort leyfilegt væri aö menn kysu tvisvar utan kjör- staðar. 1 auglýsingu frá stuðnings- mönnum Péturs Thorsteinsson- ar forsetaframbjóðanda, sem birt var I Morgunblaöinu I gær, er vakin athygli kjósenda á þvi, „að enda þótt kjósandi hafi þeg- ar neytt atkvæðisréttar sins ut- an kjörfundar, þá er hinum sama leyfilegt að kjósa aftur, annað hvort utan kjörfundar eða á kjörstaö”, aö þvi er segir orðrétt i auglýsingunni. „Það er að visu rétt, að sá sem btíinn er að kjósa utan kjör- staðar, má kjósa I sinni heima- byggð, sé hann staddur þar á kjördag. En eins og áöur sagði er refsivert aö kjósa tvisvar ut- an kjörfundar, auk þess sem hver kjósandi er látinn undirrita yfirlýsingu, þar sem hann legg- ur viö drengskap sinn og mann- orð að hann hafi ekki kosiö áð- ur”, sagði Jónas. Sagði hann enn fremur, að ef maður hefði kosiö utan kjör- fundar, en væri staddur i sinni heimabyggð á kjördag, bæri honum skylda til að mæta á kjörstað. Þar gæti hann gert annaö tveggja, þ.e. lýst yfir þvi að hann væri búinn að kjósa ut- an kjörfundar, til þess að láta það atkvæði gilda, eöa þá aö viðkomandi gæti kosið aftur og ógilt þar meö utankjörfundarat- kvæðið. Leggium mesta áherslu á freðfiskinn — segir Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri JSG — „Jafnframt nýjum fimm ingurinn gerir ráð fyrir að 12 til 17 ára samningi erum við að ræöa þúsund tonn af fiski verði seld til um framkvæmd þess viðskipta- Sovétrikjanna i ár, en aðeins hef- samnings sem nú er i gildi. Ennþá ur veriö samið um sölu á 9.500 er hægt að semja um viðbótarvið- tonnum. t fyrra nam salan hins skipti I ár og leggjum við mesta vegar alls um 17 þúsund tonnum, áherslu á aö auka söluna á freö- og halda Sovétmenn þvi fram að fiskflökum til Sovétrikjanna,” þar hafi 5.500 tonn tilheyrt sölu- sagði Þórhallur Asgeirsson ráðu- kvóta þessa árs. Þeir hafa hafnaö neytisstjóri um viðskiptaviðræö- tilboði um að kaupa 7.500 tonn til ur er nú standa yfir við Sovét- viöbótar I ár. menn, en Þórhallur er formaöur ; Hinn nýji fimm ára samningur islensku samninganefndarinnar. á aö gilda frá ársbyrjun 1981 til ársloka 1985, og á að taka til allra Þórhallur bætti þvi við að is- helstu viðskiptavara landanna lenska nefndin teldi að sölukvóti tveggja. Búist er viö að samn- ársins i ár fyrir freðfisk hefði enn ingaviðræöunum ljúki á föstu- ekki verið fylltur. Rammasamn- dagsmorgun.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.