Tíminn - 26.06.1980, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 26. júnl 1980.
7
The Portable Gibbon.
E. Gibbon: The Decline and
Fall of the Roman Empire.
Edited and with an Introduction
by Dero A. Saunders.
Penguin Bokks 1978,
693 bls.
Fá sagnfræ&iverk munu hafa
hlotiö jafnmikla frægð um dag-
ana sem hið mikla ritverk enska
sagnfræðingsins Edward
Gibbon um hnignun og fall róm-
verska rikisins.
Gibbon var maöur 18. aldar,
fæddist 1737 og dó 1794. Hann
var af bærilega stæðu fólki
kominn og var ungum komið til
mennta. Að lokinni dvöl i Oxford
hélt Gibbon til meginlandsins,
þar sem hann dvaldist við nám
og ritstörf um alllangt skeið. I
þeirri ferð kom hann fyrst til
ítaliu, þar sem hann kynntist,
og fékk ást á, borginni eilifu á
bökkum Tiber.
Eins og flestir menntamenn
þessa tima var Gibbon vel að
sér i klassáikum fræðum og i
ítaliuferð sinni 1764-1765 fékk
hann óslökkvandi áhuga á þvi
að semja rit um sögu Rómar-
veldis.
Frægt rit í
endurútgáfu
Af
bókum
Oft er erfitt að dæma um það,
hvenær menn byrja að vinna að
miklum ritverkum. Viðfangs-
efnið er gjarnan lengi að brjót-
ast i þeim áður en eiginleg vinna
hefst. Um Gibbon er það vitað,
að hann mun ekki hafa hafið
samningu rits sins fyrr en eftir
að hann.var sestur að i Lundún-
um áriö 1770, og næstu 17 árin
var hið mikla ritverk höfuðvið-
fangsefni hans. A þeim árum
átti hann sæti á breska þinginu
um átta ára skeið án þess að
taka nokkru sinni til máls, og
einnig sat i breska verslunar-
ráðinu (The Board of Trade).
Rit Gibbons, Hnignun og fall
rómverska heimsveldisins, var
upphaflega gefið út I sex þykk
um bindum og voru þrjú þau
fyrstu samin i Lundúnum en
þrjú hin siðari I Lausanne I
Sviss, þar sem Gibbon dvaldist
löngum. Lengd verksins hefur
orðið þess valdandi að það hefur
aldrei verið lesið sem skyldi af
almenningi og ekki hefur verið á
hvers manns færi að eignast
það.
Saga Gibbons hefst með
Agústusi keisara og henni lýkur
með falli Miklagarðs árið 1453.
Mestu rúmi ver höfundur til
þessað fjall um sögu Rómarrik-
is á árunum 100-476 en engu að
siður má lita á verkið sem sam-
fellda sögu Miðjarðarhafs-
heimsins, 100-1500. Enginn
skýldi neita þvi að Gibbon sé I
hópi mestu sagnaritara sögunn-
ar. Það má til sanns vegar færa,
að verk hans standast ekki full-
komlega kröfur nútimans um
heimildarýni og hlutlægni, en þá
THE PORTABLE (Aj
GIBBON
ber þess að gæta að Gibbon rit-
aöi eölilega i anda sins tima.
Hann var mikill aðdáandi róm-
verska heimsveldisins og róm-
verskrar menningar og aö hætti
sinnar tiðar taldi hann andlega
menningu einungis vera fyrir
betra fólkið. Germanskar þjóð-
ir, sem herjuðu á Rómaveldi
taldi Gibbon hreina barbara og
eins og titt var um Evrópubúa á
18. öld var hann haldinn ýmsum
fordómum um Múslimi.
Þrátt fyrir allt þetta er rit
Gibbons eitt af mikilfenglegustu
sagnaritum sögunnar og sumar
kenningar hans, t.d. um orsak-
irnar fyrir falli Rómarveldis
halda gildi sinu enn þann dag i
dag. Og rit Gibbons er ekki
aðeins mikið sagnarit. Það er
skrifað á afbragðs ensku og hef-
ur löngum verið talið með önd-
vegisverkum á þeirri tungu.
Eins og áöur sagði hefur lengd
þessa ritverks komið I veg fyrir
að það yrði almenningseign. Til
þess að bæta úr þvi var það gef-
ið út stytt og samþjappaö og
kom sú útgáfa fyrst út árið 1953.
öllum ber saman um aö stytta
útgáfan sé mjög vel heppnuö og
hefur hún orðið til þess að æ
fleiri lesa nú þetta ágæta verk,
sem alltof lengi var ókunnugt
öðrum en sérfræðingum og ein-
stökum lestrarhestum.
JónÞ.Þór.
Mánagrund, Keflavik:
Hestaþing Mána
Hestamannafélagið Máni i
Keflavik hélt sinar árlegu kapp-
reiðar að Mánagrund helgina
14.-15. júni s.l. Helst bar það til
tiöinda á mótinu, að Börkur
Ragnars Tómassonar setti nýtt
Islandsmet i nýliðaskeiði, rann
skeiðið á 14,2 sek. Knapi var son-
ur Ragnars, Tómas. Þá geystist
hin aldna kempa hestamennsk-
Börkur og Tómas Ragnarsson verðlaunaöir fyrir tslandsmet inýliðaskeiðinu. —Ljósm: Bent Pedersen.
unnar, Sigurður Ólafsson inná
völlinn og gerði sér litið fyrir og
hirti þriðju verðlaun i skeiði.
Helstu úrslit urðu sem hér
segir:
Gæöingar A-fi.
1. Sóti Einars Þorsteinssonar
eink. 8,23
2. Laski Einars Þorsteinssonar
eink. 8,16
3. Fjölnir Braga Sigtryggssonar
eink. 7,59
Enn hleypir Sigurður ólafsson á skeiðog náði þriðja sæti. Sonur hans Erling á fyrsta hesti til vinstri og
Sigurður Sæmundsson á öðrum hesti senda hinni siungu kempu vekurðarinnar bros I viðurkenningar-
skyni.
Gæðingar B-fl.
1. örvar Einars Þorsteinssonar
eink. 8,16
2. Vindheima-Blakkur Hákons
Kristinssonar eink. 8,11
3. Brúsi Guðmundar Hinriks-
sonar eink. 8.04
Unglingakeppni 13-15 ára.
1. Kópur Sigurlaugar
Auðunsdóttur eink. 7,76
2. Jarpur Brynjars Sigurðssonar
eink. 7,53
3. Skjöldur Hans Borgarssonar
eink. 7,50
Unglingakeppni 12 ára og yngri
1. Vinur Sigurðar Kolbeins.
2. Þokki Guðmundar ólafssonar
3. Dreki Þóru Þórðardóttur
Opin töltkeppni
1. Hjalti Hlyns Tryggvasonar
2. Blær Valgeirs Helgasonar
3. Brúsi Hákonar Kristinssonar
Brokk 800 m.
1. Faxi Eggerts Hvanndal 1,36,0
min., sem er vallarmet.
2. Hjalti Hlyns Tryggvasonar
1,44,4 min.
3. Stjarni Ómars Jóhannessonar
1,44,8 min.
Stökk 800 m.
1. Gnýfaxi Jóns Hafdal 59,6 sek.
2. Leó Baldurs Baldurssonar 59,6
min. (sjónarmunur)
3. Mósi Hörpu Karlsdóttur 59,9
min.
Stökk 350 m.
1. Stormur Hafþórs Hafdal 25,6
sek.
2. Strákur Helga Friðjónssonar
26,7 sek.
3. Léttfeti Björns Baldurs og
Baldurs Oddss. 27,3 sek.
Skeið 250 m.
1. Frami Erlings Sigurðssonar
23.1 sek.
2. Trausti Þorgeirs Jónssonar 23,8
sek.
3. Kuldi Siguröar Ólafssonar 24,7
sek.
Nýliðaskeið 150 m.
1. Börkur Ragnars Tómassonar
14.2 sek. (nýtt isl. met).
2. Snælda Magna Kjartanssonar
15,6 sek.
3. Stjarni Stefáns Jónssonar 18,3
sek.
Unghrossahlaup.
1. Dunkur Arnodds Tyrfingssonar
20,1 sek.
2. Tinna Lárusar B. Þórhalls-
sonar 20,4 sek.
3. Frenja Sigurðar Ólafssonar
20,5 sek. G.T.K.
Barnaleiktæki
íþróttatæki
Þvottasnúrugrindur
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 12. Sími 35810
Signrður
Ólafsson
hleypir enn
íslandsmet í
nýliðaskeiði