Tíminn - 27.06.1980, Side 7
Föstudagur 27. júnl 1980.
7
Keflavík:
Karlakórinn Heimir i Skagafirði:
Nýkominn heim úr
velheppnaðri tU
Noregs
Kás — Karlakórinn Heimir i
Skagafiröi er nýkominn heim úr
velheppnaöri söngferö til Noregs.
Voru móttökur Norðmanna alveg
sérstaklega góöar, og góöur róm-
ur geröur aö söng þeirra noröan-
manna. Auk 36 kórfélaga tóku
þátt i feröinni eiginkonur þeirra
og vensla fólk, þannig aö allt i allt
tóku þátt i söngferðinni um 70
manns.
Söngstjóri og fararstjóri var
Norðmaöurinn Svein Arne Kors-
hamn, en hann hefur veriö tón-
listarkennari i Skagafirði i vetur
sem leið. Skipulagning ferðarinn-
ar hvildi á hans herðum.
Æft var af kappi fyrir þessa
ferð og þrátt fyrir vorannir kórfé-
laga, sem flestir eru bændur,
sóttu menn æfingar af áhuga og
dugnaði.
Sem fyrr segir voru móttökurn-
ar i Noregi frábærar. I Hareid viö
Alasund var t.d. tekiö á móti
kórnum með lúörasveitarleik, en
siöan var kórfélögum boöiö til
kvöldveröar i ráöhús bæjarins,
þar sem bæjarstjórnin haföi boö
inni. Daginn eftir var sungið fyrir
fullu húsi i félagsheimili staðar-
ins viö mjög góöar undirtektir.
Auk Hareid sótti kórinn heim
Venstra, Elverum og Osló.
Allir blaðadómar, sem borist
hafa um söng kórsins, eru á eina
leiö og samdóma um ágæti hans.
Ber þeim saman um að þarna
hafi verið á feröinni sérstaklega
góður karlakór i háum gæöa-
flokki, sem þvi miður séu alltof
sjaldgæfir.
A þessum myndum má sjá um-
sagnir um kórinn i norskum blöö-
um, Vikubladet i Hareid og
Östlendingen I Hamar.
Norsk-lslandsk forbrodring
Mannskorsong pá sitt ypparste og storstemning i Trudvang
>plevlng av dei sjeldne ní
ijeld korsong. Vi visst
\g\ ingenting or
'en pá det islandsk
& larehand, men ette
17 íbúðir fyrir
aldraða teknar
í notkun
1 Keflavik hefur nú veriö tekiö i
notkun, á vegum bæjarfélagsins,
húsnæöi fyrir aldraða, sem eru 11
hjóna- og einstaklingsibúðir, auk
félagsaöstööu i kjallara hússins.
tbúöirnar eru af stæröunum
54-66 fermetrar. Húsiö allt er 338
ferm., á tveimur hæöum auk
kjallara.
Húsiö er staösett viö Suðurgötu
ofan viö Skrúögarö bæjarins og
hafa allar ibúöirnar svalir sem
snúa út i skrúögaröinn.
Bygging hússins hófst seinni-
hluta júlimánaöar á sl. ári og lauk
nú fyrri hluta júnimánaöar, eöa
10 1/2 mánuöi siöar.
Nýju ibúöirnar fyrir aldraöa eru I
þessu húsi viö Suöurgötu i Kefla -
vik.
Húsiö teiknaöi Steinar Geirdal
byggingafulltrúi. Aöalverktaki
við bygginguna var Trésmiöi s.f.
1 bygginganefnd hússins eru:
Guöjón Stefánsson form.,
Kristinn Guömundsson, Jón Ólaf-
ur Jónsson, Óli Þór Hjaltason og
Jón B. Kristinsson.
Keflavikurbær hefur að auki
tekið á leigu 6 ibúða hús við
Hringbraut meö litlum ibúöum
sem leigöar veröa öldruöum.
Félagsaðstaða i báöum þessum
húsum veröur i umsjá og rekin af
Styrktarfélagi aldraöra.
Þá er veriö að gera teikningar
aö húsi meö smáibúðum fyrir
aldraöa sem verður staösett viö
Suðurgötu.
Avegum bæjarfélagsins'veröur
á næstunni boöin út bygging 12
leigu- og söluibúöa i fjölbýlishúsi
viö Heiöarhvamm, sem er i
nýjasta hverfi bæjarins.
Fjöðrin í
nýtt húsnæði
JSS — Fyrirtækið Fjöörin hefur
nú tekið i notkun viöbótarhúsnæöi
i Skeifunni 6, og er það 600 fer-
metrar aö stærö.
Bilavörubúðin Fjöörin var
stofnuð áriö 1955 og var fyrst
starfrækt i litlu húsnæöi að
Hverfisgötu 108. Framkvæmda-
stjóri frá upphafi og aðaleigandi
frá árinu 1957 er Sigurbergur
Pálsson.
A fyrstu starfsárunum var
aöaláhersla lögð á sölu á bifreiða-
fjöörum, en fljótlega var fariö að
flytja inn og selja pústkerfi. Þessi
starfsemi hefur siöan farið vax-
andi meö ári hverju og 1970 var
hafist handa um byggingu 1400
fermetra húsnæöis við Skeifuna 2.
Var þaö húsnæöi notaö undir
verslun, vöruiager og undirsetn-
ingaverkstæöi og var þaö tekið i
notkun 1972. Nú i tilefni 25 ára af-
mælis fyrirtækisins var hiö nýja
húsnæði tekið i notkun og veröur
hljóökútasmiöin þar til húsa. Þá
er hafin notkun aluminseraðra
plata I hljóökúta og aluminiseruð
rör I púströrin, sem gerir vöruna
helmingi endingarbetri en ella.
Viö fyrirtækið starfa. sem
stendur 27 manns, 6 á skrifstofu, 7
viö sölustörf, 6 viö hljóökúta-
smiöi, 5 viö púströrasmiöi og 3 á
undirsetningaverkstæöi.
Sigurbergur Pálsson og Markús
Jensen sölustjóri f nýja húsnæö-
inu.
Aöalíundur sýslunefndar Rangárvallasýslu:
Efla þarf varnir sýslunnar gegn ríðuveiki
Aöalfundur sýslunefndar Rang-
árvallasýslu var haldinn að Skóg-
um undir Eyjafjöllum, dagana
11.-13. júni sl. Fjárhagsáætlanir
sýslusjóös og sýsluvegasjóðs
Rangárvallasýslu áriö 1980 nema
samtals 144 milljónum króna en
helstu útgjaldaliöir eru þessir:
Viðhaldvega kr. 94 millj.
Nýlagning vega ” 17
Sjúkrahús Suðurlands ” 8 ”
Byggingaeftirlit ” 4 ”
Iðnskólinn.Selfossi ” 3 ”
Auk þess eru veittar fjárhæöir
til fjölmargra verkefna i héraöi.
Mörg hagsmunamál Rangár-
vallasýslu komu til umræöu á
fundinum og má þar helst nefna
málefni sauðfjárveikivarna, en
um þau mál fjallaöi Sigurður Sig-
uröarson, dýralæknir ásamt þeim
Sigurði Jónssyni, Kastalabrekku
og Sigurbergi Magnússyni,
Steinum. Ljóst er aö efla þarf
varnir sýslunnar ef þ-að markmiö
á aö nást aö bægt verði frá versta
vágesti sauökindarinnar, riðu-
veikinni, sem nú nálgast sýslu-
mörkin að vestan. Samþykkt var
á fundinum aö senda inn á hvert
heimili sýslunnar bækling til
kynningar á nauösyn varna i
þessum efnum. Verður sá bæk-
lingur saminn undir yfirumsjón
Sigurðar Siguröarsonar.
A fundinum var einnig sam-
þykkt aö fela sýslumanni og
starfsliði byggingarfulltrúa
Suöurlands aö vinna að tillögum
um nýskipan byggingaeftirlits i
sýslunni að breyttum aðstæöum
eftir tilkomu nýrra byggingar-
laga og þeirrar ákvöröunar lög-
gjafans að gera landiö allt skipu-
lagsskylt.
Um vegamál var sú samþykkt
gerö aö skora á Alþingi og rikis-
stjórn aö hlutast til um aö Hólsá
veröi brúuö þar sem beinust er
lina milli Þykkvabæjar og Vest-
ur-Landeyjahrepps. Bent var á að
brú á þessum staö var tekin inn á
áætlun um brúarframkvæmdir á
árunum 1952 og 1953.
Samþykkt var aö kjósa þá
Böðvar Bragason, sýslumann,
Eggert Haukdal, alþingismann
og oddvita Vestur-Landeyja-
hrepps og Albert Jóhannsson,
oddvita Austur-Eyjafjallahrepps
i nefnd sem hafi þaö aö markmiöi
að styöja Vestur-Skaftfellinga viö
framgang þess máls aö hafnar-
gerð viö Dyrhólaey veröi aö veru-
leika.