Tíminn - 06.07.1980, Blaðsíða 22
30
Sunnudagur 6. júli 1980.
★ ★ ★ ★ ★ Frábœr - ★ ★ ★ ★ Eiguleg - ★ ★ ★ Aheyrileg - ★ ★ Sœmileg - ★ Afleit
Joan
Armatrading
Me Myself I
/A&M AMLH
64809
★ ★ ★ ★
A siðasta ári mun blökku-
söngkonan Joan Armatrading
hafa gefiö út þá yfirlýsingu aö
hún hyggöist i rikari mæli snúa
sér aö rokktónlist, en sem kunn-
ugt er þá hcfur hún hingaö til
veriö þekktust sem soul söng-
kona. Nú er ég ekki nákunnugur
Joan Armatrading, en miöaö
viö nýjustu plötu hennar ,,Me
Myself I” er aö heyra, aö hún
hafi ekki farið meö neitt fleipur;
Til þess að gera þessa plötu
sem best úr garði, fékk Joan
Armatrading, upptökustjórann
Richard Gotteher til liðs við sig,
en hann er m.a. ábyrgur fyrir
upptökunum á tveim fyrstu
plötunum með Blondie. úrvals
tónlistarmenn koma einnig við
sögu og nægir þar að nefna
Danny Federici og Clarence
Clemons úr hljómsveit Bruce
Springsteen.E Stree Band og
gitarleikarann Chris Spedding,
sem lengi hefur staðið i allra
fremstu röð. — Og árangurinn
lætur ekki á sér standa og hefur
„MeMyself I” af mörgum verið
talin ein besta plata Joan til
þessa. Eins og áður segir þá er
platan þó nokkuð rokkaðri en
fyrri plötur söngkonunnar og
verður ekki annaö sagt en að
rokkiö hæfi hinni hrjúfu rödd
hennar vel. Tvö reggae lög i lok
plötunnar setja svo punktinn
yfir i-ið og skrautfjöðrina i hatt
Joan Armatrading.
—ESE
Bob Dylan
Saved
/CBS 86113
★ ★ ★ ★ +
„Behold, the days come, saith
the Lord, that will make a new
covenant with the house of
israel, and the house of Judah”.
(Jerimiah Chapter 31.31)
baö er skammt stórra högga
á milli hjá meistara Bob Dylan,
þvi að nú skömmu eftir útkomu
„Slow train coming” hefur nýj-
asta plata hans, „Saved” litið
dagsins ljós og enn kemur Dyl-
an á óvart.
Eins og flestir vita er Dylan
nýlega frelsaður og kristnari
mann mun vart að finna i dag. A
„Slow train coming” hótaði
Dylan okkur heiðingjunum, eldi
og brennisteini og eilifri útskúf-
un, ef viö létum ekki af villu
okkar, en nú kveður viö annan
og bliöari tón hjá þessum, ein-
um mesta tónlistarmanni siðari
tima. Eins og nafn plötunnar og
reyndar mynd á umslagi gefur
til kynna, þá er Bob Dylan nú
hálfnaður á leið sinni til himna-
rikis. „Saved” er laus við allt
útskúfunarhjal, en þess i stað
hefur Dylan nú sett sig i stell-
ingar sunnudagaskólakennar-
ans og platan þvi lofgjörð um
drottin allsherjar. Lifið á jörð-
inni er aðeins undirbúningur
fyrir hið eillfa llf og þvi rétt að
haga sér vel áöur en gengið er
fyrir dómarann á hinum æðsta
degi. Eða eins og Dylan segir i
siðasta lagi plötunnar — „Are
you ready for the judge-
ment/Are you ready for the terr
ible swift sword/Are you ready
for Armageddon/Are you reaay
for the day of the Lord”.
Hvort svo sem menn eru
reiðubúnir eða ei, þá ættu allir
að geta haft ánægju af þessari
plötu. Dylan hefur áður s.s. á
„Slow train coming” samið
gospel-tónlist, en „Saved” er
hreinræktuö gospel plata i alla
staði — sú fyrsta og væntanlega
MELCHIOR
BALAPOPP
ekki sú siðasta sem Dylan send-
ir frá sér.
Tónlistar- og tæknilega séð er
„Saved” frábær plata. Af hljóð-
færaleikurunum á plötunni tekst
þeim Spooner Oldham (hljóm-
borð), Terry Young (hljóm-
borð) og trommuleikaranum
Jim Keltner hvað best upp, en
bakraddirnar eru einnig frá-
bærar. Dylan slær ekki feilnótu
á allri plötunni tónlistarlega séð
og hefur sjaldan verið betri.
Eina spurningin er einfaldlega
þessi. Helst Dylan á aðdáendum
sinum, ef hann heldur upptekn-
um hætti og vikkar ekki sjón-
deildarhring sinn? Trúin flytur
e.t.v. fjöll, en hún á samt sem
áður ekki jafn vel við alla.
—ESE
Melchior -
Balapopp
/Ginufélagið
Fyrir nokkru sendi hljóm-
sveitin Meichior frá sér plötuna
„Balapopp”, en hún var hljóð-
rituð á bænum Bala I Mosfells-
sveit um mitt sfðasta sumar.
Reyndar fóru nokkrar upptökur
einnig fram i Hljóðrita i Hafnar-
firði og á hljómleikum Melchior
i MH. Upptökumaður var
Garðar Hansen.
Nokkuð hefur dregist úr
hömlu að geta þessarar plötu
hérog kemur þar margt til. Má
nefna að ég er enn ekki viss um
hvort að Melchior ætlist til að
þessi plata sé tekin alvarlega,
en ef svo er þá verð ég að votta
Melchiormönnum hluttekningu
mina. „Balapopp” er nefnilega
fyrst og fremst „egó-tripp”, og
fáum til ánægju, nema e.t.v.
þeim sem viðstaddir voru upp-
tökurnar og stóðu að gerð
hennar. Svo að vikið sé nánar að
efninu á plötunni, þá eru á henni
23 „lög”, og er lengd „laganna”
frá 17 sekúndum upp i 3 minútur
og 25 sekúndur. Meðallengd
„laganna” er rúm minúta og
ekki bætir það úr skák, að vaðið
erúreinuiannað,ýmistá ensku
eða íslensku og skilur platan þvi
litið eftir sig. „Balapopp” er þó
ekki alvond, þvi að Melchior
eiga sæmilega spretti inn á milli
og eins er ljóst að aðstandendur
hennar hafa skemmt sér ágæt-
lega við gerð hennar. Aðal-
kostur „Balapopps” er þó sá, að
Melchior sýna að það er hægt að
gera plötu við frumstæðar aö-
stæður og fyrir litinn pening,
sem er ekki litill kostur á þess-
um siöustu og verstu tlmum.
DHAUMURINN RÆTIST
Framhjóladrifinn —
Eitt handtak, þá er drif á öllum.
JAPÖNSK NATNI OG LISTFENGI
ELDRI PANTANIR
ÓSKAST STAÐFESTAR
RÝMRI — HÆRRI — MÝKRI
HLJÓÐLÁTARI — SPARNE YTARI
LÆGRI 1. GÍR
Ýmsar tækninýjungar
t.d. öryggistölva og tölvuklukka
■¥ Oryggistolvan
M sem lylgist meö:
•¥ Aðalljósum.
■k Innsogi.
■¥ Bremsuvökva.
♦ Hurðalæsingum.
★ Handbremsu.
•fc Blikkljósum.
■* Bremsuljósum.
■¥ Afturljósum.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogavog — Simar 33560 og 37710
STAÐREYND: Hann fer 14,5 k.m. á 1 ltr. af
bensíni, eða jafnvel lengra
O ÍMjg
Simi (%)-222<M)
HÓTEL KEA
^ leggur áherslu á
^ góða þjónustu
W
HÓTEL KEA
býður yður
.Ét bjarta og vist-
^ lega veitinga-
W sali, vinstúku og
r fundaherbergi.
HÓTEE KEA
s
t
býður yður á-
vallt velkomin.
Litið við i hinni
glæsilegu mat-
stofu Súínábergi.
Auglýsið í
Tímanum
86-300