Tíminn - 13.09.1980, Síða 2
2
Laugardagur 13. september 1980
Borgarráð samþykkti að minnka lóð Sjómannaskólans:
Framvellinum úthlutað
Kás — Borgarráð
samþykkti í gær tillögu
frá Skipulagsnefnd um
að lóð Sjómannaskólans
yrði afmörkuð greini-
lega, en Sjómannaskólinn
hefur hingað til haft laus-
legt fyrirheit um allt það
landsvæði sem liggur í
nánasta umhverfi hans.
til fyrirtækja?
Samtals mun það órækt-
arsvæði sem Sjómanna-
skólanum var gefið fyrir-
heit um nema um 6.5
hekturum. Með samþykkt
borgarráðs í gær, var það
svæði minnkað um ca. tvo
hektara.
Borgarráö samþykkti að
svæðiö noröan og neöan viö
klettabeltiö sem Sjómannaskól-
inn stendur viö yröi tekiö undan
umsjá hans, og þvi úthlutaö
væntanlega til fyrirtækja. Svæöi
þetta mun kunnara undir nafn-
ínu gamn r ram-völlurinn.
Meö samþykkt sinni heggur
borgarráö á þann Gordion-hnút
eöa deilu, sem veriö hefur milli
borgarinnar og rikisins um
framtiöarskipulag þessa svæöis
og skólans, sem staöiö hefur yfir
i nærfellt tvö ár.
Viö þessa samþykkt skapast
möguleikar á að úthluta
Parmaco lóð undir starfsemi
sina, en það fyrirtæki hefur sótt
mjög fast á um aö fá aðstööu á
þvi svæði sem borgarráö tekur
nú undan umsjá Sjómannaskól-
Eitt ár frá upphafi áætlunarflugs Arnarflugs innanlands:
Hefur flutt 20 þús.
farþega
— og 170 tonn af vörum,
á þessum tíma
JSS — A morgun, sunnudag, er
eitt ár liöiö frá þvi aö Arnarflug
hóf áætlunarflug innanlands.
Hefur félagiö á þessum tima flutt
tæplega 20.000 farþega og 170 tonn
af vörum.
Frá þvi að innanlandsflugiö
hófst hafa verið farnar um 1300
ferðir til 9 staða vestan og norð-
anlands. Fyrir skömmu bættist
10. staöurinn, Grundarfjörður,
viö. Þá hafa vélar félagsins veriö
notaðar til leiguflugs, samhliða á-
ætlunarfluginu. Hefur veriö flogið
með vörur og farþega innanlands
og milli landa. 1 sumar hefur fé-
lagið flutt i leiguflugi og útsýnis-
flugi um 2200 farþega.
Arnarflug á nú 4 vélar, sem not-
aöar eru á leiðum innanlands, 2
Twin Otter vélar, sem hvor um
sig tekur 19farþega, 1 PiperChief-
tain 9 sæta, svo og skrúfuþotu af
gerðinni Piper Cheyenne, sem
einnig er notuð til leiguferða til
nágrannalandanna.
1 frétt frá flugfélaginu segir, að
það hafi reynt aö beita áhrifum
sinum til að bæta flugvallarskil-
yrði úti á landi. Eitt af aöalmál-
unum i þvi sambandi hafi veriö að
fá lýsingu á flugvellina. Þá sé
ofarlega á óskalista félagsins að
fá eldsneytistanka sem viðast á
flugvelli, þar sem það skerði
mjög burðargetu flugvélanna að
þurfa alltaf að flytja með sér
eldsneyti til heimferðarinnar.
Loks segir, aö það sé mikið á-
hugamálstarfsmanna Arnarflugs
að auka flugsamgöngur sem
mest, svo að sem flestir geti notið
þess öryggis, sem flugið veiti
landsbyggöinni. Oski félagið eftir
sem bestri samvinnu við sveitar-
stjórnir, svo og flugmálayfirvöld i
þeirri baráttu.
NAMSKEIÐ UM
FELDFJÁRRÆKT
HEI — „Ýmsir hafa áhuga á á
feldfjárræktinni og ,/útlit er fyrir,
að hún hefjist á 10-12 stööum nú I
haust”, sagði Sveinn Haligrims-
son, ráðunautur i samtali viö
Tlmann i gær.
Sveinn sagði ýmislegt hafa ver-
ið gert i sambandi við þessi feld-
fjárræktaráform, varðandi upp-
lýsingamiðlun og skipulagsundir-
búning. Mönnum hafi verið sýnd-
ar valdar gærur sem Sláturfélag-
iö hefur selt á uppboöi i London og
nokkrir hafa farið út til Sviþjóöar
til að kynna sér feldfjárrækt þar i
landi. Nú hafi verið fenginn hing-
að sænskur sérfræðingur i dóm-
um á feldgæðum á lifandi fé,
Thorsten Eklund, til að halda hér
4 námskeið á næstunni.
Um er að ræða 3 tveggja daga
námskeið og svo einsdagsnám-
skeið i lokin. Fyrsta námskeiöið
hefst að Hólum i Hjaltadal mánu-
daginn 15. september, annað aö
Kirkjubæjarklaustri föstudaginn
19. september og það þriðja i
Króksfjarðarnesi miðvikudaginn
24. september. Aö lokum verður
svo eins dags námskeið i Borgar-
hreppi i Mýrasýslu, sem nánast
er ætlaö heimamönnum og fram-
haldsdeild Bændaskólans að
Hvanneyri. Þeir sem taka á móti
þátttökubeiðnum á hverjum stað
eru: Grétar Geirsson, ráðsmaður
að Hólum, Einar Þorsteinsson
ráöunautur i Sólheimahjáleigu,
Þórarinn Sveinsson ráöunautur á
Hólum um Króksfjarðarnes og
Bjarni Arason ráðunautur i
Borgarnesi.
Sveinn sagöi menn hafa mynd-
að áhugahópa um feldfjárrækt og
væru 1-2 úr hverjum hópi heimil-
aö að taka þátt i þessum nám-
skeiðum. Þá væri reiknað meö
ráöunautum t sauðfjárrækt og
einnig hefðu verið send boð til
sláturleyfishafa ef þeir hefðu á-
huga á að senda þá menn sina
sem vinna i gæruhúsum eða
sláturrétt. Einnig er gert ráð
fyrir yfirgærumatsmönnum og
mönnum Bændaskólans.
Um tilgang þessara námskeiða
Allsherjarþing S.Þ.
Hefst á mið-
vikudag
Allsherjarþing Sameinuöu
þjóöanna veröur sett miö-
vikudaginn 17. þ.m.
Ólafur Jóhannesson utan-
rikisráöherra mun sækja
þingiö. Hann fer héöan 18.
þ.m. og er væntaniegur heim
aftur 3. október. Hann mun
taka þátt I umræöunum, sem
fara fram i upphafi þingsins.
Gert er ráö fyrir, aö hann
flytji ræöu sina 22. þ.m.
Asamt utanrikisráðherra
mun Hannes Hafstein skrif-
stofustjóri utanrikisráðu-
neytisins fara vestur og
veröa fulltrúi á þinginu. Auk
þeirra verða svo fulltrúar á
þinginu sendimenn Islands I
New York.
Þingflokkarnir eiga þess
kost aö senda tvo fulltrúa á
þingið og munu þeir mæta
þar til skiptis. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur tilnefnt þá
Lárus Jónsson og Birgi ísleif
Gunnarsson. Framsóknar-
flokkurinn hefur tilnefnt
Jóhann Einvarðsson. öðrum
tilnefningum er ekki lokiö.
Gert er ráð fyrir, að full-
trúar flokkanna mæti ekki á
þinginu fyrr en upp úr miðj-
um október, en þá er vænst
þess, aönefndarkosningum á
Alþingi verði lokið.
sagði Sveinn, aö þaö fyrsta sem
kenna þyrfti mönnum væri að
meta hvaö átt væri við með feld-
gæðum og að meta það á lifandi
lömbum, þannig að hægt sé að
framkvæma úrval eftir feldeigin-
leikum i haust. Það væri grund-
vallaratriðiö fyrir þvi að bændur
gætu kynbætt þessa eiginleika.
KL — 1 dag, laugardaginn 13. september, opnar Vilhjálmur Bergs-
son málverkasýningu að Kjarvalsstööum. A sýningunni veröa 63
málverk og 10 teikningar. Þetta er 16. einkasýning Viihjálms hér á
landi, en hann hefur sýnt viöa, m .a. haldiö einkasýningar á Noröur-
löndunum, I HoIIandi og Bandarikjunum, og 5 einkasýningar hefur
hann haldiö i Kaupmannahöfn. Hann hefur tekiö þátt I mörgum
samsýningum viöa um heim. Siöasta einkasýning Vilhjálms var aö
Kjarvalsstööum 1978. Sýningin nú, sem ber nafniö „Ljós og vlddir”,
stendur til 21. september og er opin alla daga kl. 2-10.
(Timamynd Róbert)
I gær voru Iðngarðar Selfossi:
Formlega afhentir
fyrstu leigutökunum
AB — Merkum áfanga I iönþróun-
arsögu Selfossbæjar var náö i
gær, er Selfossbær og Iönþróun-
arsjóöur Selfossbæjar afhentu
bygginguna Iöngaröa fyrstu
leigutökunum, sem eru þrjú ung
iönfyrirtæki.
Byggingin, sem er 618 fermetr-
ar (2900 rúmmetrar) er stál-
grindarhús á steyptum metrahá-
um veggjum. Byggingin er i eigu
Selfossbæjar og hefur hún aðal-
lega veriö fjármögnuö með fram-
lögum úr bæjarsjóði.
Fyrirtækin sem fá inni i húsinu
til aö byrja meö, en ætlunin er að
ekkertfyrirtækifái inni i Iöngörð-
um lengur en i þrjú ár, eru
Prjónastofan Björg h.f. sem fær
helming húsnæðisins, Fossplast
sem er fyrirtæki i trefjaplastiðn-
aöi fær fjóröung hússins og þriðji
aðilinn er svo Þorsteinn Bjarna-
son bilamálari.
Húsiö er afhent fullfrágengið
að utan fulleinangrað og klætt að
innan, og siöan innrétta leigutak-
ar eftir þvi sem þeim hentar.
Hafsteinn Þorvaldsson formað-
ur byggingarstjórnarinnar tjáöi
Timanum I gær aö tilgangurinn
með byggingu þessari væri að
laða til Selfossbæjar ungan iðnað
og hlúa að honum. Það geröi Sel-
fossbær meö þvi að hafa leigu-
gjöld i Iðngörðum i algjöru lág-
marki eöa jafnvel engin til að
byrja með, þannig fengi Prjóna-
stofan Björg h.f. t.d. fria leigu
fyrstu sex mánuöina á meðan að
hún væri aö koma undir sig fótun-
um, og hinir leigutakarnir vænt-
anlega einhvern tima lika
„Erum ekki að reyna að
knésetja Flugleiðir”
Stjórn ABR vill harölega visa á
bug staöhæfingum stórnarform.
Flugleiöa h/f þess efnis aö Al-
þýöubandalagiö stefni að þvf að
knésetja Flugleiðir h/f.
Svo segir i ályktun, sem blaðinu
hefur borist frá Alþýðubandalag-
inu. Hins vegar vill ABR taka
skýrt fram aö fyrir 2 árum vakti
Alþýöubandalagiö fyrst athygli á
þeirri gifurlegu rekstrarhættu,
sem allar flugsamgöngur lands-
ins eru i.
ABR vekur ennfremur athygli á
að undanfarin ár hafa Flugleiðir
h/f stundað umtalsverðan fjár-
magnsútflutning i formi stofnun-
ar erlendra dótturfyrirtækja, án
eftirlits islenskra stjórnvalda.
ABR er eindregið á móti þvi að
einkaaðilarbraski meö samgöng-
ur til og frá landinu og atvinnu-
öryggi fjölda fólks, sér til efna-
hagslegs ávinnings enætli siðan
almennum skattgreiðendum að
bera i sameiningu taprekstur fé-
lagsins þegar á bjátar.