Tíminn - 13.09.1980, Qupperneq 5

Tíminn - 13.09.1980, Qupperneq 5
Laugardagur 13. september 1980 5 Leikfélag Akureyrar Velheppnuð leikför til írlands KL — Félagar úr Leikfélagi Akureyrar eru komnir heim úr frægðarför til trlands, þar sem þeir komu fram á Beckett-hátið með sýningu sina „Beðið eftir Godot” eftir Samuel Beckett. Sú sýning vakti sem kunnugt er mikla athygli á síðustu Listahá- tiö. Beckett-hátið þessi er sú fyrsta i röðinni, en von forráða- manna og trú er sú, að fleiri fylgi i kjölfarið, enda húsnæöi, aðstæður og áhugi fyrir hendi. Staðurinn, sem helgaður er Beckett-hátiðum, heitir Bantry, litið þorp skammt frá Cork. Þar kom hollenskur maður, Piet Kamerman, á fót leikhúsi, sem nefnist Gurtycloona Theatre á árinu 1970. Þarna i nágrenninu býr margt fólk, sem áhugasamt er um listir og smám saman fæddist sú hugmynd, að koma á fót reglulegum Beckett-hátið- um. Eftir krókaleiðum höfðu þessir áhugamenn fengið nasa- sjón af sýningu LA á Beðið eftir Godot, og föluðust þeir eftir að fá hana á hátiðina. Ekki vantaði áhugann hjá LA, en nú sem oft- ar voru fjármálin aðal þrándur i götu. En með góöum stuðningi margra aðila, s.s. Akureyrar- bæjar, menntamálaráðuneytis, hinna ýmsu fyrirtækja SIS, Smjörlikis h.f. og Arnarflugs, tókst að hrinda ferðinni i fram- kvæmd. Sigmar B. Hauksson tók að sér skipulagninu og fjármál ferðalanganna og sagöist hon- um svo frá á blaöamannafundi, að sýningin heföi vakiö gífur- lega athygli, enda sé islenskt leikhús óþekkt utan Norður- landanna. Ekki virtist það koma að sök, að leikritið var flutt á islensku, enda voru þátttakend- ur i hátiðinni sérfræðingar i Beckett. Sagöi Sigmar umsögn um sýninguna hafa birst i Irish Times, þar sem lögð var áhersla á hve vel heppnuö leikstjórn og leikur i verkinu væri og leik- mynd, sem Magnús Tómasson gerði óvenjuleg. Einnig lét bandariskur gagnrýnandi þau orð falla um sýninguna i út- varpi, að hún hefði ekki séð betri sýningu á verkum Becketts á siðustu 10 árum. 1 kjölfar sýningarinnar barst leikendum boð um að sýna i Dublin og Cork. En þar sem fyrirvari var ónægur, urðu þeir að afþakka gott boð að sinni. En allar likur til að þegið verði boð um aö koma með sýninguna til Hollands. Oddur Björnsson, fráfar- andh leikhússtjóri h já LA og leik stjóriaö „Beðið eftir Godot” lét þau orð falla, að hann áliti þessa sýningu listrænan hápunkt á leikhússtjóraferli sinum. Að- spurður um aöstæöur LA nú, en eins og kunnugt er hefur Leik- félag Akureyrar látið i veðri vaka, að það muni ekki starf- rækja leikhús i vetur, svaraði Oddur þvi, að sér þætti miður, hvernig komið væri. — En það verður að gera sér grein fyrir þvi, aö það þarf breyttar for- sendur fyrir áframhaldandi rekstri. Samfélagið er litið og til aö starfrækja leikhús á Akur- eyri þarf að koma til meiri styrkur en verið hefur. Enn er þó ekki öll nótt úti, yfir standa viðræður milli LA og mennta- málaráðuneytisins, og er von- andi að þær leiði til árangurs.” Nokkrir aöstandendur leikfarar Leikfélags Akureyrar til Irlands. T.f.v. Magnús Tómasson, sem gerði ieikmynd og búninga, Viðar Eggertsson, sem lék Lucky, Oddur Björnsson leikstjóri verksins og Sigmar B. Hauksson, sem annaðist fjáröflun og fararstjórn. (Timamynd Þormóöur) Stúdentakórinn á æfingu i Lundi. Stúdentakór Háskólans í w — heldur tvenna .11T1II1 minningartónleika um Róbert A. Ottósson AB — Stúdentakór Háskólans i Lundi (Lunds studentsangforen- ing) er á tónleikaferð um ísland dagana 14.-20. sept. Þetta er fyrsta ferð þeirra til islands. Kór- inn heldur tónleika i Reykjavik, kirkjutónleika i Háteigskirkju sunnudaginn 14. sept. og verald- lega tónleika i hátiðasal Mennta- skólans við Hamrahlið föstudag- inn 19. sept. Auk þess heidur kór- inn tónleika i Skálholtskirkju, á Dalvik og á Akureyri. Pianóleikari kórsins Viggó Edén, heldur einnig pianótónleika i Norræna húsinu laugardaginn 20. sept. A efnisskrá kórsins eru m.a. is- lensk tónverk: Islenskur kirkju- söngur frá miðöldum, Þorlákstiö- ir, og tónverk eftir Pál Pam- pichler Pálsson og Róbert A. Ottósson. Dr. Folke Bohlin er stjórnandi kórsins, en hann er dósent i tón- visindum við Lundarháskóla og einn af máttarstólpum sænsks tónlistarlifs. Kórinn hefur ferðast mikið er- lendis, m.a. til Bandarikjanna og um gjörvallt meginland Evrópu. Kirkjutónleikarnir, sem kórinn heldur, eru tileinkaðir minningu tónlistarmannsins og fræði- mannsins dr. Róberts A. Ottós- sonar. Hann dó 1974 i Lundi, en þar var hann staddur á visinda- ráðstefnu i boði Folke Bohlin. Kórinn syngur 3 verk sem öll eru tengd nafni dr. Róberts A. Ottós- sonar. Dagskrá yfir ferð kórsins verð- ur sem hér segir: Sunnud. 14. sept. kl. 20.30. Minningartónleik- ar um dr. Róbert A. Ottósson i Háteigskirkju. Aðgangur verður ókeypis. Mánud. 15. sept. kl. 21. Minningartónleikar um dr. Róbert A. Ottósson i Skálholts- kirkju. Ökeypis aðgangur. Þriðjud. 16. sept. kl. 21 Tónleikar i Vikurröst Dalvik. Miðvikud. 17. sept. kl. 20.30 Tónleikar i Akur- eyrarkirkju. Föstud. 19. sept. kl. 12 Skólatónleikar i Menntaskól- anum við Hamrahlið, og á sama stað kl. 20.30 verða almennir tón- leikar (veraldleg efnisskrá). Siðastir verða svo pianótónieikar Viggo Edén i Norræna húsínu laugard. 20. sept. kl. 17. Helgarskákmótið á Húsavik: Elsti kepp- andinn 65 ára — Fjórða Helgarskákmót tímaritsins Skákar og Skáksambands Islands hófst á Húsavík i gær. Margir okkar bestu skák- manna taka þátt í mótinu. Friðrik ólafsson gat þó ekki komið þvi við vegna anna. Bæjarstjórinn á Húsa- víky Bjarni Aðalgeirsson, bauð þátttakendur vel- komna til keppninnar og ávarpaði siðan Hjálmar Theodorsson, hinn kunna skákmann á Húsavik. Hjálmar hefur orðið Suð- urnesja- og Norðurlands- meistari i skák og var um skeið i landsliðsf lokki. Hannvar einmitt 65 ára t gær og eru liðin 50 ár síðan hann hóf skákferil sinn. Af þvi tilefni var honum afhentur blómvöndur frá bæjarstjórn Húsavíkur. Guðmundur Arnlaugsson fyrrverandi rektor er gestur á mótinu.Hann ávarpaöi Hjálmar og minntist hilda er hann og Hjálmar höföu háð við skák- boröið á Norðurlandsmóti og i landsliðsflokki. Hann færöi Hjálmari bók aö gjöf frá aö- standendum helgarskákmóts- ins. Hjálmar keppir i mótinu og i 1. umferð stýrði hann hvitu mönnunum gegn Guðmundi Sigurjónssyni stórmeistara. Þá taka 3 góðar skákkonur þátt i mótinu. i 1. umferö tefldi Sigur- laug Friðþjófsdóttir við Helga Ólafsson, Aslaug Kristjánsdótt- ir við Jóhann Hjartarson og Ólöf Þráir.sdóttir við Asgeir Þ. Arna- son. AB — Sunnudaginn 14. þessa mánaðar kynnir Geir Viðar Vilhjálmsson, sálfræðingur efnið „Slök- un gegn streitu" með fyrirlestri og æfingum. Kynning þessi verður frá 15 til 18 og fer fram í Nor- ræna Húsinu. Kynningin er liður i undirbúnings- kennslu á haustmisseri hjá Rannsóknarstofnun vitundarinnar. Fjallað veröur um likamleg- ar, tilfinningalegar og huglægar hliöar slökunar, og fólki kynntar byrjunaræfingar til slökunar. Þátttaka i slikri kynningu er forsenda þess aö komast á nám- skeiö stofnunarinnar um „Ráö gegn streitu”,sem haldin veröa i haust. Geir V. Vilhjálmsson. Slökun gegn streitu Víkinga- sýning í New York Mikil vikingasýning veröur opnuð i New York 24. þ.m. Við opnunina veröa allir utan- rikisráðherrar Noröurlanda viöstaddir. Þjóöhöfðingjum Norðurlanda hafði einnig verið boðiö, en þeir skoruðust undan að þiggja það. Asamt ólafi Jóhannessyni utanrikisráöherra, mun Ingvar Gislason menntamála- ráðherra og Höröur Helgason ráðuneytisstjóri mæta við opnunina.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.