Tíminn - 13.09.1980, Side 16

Tíminn - 13.09.1980, Side 16
Gagnkvæmt tryggingafélag Nýja fasteignasalan Ármúla 1. Sími 39-400 MSOI Laugardagur 13. september 1980 Tillaga Björgvins Guðmundssonar til athugunar: FRJALSARI OPNUNAR- TÍMA VERSLANA JSG — Björgvin Guömundsson hefur í nefnd, sem fjallar um opnunartima á vcgum Borgar- stjórnar Reykjavikur, lagt fram tillögu um breytingu á reglum um opnunartíma verslana f borginni. Björgvin sagfti f sam- tali við Timann i gær, að i tiilög- unum fælist að gefinn yrði möguleiki til að hafa opið á fimmtudagskvöldum, föstu- dagskvöidum, og laugardögum til kl. 4 siðdegis. „Tillögurnar ganga út á að innleiða nokkurs konar valtima fyrir verslanir, þannig að þær gætu haft til frjáfsiarákvörðuna | átta stundir á viku, utar. luns i fasta afgreiðslutfma sem er frá 8 til 6 og til hádegis á laugar- | dögum. Verslanirnar yrðu að velja á milli hvort þær vildu hafa þessa opnun á fimmtu- dagskvöldum, föstudagskvöld- um, eða á laugardagseftirmið- dögum. Þær gætu ekki notað all- an þennan tima”. sagði Björg- vin. „Útgangaspunkturinn i þessu er sá, að það er i rauninni ekki veriðað lengja opnunartimann, frá þvi sem er i gildandi reglu- gerð, heldur er verið að veita aukið svigrúm og valfresli”. Björgvin Guðmundsson sagði að skylt fyrirkomulag væri i Danmörku, og þar væri eftirliti með að reglunum væri fram- fylgt á þann hátt að innsiglað skilti utan á verslununum segði til um hver opnunartimi við- komandi verslunar væri. Þannig væri auðvelt fyrir lög- reglu að fylgjast með að farið vaeri að reglum. „Eitthvað svipaö yrði aö hafa hér” sagði Björgvin. í nefnd borgarstjórnar eka sæti þrir borgarfulltrúar, en sið- an fulltrúar frá Neytendasam- tökunum, Kaupmannasamtök- unum, Verslunarmannafélagi Reykjavikur og Kvenfélags- sambandi Islands. Kvennafulltrúinn var ekki mættur á fundi nefndarinnar þar sem tillagan var kynnt, en Björgvin kvaö fulltrúa Neyt- endasamtakanna, Árna Berg Eiriksson, hafa lýst sig sam- þykkantillögunni, ogsömuleiðis hefði hún hlotið góðar undirtekt- ir hjá borgarfulltrúunum. Hins vegar hefðu kaupmenn og versl- unarmenn viljað kynna hana i samtökum sinum. „Ég legg mikla áherslu á að fá þessi samtök inn á þessar breytingar og er sæmilega bjartsýnn á að það takist”, sagði Björgvin Guðmundsson. Magnús Finnsson, fulltrúi Kaupmannasamtakanna, kvað samtökin fUs til viðræðna um endurskoðun á gildandi reglum, en sagðist um leið ekki trúa þvi að borgaryfirvöld færu út i breytingar sem verslunarmenn og kaupmenn væru andvigir. (Sjá viðtal á bls. 19). Raunin hefur orðiö sú, t.d. með opnun á þriðjudagskvöldum, að þessi samtök geta með samkomulagi sin á milli komið i veg fyrir að leyfilegur opnunartimi sé nýtt- ur. Viðræður ASI og VSI I gang að nýju: Sáttatillaga lögð fram JSG— Sáttasemjari rikisins lag.ði I gær fram sáttatillögu, sem fjall- aðiutn röðun i launaflokka, I deilu Alþýðusambandsins og Vinnu- veitendasambandsins. Sérsam- böndin innan ASt og samnings- aðilar þeirra í VSt fengu þessa til- lögu i hendur, en I dag verður haldinn sameiginlegur sáttafund- ur þar sem samningsaðilar munu túlka afstöðu sina til tillögunnar. „Sáttasemjari ætlaöist ekki til svars á stundinni,” sagði Snorri Jónsson I samtali við Tlmann i gær,” en hann tók fram að hann vildi heyra viöbrögö okkar við til- lögunniáður en viö ræddum hana við fjölmiðla.” Innanhússtillögu sáttanefndar mun ætlað að stytta það bil sem veriö hefur milli deiluaðila um flokkarööunina, en ekki er búist við að hún verði lausn á samningamálunum. „Óttast að thninn renni út úr höndum okkar” JSG — Steingrimur Hermanns- son, sjávarútvegsráðherra , hafði samband við blaðið og óskaði að koma því á framfæri að með orð- um sinum um fundahöld efna- hagsmálanefndar sem birtust á baksiðu Timans I gær, væri hann ekki út af fyrir sig að gagnrýna störf nefndarinnar. Þær hug- myndir sem hún heföi lagt fram væru góðra gjalda verðar og sumar hverjar mjög mikilvægar. ,ÍIn ég tel almennt séð að það hafi dregist of mikið að taka þarna afstöðu og þvi hefur valdið ýmislegt. Ég viðurkenni að vissu- lega hefur málið einnig tekið of langan tíma I ríkisstjórninni, vegna fjarveru manna og mikilía anna. Ötti minn er sá, að tfminn renni út úr höndum okkar, eins og svo oft hefur gerst áður, og það þarf að taka mjög til hendinni i bessum málum nú á næstu dögum og vikum,” ságði Stéingrimur Hermannsson. Skyidi hún vera að semja fjallkonuávarpiö? Ekki er ráö nema I tima sé tekið. En svona án gamans, þá vitum við satt að segja ekki, hvaöa „uppákoma” þetta var f Lækjargötunni I gær þegar Ijósmyndari Timans tók þessa mynd. Tfmamynd Róbert. Nýjar fregnir um flugvélaverð erlendis: Hærra en matið á vélum Flugleiöa JSS — „Okkur hafa borist þær fregnir að nú fyrir skömmu hafi fariö fram bein sala á ut'-8 «3, þ.e. vél eins og viö erum með. Þessi sala fór fram hjá World Airways og þar var vélin seld á 13 milljónlr dollara. Til samanburð- ar má geta þess, að okkar vél af sömu gerð var I endurmatinu metin á 12 milljónir doilara”, sagði Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi Flugieiða, er Timinn ræddi við hann I gær. Sagði Sveinn, að einn þeirra þátta endurmats á eignum Flug- leiða, sem gagnrýndur heföi verið i fjölmiðlum, væri einmitt matið á flugvélakosti fyrirtækisins. Hefði t.d. Baldur Öskarsson dregið mjög i efa að þetta mat væri rétt Framhald á bls 19 Viðbúnaður hjá Reykjavíkurlög- reglunni fyrir helgi Aukalið kallað út KL — Vegna fenginnar reynslu undanfarnar helgar, hafði lögreglan I Reykjavik nokkurn viðbúnað i gær- kvöld, ef til óláta kæmi i mið- bænum, eins og gerst hefur undanfarnar helgar. Var I gærkvöld ákveðið að hafa 30 manna aukalið til taks ef á þyrfti að halda. Hafa ber þó i huga, að þarna er ekki um hreina viðbót við vakthafandi lögreglulið að ræða, þar sem sumarleyfi standa enn yfir, auk þess sem lögregluskólinn hefur tekið til starfa. Talsverðar annir voru hjá lögreglunni i Reykjavik i gærdag. Um kl. 20 i gærkvöld höfðu orðið 15 árekstrar frá hádegi. Engin slys urðu á fólki, en eignatjón talsvert. Tenging Stekkjarbakka við Reykjanesbraut: Beina tenging- in valin Kás — Borgarráð tók i gær endanlega ákvörðun, i um- boði borgarstjórnar, um að Stekkjabakki yrði tengdur Reykjanesbraut, svokallaðri beinni tengingu, én gatan yrði ekki lögð i götustæði svonefndrar Fossvogsbraut- ar. Fulltrúar meirihlutans greiddu þessari tillögu at- kvæði sitt, en fulltrúar minnihlutans voru á móti. Þorskaflinn fyrstu átta mánuði bessa árs: Kominn í 325 þús. Kás — Á fyrstu átta mánuðum þessa árs höfðu veiðst hér við land rúm 325 þús. tonn af þorski. A sama timabili i fyrra höfðu veiðst rúmlega 300 þús. tonn. 1 ágústmánuöi þessa árs veiddust um 25.600 tonn af þorski, miðaðvið tæp 28 þús. tonn i sama mánuði i fyrra. Fyrrnefndar upplýsingar koma fram i bráðabirgða- yfirliti Fiskifélags Islands um fiskveiði hér við land fyrstu átta mánuði þessa árs. Heildarfiskafli lands- manna fyrstu átta mánuði þessa árs er um 900 þús. tonn. Á sama tima i fyrra var hann um 1066 þús. tonn. Ekið á 5 ára telpu KL—Tvö umferðarslys urðu I umdæmi Hafnarfjarðarlög- re^glunnar i gær. Laust eftir hadegið var ekið á 5 ára gangandi telpu á Hjalla- braut. Var farið með hana á slysadeild, en um meiðsli var ókunnugt um kvöldverð- arleytið. Þá var ekið á dreng á reiöhjóli á Álftanesvegi, en hann mun hafa meiðst litið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.