Tíminn - 03.12.1980, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 3. desember 1980
3
Kjördæmisþing framsóknarmanna
i Norðurlandskjördæmi eystra:
Frá aðalfundi Öryrkjabandalagsins:
Framfarir í mál-
efnum öryrkja
EKJ — Aðalfundur öryrkja-
bandalags Islands var haldinn 30.
október siðastiiðinn. öryrkja-
bandalagið sem er samtök 10
öryrkjafélaga hefur starfað f 19
ár. Bandalagið á nú 4 háhýsi, 3 f
Reykjavik og eitt iKópavogi, og
eru það samtals 249 ibúðir, sem
það hefuryfir að ráða, ennfremur
er leigt piáss til öldrunardeilda
Landspitalans og 2 hæðir til
Kleppsspitala. Vinnustofa er
einnig rekin I húsum bandalags-
ins á þess vegum.
A aðalfundinum voru sam-
þykktar margar ályktanir m.a.
um aö skora á heilbrigðisyfirvöld
að bæta hið fyrsta aðstöðu
fatlaðra til skurðaðgeröa og enn-
fremur að tryggja lungnasjúkum
hæfilegan sjúkrarUmafjölda, um
að skora á stjórnvöld að lögleiða
notkun bllbelta og hnakkapúða,
um að Fasteignamati rikisins
verði falið að kanna aö setja i
táknmál sitt tákntölu, sem veiti
upplýsingar um aðgang fatlaðra
aðhúsnæðinu. Þá var eftirfarandi
ályktun samþykkt:
„Aðalfundur öryrkjabandalags
Islands skorar á konur landsins
að sinna tilmælum heilbrigðis-
yfirvalda um bólusetningu vegna
rauðra hunda. Fyrirbygging
þessa sjúkdóms er verulegur
liður i fækkun fatlaðra vegna
meöfæddra örkumla og þvi
ómetanleg aðgerð i þjóðarheild-
inni”.
Þá hvatti fundurinn rikisstjórn
og sveitarstjórnir að flýta sem
verða má byggingu sundlaugar
við Grensásdeild I Reykjavfk og
minnti jafnframt á fyrirhugaöar
sundlaugar við endurhæfingar-
stöð Sjálfsbjargar á Akureyri og
við Landsspitalann i Reykjavik,
jafnframt fagnaöi fundurinn
þeim vaknandi skilningi stjórn-
valda og almennings á þörfinni
fyrir sundlaugar við endurhæf-
ingarstöðvar. Þá fagnaði fundur-
inn þingsályktun um málefni
hreyfihamlaðra, sem samþykkt
vará Alþingi i maís.l., en það var
áskorun á rikisstjórnina um að
láta gera úttekt á nauðsynlegum
endurbótum á opinberu húsnæði
Framhald á bls 19
Aðalfundur Félags háskólakennara:
Gerir Háskólinn jafn
vel við Halldórsstaði
eins og Herdísarvík?
Krá l'undinum i Lögbergi.
Ljósm.: G.T.K.
Aðalfundur Félags
háskólakennara var haldinn i
siðustu viku. Fundurinn var
haldinn i Lögbergi og fundar-
stjóri var Jón R. Stefánsson.
Formaður félagsins Gunnar
G. Schram flutti skýrslu
stjórnar og kom fram að stari'ið
var hið þróttmesta. Háskóla-
kennarar byggöu sumarbústað i
.Brekkuskógi i Biskupstungum á
árinu, héldu fundi um bygg-
ingarmál skólans og rann-
sóknarmálin, fóru i heimsókn i
háskólastofnanir og héldu veg-
lega ársháti'ð og jólaíagnað.
1 máli Gunnars kom fram að
félagið hafi leitað hófana á þvi
við rektor háskólans, Guðmund
Magnússon, að nýta land
Háskólans að Halldórsstöðum i
Laxárdal til sumardvalar. Hef-
ur verið imprað á þessu máli
við framkvæmdastjóra Laxár-
virkjunar, Knút Ottestedt, en
Laxárvirkjun á hús aö
Halldórsstöðum. Tók Knútur
málaleitaninni vel.
Þá fjallaði Gunnar um
launamál háskóiamanna ogþótti
það litiö að þeir fengju 0,7%
kauphækkun á sama tima þegar
aðrar stétir fengju þetta
Gunnar G. Schram flytur skýrslu stjórnar.
10—12% kauphækkun. Einnig
kom fram i máli hans að
skammt hefði miðað i svoköll-
uðu fæðismáli og þurfa flestir
háskólakennarar ennþá að fara
heim til sin i mat, þótt flestir
aðrir hafi mötuneytisaðstöðu á
vinnustað.
Úr stjórn áttu aö ganga, for-
maðurinn Gunnar G. Schram,
ritarinn Guðlaugur Tryggvi
Karlsson og gjaldkerinn Maria
Jóhannsdóttir. Voru tveir fyrr-
nefndu endurkjörnir, en þar
sem Maria gaf ekki kost á sér til
endurkjörs var Stefán
Svavarsson kjörinn i hennar
stað. Aðrir i stjórn eru Jónas
Hallgrimsson og Jón Bragi
Bjarnason.
— G.T.K.
Menntaskólanum við Hamrahlíð berst dýrmæt bókagjöf:
600 bindí þýskra bóka
— úr safni Ingvars G. Brynjólfssonar yfirkennara
BST Menntaskólanum viö
Ilamrahlið hefur borist mikil og
góð bókagjöf. Það eru erfingjar
lngvars G. Brynjólfssonar yfir-
kennara, sein gáfu skólanum
nær 600 bindi bóka úr bókasafni
Ingvars að honum látnum.
Flestar bækurnar eru á þýsku,
og þær eru uni margvisleg cfni.
Stærstur er flokkur orðabóka og
ýmissa rita til þýskukennslu,
cinnig rit þýskra öndvegishöf-
unda og bækur um þýskar bók-
mennttr.
Ingvar Brynjólfsson var
þýskukennari við skólann frá
stofnun hans 1968, en hafði áður
verið kennari áratugum saman
við Menntaskólann i Reykjavik.
Hann lést 28. jan 1979, tæplega
65 ára að aldri. A kennslutið
hans við M.H. hafði hann gefiö
skólanum dýrmætar bókagjafir,
m.a. þýskar þýðingar allra
tslendingasagna.
Bókagjöfin til skólans frá
erfingjum Ingvars heitins var
afhent skólanum á siðastliðinni
vorönn. Bækurnar hafa nú verið
flokkaðar og skráðar og hefur
þluta þeirra verið komið upp I
sýningarskápum við bókasafn
Menntaskólans við Hamrahlið.
Verður sýningin höfð uppi fram
yfir áramót og er hinum fjöl-
mörgu nemendum lngvars sér-
staklega boðiö að koma og sjá
sýninguna meðan skólahusið er
opið.
Væntir að stjómar-
samstarfið haldist
allt kjörtímabilið
HEI — Kjördæmisþing fram-
sóknarmanna i Norðurlandskjör-
dæmi eystra, er haldið var 8.-9.
nóv. s.l., harmar að ekki hefur
enn náðst meiri árangur í niður-
talningu verðbólgunnar og hvetur
tii þess að nú sé einskis látið
ófreistað i þvi efni á kjörtlmabil-
inu, að þvi er segir I ályktun
þingsins. Jafnframt minnir
þingið á nauðsyn góðrar sam-
vinnu milli rikisvalds og aðila
vinnumarkaðarins, ef takast eigi
að sigrast á efnahagsvandanum
og mikilvægt sé að stéttasam-
tökin geri sitt til þess að treysta
jafnan jákvæða samvinnu aðila
um aðgerðir I efnahags og at-
vinnumálum.
Þingið telur það eitt aðalverk-
efni stjórnvalda að berjast gegn
verðbólgunni með ákveönum að-
haldsaðgerðum er varöa verðlag,
peninga og vaxtamál, gengi, fjár-
festingu og rikisfjármál. Niður-
talning verðbólgunnar verði að
vera markviss og ákveðin og ekki
aðeins bundin verölagi á vörum
og þjónustu, heldur einnig taka til
verðbóta á laun, ákvaröana um
búvöruverð, fiskverð og gengis-
breytinga. Auk þess sé sérstaks
aðhalds gætt i rikisfjármálum og
rekstri rikisfyrirtækja, svo þess
sjáist merki að rikisvaldið gangi
á undan i þeim sparnaði og hag-
sýni i rekstri þjóðarbúsins sem
menn eru sammála um aö sé íór-
senda þess að unnt sé aö komast
út úr vi'tahring verðbólgunnar.
Væntir þingið þess aö stjórnar-
samstaríið haldist allt kjörtima-
bilið, svo rikisstjórnin fái tilætl-
aðan ti'ma til að vinna að verö-
bólguhjöðnuninni og öörum um-
bótamálum.
Kjördæmisþingið telur upp-
byggingu útflutningsiðnaðar
brýnt viðfangsefni, sem timabært
sé að sinna af fullri alvöru.
Minnir þingið á, að skipulag
meiriháttar útflutningsiðnaöar
krefjist mikils undirbúnings, þar
sem taka verði tillit til margra
sjónarmiða.
Þá itrekaði þingiö aö byggöa-
stefnan er leiðarljós Fram-
söknarflokksins i landsmálum,
svo að ekki verði út af brugðið.
Þótt miklu hafi veriö áorkaö i
byggðamálum siðustu 10 ár, sé
sist ástæða til að slaka á i þeim
efnum. Landsbyggðin geti þvi aö-
eins haldið hiut sinum og þróast
eðlilega að byggðastefnan sé i
heiðri höfð á öllum sviöum.
1 stjórn kjördæmisráðsins voru
kjörin: Haukur Halldórsson, for-
maður, Þóra Hjaltadóttir vara-
formaður, Egill Olgeirsson ritari,
Hákon Hákonarson gjaldkeri og
meðstjórnendur þeir: Björn Guð-
mundsson, Aðalbjörn Gunnlaugs-
son og Tryggvi Gislason. Vara-
menn voru kjörnir: Ari Teitsson,
Ólafur Friðriksson og Aðaigeir
Olgeirsson. i miðstjórn voru
kosin: Hilmar Danielsson, Jó-
hann Helgason, Hákon Hákonar-
son, Sigurður oli Brynjólfsson og
Ingi Tryggvason úr hópi eidri
mannaog Niels A. Lund, Egill 01-
geirsson og Þóra Hjaltadóttir af
yngri mönnum. Til vara voru
kjörnir: Tryggvi Gislason, Aöal-
geir Sigurðsson, ólafur Friðriks-
son, Sigurður Gizurarson, Sig-
urður Jóhannesson, Valgerður
Sveinsdóttir, Hétur Björnsson og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Knýja þarf
fram aögerðir
„Miðstjórnarfundur SUF, hald-
inn I Reykjavik 29. nóvember
1980, telur að ráðherrar og þing-
menn flokksins verði nú þegar að
knýja fram þær aðgerðir gegn
efnahagsvandanum sem boðaðar
hafa verið.
Ef ekki tekst nú, með gjald-
miðilsbreytingunni, að ná fram
samræmdum aðgerðum innan
rikisstjórnarinnar, telur fundur-
inn að kalla beri saman miðstjórn
flokksins til að endurskoða aðild-
ina að rlkisstjórninni.”
Þannig hljóðar ályktun sem
gerð var á miðstjórnaríundi Sam-
bands ungra Framsóknarmanna,
en fundurinn var haldinn i
Reykjavik um sl. helgi.
A fundinum var f jallað um þrjá
megin málaflokka:
Starfsáætlun. Stefna skal að
stórauknu starfi Félagsmála-
skóla flokksins og voru ályktanir
þess efnis.
Kosningaréttur og Kjördæma-
málið.Framsögumenn voru Páll
Pétursson formaður þingflokks
Framsóknar og Jón Sigurðsson
ritstjóri Timans. Ræður þeirra
eru gott veganesti þar til haldin
verður ráðstefna um þessi mál
fljótlega eftir áramótin.
Stjórnmálaviðhorfið. Stein-
grimur Hermannsson flutti i
byrjun ræðu um hvernig ástand
þjóðarbúsins er og hvað helst er
til úrbóta. Umræður urðu fjörug-
ar og tóku margir til máls.