Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 1
Mikill fjöldi sumarhúsa
og lóða undir sumarhús er nú til
sölu hjá fasteignasölum. Framboð
af eldri húsum virðist stöðugt, en
meira af nýjum sumarbústöðum
er í sölu nú en áður að mati fast-
eignasala sem vel þekkir til. Tæp-
lega 600 sumarbústaðir víða um
land eru nú skráðir til sölu á fast-
eignavef mbl.is.
Miðað við eftirspurnina eins og
hún er í dag er svo mikið til af
skipulögðu svæði á Íslandi að „við
eigum nóg til næstu þriggja alda,
það vantar bara fólk,“ segir Sveinn
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands sumarhúsa-
eigenda.
Hann segir að ákveðins tryll-
ings hafi gætt þegar athafnamenn
hafi keypt upp jarðir og skipulagt
sumarhúsabyggð, en sér virðist sá
bransi erfiðari en einhverjir hafi
talið í upphafi. „Það eru fjölmarg-
ir byggingaraðilar sem hafa verið
að kaupa lóðir, jafnvel í tugum
talið. Þeir kaupa í þeim eina til-
gangi að flytja inn einingahús [...]
sem eru ódýr í framleiðslu og ætla
sér að græða stórkostlega á þessu
öllu saman,“ segir Sveinn.
Mikið framboð á lóðum ætti að
sögn Sveins að þýða lækkandi
lóðaverð fyrir sumarhús, þó lækk-
un virðist láta bíða eftir sér. Til
séu dæmi um svæði þar sem reynt
sé að halda uppsprengdu verði á
lóðum, en það sé í sérstökum til-
vikum á borð við sumarhúsabyggð
í Dagverðarnesi í Borgarfirði, þar
sem nýir eigendur hyggist græða
því að leigusamningar séu að
renna út, og setji allt að 40 millj-
óna verðmiða á hektarann.
Framboð af sumarhúsum og
lóðum undir sumarhús hefur verið
mikið undanfarið, segir Magnús
Leópoldsson fasteignasali. Hann
segir það tengjast því að fjárfest-
ar kaupi land, skipuleggi lóðir og
ætli svo að flytja inn einingahús,
til dæmis frá Lettlandi.
Magnús segist ekki hafa rann-
sakað málið sérstaklega, en segir
að það líti út fyrir að stór hluti af
þessu landi eigi eftir að enda sem
sumarbústaðalóðir, og að flutt
verði inn hús á þær gangi sala
eftir.
Þetta kunni að skýra að fram-
boð af nýjum sumarhúsum virðist
ívið meira nú en það hafi verið, en
framboð af eldri húsum hafi verið
nokkuð stöðugt.
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
Minna tap | Flaga Group tapaði
fyrir sem nemur ellefu milljónum
króna á öðrum ársfjórðungi þessa
árs. Tapið er um þrisvar sinnum
minna en á sama tíma í fyrra.
Verðbólgukúfur fram undan |
Bankarnir spá aukinni verðbólgu
fram yfir áramót. Landsbankinn
spáir hröðum bata þegar kemur
fram á næsta ár, en Kaupþing
og Glitnir telja hjöðnunina verða
hægari.
Bakkavör kaupir | Bakkavör
hefur fest kaup á breska matvæla-
fyrirtækinu Exotic Farm Produce.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í
Lincoln-skíri á Bretlandi og hjá
því starfa 370 manns.
Finnur floginn | Finnur Ingólfs-
son, stjórnarformaður Icelandair,
hefur selt alla eigin hluti í félag-
inu. Karl Wernersson og Einar
Sveinsson taka kjölfestu í félaginu
í gegnum félagið Mátt.
Mikill viðsnúningur | Orku-
veita Reykjavíkur hagnaðist um
8,2 milljarða króna eftir skatta á
fyrstu sex mánuðum ársins sam-
anborið við 4,8 milljarða króna tap
á sama tímabil í fyrra.
Góð skýrsla | Í nýrri skýrslu Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland
eru horfur íslenska hagkerfisins
sagðar mjög góðar. Það búi meðal
annars yfir opnum og sveigjanleg-
um mörkuðum og traustu stofn-
anakerfi og stjórnsýslu.
Byr hagnast | Hagnaður Byrs
sparisjóðs nam rúmum 4,3 millj-
örðum króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins samanborið við
698,6 milljónir króna á sama tíma
í fyrra. Þetta er 521,7 prósenta
aukning á milli ára.
Metafkoma SPRON | SPRON var
rekinn með 10,1 milljarðs króna
hagnaði á fyrri hluta ársins, sem
er tæplega fjórfalt meiri hagnað-
ur en á sama tíma í fyrra. Þetta
var metafkoma.
Íslensk verðbréf hf.
Allur hagnaður
til hluthafa
12
Fasteignafélagið Stoðir
Orðið stærst á
Norðurlöndunum
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Erlend sérfræðiþekking
Lykillinn að
samkeppnis-
hæfni Íslands 8-9
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Fimm stærstu sparisjóðir landsins, sem mynda
stærstan hluta sparisjóðakerfisins, voru reknir með
22,3 milljarða króna hagnaði á fyrri hluta ársins,
sem er ríflega fjórfalt meiri hagnaður en á sama
tíma í fyrra. Samanlögð afkoma sparisjóðanna er
nú þegar orðin meiri en allt árið 2006, þegar þeir
högnuðust um 18,3 milljarða króna. Aðeins Spari-
sjóðurinn í Keflavík er undir hagnaði alls síðasta
árs.
Hreinar rekstrartekjur sjóðanna námu alls 31
milljarði króna, sem var um þreföldun á milli ára,
en til samanburðar voru þær um 32 milljarðar
króna árið 2006.
Þegar grannt er skoðað er afkoma þessara spari-
sjóða borin uppi af fjárfestingum en ekki af ávinn-
ingi af bankaþjónustu við einstaklinga og smærri
fyrirtæki, þar sem styrkur sparisjóðanna hefur
legið í gegnum tíðina. Sparisjóðirnir taka hagnað
sinn fyrst og fremst í gegnum gengishækkanir
hlutabréfa og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga í
fjármálatengdri starfsemi. Þrír þessara sparisjóða,
SPRON, Sparisjóður Mýrasýslu og SpKef, hafa
verið meðal stærstu hluthafa í Existu, sem hækkaði
um meira en helming á fyrri hluta ársins. Þá var af-
koma hlutdeildarfélaga á borð við Icebank góð og
sumir sparisjóðanna tóku drjúgar tekjur í gegnum
eignarhluti í fjárfestingarbönkunum VBS, MP og
Frjálsa og gengishækkanir í öðrum sparisjóðum.
Aðrar rekstrartekjur en vaxta- og þóknanatekjur
voru um 87 prósent af hreinum rekstrartekjum en
um 74 prósent allt árið 2006.
Grunnrekstur stóru sparisjóðanna virðist ekki
standa undir rekstri þeirra. Þrettán prósent
rekstrartekna voru hreinar vaxta- og þóknanatekjur
og drógust hreinar vaxtatekjur alls saman um
fimmtung á milli ára. Hreinar vaxtatekjur SPRON,
SpKef og Sparisjóðs Kópavogs drógust þannig
saman á milli ára. Hafa ber þó í huga að eignarhlutir
í öðrum fjármálafyrirtækjum bera annars konar
tekjur en vaxtatekjur. Ef losað væri um þessa hluti
væri auðvitað hægt að skapa miklar vaxtatekjur.
Ekki er loku fyrir það skotið að gengishagnaður
haldi áfram að marka afkomu sparisjóða. Fyrirhuguð
skráning Icebank í Kauphöll á næsta ári mun án
nokkurs vafa leysa úr læðingi mikinn hagnað fyrir
alla sparisjóði landsins.
Reknir á gengishagn-
aði sem aldrei fyrr
Fjórir af fimm stærstu sparisjóðum landsins högnuðust
meira á fyrri hluta ársins en allt árið 2006. Aðeins þrettán
prósent rekstrartekna komu frá grunnstarfsemi.
A F K O M A F I M M S TÆ R S T U S PA R I S J Ó Ð A N N A
Hagn. 2007 Hagn. 2006 Hlutfall
SPRON 10.129 2.627 11%
SpKef 4.637 1.057 8%
Byr 4.342 699 22%
SPM 2.410 921 15%
SPK 811 96 12%
Alls 22.329 5.400
*Hlutfall grunntekna af hreinum rekstrartekjum
Viðhorf Dana til íslenskra fjár-
festa skána hægt og rólega að
sögn Skarphéðins Berg Steinars-
sonar, forstjóra Stoða. Skarphéð-
inn telur þá ákvörðun þrjú hundr-
uð danskra fjárfesta að taka bréf
í Stoðum í skiptum fyrir hluti
sína í Keops vera til marks um
þessa viðhorfsbreytingu. „Fyrir
skömmu hefði þótt óhugsandi að
danskir fjárfestar ættu bréf í ís-
lensku félagi sem enn er óskráð,“
sagði Skarphéðinn.
Karsten Poulsen, framkvæmda-
stjóri Keops, segist oft á tíðum
hafa orðið forviða á neikvæðri
umfjöllun um íslenska fjárfesta
í Danmörku, enda hafi hann ekk-
ert nema gott um Íslendingana
að segja. „Ég held að ástæðan sé
einfaldlega sú að Íslendingarnir
eru snöggir að taka ákvarðanir,
og fljótir að láta kné fylgja kviði.
Nokkuð sem kannski tíðkast ekki
hér í Danmörku.“ - jsk / sjá bls. 6
Þátttaka Dana
merki um við-
horfsbreytingu
Ísland og Lettland eru þau lönd
Evrópu sem verða verst úti vegna
herts aðgengis að lánsfé á alþjóða-
mörkuðum, í kjölfar bandarísku
húsnæðislánakrísunnar. Þetta kom
fram í skýrslu matsfyrirtækisins
Standard and Poor´s.
Fram kemur að ofþensla hafi
verið í íslenska hagkerfinu undan-
farin misseri; húsnæðismarkaður-
inn hafi verið í hæstu hæðum og
eftirspurn eftir lánsfé gríðarleg.
Þá hafi íslensku bankarnir
stundað skuldsettar yfirtökur í
miklum mæli. Leiddar eru líkur
að því að Seðlabankinn kunni að
verða knúinn til að hækka stýri-
vexti enn frekar, en þeir standa
nú í 13,3 prósentum.
Björn Rúnar Guðmundsson,
forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, segir íslenskt efna-
hagslíf vel í stakk búið til að takast
á við óróleikaskeið eftir að hafa
fengið ákveðna eldskírn í kjöl-
far neikvæðrar umræðu í mars
á síðasta ári. Mörg þeirra vanda-
mála sem menn töldu tengjast
íslensku efnahagslífi þá hafi verið
leyst. „Bankarnir hafa varið sig
gegn sveiflum á gengi krónunn-
ar og ríkið stendur betur. Síðan
verður að hafa í huga að banka-
stofnanir hér eru lítið sem ekk-
ert tengdar þeim óróa sem verið
hefur á bandaríska húsnæðis-
lánamarkaðnum. Í heildina litið
stöndum við betur nú en áður en
síðasta óróleikaskeið reið yfir.“- jsk
Þrengir að Íslandi og Lettlandi
S&P fjallar um hert aðgengi að lánsfé á alþjóðamörkuðum. Sérfræðingur Landsbankans
telur íslenskt efnahagslíf vel í stakk búið til að takast á við óróleikaskeið.
www.trackwell .com
Flotaeftirlit – tækjanotkun
og aksturslagsgreining
FORÐASTÝRING
G
O
T
T
F
Ó
LK
Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í
skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar-
sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me›
starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli
fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjár-
festingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir.
Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn
á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar-
heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr
útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans
auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is.
CAD
4,2%*
DKK
4,4%*Örugg ávöxtun
í fleirri mynt
sem flér hentar EUR
4,7%*
GBP
6,5%*ISK14,4%*
Markmið
Peningabréfa er
að ná hærri ávöxtun en
millibankamarkaður og
gjaldeyrisreikningar. Enginn
munur er á kaup-
og sölugengi.
Peningabréf
Landsbankans
USD
5,4%*
* Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. ágúst - 31. ágúst 2007.
Ratan Hallgrímsson er tíu ára íslenskur strákur
sem býr í Svíþjóð. Hann leikur eitt aðalhlut-
verkanna í nýjum sænskum sjónvarpsþætti fyrir
börn sem heitir Barda.
Barda-þættirnir eru tólf allsnýir p ó
und manns að sækja um og ég var einn af þeim sem
fengu að vera með.“Ratan segir að það hafi verið mjög sérstakt að taka
þátt í gerð sjónvarpsþáttar. „Við voru þ
daga og þetta va
Vika á Spáni13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Huyndai Getz eða sambærilegur
Bókaðu bílinn heima- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/ S
IA
.I
S
/ H
E
R
3
69
19
0
9/
07
G
O
T
T
F
Ó
LK
Lausar lóðir á
suðvesturhorninu
Leikur í sænskum sjón-
varpsþætti fyrir börn
verk að vinnaMIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007
Lausar
byggingalóðirAlmenningi stendur til boða þónokkrar lóðir á suðvesturhorninu BLS. 4
Stór landsvæði skipu-
lögð fyrir sumarhús
Þær sumarhúsabyggðir sem þegar eru skipulagðar myndu duga landsmönnum
næstu þrjár aldir. Óvenju mikið er af nýjum sumarhúsum segir fasteignasali.
Talsvert er um að landeigendur skipuleggi byggð og flytji inn hús á lóðirnar.
Afkoma fimm stærstu
sparisjóða landsins er borin uppi
af fjárfestingum, ekki ávinningi af
bankaþjónustu.
Sparisjóðirnir SPRON, BYR,
Sparisjóðurinn í Keflavík,
Sparisjóður Kópavogs og Spari-
sjóður Mýrarsýslu mynda
stærstan hluta sparisjóðakerfis-
ins. Þeir voru reknir með 22,3
milljarða króna hagnaði á fyrri
helmingi ársins, ríflega fjórfalt
meiri hagnaði en á sama tíma í
fyrra. Hagnaðurinn stafar hins
vegar fyrst og fremst af gengis-
hækkunum hlutabréfa og afkomu
hlutdeildarfélaga í fjármála-
tengdri starfsemi.
Hagnast á fjár-
festingum
Allt tiltækt slökkvilið
var sent frá Akureyri í Vaðlaheið-
ina í gærkvöld, þar sem sumarbú-
staður stóð í ljósum logum.
Tilkynning um eldinn barst
skömmu eftir klukkan sjö og
innan við klukkustund síðar var
búið að ná tökum á eldinum. Þó
logaði nokkra stund enn í þakinu.
Að sögn varðstjóra slökkviliðs-
ins á Akureyri er allt meira og
minna brunnið innanstokks, þótt
bústaðurinn standi enn. Eldsupp-
tök eru ókunn og ekki liggur fyrir
hvenær einhver var síðast í
húsinu.
Meira og minna
allt brunnið inni
Unglingspiltarnir
tveir sem struku af meðferðarheim-
ilinu Bergi í Aðaldal seint á
sunnudagskvöld komu í leitirnar um
áttaleytið í gærkvöldi. Drengirnir,
sem eru fimmtán ára gamlir,
fundust heilir á húfi, en þreyttir, í
heimahúsi í Efra-Breiðholti. Þeir
gistu á meðferðarheimilinu Stuðlum
í nótt. Barnaverndaryfirvöld voru
kvödd til og verður framhaldið
ákveðið í samráði við þau.
Bíllinn sem drengirnir eru
grunaðir um að hafa stolið og ekið
til Reykjavíkur var í gærkvöldi
ófundinn, en málið er í rannsókn að
sögn varðstjóra lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Fundust heilir á
húfi í Breiðholti
Það eru fjölmargir
byggingaraðilar sem hafa
verið að kaupa lóðir, jafnvel í
tugum talið.
Skrifar bók um
föður sinn