Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 36
Múlinn hefur vetrarstarf
Starfsfólk Þjóðleikhússins
kom saman á mánudag til
að hefja vinnu á nýju leik-
ári. Þegar Tinna Gunn-
laugsdóttir hóaði sínu fólki
saman til hefðbundinnar
myndatöku var það ekki á
tröppum hússins heldur í
Kassanum. Sannast sagna
er Þjóðleikhúsið heldur
ókræsilegt að sjá umvafið
vinnupöllum. Þar stendur
yfir langþráð viðgerð á
ytra byrði hússins.
Í kynningum leikársins er lögð
áhersla á hið nýja, ný íslensk og
erlend verk, nýja höfunda, nýja
krafta og ný andlit. Nýja ásýnd
sviðanna í allri kynningu.
Fjögur ný íslensk leikverk
verða frumflutt á þessum vetri:
Verk fyrir börn eftir Áslaugu
Jónsdóttur, Góða nótt, byggt á
samnefndri bók hennar; nýr
söngleikur eftir Hallgrím Helga-
son sem hefur verið nokkurn
tíma í þróun, nýtt verk um
Skoppu og Skrýtlu og tvö hefð-
bundin leikverk eftir Bjarna
Jónsson og Hugleik Dagsson. Þá
snúa aftur á svið eldri verk:
Skilaboðaskjóða Þorvalds Þor-
steinssonar og Sólarferð eftir
Guðmund Steinsson. Hlutur inn-
lendra verka er því stór í dag-
skránni því áfram heldur sýn-
ingum á Legi eftir Hugleik og
Leitinni að jólunum eftir
Þorvald.
Þá er lögð rík áhersla á ný erlend
verk, ekki færri en fimm, frá
Evrópu, og stendur Þjóðleikhús-
ið prýðilega við lagaskyldu sína
um að sinna kynningu á erlendri
leikritun, áhorfendum til gleði
og þroska. Verkin eru Engi-
sprettur eftir Biljönu Serbjan-
oviz, Konan áður eftir Roland
Schimmelpfennig, Vígaguðinn
eftir Yasminu Reza og Sá ljóti
eftir Marius von Mayenburg. Þá
verður farandsýning sett í gang,
norway.today eftir Igor Bau-
ersima. Frá fyrra ári eru nýleg
erlend verk í boði: Hálsfesti Hel-
enu og Hjónabandsglæpir. Það
eru því sjö evrópsk samtíma-
verk á sviðum Þjóðleikhússins á
komandi vetri.
Í kynningum haustsins er lögð
rík áhersla á ný andlit. Í hópi
leikstjóra eru þau Gísli Örn
Garðarsson, Benedikt Erlings-
son, Kristín Eysteinsdóttir, Haf-
liði Arngrímsson, Melkorka
Tekla Ólafsdóttir, Vigdís Jakobs-
dóttir og Gunnar Helgason sem
öll verður að telja í hópi yngri
leikstjóra og eru sum þeirra að
vinna sem leikstjórar í fyrsta
sinn við húsið, þótt þau hafi áður
komið þar að starfi.
Þjóðleikhúsið fór ekki varhluta
af þeirri þróun sem upphófst
skömmu fyrir aldamót að nýir
staðir væru teknir til brúks í
stóru húsunum: leikhúsloftið og
matsalur, smíðaverkstæði og
litla svið, nýja svið og kúlan.
Rekstur stóru leikhúsanna mið-
ast í æ ríkari mæli að smærri
sýningum á fleiri sviðum. Nú
eru á vegum Þjóðleikhússins
nokkur: Kassinn og Kúlan í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar,
Stóra sviðið og Smíðaverkstæðið
í gömlu byggingunni og að auki
leikhúsloftið fyrir jólasýning-
una. Svo á leikhúsið hlut í sýn-
ingu í Iðnó eftir áramót. Það er
líka nýnæmi í rekstrinum að
Þjóðleikhúsið leggur nú í sam-
starf við sjálfstæða leikhópa,
bæði á stóra sviðinu og smærri
sviðum.
Eins og jafnan eru það stóru sýn-
ingarnar á stóra sviðinu sem
vekja mesta athygli og aðsókn.
Þar er Leg fyrir en fyrsta frum-
sýning vetrarins er í þriðju viku
september í samstarfi við Vest-
urport: Hamskiptin eftir Kafka.
Þá kemur Skilaboðaskjóðan en
jólasýningin er Ivanov eftir
Tsjekov. Sólarferð og Engi-
sprettur koma eftir áramót en
Ástin er diskó - lífið er pönk eftir
Hallgrím Helgason verður frum-
sýnt í apríl.
Alls eru átján verkefni fyrirhug-
uð á fjölum leikhússins. Er það
álíka fjöldi og í meðalári, en
Þjóðleikhúsið hefur mest fjár-
ráð allra íslenskra leikhússtofn-
ana. Sala áskriftarkorta er hafin
en allar upplýsingar um aðstand-
endur og efni verka er að finna á
heimasíðu leikhússins: www.
leikhusid.is.
kl. 16.13.00
Hlaupanótan á Rás 1 er alltaf
með fína músik og kemur stöðugt
á óvart. Þegar henni lýkur kl. 17.
tekur Víðsjá við sem er helsti
gluggi landsmanna í menningu
heima og heima.