Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 20
Hann er eina barnið í sinni
sveit yfir veturinn en í skól-
anum hittir hann vini sína
og heima bíða húsdýrin eftir
honum.
„Ég heiti Þór. Þór Engholm Elísa-
betarson.“ Þannig kynnir sig ljós-
hærður og bláeygur Vestfjarða-
víkingur sem er alveg að verða
níu ára. Móðir hans er bóndi og
handverkskona og þau mæðgin
eru einu íbúar sveitarinnar Ingj-
aldssands við Önundarfjörð. Bær-
inn heitir Sæból II og spurningu
um hvort gott sé að búa þar svarar
Þór að bragði: „Já, því ég get látið
bergmála í fjöllunum. Ég kalla
bara eins hátt og ég get og þá
kemur hljóðið til baka. Það heyr-
ist langar, langar leiðir.“ Það eru
ekki bara fjöllin sem Þór unir við
því fjaran er skammt undan líka.
Þangað kveðst hann stundum fara
á hjólinu og tíkin hans hún Drífa
fylgi honum. „Drífa er border
collie og hálfíslensk. Einu sinni
sáum við mink í fjörunni og létum
hann hlaupa,“ segir hann fjör-
lega.
Þór er í fjórða bekk grunnskól-
ans á Flateyri. Þangað er 54 kíló-
metra leið sem mamma hans ekur
með hann á hverjum morgni þegar
veður og færð leyfa. Þau leggja af
stað klukkan sjö til að vera komin
í tæka tíð í skólann klukkan átta.
Uppáhaldsfagið? „Smíðin er
skemmtilegust,“ svarar Þór strax.
„Ég á líka nóg af verkfærum
heima. Til dæmis mjög öflugan
hamar. Hann getur brotið steypu
og steina.“ Og bætir við íbygginn:
„Ég er dálítið sterkur. Þótt
vöðvarnir mínir séu ekki stórir þá
er ég sterkur.“
Þór segir mömmu sína bíða eftir
honum flesta daga á Flateyri nema
ef sundæfingar eru síðdegis, þá
gisti hann hjá systur sinni.
„Mamma er náttúrulega með
prjónana og alls konar handavinnu
með sér,“ útskýrir hann og er beð-
inn að lýsa vetrardegi eftir skóla.
„Þegar við komum heim fáum við
okkur svolítið að borða og gefum
svo kindunum og líka hænunum.
Þær eru landnámshænur. Það er
verst að þær hafa svo stórt pláss
að stundum fela þær eggin úti um
allt. Ég á líka fjóra hana og þeim
kemur vel saman. Svo þegar ég er
búinn að heilsa upp á kanínuna og
kettina þá fer ég að læra.“ Í lokin
er Þór spurður hvort sjónvarp sé
á Sæbóli. „Já, en ég horfi bara á
það á sumrin. Þá koma líka krakk-
ar á bæina og í bústaðina í kring.
Þeir eru vinir mínir og krakkarnir
í skólanum eru flestir vinir mínir
líka.“
Kallast á við fjöllin og
leikur sér í fjörunni
NOSE & BLOWS
Fæst í verslunum og apótekum um land allt.
Ofnæmisprófuð lína sem er sérstaklega hönnuð fyrir kvefaða
litla nebba. Mild formúla sem svíður ekki undan.
Nebbaþurrkur og nebbakrem
Blautklútar sem hjálpa til við að hreinsa nefgöngin. Inniheldur rakagefandi B5 vítamín og
náttúrulegt mentol til þess að auðvelda öndun. Inniheldur hvorki litarefni né alkohól.
Kremið inniheldur ilmkjarnablöndu af piparmyntu og eucalyptus auk nornaheslis sem er
mjög græðandi.
Fæst í apótekum um land allt
Fæst í apótekum um land allt
Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir
viðkvæma húð ungbarna
Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E.
Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna.
Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5.
Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín.
Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt.
Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5.
Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín.
Sensitive
ungbarnalína
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
Auglýsingasími
– Mest lesið
ífi
nu
Tak
tu
þá
tt
í lí
fin
u
me
ð