Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 12
Hugmyndir um
áfallatryggingar hafa verið kynnt-
ar í bakhópi innan Alþýðusambands
Íslands. Kristján Gunnarsson, for-
maður Starfsgreinasambandsins,
segir að nú liggi til skoðunar mun
skýrari útlínur og þær séu „nokkuð
jákvæðar“.
„Við erum komin með grunn til
frekari skoðunar. Margt bendir til
að allt sé á leið til betri vegar. Lyk-
ilatriðið er að við erum ekki að
fórna neinum kjarabótum fyrir
þessa kerfisbreytingu en áfalla-
tryggingar gætu haft í för með sér
tilfærslur á fjármunum,“ segir
Kristján.
Vinna við að koma saman við-
ræðuáætlun Samtaka atvinnulífs-
ins, SA, og verkalýðshreyfingarinn-
ar hefst á næstunni. „Við höfum
hugsað okkur að setja hana í gang
strax eftir mánaðamótin, annað-
hvort í þessari eða næstu viku. Eftir
það reyna menn að setja niður hve-
nær hugmyndir manna og kröfur
verða tilbúnar,“ segir Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Framgangur áfallatrygginga-
málsins er mjög stórt atriði í því
hvernig staðið verður að samninga-
viðræðunum í haust. „Væntanlega
munum við láta á það reyna hvort
við komumst áfram í áfallatrygg-
ingamálinu. Ef það verður er mikil
vinna framundan sem færi þá fram
samhliða viðræðum um önnur
atriði, til dæmis launin,“ segir
hann.
Samningaviðræðurnar færu
fram samhliða viðræðum um áfalla-
tryggingasjóðinn og stefnt verður
að því að ljúka viðræðunum á sama
tíma.
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, segir að
fjallað verði um kröfugerð Starfs-
greinasambandsins á framkvæmda-
stjórnarfundi og formannafundi á
næstu vikum en hún verði ekki birt
atvinnurekendum fyrr en í fyrstu
vikunni í nóvember.
Áfallatrygging
í skoðun fyrir
kjaraviðræður
Byrjað er að kynna hugmyndir um nýjar áfalla-
tryggingar innan verkalýðshreyfingarinnar. Kristj-
án Gunnarsson, formaður Starfsgreinar, segir að
útlínur séu „nokkuð jákvæðar“.
Hashemi Rafsanjani, fyrr-
verandi forseti Írans, var í gær
kosinn leiðtogi sérfræðingaráðs
landsins, valdamikillar stofnunar
sem hefur það hlutverk að velja
æðsta leiðtoga landsins og hafa
eftirlit með störfum hans.
Rafsanjani er 73 ára gamall og
hefur lengi verið einn valdamesti
maður Írans; var forseti landsins á
árunum 1989 til 1997. Hann þykir
þó töluvert hófsamari en bæði
æðsti leiðtogi landsins, Ali Kham-
eini erkiklerkur, og forsetinn
Mahmoud Ahmadinejad.
Rafsanjani hlaut 41 atkvæði í
ráðinu, sem er skipað 86 klerkum.
Kosning Rafsanjanis þykir því
ákveðið áfall fyrir harðlínumenn í
stjórn landsins. Stjórnmálaskýr-
endur segja vaxandi spennu í land-
inu vegna versnandi efnahags og
sífellt harðnandi átaka harðlínu-
manna við Vesturlönd, einkum
Bandaríkin.
Sérfræðingaráðið er valdamikil
stofnun, en hefur þó ekki birt opin-
berlega í þrjá áratugi neitt um eft-
irlit sitt með forseta landsins.
Rafsanjani sagði þó í gær að það
gæti breyst. „Ef sérfræðingaráðið
vill hafa meiri áhrif á landsmálin
þá hefur það bæði trúarlegar og
lagalegar forsendur til þess,“ hafði
íranska ríkisfréttastofan IRNA
eftir Rafsanjani.
Samkvæmt niðurstöð-
um nýrrar skoðanakönnunar hefur
hinn íhaldssinnaði Laga- og
réttlætisflokkur Jaroslaws
Kaczynski, forsætisráðherra
Póllands, náð að vinna upp
fylgisforskot
aðalstjórnarand-
stöðuflokksins,
hins frjálslynda
Borgaravett-
vangs.
Samkvæmt
könnun PBS-
stofnunarinnar
sem birt var í
dagblaðinu
Gazeta
Wyborcza fengi
Laga- og réttlætisflokkurinn 30
prósent atkvæða ef kosið væri nú,
en Borgaravettvangur 26 prósent.
Þetta er í fyrsta sinn síðan í janúar
sem Borgaravettvangur mælist
ekki með forskot á stjórnarflokk-
inn. Stefnt er að þingkosningum í
Póllandi í haust.
Stjórnarflokkur
eykur fylgið
Lykilatriðið er að við
erum ekki að fórna
neinum kjarabótum fyrir þessa
kerfisbreytingu en þetta gætu
orðið tilfærslur á fjármunum.
Níutíu og fimm prósent
erlendra ferðamanna sem heim-
sækja Reykjavík segjast myndu
mæla með borginni sem áfangastað
við aðra. Níu af hverjum tíu telja
reynslu sína af borginni frábæra
eða góða, samkvæmt viðhorfskönn-
un sem gerð var meðal erlendra
ferðamanna sem dvöldu í borginni
síðastliðinn vetur.
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðs-
stjóri menningar- og ferðamála-
sviðs Reykjavíkur, segir jákvætt
og uppörvandi að sjá niðurstöður
könnunarinnar. „Það er einhver
andi í Reykjavík sem er smitandi
og fyllir fólk innblæstri. Við sjáum
það ár eftir ár að ferðamenn fara
héðan mjög ánægðir,“ segir hún.
Hæstu meðaleinkunnina fengu
sund og heilsuböð, en sjötíu pró-
sent ferðalanga í Reykjavík stinga
sér til sunds eða slappa af í heitum
potti meðan á heimsókninni stend-
ur. Aðeins þrettán prósent nýta sér
þjónustu strætó.
Lægstu einkunnina fengu versl-
anir, og er hátt verðlag talið eiga
þar stóran þátt. Merkingar, hvort
sem eru fyrir gangandi eða akandi
vegfarendur, komu einnig illa út.
Svanhildur segir nauðsynlegt að
bæta úr merkingarmálum í borg-
inni með fleiri og betri skiltum.
Könnunin var gerð fyrir Höfuð-
borgarstofu af Rannsókn og ráð-
gjöf ferðaþjónustunnar ehf. í Leifs-
stöð frá janúar til maí 2007.
Höfuðborgin
fær háa einkunn
Glerfínar gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
R
V
62
09
3M glu
ggafilm
ur fyrir
skóla, s
júkrahú
s, skrifs
tofur,
verslani
r og að
ra vinnu
staði
Fagme
nn frá
RV
sjá um
uppset
ningu
Skráning á ftt@ftt.is
Að afloknum flutningi söngvaskálda verður efnt til “jam session”.
Til kl. 22:00. Þá hefst dagskrá Jazzklúbbsins MÚLANS. “Straight Ahead Quartet”
Til eflingar íslensku tónlistarflórunni verður fyrsta