Fréttablaðið - 05.09.2007, Page 13
[Hlutabréf]
Sparisjóður Vestfirðinga var rek-
inn með 822 milljóna króna met-
hagnaði á fyrri hluta ársins sem
var 279 prósenta aukning á milli
ára. Til samanburðar nam hagnað-
ur sjóðsins á öllu síðasta ári 801
milljón króna. Arðsemi eiginfjár
var 84 prósent.
Árangur sjóðsins skýrist eink-
um af hækkun á hlutabréfaeign en
Sparisjóður Vestfirðinga er hlut-
hafi með beinum og óbeinum hætti
í Existu sem hækkaði skarpt á
fyrri hluta ársins.
Hreinar rekstrartekjur sjóðsins
námu 1.323 milljónum króna og
hækkuðu um 146 prósent en hins
vegar drógust hreinar vaxtatekj-
ur saman um tvö prósent og voru
102 milljónir króna.
Eigið fé Sparisjóðs Vestfirðinga
var komið í rúmlega 3,1 milljarð
króna um mitt þetta ár og hafði
hækkað um 34 prósent frá áramót-
um. Heildareignir voru 11,5 millj-
arðar og hækkuðu um þrettán pró-
sent frá ársbyrjun.
Fram kemur hjá forsvarsmönn-
um sparisjóðsins að sú lækkun
sem varð á verðbréfaeign eftir að
uppgjörstímabilinu lauk sé nú að
mestu leyti gengin til baka.
Methagnaður Spari-
sjóðs Vestfirðinga
Meiri hagnaður á fyrri hluta ársins en allt síðasta ár.
Verðbólga mældist 2,0 prósent á
ársgrundvelli hjá aðildarríkjum
Efnahags- og framfarastofunar
Evrópu (OECD) í júlí. Þetta er 0,2
prósentustigum lægra en í júní.
Sætaskipti urðu á listanum yfir
þau lönd þar sem verðbólga
mælist mest. Tyrkland rak lestina
lengstum en Ungverjaland hefur
tekið toppsætið og flaggaði 8,4
prósenta verðbólgu í mánuðinum.
Minnsta verðbólgan er líkt og
fyrri daginn í Japan en þar var
hún engin.
Til samanburðar mældist 3,8
prósenta verðbólga hér á landi í
júlí. Ísland hefur löngum verið
ofarlega á lista yfir mestu verð-
bólgu innan OECD en núna vermir
Ísland 6. sætið.
Mesta verðbólgan í
Ungverjalandi
Stjórnendur Alfesca eru ánægðir
með 22,4 milljóna evra hagnað
fyrirtækisins á síðasta rekstrar-
ári, sem lauk í lok júní. Þetta jafn-
gildir tæpum tveimur milljörðum
króna og er 87 prósenta aukning
frá fyrra ári en þá nam hagnaður-
inn tólf milljónum evra.
Í uppgjöri fyrirtækisins kemur
fram að rekstrarhagnaður nam
fyrir skatta og fjármagnsliði
(EBITDA) 53,9 milljónum evra en
það er 23 prósenta aukning á milli
ára.
Þá nam salan 616,9 milljónum
evra, sem er 11 prósenta aukning
frá árinu á undan. Mestu munar í
sölu á rækju, sem jókst um 33,4
prósent á árinu, þar af um 62,4
prósent á fjórða ársfjórðungi en
það er að hluta vegna kaupa
félagsins á franska skelfiskfram-
leiðandanum Adrimex í febrúar.
Þá var sala sömuleiðis góð á blini-
hveitikökum, smurréttum og
nýjum vörulínum á laxi undir
fyrirtækjahatti Alfesca.
Xavier Govare, forstjóri
Alfesca, sagði við kynningu á upp-
gjörinu í gær að félagið sé ánægt
með afkomuna. Endurfjármögn-
un félagsins hafi tekist vel auk
þess sem samruna fyrirtækja sem
Alfesca keypti á árinu sé að mestu
lokið. Samruni við franska mat-
vælafyrirtækið Le Traiteur Grec,
sem framleiðir álegg úr græn-
meti og Alfesca keypti seint í maí,
stendur hins vegar enn yfir. Gov-
are benti á að sala á laxi hafa verið
góð í sumar og muni það koma
fram í bókum félagsins á yfir-
standandi rekstrarári.
Ánægjuleg afkoma
Septembertilboð 2007
Sértilboð til e-korthafa og e2 Vildarkorthafa
Ögurhvarfi 1 / 203 Kópavogi
sími 567 3300 / hestarogmenn.is
Birtíngur útgáfufélag / Lynghálsi 5, 110 Reykjavík / sími 515 5500 / birtingur@birtingur.is
Kringlunni 8 / sími 553 4020
Kringlunni 8 / sími 568 8144
Eiðistorgi 15 / sími 561 1216
Select / 6 Select stöðvar á höfuðborgarsvæðinu
sími 444 3000 / www.skeljungur.is
Kringlunni 8-12 / sími 568 9400
Smáralind / sími 554 7760
Reykjavík / Sætúni 8 / sími 569 1500
Akureyri / Glerárgötu 36 / sími 460 3380
Húsavík / Garðarsbraut 18A / sími 464 1600
Selfoss / Eyrarvegi 21 / sími 480 3700
afsláttur af öllum fatnaði.
Föst endurgreiðsla 5%10%
Nýjung frá Sirius sem slegið
hefur í gegn í sumar. Steyptir
olíulampar í þremur stæðum
10, 15 og 20 cm.
endurgreiðsla í september
10%
Whirlpool AFG6392B 320 lítra frystikista
• Ljós í kistunni, á hjólum
• Með lás
• Orkunýting B
• Mál (hxbxd): 88,5x112x66
afsláttur af skyrtuhreinsun
Föst endurgreiðsla 10%15% Foccacia m/pepperoniFöst endurgreiðsla 1,5%150 kr.
30%
afsláttur af Sirius Oliver olíulömpum
Föst endurgreiðsla 2%
(fullt verð 54.995 kr.)
Föst endurgreiðsla 2%
Tilboð39.995 kr.
afsláttur af gleraugum
Föst endurgreiðsla 10%15%
Bláu húsunum við Faxafen
Suðurlandsbraut 50 / 108 Reykjavík
sími 568 1800 / www.gleraugad.is
Baðhúsið / Sporthúsið / Þrekhúsið
Aflhúsið og ISF á Reyðarfirði
www.isf.is
Árskort 29.900 kr.
(fullt verð 43.080 kr.) Föst endurgreiðsla 5%
Frábært áskriftartilboð
• 1 mánuður frír!
• 20% afsláttur næstu 5 mánuði
• 6 mánaða binding í áskrift
• 5% föst endurgreiðsla
• 6 vikna líkamsræktarkort frá
Iceland Spa & Fitness frítt!
Korthafar fá 0,5% endurgrei›slu af allri innlendri
veltu auk endurgrei›slu frá samstarfsfyrirtækjum.