Fréttablaðið - 05.09.2007, Síða 14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Ásgeir Jónsson fjallgöngu-
maður stendur í stórræðum
næstu vikurnar. Hann ætlar
að klífa Kilimanjaro í Tans-
aníu í september og verða
svo fyrstur Íslendinga til að
ganga á Carstensz Pyram-
id í Nýju-Gíneu í byrjun
október. Þessi fjöll eru
áfangar í þeirri fyrirætlan
Ásgeirs að klífa hæstu tind-
ana í heimsálfunum sjö.
„Kilimanjaro er líklega auðveld-
asta fjallið því það eina sem maður
þarf að passa er að fara nógu
rólega svo að maður fái ekki
háfjallaveiki. Lykilatriðið er að
slaka á og fara rólega. Samt er
Kilimanjaro 6.000 metrar á hæð
eða þrisvar sinnum hærra en
Hvannadalshnúkur,“ segir Ásgeir.
Í byrjun október stendur svo til
að ganga á Carstensz Pyramid í
Nýju-Gíneu og verður Ásgeir
fyrstur Íslendinga til þess. „Ég
flýg til Djakarta og þaðan til Biak-
eyju og flýg svo tvisvar sinnum
með þyrlu til að komast í upphafs-
búðirnar. Fjallið er í einum af
afskekktustu skógum veraldar
þar sem eru mannætur og annað
skemmtilegt,“ segir hann.
Ásgeir telur að Carstensz
Pyramid sé erfiðasta fjallið af
fjöllunum sjö, jafnvel erfiðara en
Everest, þó að það sé ekki nema
4.800 metrar á hæð. Það sé nánast
eingöngu klettur og klettaklifur sé
tæknilega erfitt. Þá sé ekki hlaup-
ið að því að fá leyfi til að ganga á
Carstensz Pyramid og ævintýrið í
heild sinni þar að auki gríðarlega
dýrt,“ segir hann.
„Stjórnvöld vilja takmarka
áganginn af því að þarna er svo
frumstæður skógur. Það er líka
starfrækt risastór gullnáma ekki
langt í burtu og það er talið að þar
vinni bara börn. Stjórnvöld vilja
því ekki hafa of mikinn ágang af
vestrænum mönnum sem gætu
fjallað um þetta í fjölmiðlum.“
Ásgeir hefur þegar klifið hæsta
fjall Evrópu, Elbrus í Rússlandi.
Hann stefnir að því að hafa klifið
hæstu tindana sjö árið 2010 og
lokið til viðbótar Ironman-keppni
og þremur ofurmaraþonum árið
2013. Hann er þegar búinn með
einn tind og hefur tekið tvisvar
þátt í Ironman-keppni auk þess
sem hann hefur farið Laugaveg-
inn tvisvar sem flokkast sem ofur-
maraþon. Auk þessa hefur hann
tekið þátt í maraþonhlaupum.
„Ég æfi eins og ég hef alltaf
gert, syndi aðallega og hjóla núna
og hvíli mig á hlaupum. Ég er í
góðri þjálfun og þarf ekki betri
þjálfun en ég er í til að takast á við
þessu fjöll, ég þarf aðallega að
halda fjallakunnáttunni við.“
Á hæstu tinda heimsálfanna sjö
„Við erum alveg í skýjunum,“ segir
Ágústa Kristjánsdóttir snyrtifræð-
ingur. Snyrtistofa Ágústu vann
þrjá titla á ÍSMÓTi 2007 sem var
haldið í íþrótta- og sýningarhöll-
inni í Laugardal um síðustu helgi.
ÍSMÓT er Íslandsmeistaramót hár-
snyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða,
klæðskera og ljósmyndara innan
Samtaka iðnaðarins. Yfir 250
íslenskir og erlendir fagmenn tóku
þátt og er þetta stærsta mót sem
haldið hefur verið hér á landi.
Stöðug dagskrá var á fjórum svið-
um alla helgina.
Slípaðir og óslípaðir demantar og
hundruð demantsskartgripa voru
meðal sýningargripa á Ísmóti og er
það í fyrsta sinn sem demantasýn-
ing opin almenningi er haldin hér á
landi. Fyrirtækið Demantar.is sýndi
demantana og var heildarverðmæti
sýningargripanna hundruð milljóna
króna.
Hann var að minnsta
kosti ekki á perunni.
Er annað bara gjör-
samlega ómögulegt?
Sest á skólabekk og á von á barni
Góð hugmynd