Fréttablaðið - 05.09.2007, Page 19
Ratan Hallgrímsson er tíu ára íslenskur strákur
sem býr í Svíþjóð. Hann leikur eitt aðalhlut-
verkanna í nýjum sænskum sjónvarpsþætti fyrir
börn sem heitir Barda.
Barda-þættirnir eru tólf alls og í hverjum þætti eru
nýir persónur. Ratan leikur annað aðalhlutverkanna í
einum þáttanna en þeir verða sýndir nú í haust. „Barda
er svona „role“-spil og maður á að slá út drauga og alls
kyns svoleiðis. Ég leik skógarálf sem heitir Shian Aks
í spilinu og vinkona mín heitir Ymi Shiff,“ segir
Ratan.
Ratan hefur ekki leikið áður en þegar hann sá aug-
lýst eftir krökkum til að vera með í þættinum var hann
alveg ákveðinn í að sækja um. „Við fórum inn á síðu á
netinu og sáum að maður gat verið með í þessu og ég
vildi það og fór í próf. Það voru eitthvað um eitt þús-
und manns að sækja um og ég var einn af þeim sem
fengu að vera með.“
Ratan segir að það hafi verið mjög sérstakt að taka
þátt í gerð sjónvarpsþáttar. „Við vorum þarna í tvo
daga og þetta var svolítið erfitt en gaman. Vinkona
mín sem ég var að vinna með var líka mjög skemmti-
leg.“
Nokkrir vinir Ratans vita að hann lék í þættinum þó
að það sé ekki búið að sýna hann en Ratan segist ekki
vera farinn að finna mikið fyrir frægðinni ennþá. „Ég
veit ekki hvernig það verður þegar þátturinn byrjar
en ég hef samt þurft að skrifa eina eiginhandaráritun,“
segir hann og brosir.
Ratan segir að það hafi verið mjög gaman að fá þetta
tækifæri en hann er ekki viss um að hann vilji leggja
leiklistina fyrir sig. „Mig langar að verða fótboltaspil-
ari þegar ég verð stór því ég er að æfa fótbolta og
kannski ætla ég að búa á Íslandi.“
Búinn að gefa eina áritun
Vika á Spáni
13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Huyndai Getz eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
9/
07
Fjar nám á haustönn
Skráning á haustönn fer fram dagana:
27. ágúst – 10. september