Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 23
Tónheimar heitir einkarekinn
tónlistarskóli þar sem farnar eru
sérstakar leiðir við kennsluna.
„Upphaflega hugmyndin hjá mér
var að kenna börnum og fullorðn-
um að spila eftir eyranu þannig
að hver sem er geti nálgast hljóð-
færið á sinn hátt, hvort sem hann
hefur áhuga á poppi eða rokki eða
einhverju öðru,“ segir Ástvaldur
Traustason, stofnandi skólans.
Tónheimar hafa verið starfandi
í sex ár og stækkað á þeim tíma.
„Ég byrjaði bara í bílskúrnum hjá
mér en núna er þetta orðinn stór
skóli í mjög björtu og rúmgóðu
húsnæði í Fákafeni þar sem við
erum með þrjár stofur, meðal
annars eina sérútbúna fyrir börn.
Nemendur skólans eru um 200 og
á öllum aldri því yngsti nemand-
inn er 4 ára og og sá elsti 85.“
Þjálfun tónheyrnar er mjög
mikilvægur þáttur í tónlistar-
námi að mati Ástvalds. „Ég vil ýta
undir tónheyrn og skapandi hugs-
un nemenda minna þannig að þeir
séu óhræddir við að spila á hljóð-
færi. Það vill því miður stundum
brenna við að tónlistarnám verð-
ur eitthvert stagl og við reynum
að forðast það. Kennslan hefur
þróast út frá mínum hugmyndum
en þegar ég var lítill gekk mér
dálítið illa að nota nótur og læra á
hljóðfæri á hefðbundinn hátt þar
sem ég var lesblindur. Mig lang-
aði líka miklu meira að læra eitt-
hvað með Bítlunum en það sem
var kennt, en það var aldrei neinn
til þess að kenna það svo ég fór að
sperra eyrun og nota þau miklu
meira og nálgaðist píanóið á minn
hátt sem reyndist vel.“
Í Tónheimum eru farnar svolít-
ið óhefðbundnar leiðir við kennsl-
una. „Við notum netið mikið og
nemendurnir fá netstuðning þar
sem kennarinn spilar lag og þegar
nemendurnir koma heim geta
þeir hlustað á kennarann spila
lagið aftur og aftur á netinu ef
þeir eru búnir að gleyma því. Við
höfum líka kennt krökkunum að
taka upp sín lög og setja þau á
heimasíðu þannig að þeir geti
farið inn á síðuna og hlustað á
lagið og leyft afa og ömmu að
gera það líka. Svo er ég búinn að
smíða nýja námskrá fyrir
ryþmískt nám eins og þetta er
kallað og það voru um tuttugu
manns sem tóku próf hjá okkur í
vor í fyrsta hlutanum. Þetta er
því allt voða gaman og svolítið
öðruvísi en margir eiga að venj-
ast,“ segir Ástvaldur.
Hlusta til að
læra að spila
Litlir hópar, færir kennarar, persónuleg kennsla.
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda–
framhalds –
og talæfingaflokkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
ÍSLENSKA
stafsetning og ritun
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
9 vikna námskeið
50 kennslustundir
Kennt er í byrjenda og
framhaldsflokkum.
Ísl. I, Ísl. II, Ísl. III, Ísl. IV.
Verklegar greinar
FRÍSTUNDAMÁLUN
GLERBRENNSLA
LOPAPEYSUPRJÓN
SKRAUTRITUN
TRÉSMÍÐI
ÚTSKURÐUR
Saumanámskeið
BÚTASAUMUR
CRAZY QUILT
FATASAUMUR /
BARNAFATASAUMUR
FATABREYTINGAR
ÞJÓÐBÚNINGUR -
SAUMAÐUR
SKRAUTSAUMUR –
Baldering
Skattering
Matreiðslunámskeið
GÓMSÆTIR BAUNA–
PASTA –OG
GRÆNMETISRÉTTIR.
GÓMSÆTIR HOLLIR
SUÐRÆNIR RÉTTIR
FRÁ MIÐJARÐARHAFS-
LÖNDUNUM
HRÁFÆÐI
MATARMIKLAR SÚPUR
OG
HEIMABAKAÐ BRAUÐ
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN I
Grunnnámskeið
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN II
Framhaldsnámskeið
SPENNANDI BÖKUR
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2007
Tölvunámskeið
FINGRASETNING
VEFSÍÐUGERÐ
FrontPage
TÖLVUGRUNNUR
TÖLVUGRUNNUR
Framhald
WORD
Ritvinnsla
Garðyrkjunámskeið
GARÐURINN ALLT ÁRIÐ
HAUST – OG
VORLAUKAR
Innritun í síma 564 1507 3.- 14. sept. kl. 10 - 18
á vef skólans http:// kvoldskoli.kopavogur.is eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla
Fyrstu námskeiðin hefjast hefjast 18. september
Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans
Vefsíða:http:// kvoldskoli.kopavogur.is Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is