Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 32
Gagnvegur er nýr prentmiðill sem
gefinn verður út í Strandasýslu frá
og með morgundeginum. Kristín Sig-
urrós Einarsdóttir gefur út og rit-
stýrir nýja blaðinu sem verður dreift
ókeypis inn á öll heimili í Stranda-
sýslu í hverri viku.
„Hugmyndin að blaðinu kviknaði
þegar ég var búin að búa á Hólmavík
í smá tíma og fór að starfa í sveitar-
stjórn og taka virkan þátt í því sem er
um að vera á svæðinu,“ segir Krist-
ín en henni fannst almennilega fjöl-
miðlaumfjöllun vanta í sýsluna.
„Það má því segja að þetta hafi
verið í kollinum á mér frá því ég kom
á Strandirnar fyrir sjö árum,“ bætir
hún við.
Spurð um innihald blaðsins, segist
Kristín ætla að hafa efnið sem fjöl-
breyttast, bæði efnislega og sem víð-
ast af svæðinu.
„Þetta er svolítið stórt svæði yfir-
ferðar en ég ætla samt að reyna mitt
besta til að sinna því öllu,“ segir hún
og bætir við: „Eins og héraðsfrétta-
blöð gera almennt þá ætla ég nú frek-
ar að vera í jákvæðari kantinum og
fjalla um menningarlífið, atvinnu-
lífið, íþróttir og annað sem um er að
vera.“
Kristín hefur verið kennari í tíu ár
og ætlar að halda því áfram í hálfu
starfi meðfram útgáfunni og annarri
vinnu. „Ég er líka búin að vera að
skrifa fyrir Morgunblaðið og Bænda-
blaðið og svo er ég með pistla í Svæð-
isútvarpi Vestfjarða,“ segir Kristín.
Hún starfaði auk þess um skeið í af-
leysingum hjá Skessuhorni í Borgar-
nesi þannig að hún hefur nokkra inn-
sýn í blaðaútgáfu.
„Til að gefa út blaðið keypti ég öfl-
ugan prentara sem ég sé fram á að
geta notað til að prenta boðskort,
bæklinga, ljósmyndir og fleira sam-
hliða útgáfunni,“ segir Kristín.
„Ég veit að guð mun ekki
fela mér eitthvað sem ég
ræð ekki við. Ég vildi bara
að hann treysti mér ekki
svona vel.“
Flugrán í Pakistan
Félagar í Oddfellowregl-
unni á Íslandi hafa gert
upp og afhent Landspítala
húsnæði við líknardeild-
ina í Kópavogi. Þar verður
dag-, göngu- og fimm daga
deild fyrir sjúklinga í líkn-
andi meðferð og er nýjung í
starfsemi líknardeildar.
Það var Gylfi Gunnars-
son, stórsír Oddfellowregl-
unnar sem afhenti hús-
næðið við hátíðlega athöfn
og Guðlaugur Þór Þórðar-
son heilbrigðisráðherra tók
við framlagi Oddfellow-
reglunnar fyrir hönd spít-
alans. Hann færði gefend-
um þakkir fyrir höfðing-
legt framlag.
Í tilefni af hundrað ára
afmæli Oddfellowreglunn-
ar fyrir tíu árum ákvað
reglan að veita fé til upp-
byggingar líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi
og var deildin opnuð tveim-
ur árum síðar. Árið 2003
afhenti Oddfellowreglan
líknardeildinni fullbúna
kapellu í húsnæði við hlið
deildarinnar.
Líknardeildin stækkar
AFMÆLI
Dýrfinna Torfadóttir vann
tvenn verðlaun í keppni um
Skartgrip ársins á Ísmóti
2007, Ís-
landsmeist-
aramóti fag-
greina innan
Samtaka iðn-
aðarins, sem
fór fram í
Laugardals-
höll um helg-
ina.
Fékk
Dýrfinna verðlaun annars
vegar fyrir kvenskart, sem
hún kallar Vertu þú sjálf/
Eftir þínu höfði, og hins vegar
fyrir karlaskartið Fjara.
Gripir Dýrfinnu verða til
sýnis á vinnustofu og galleríi
sem hún opnar að Stillholti 16
á Akranesi síðar í mánuðin-
um, ásamt Finni Þórðarsyni
gullsmið.
Nánar á www.bb.is
hlutskörpust
70 ára afmæli
Hinn 11. september næstkomandi
verður
Jónas A. Pálsson
frá Hróarsdal sjötugur.
Af því tilefni ætlar hann að blása
til afmælisfagnaðar að heimili sínu
Túngötu 16, Álftanesi,
kl. 16.00 laugardaginn 8. september.
Hann vonast til að sem flestir
ætting jar, sem og gamlir og nýir
vinir sjái sér fært að samgleðjast
honum á þessum tímamótum og þigg ja
veitingar.
Vinsamlegast komið klædd eftir veðri.
70 ára afmæli
Magnea
Sigurbergsdóttir,
Lindargötu 50, varð 70 ára
4. september sl.
Í tilefni afmælisins tekur hún á móti
gestum að Stangarhyl 4, laugardaginn
8. september kl. 16 - 19.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
Einar Möller
vélstjóri, Heiðarholti 40, Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn
30. ágúst, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 6. september kl.12.00.
Kristján Möller Hólmfríður Karlsdóttir
Birgir Möller Þórstína Sigurjónsdóttir
Ragnheiður Möller Sigurður Sigurbjörnsson
og barnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson