Fréttablaðið - 05.09.2007, Page 48
Ég var að bíða eftir flugi frá Got-landi þegar ég kom auga á
hann. Fyrst horfði ég bara og velti
því fyrir mér hvort þetta væri
örugglega hann. Ég lét augun
hvarfla yfir á aðra farþega og leit
svo aftur á hann. Jú, í samanburði
við hina var þetta Nikolaj Lie Kaas,
fyrsti leikarinn til að fá þrenn
Bodil-verðlaun fyrir þrítugt og lék
m.a. í Idioterne. Þarna sat hann og
dottaði og enginn virti hann viðlits.
Svíar! hnussaði ég en bara innan í
mér. Þeir vita greinilega ekkert
um danska kvikmyndagerðarlist.
tók sig
upp. Mér fannst ég þurfa að gera
eitthvað. Átti ég ekki að vinda mér
að manninum og segja eitthvað?
„Minn bara á Gotlandi! Varstu
kannski að leika í bíómynd eða
hvað?“ Samt sat ég kyrr, enda rudda-
legt að ræna þreyttan mann hvíld-
inni. Ég hef ekki verið nálægt jafn-
þekktum manni síðan ég mætti – og
haldið ykkur fast – Colin McCredie í
klósetttröppunum í Háskólabíói. Jú,
mikið rétt, rauðhærða Skotanum
sem leikur Stuart Fraser í Taggart.
Auðvitað falaðist ég eftir einkavið-
tali! Hvílíkt skúbb!
sveif líka einu sinni á Wyclef
Jean úr The Fugees á Fornebu og
skiptist á orðum við hann. „Minn
bara í Noregi, ha? Stendur eitt-
hvað til? Sjónvarpsþáttur! Gaman,
gangi þér rosavel.“ Um leið og ég
kom inn á hótel hringdi ég í vin
minn til að segja að ég hefði rétt í
þessu verið að rabba við Wyclef
Jean. „Hann stóð nú við hliðina á
mér á Kaffibarnum um daginn,“
sagði vinur minn og það rifjaðist
upp fyrir mér að hljómsveitin var
nýkomin af klakanum.
ég hef aldrei heyrt að Nikolaj
hafi komið til Íslands. Hann átti ég
alein og þarna svaf hann spotta-
korn frá mér án þess að nokkur
gæfi honum gaum. Og líklega var
það þess vegna sem óróinn seytlað-
ist smám saman úr mér og andar-
drátturinn varð aftur reglulegur.
Þegar kallað var út í vél rumskaði
Nikolaj, stóð upp og teygði úr sér.
Hann settist rétt fyrir aftan mig í
vélinni en samt var ég pollróleg
eins og sú sem umgengist hefur þá
ríku og frægu alla tíð. Ég meina, ég
á enn tölvupóstfang Colins McCred-
ie! Samt fyndist mér leiðinlegt ef
enginn hefði frétt af því að ég hefði
næstum því spjallað við sjálfan
Nikolaj Lie Kaas.
Jag och min
kändis