Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 12. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR8 Ú T T E K T að er kannski tákn hraðans í viðskiptalífinu að Lárus Weld- ing setjist rétt rúmlega þrítug- ur í stól forstjóra Glitnis og að sá sem hverfur til annarra verkefna sé 39 ára. Á markaðnum var til þess tekið hversu smurt umskiptin gengu. Hvergi virðist hafa verið kastað til höndunum við umskiptin og búið býður heim mörgum tækifærum. Sumarið er að baki og Lárus er búinn að koma sér fyrir. Fram undan er ögrandi verkefni við áframhaldandi uppbyggingu bankans með blöndu gamalla og nýrra stjórnenda. „Í mínum huga snúast næstu þrjú til fimm ár um að hafa metnað og vilja til að gera bankann að alvöru alþjóð- legu fyrirtæki. Það er eina leiðin í mínum huga til að búa til raunverulega aukin verðmæti fyrir hluthafana. Til þess þarf að búa til fyrirtæki sem á skilið að vera al- þjóðlegt og getur laðað til sín erlenda fjár- festa.“ Lárus segir bankann í stefnumótunar- ferli. „Niðurstöður þar sýna að stefnan sem mótuð hefur verið er mjög góð og vel hugsuð.“ Bankinn hefur skilgreint Ísland og Noreg sem heimamarkað og einbeitt sér að sértækum verkefnum á alþjóðamarkaði í matvælaiðnaði, einkum sjávarútvegi, jarðvarmaorku og skipaiðnaði. „Verkefni okkar á Norðurlöndum, þar sem mikið hefur verið fjárfest í fyrirtækjum og við náð til okkar góðu starfsfólki, er núna að sýna áframhaldandi vöxt og hagnað. Við ætlum okkur að vera eitt fyrirtæki, en ekki móðurfélag með dótturfélög erlendis. Eina leiðin til að ná samlegð út úr rekstr- inum er að ná bankanum saman í eina heild. Við höfum verið að kaupa, og nú þurfum við að einbeita okkur að því að reka.“ Hann segir að með erfiðari markaði verði fókus stjórnenda á hvar hagkvæm- ast sé að vinna verkin. Þar verði Ísland að vera samkeppnishæft á öllum sviðum ætli menn að halda þeim ávinningi sem hefur náðst undanfarin ár. Lárus þekkir vel til uppbyggingar fjár- festingarbankastarfsemi, en hann var lykilmaður í uppbyggingu Landsbankans í London. Glitnir hefur sterka stöðu í Nor- egi og hefur þaðan sótt fram til Svíþjóðar og Finnlands. Lárus segir ýmis tækifæri liggja á þeim slóðum. „Þetta eru rík lönd og mikið fjármagn til taks til fjárfestingar. Tækifærin eru mikil í markaðsviðskipt- um og við höfum náð sterkri stöðu í miðl- un og höfum nýtt þá stöðu á margvíslegan hátt, meðal annars til að koma alþjóðleg- um sjávarútvegsfyrirtækjum á markað. Við höfum byggt upp fyrirtækjaráðgjöf til að nýta efnahagslegan styrk okkar, en erum hins vegar ekki farin að nota afleið- ur og annað slíkt inn á þessa markaði. Ef við horfum á markaðsviðskipti hér og í heiminum, þá er stærstur hluti þeirra í einhvers konar fjármögnun og afleiðum. Við í Glitni og reyndar almennt hér á landi erum nokkuð þróuð í slíkum fjármála- gjörningum. Við erum með banka í Nor- egi sem hefur sterka stöðu og við getum nýtt betur á þessu sviði. Við höfum náð góðum árangri þar sem við höfum skil- greint okkur vel á mörkuðunum og ein- beitt okkur að ákveðnum verkefnum. Þar höfum við náð góðri markaðshlutdeild og ætlum okkur það sama á fleiri sviðum.“ ÖÐRUVÍSI FÓLK Landafræðin er bara einn hluti útrásarinn- ar. Hinn er að bankinn hefur einbeitt sér að sérhæfðum syllum. „Við komum allt- af að sömu spurningunni varðandi stefn- una. Hvað erum við að reyna að gera? Það sem við þurfum að gera til að auka virði bankans er að vera með trúverðugt og traust eignasafn og vinna á þeim svæðum og í þeim geirum þar sem við höfum eitt- hvað fram að færa og getum myndað verð- mæti. Það er nóg af peningum í heiminum, það vantar ekki þótt menn séu aðeins að hrökkva á hliðarlínuna þessa dagana, það er ekki vandamálið. Við getum ekki keppt í að lána peninga ódýrast. Við getum keppt í því að koma með önnur verðmæti til við- skiptavinanna.“ Lárus segir að verðmætin sem íslensku bankarnir hafi komið með að borðinu liggi meðal annars í flötum stjórn- endastrúktúr sem þýði að menn vinni hratt og vel. „Það er það sem við gerum og höfum fengið góð viðbrögð á það í Noregi. Vandinn fyrir okkur og íslensku bankanna er að halda þessu eftir því sem þeir vaxa og verða flóknari. Það sem Glitnir hefur gert til viðbótar er að búa til sérhæfða þekkingu innan bankans með sérhæfingu í greinum sem við þekkjum vel og erum vel settir í svo sem í sjávarútvegi og nú síð- ast jarðvarmanum og með samstarfinu við Geysi Green Energy.“ Lárus segir að þetta séu kannski ekki risastór svið á alþjóðlegan mælikvarða, en nægilega stór til að þótt bankinn fái ekki nema brot af viðskiptunum dugi það til vaxtar næstu árin. „Það skiptir máli að við getum horft í augun á viðskiptavinum og sagt að við vitum sitthvað um þessi svið. Við komum því með mikla þekkingu og það færir okkur þessa umframarðsemi.“ Í þessu skyni hefur bankinn ráðið til sín fólk sem ekki hefur endilega reynslu af bankastarfsemi, en yfirburðaþekkingu á viðkomandi grein. „Við höfum því ráðið fólk sem bankar erlendis hefðu kannski ekki leitað að og nýtum það með fólki með bankaþekkingu til að greina markaðinn í nánu samstarfi við fyrirtækin í viðkom- andi grein.“ PERSÓNULEG SAMBÖND Glitnir opnaði í síðustu viku starfsstöð í New York. Bandaríkin eru þróað banka- land og ekki auðvelt að finna syllur þar sem ekki er einhver þegar búinn að hreiðra um sig á. Útrás til Bandaríkjanna hefur gengið misvel, en Glitnir hefur komið sér ágætlega fyrir með þjónustu við sjávarútveg og nú er stefnan sett á jarðvarmann. Þar eru í senn miklir mögu- leikar og hratt vaxandi áhugi og gildi þekkingarinnar ótvírætt. „Það gildir hér eins og raunar alltaf að maður verður að tala um það sem maður veit eitthvað um. Það hefur enginn tíma til að hlusta á ein- hvern tala sem ekki veit hvað hann er að tala um. Íslensku bankarnir hafa að mörgu leyti verið talsmenn íslensku fjár- festingarfélagana og þar hafa menn viljað fá að vita á hvaða leið þau eru. Það sem er skemmtilegt við innkomuna í Banda- ríkin er að þar erum við að tala um hluti sem við vitum mikið um og finnum fyrir miklum áhuga á að hlusta á okkur.“ Lárus bætir við að bankinn hafi notið einstaks liðsinnis forseta Íslands við kynningu á sérsviðum bankans. „Úr þessu verða svo til viðskiptasambönd sem leiða vonandi til þess að kúnnunum líkar hversu hratt og vel við vinnum. Við veljum kúnnana út frá sérþekkingu okkar.“ Lárus segir að fram- haldið sé svo það sem allir bankar heims- ins reyna að gera að nýta viðskiptasam- böndin til að selja kúnnanum síðan aðra þjónustu bankans. „Slík viðbót fæst hins vegar ekki nema við séum sambærileg og samkeppnishæf á alþjóðavettvangi við aðra banka í annarri þjónustu.“ Lárus segir að augljóslega þurfi öll kerfi og vinnuferlar að vera í fullkomnu lagi í bankastarfsemi. „Á endanum snýst þetta hins vegar fyrst og síðast um fólk. Banka- starfsemi er mjög persónuleg þjónusta,“ segir hann og bætir því við að íslensku bankarnir þurfi að huga vel að framleiðni í starfseminni og halda öguðum rekstri í ljósi hratt vaxandi umsvifum. Þessi sérhæfða þekkingarþjónusta er býsna langt frá þeirri mynd sem almenn- ingur hér á landi hefur af bankastarf- semi. Skuldugur Íslendingur sér bara yfir- drátt og háa vexti. „Eini staðurinn þar sem Glitnir sinnir einstaklingum með ahliða fjármálaþjónustu er á Íslandi. Þetta eru al- gjörlega aðskildir heimar. Ísland er mark- aður með góða þjónustu og ég held að það sé alveg sama hvernig hún verður skoðuð, ég er sannfærður um að hún er mjög sam- keppnishæf. Vandamálið á Íslandi er nátt- úrlega grunnvextirnir. Álagning og þjón- usta á þeim markaði er ótrúlega góð fyrir viðskiptavinina miðað við stærð mark- aðarins.“ Alls staðar annars staðar, fyrir utan smá viðskiptabankastarfsemi í Nor- egi, er Glitnir fyrst og fremst fyrirtækja- og fjárfestingarbanki.“ Endurnýjanleg orka er gríðarstórt svið og Glitnir setur brennipunktinn á jarð- varma. Þar höfum við samkeppnisforskot með einstakri þekkingu á nýtingu jarð- varma í orkuöflun. Samkeppnisforskotið er fyrir hendi, en spurningin er hversu langan tíma við höfum í friði fyrir öðrum. „Við erum leiðandi og við höfum verið að skoða verkefni með stórum bönkum. Við erum komin til að vera í þessari grein og ég held að við munum halda stöðu okkar, en við munum vinna með ýmsum að slíkum verkefnum. Ég held að þarna hafi bankinn verið á réttum stað á rétt- um tíma.“ Alvöru alþjóðafyrirtæki leiðin til vaxtarins Lárus Welding tók við keflinu af Bjarna Ármannssyni í Glitni. Hans verkefni er að fylgja eftir stefnu bankans í nýjum og spennandi kafla í alþjóðlegri uppbyggingu. Hafliði Helgason horfði á hlaupabrautina fram undan með forstjóranum, sem er búinn að nota sumarið til að reima á sig hlaupaskóna og er stokkinn af stað. Við höfum því ráðið fólk sem bankar erlendis hefðu kannski ekki leitað að og nýtum það með fólki með bankaþekkingu til að greina markaðinn vinna í nánu samstarfi við fyrirtækin í við- komandi grein.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.