Tíminn - 06.02.1981, Síða 8

Tíminn - 06.02.1981, Síða 8
8 Fös'ttidagur 6. febrúar 1981 Slökkviliðsmenn safna undirskríftum víðs vegar um iandið: Mótmæla hugmyndum um niðurlagningu Brunamála- stofnunar „ötjorn Landssambands slökkviliðsmanna hefur alltaf verið þeirrar skoðunar að ekki eigi að leggja niður starfsemi Brunamálastofnunar rikisins (hér eftir skammstafað BMSR) eða færa hana undir Vinnueftir- lit rikisins. heldur beri að efla þá stofnun sem sjálfstæða stofn- un. Þessi undirskriftarsöfnun er til að itreka hugmyndir okkar i þessu efni”, sagði Jónas Mart- einsson, ritari stjórnar Lands- sambands slökkviliðsmanna, i samtali við Timann. Undirskriftirnar verða af- hentar næstu daga, annað hvort Svavari Gestssyni félagsmála- ráðherra, eða Guðmundi Magn- ússyni, verkfræðingi, sem er formaður nefndar sem félags- málaráðherra skipaði sl. sumar til að endurskoða gildandi lög og reglugerðir um brunavarnir og brunamál, gera úttekt á stöðu og starfsemi Brunamálastofn- unar rikisins, og jafnframt til- lögur um æskilegar breytingar á starfssviði og starfsemi stofn- unarinnar i framtiðinni. Magnús H. vildi leggja niöur BMSR Magnús H. Magnússon, fýrr- verandi félagsmálaráðherra, hafði ákveðnar hugmyndir um starfsemi BMSR og vildi að þvi er næst verður komist leggja niöur stofnunina sem slika og dreifa verkefnum hennar yfir á aðrar stofnanir, m.a. svokall- aða brunamáladeild i væntan- legu Vinnueftirliti rikisins, sem reyndar tók til starfa um siðustu áramót, þegar nýju lögin um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustööum tóku gildi. Frumvarpið að lögunum um aðbúnað, hollustuhætti og ör- yggi á vinnustöðum, sem sam- þykkt var á Alþingi i maimán- uði á sl. ári, var samiö i embætt- istið Magnúsar H. Magnússonar af nefnd sem starfaði undir for sæti Hallgrims Dalbergs, ráðu- neytisstjóra. Onnur nefnd starf- aði undir forsæti sama manns eftir að lögin voru samþykkt og gerði hún athugun á lögunum. Báðar þessar nefndir komust að svipaðri niðurstöðu að þvi er varðar BMSR. Hvorug þeirra nefnir að stefna beri að þvi að leggja niður BMSR, en hins veg- ar er lagt til að þýðingamiklir póstar i starfsemi stofnunarinn- ar verði færðir yfir til Vinnueft- irlits rikisins. Telur nefndin aö eldvarnir á hvers kyns vinnustöðum séu mjög veigamikill hluti af örygg- ismálum þeirra sem þar vinna og falli þar af leiðandi undir lög- in um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Leggur nefndin til að stofnuð verði sér- stök brunavarnarmáladeild innan Vinnueftirlits rikisins, sem fjalli á sérfræðigrundvelli um eldvarnareftirlit á vinnu- stöðum. Slökkviliðsmenn sparka formanninum Allt frá þvi að fyrstu hug- myndirnar komu uppp á yfir- borðið um breytta tilhögun á rekstri BMSR eða jafnvel niöur- lagningu stofnunarinnar lýsti Landssamband slökkviliðs- manna sig andvigt þeim hug- myndum. Taldi það ekki koma til greina að leggja stofnunina' niður, og á 6. þingi Landssam- bands slökkviliðsmanna var samþykkt skelegg ályktun þar að lútandi. A 8. þingi Landssambands slökkviliðsmanna sem haldið var i októbermánuði á sl. ári var enn rættum starfsemi BMSR og kom þá i ljós að formaður sam- takanna var einn af þeim sem vildu leggja BMSR niður, þrátt fyrir að hann hefði lýst þvi yfir fyrr i ræðu sinni að samstarf BMSR og Landsamband slökkviliðsmanna hefði aukist og verið mjög gott á sl. ári. Þingfulltrúar kunnu þvi að vonum illa að formaður þeirra ynni gegn yfirlýstri stefnu sam- takanna og höfðu það i huga við stjórnarkjörið. Var listi for- mannsins felldur við stjórnar- kjörið og nýir menn kjörnir i hans stað. „Fyrrverandi formaður er einn af þeim sem vilja breyting- ar á starfsemi BMSR og þvi varð hann að vikja”, sagði nú- verandi ritari stjórnar Land- sambands slökkviliðsmanna, Jónas Marteinsson. Slökkviliðsmenn telja sig vera aö taka faglega afstöðu til starf- semi og framtiðar BMSR og eru mótfallnir þvi að aðilum vinnu- markaðarins sé afhent þeirra hagsmuna og lifsspursmál sem eru eldvarnir, hvort sem er i at- vinnufyrirtækjum eða heimil- unum. Hins vegar hafa slökkviliðs- menn velt fyrir sér hvað ráði af- stöðu fyrrverandi formanns samtaka slökkviliðsmanna i þessu máli, en hann er nú Hér er starfsemi BMSR til húsa starfsmaður hjá BMSR, og telja einna helst að hann hafi búist við þvi að hagnast persónulega á þeim breytingum sem hug- myndireru uppi um, með þvi að vera gerður að deildarstjóra i væntanlegri brunamáladeiid Vinnueftirlits rikisins, en hann mun tilheyra sama stjórnmála- Stjórnarformaöur Vinnueftirlit ríkisins: JUdrei hvarflað að okk- urað gleypa BMSR” Tímamynd G.E. flokki og fyrrverandi félags- málaráðherra. Svavar skipar nýja nefnd Eins og greint var frá hér i upphafi skipaði Svavar Gests- son, félagsmálaráðherra, sér- staka nefnd 27. mars á sl. ári sem gera á úttekt á stöðu og starfsemi BMSR, eins og háttar i dag — og gera tillögur um æskilegar breytingar á starfs- sviði og starfsemi stofnunarinn- ar i framtiðinni, m.a. með hlið- sjón af gildistöku nýju laganna um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Formaður þeirrar nefndar er Guðmundur Magnússon, verk- fræðingur, en auk hans sitja i nefndinni: Edgar Guðmunds- son, verkfræðingur, Gisli Lór- ensson, varaslökkviliðsstjóri á Akureyri, Héðinn Emilsson, deildarstjóri i Samvinnutrygg- ingum og Magnús Skúlason, for- maður Bygginganefndar Reykjavikur. Guðmundur Magnússon for- maður nefndarinnar sagði i við- tali við blaðamann Timans að hann vildi ekki tjá sig um þær hugmyndir sem uppi eru i nefndinni, fyrr en félagsmála- ráðherra hefði verið gerð grein fyrir þeim, en sagði jafnframt að mjög stutt yrði i það að nefndin lyki störfum. Gisli Lórensson, einn nefnd- armanna, sagði hins vegar i við- tali við Timann, að nefndin væri sammála um það að ekki kæmi til greina að leggja niður starf- semi BMSR, og hefði ráðherra verið gerð grein fyrir þeirri af- stöðu nefndarinnar. Nú ynni nefndin hins vegar að þvi að færa rök fyrir þeirri skoðun sinni. Nefndin hefur aflað sér upp- lýsinga frá hinum Norðurlönd- unum um starfsemi vinnu- og brunaeftirlita þar á bæjum og m.a. hefur formaður nefndar- innar kannað framkvæmd þess- ara mála sérstaklega i Sviþjóð og rætt við forsvarsmenn vinnu- eftirlits og brunamála. Niður- staðan af öllum þessum athug- unum mun falla i sama farveg- inn um að ekki fari saman vinnueftirlit og brunaeftirlit. „Það þekkist hvergi á hinum Norðurlöndunum að vinnueftir- litið sjái jafnframt um bruna- eftirlit, nema að mjög takmörk- uðu leyti”, sagði Gisli Lórens- son. Sem fyrr segir þá er mjög stuttur timi þar til nefnd Guð- mundar Magnússonar verk- fræðings mun skila tillögum sin- um til félagsmálaráðherra. Sið- an er það ráðherra að taka af- stöðu til þeirra tillagna, en ætli hann sér að gera einhverjar verulegar breytingar á starf- semi BMSR þá þurfa þar til að koma afskipti Alþingis, þvi i lögum um brunavarnir og brunamál frá árinu 1969, er ná- kvæmlega sagt fyrir um starf- semi og verksvið stofnunarinn- ar, og verða verkefni þvi ekki tekin frá henni nema með laga- breytingu. I I Kas — ,/Þaö er ákveöinn meiningamunur um ein- staka verkþætti, þ.e. hvort Vinnueftirlit rikis- ins eöa Brunamálastofn- un ríkisins eigi að fjalla um þá. Hins vegar hefur það aldrei hvarflað að okkur að gleypa BMSR", sagði Þorvarður Bryn- jólfsson, stjórnarfor- maður Vinnueftirlits rík- isins, i samtali við Tím- ann, „og ég á þvi ekki von á því að við leggjum til að BMSR verði gerð að einni deild innan Vinnueftirlits rikisins." Stjórn Vinnueftirlits rikisins vinnur nú að tillögugerö til félagsmálaráðherra um skipt- ingu Vinnueftirlits rikisins niður i deildir, og samkvæmt þeim drög- um sem nú liggja fyrir er gert ráð fyrir ákveðinni brunamáladeild sem m.a. mun hafa með höndum eldvarnareftirlit á vinnustöðum. Taldi Þorvarður Brynjólfsson eðlilegt að Vinnueftirlit rikisins tæki það verkefni að sér, enda heföi það á að skipa menntuðum mönnum i eftirliti á vinnustöðum, og þvi ekkert annað en tviverknaður aö vera með tvö eft- irlitskerfi i gangi á sömu stöðum. 99 LEGGJUM EKKI TIL AÐ BMSR VERÐI LÖGÐ NIÐUR” - segir Hallgrímur Dalberg, ráöuneytisstjóri Kás —- „Við erum ekki á nokkurn hátt að leggja til að Brunamá lastof nun rikisins (BMSR) verði lögð niður", sagði Hall- grímur Dalberg, ráðu- neytisstjóri, i samtali við Timann, en hann var for- maður nefndar sem fé- lagsmálaráðherra fól að gera athugun á lögunum um aðbúnað, hollustu- hætti gg öryggi á vinnu- stöðum. „Hins vegar leggjum við til, eins og tekið er fram i skýrslu okkar, að ákveðnir þættir i starfsemi BMSR verði færðir undan henni til Vinnueftirlits rikisins, og jafnframt teljum viö eölilegt aö innan Vinnueftirlits- ins starfisérstök deild sem fjalli um brunavarnamál á sérfræði- grundvelli. „Það er alls ekki meining okkar tillagna að Vinnueftirlitið yfirtaki alla þá starfsemi sem nú er innt af höndum hjá BMSR, heidur aöeins eldvarnareftirlit á vinnustööum”, sagði Hallgrim- ur Dalberg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.