Tíminn - 07.02.1981, Blaðsíða 1
Laugardagur 7. febrúar 1981
30. tölublað —65. árgangur
Síðumúla 15 Pósthólf 370 • Reykjavík Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 Kvöldsimar 86387 & 86392
Islenska krónan hækk-
aði um 2,4% í janúar
JSG — Seðlabankinn hefur
reiknað út vegið meðalgengi
islensku krónunnar i janúar
siðastliðnum, og hefur komið i
ljós að krónan styrktist þá um
2.4%. Þetta er langmesta
hækkun krónunnar i einum
mánuði i mörg ár, en hún á að
sjáifsögðu rætur að rekja til
þeirrar ákvörðunar rikis-
stjórnarinnar um áramót að
gengið skyldi sett fast, sem
útfærð var á þann hátt að gengi
krónunnar gagnvart dollara var
haldið óbreyttu. Dollarinn
styrktist hins vegar nokkuð I
mánuðinum, sem varð til þess
að meðalgengi krónunnar
hækkaði.
Ólafur Tómasson, forstöðu-
maður greiðslujafnaðardeildar
Seðlabanka tslands, sagði i
samtali við Timann i gær, að
það væri ekki einsdæmi á siö-
ustu fimm árum að gengi krón-
unnar hækkaði litið eitt i einum
mánuði.
Þannig heföi gengi
hennar t.d. hækkað um 0.6% i
marsmánuði 1980. En hækkunin
nú er sii langmesta á þessu
timabili.
Á blaðsiðu 3 er brugðið upp
mynd af gengisskráningu krón-
unnar gagnvart fjórum gjald-
miðlum i þessum óvenjulega
gengisskráningarmánuði.
Þæfingsfærð var i borginni i gær svo jafnvel jeppar komust ekki allra sinna ferða fyrirstöðulaust. (Timamynd: Róbert).
Erfið-
leikar
hjá Air
Baharaa
AM — Að undanförnu hafa veriö
talsverðir erfiðleikar hjá Air
Bahama og aö sögn Sigurðar
Ilelgasonar, forstjóra Flugleiöa,
scm við ræddum viö i gærkvöldi,
hefur ferðum nú verið fækkað úr
tvcim til þrem á viku i eina.
Sigurður sagði að orsaka þessa
væri að leita til þess að fjöldi
Evrópuflugfélaga væri nú farinn
að fljúga inn á Miami samkvæmt
réttindum sem þau ekki áður
höföu, en hafa nú öðlast vegna
breyttrar stefnu Bandarikja-
stjórnar i flugmálum, sem hér
sem viðar hefur leitt til haröari
samkeppni.
Siguröur taldi þó ekki að þessi
áföll væru forboði um nein
örlagarikari þáttaskil i rekstri
Air Bahama.
Áfengissala ÁTVR nær 26 milljarðar 1980
Afengisdrykkja
(frá ÁTVR) minnk-
aði síðastliöiö ár
ef ekki vildi betur. Það er ekki
sama „Rikið” og rikið.
í krónum talið hækkaði þessi
upphæð um 50,5% frá árinu 1979
yfir landið i heild. Söluaukning-
in milli ára var hinsvegar mjög
mismunandi eftir landshlutum,
af hverju sem það nú stafar.
Mest varð söluaukningin i
áfengisversluninni á Seyðisfiröi
um 54,4% en minnst i Vest-
mannaeyjum og á Siglufirði
rösklega 34%, sem er þvi langt
undir verðbólgustigi. Söluaukn-
ingin i Reykjavik varð um 51,7%
og einnig var Keflavik nokkuð
yfir meðaltalinu.
HEI— Neysla áfengis frá ATVR
minnkaöi árið 1980 um 2,42%
miðað við árið 1979, að því er
fram kemur i frétt frá Áfengis-
varnarráði. Segir ráöið áfengis-
söluna i fyrra hafa numið 3,16
litrum af hreinum vinanda á
hvert mannsbarn i landinu á
móti 3,24 litrum árið áður. Rétt
er að taka fram, að þessir 3,24
litrar eru það mesta sem selt
hefur verið frá ÁTVR um ára-
tugi.
Miðaö við frétt blaðsins i gær,
þar sem talið var að sala á efn-
um til bjór- og vingerðar hafi
jafnvel minnkað um helming i
fyrra frá þvi sem var árið áður
virðast talsverðar likur á þvi að
landsmönnum hafi farið aft-
ur/fram i drykkjuskapnum á
s.l. ári.
Heildarsala ATVR á áfengi
árið 1980 var allt um það
25.835.937.727 gkr. sem verður
að telja ansi laglega tölu. Til
gamans má geta þess, að þessi
tala er um tveir þriðju þeirrar
upphæðar sem rikið lagði á ein-
staklinga i tekjuskatt á þvi
sama ári og þurfti að innheimta
með allskonar auglýsingum,
hótunum og jafnvel uppboðum
Fjöldi árekstra á
höfuðborgarsvæðinu
AM — Fjöldi árekstra varð i
Reykjavik i gær cftir aö snjó
kyngdi niður i fyrrinótt og var
fjöldi árekstra kominn yfir 30 kl.
20 i gærkvöidi, er við ræddum við
lögreglu.
1 Kópavogi höfðu orðið mjög
margir árekstrar á sama tima og
i fyrrakvöld var mýgrútur af
minni árekstrum úti um allt, þótt
fæstir yrðu alvarlegir. Voru þeir
margir þess eðlis að menn geröu
málin upp á staðnum, án skýrslu-
gerða lögreglu.
Hafníiröingar
virtust hafa farið sér nokkru
gætilega en þar höfðu ekki orðið
nema 6 árekstrar siöasta sólar-
hring.
Fóstrur starfandi hjá
ríkinu segja upp
i samræmi við aðgerðir fóstra
viða um land, hafa fóstrur starf-
andi hjá rikinu nú sagt upp störf-
um, frá 1. febrúar að telja.
Þess má geta að sérkjarasamn-
ingum er ekki lokið milli starfs-
mannafélags rikisstofnana og
samninganefndar rikisins hvaö
varðar fóstrur þó svo sérkara-
samningar hafi verið undir-
ritaðir fyrir alla aöra rikisstarfs-
menn i nóvember siöastliðnum.
Fóstrur starfandi hjá rikinu eru
þvi ennþá i 10. launafl. með 4.496
nýkr. i byrjunarlaun.