Tíminn - 07.02.1981, Blaðsíða 10

Tíminn - 07.02.1981, Blaðsíða 10
10 Laugardagur 7. febrúar 1981, Ættbók og saga íslenska hestsins á 20 öld Skráð af Gunnari Bjarnasyni fyrrverandi hrossaræktarráðunaut Rétt fyrir siöustu jól, kom téö bók i bókaverslanir. Þá voru 10 ár liöin frá útgáfu 1. bindis þessa verks. Það hefur tekið Gunnar Bjarnason óeðlilega langan tima að koma frá sér þessari bók. Efni Ættbókarinnar, sem ein- göngu er helgað þeim hryssum er ættbókanir hafa hlotið á þvi timabili sem bókin nær yfir, er allt fyrir hendi hjá Búnaðar- félagi Islands. Þvi er ekki um samningu ættbókar að ræða, aðeins niðurröðun á efni. Ég fagnaði þvi mjög er um- rædd bók loks leit dagsins ljós og reikna með þvi að margir séu sama sinnis. Eftir að hafa lesið bókina verð ég að segja það að hún olli mér vonbrigðum að verulegu leyti.Hins vegar er hún ómissandi sem uppsláttarbók og i raun bók sem allir hesta- menn þurfa aö eiga. Ættbókin sem er þungamiðja verksins og gefur henni mest gildi er ekki nógu vel unnin. Umsögnum dómaranna varð- andi hryssurnar er sleppt i flest- um tilfellum og þvi ekki hægt að sjá nema að hluta á hverju dóm- arar byggja úrskurð sinn. Þessi vinnubrögð eru i raun og veru ótæk og vekur furðu að ráðu- nauturinn skyldi kasta svo höndum til Ættbókarinnar og raun ber vitni. Allt of litið er af myndum i bókinni, ef til vill er það sök hryssueiganda að ein- hverju leyti, þannig að senda ekki G.B. myndir af hryssum sinum ef tiltækar voru. En ég minnist þess ekki að hafa séð nokkra ósk frá G.B. varðandi myndir i Ættbók. Það er kannski ekki nema mannlegt þó einhverjar villur slæðist i Ætt- bókina og ég ætla ekki að gera veður út af sliku. G.B. segir i iörmála að hann vonist til þess að missagnir séu ekki margar i bókum hans og undir þá ósk vil ég taka. En úr þvi að ég er farinn að skrifa um bókiná vil ég benda G.B. á tvö atriði varðandi vansögn og mis- sögn sem ég hef rekist á eftir lauslegan lestur. Á hrossasýn- ingu að Bæ i Hrútafirði á árun- um 1944—45 sýndi Böðvar Eyjólfsson þá bóndi i Bæ gráa hryssu 5 eða 6 vetra er hét Perla. Móðir þessarar hryssu hét Grána og var i eigu Böðvars. Faðir var Kjörseyrar-Brúnn nr. 114. Á sýningunni hlaut þessi hryssa 1. verðlaun ásamt fleir- um. Nú bregöur svo undarlega við að hennar er ekki getið og virðist sem hún hafi með ein- hverjum hætti fallið út úr Ætt- bók, ég hefði haldið að slikir hlutir ættu ekki að geta gerst. Perla reyndist mjög gott reið- hross og gaf mörg góð afkvæmi. Hún stóðst með ágætum dóm þann er G.B. gaf henni ungri á umgetinni hrossasýningu. Hetja frá Kjörseyri nr. 3168. Eigandi Georg Jón Jónsson er i bókinni sögð dóttir Skugga frá Bjarnarnesi nr. 201. Þetta er ekki rétt. Hins vegar var Skuggi Gunnar Bjarnason og hestar. langafi hennar i föðurætt. Faðir Hetju var Hlýrnir Kjörseyri nr. 547. F.f. Brúnn frá Fossártúni er var Skuggasonur. Litar Hetju er ekki getið og svo er um fleiri hryssur i þessari bók, og er það enn einn vottur um óvönduð vinnubrögð. Ekki trúi ég þvi að Þorkell Bjarnason hrossa- ræktarráðunautur hafi skráð gæðinginn Hetju, er hann dæmi á Ferjukotsbökkum á sinum tima á þann hátt sem fram kemur i Ættbókinni. 1 fyrsta hluta bókarinnar er fjallar um frammámenn i hrossarækt, hestaættir, lands- mót o.m.fl. er margt vel sagt. G.B.ergóður pennioghonum er lagiö að glæða frásögn sina lifi með skemmtilegum innskotum, en of mikið blandar G.B. sjálf- um sér i þennan hluta bókar- innar svo úr verður hálfgerð starfsaga G.B. Ég tel það orka mjög tvimælis að hræra þessu svo saman eins og gert er i þess- um hluta bókarinnar. V. kafli bókarinnar er þáttur um Jóhannes Kjarval listmál- ara. Vandséð er hvaða erindi ritsmið þessi á i téða bók. Mér vitanlega hefur sá ágæti lista- maður aldrei komið nærri mál- efnum hestamanna. Hann kann að hafa málað einhverjar hesta- myndir, þó er þess ekki getið i frásögn G.B. Eftir að hafa lesið þennan kafla getur verið von á hverju sem er frá höfundi. Það lætur heldur ekki á sér standa. Vll. kafli bókarinnar hefur yfirskriftina „Erjur”, þar kennir margra grasa. i fyrsta hluta þessa þáttar er tekur yfir 12 bls. er megin uppistaðan frá- sögn um lausagöngu stóðhesta, deilurer upphafa risið útaf slik- um málum, kærur og dómar og eru þeir raktir allt til Hæsta- réttar, með allskonar ivafi og útúrdúrum frá hendi höfundar. Frásögn þessi er öll óviðkom- andi Ættbókinni og á þar ekki heima. Þá kemur 15 blaðsiðna langur þáttur er fjallar um viðskipti þeirra Sigurðar frá Brún og höf- undar. Mér kom fyrst i hug eftir lestur þessa kafla að G.B. hafi fundist hann fara halloka i þeirra viðskiptum og notað þetta tækifæri til þess að ná sér niðriá Sigurði látnum. í þessari löngu frásögn er margt nötur- lega sagt i garð Sigurðar og vægast sagt er litilmannlegt að skrifa svo um látinn mann, sem ekki getur svarað fyrir sig. Ég er enginn aðdáandi Sigurðar frá Brún, en ég kynntist honum töluvert. Við vorum oft ósam- mála, einkum i sambandi við hross. Viö versluðum töluvert saman með hross á timabili. Mér reyndist hann framúrskar- anditraustar i allri viðkynningu og viðskiptum. Hitt er rétt sem fram kemur hjá G.B. að Sig- urður var á ýmsan hátt sér- kennileguren.hann var greindur og oft gaman að tala við hann. Engan mann hef ég þekkt sem var eins fróður um hestaættir. Hrossarækt stundaði hann um árabil, en að minum dómi með vafasömu ivafi. Um langa hrið stundaði Sigurður hestaverslun vitt um landið ég held að hann hefði ekki náð svo langt sem raun ber vitni, ef viðskipti við hann hefðu kostað deilur og eftirmál. Þá er komið að þeim þætti er G.B. nefnir „Merarerjur i Austur-Húnavatnss”. Þessi kafli þekur 26 bls. i bókinni svo ekki er hægt að segja annað en G.B. geri merarmálum Austur-Húnvetninga góð skil. Aðallega er þetta frásögn af svokölluðu „Skjónumáli” er fjölmiðlar gerðu sér mikinn mat úr á sinum tima. i eðli sinu er málið nauða ómerkilegt. Upp- haf þess byggist á þvi að mis- dráttur hefur kannski orðið á illa mörkuðu mertrippi, sem ekki kemst upp fyrr en hryssan er orðin gömul. Þá gera hlutað- eigendur sig seka um þá frá- munalegu þrjósku og heimsku að stofna til umfangsmikilla málaferla er ekki lauk fyrr en með Hæstaréttardómi. G.B. telur að þótt talsverður hluti af málskostnaðinum hafi veriðgreiddur úrrikissjóði (eða almannafé) hafi málsaðilar samt þurft að leggja út um 4 reiðhestaverð hvor i máls- kostnað. Telja má það maklegt samkvæmt eðli málsins. Það gefur auga leið að þessir tveir siðastnefndu þættir eru alveg út i hött sem efniviður i Ættbók. Samkvæmt framan sögðu tel ég mig hafa leitt rök að þvi að langur kafli i bókinni á þar ekki heima. Einnig hefði mátt þjappa efni hennar verulega saman, án þess að nokkuð tapaðist sem máli skiptir. Þar af leiðir að ég er ekki sammála þvi sem G.B. segir i formála að óhjákvæmilegt hafi verið að hafa annan hluta ritverksins i tveimur bindum. Þetta er dýr bókog þaðer kannskieðlilegt að hún sé það, en ekki auðveldar það áhugamönnum að eignast hana né greiðir fyrir sölu að hún sé gerð óþarflega dýr. Ef Ætt- bókin hefði verið byggð upp á annan hátt en gert er og öllu málæði sleppt, held ég að nauð- synlegt efni til þess að gera hana vel úr garði hefði rúmast i einni bók. Nú að lestri loknum verður niðurstaða min sú að Ættbók og Saga,2 bindi sé að hluta til gefin út á fölskum forsendum. Jón Kristjánsson frá Kjörseyri. Ungur maður kemur frá Sfðastliöinn laugardag opnaði Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarsýningu i Norræna hiisinu við Hringbraut, þvi gat- an undirskeifu Háskólans, milli Sturlugötu og llringbrautar heitir ekki neitt ennþá, þótt ör- nefnastofnun sé skammt ofan viö veginn. Listnám i Hollandi Helgi Þorgils Friðjónsson er, aö þvi er stendur i sýningarskrá fæddur i Reykjavik 1953. Út- skrifaðist frá Myndlista- og handiðaskóla Islands 1976. Einnig framhaldsnám i Hol- landi: De Vrije Academie Psy- chopolis i' Haag og Jan Van Eyck academie i Maastricht. Þetta er sjöunda einkasýning H.Þ.F. Þær fyrri Galleri OUT- PUT, Rvik 1975, Galerie LÓA, Haarlem i Hollandi, Galleri SOM, Rvik 1978, Galerie Ar- lecchino, Luzern i Sviss 1979, Galleri Suöurgötu 7, Rvik 1980, Galerie Neude Utrecht i Hol- landi 1980. Að auki þátttaka i fjölda samsýninga, á íslandi og viða erlendis. Hollandi Þetta er ekki ónýtur náms- ferill i sjálfu sér, og þvi rétt að skoða myndir hans i öðru ljósien þeirra er minna ráðrúm hafa haft til myndsköpunar. Jónas Guðmundsson MYNDLIST Á að skilja alla mynd- list eins? Það ber ósjaldan viö, er al- menningur kemur með miða inn i hús þar sem list er höfð i frammi, til dæmis söngur, hljóðfærasláttur, ellegar leik- list,— og reyndar myndlist lika, — að hin venjulegu viðbrögð eiga einhvern veginn ekki viö, þvi eitthvað er fyrir innan sem kemur þér og honum Carúsó á óvart. Við erum undir vissu fargi hugmynda, undir fargi hins hefðbundna. Við viljum láta mála eitthvað fallegt, viljum láta spila eitthvað sem rennur iskalt niöur miðtaugakerfiö, og við viljum heyra orð vega orð i leikhúsinu, gleöjast, eða tárast, eftir atvikum. — og þvi koma menn með allt önnur sjónarmiö okkur i opna skjöldu. Og viðbrögð okkar eru oft nei- kvæö, þótt i orði kveðnu séum við siður en svo á móti nýlistum, eða frammúrstefnum, a.m.k. svo lengi sem viö þurfum ekki að verja ákveðin verk eða uppá- komur sérstaklega. Einn svona viöburður er myndlistarsýning sú er Helgi Þorgils Friðjónsson heldur i Reykjavík núna, en Holland hefur um skeið veriö griðland nýlistar af ýmsu tagi. Það er ekki auðvelt að skil- greina vinnu þessa unga lista- manns, að ööru leyti en þvi, að hver mynd er ekki aðeins mynd, heldur (oftast) einhvers konar saga, eða uppákoma lika. Ef til vill væri betra aö yrkja kvæði um sumt, hentugra og fljótlegra, enda beitir lista- Ekki er heldur auðskilið hvers vegna valin er þessi barnalega teikning og útfærsla, eða naiv- ismi, þvi ekki verður betur séð en að flest af þessu megi segja jafnvel, — eða jafnvel betur með vönduðum myndum, likt og frá svipuðum hlutum, en i feikna-vönduðum myndum. Við hljótum þvi að lita á myndlistina sem Helgi Þorgils sýnir núna sem tilraunastarf, fremur en fullbúið og endanlegt tjáningarform. Jónas Guðmundsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.