Tíminn - 07.02.1981, Síða 4
4
Laugardagur 7. febrúar 1981
f *f spegli tímans
,,Ég vil ekki leika neinar „nektarsenur” segir Dolly.
Hún Dolly
verður
stj arna
segja menn i Hollywood
Skrifstofustúlkurnar i myndinni „9 til 5”, f.v. Lily Tomlin,
Jane Fonda (sem er framleiðandi myndarinnar) og söng-
konan Doily Parton. Þær eru augnayndi hvers forstjóra,
ekki satt?
Dolly Parton söngkona, sem
helst hefur orðið fræg fyrir
aö syngja ameriska „sveita-
söngva” hefur nýlega leikið i
kvikmynd og tekist vel upp.
Myndin heitir „Frá 9 til 5” og
Eiginmaður Dollyar
kærir sig ekki um að
vera i sviðsljósinu.
Hann heitir Carl Dean
og er verktaki, en ver
miklum tíma á búgarði
þeirra hjóna nálægt
Nashville. „Á milli
okkar er hin eina sanna
ást", segir Dolly.
er þá átt við venjulegan
vinnutima skrifstofustúlkna,
en myndin lýsir lifi þeirra i
stórfyrirtækjum nú á timum.
Þristirnið Dolly Parton,
Jane Fonda og Lily Tomlin
urðu miklar vinkonur og þær
sögðust allar hafa skemmt
sér konunglega við kvik-
myndatökuna. Dolly sagðist
„Hún Dolly er Mae
West nútímans", segir
stór-„sjarmörinn"
Burt Reynolds.
hafa verið hálfhrædd um að
Jane væri ráðrik og leiðinleg
og alltaf að tala um pólitik,
þvi að fyrir það væri hún
frægust, — en svo var þetta
elskuleg og skemmtileg
kona, sem var sérlega gott
aö vinna meö, sagði Dolly i
blaöaviðtali.
Dolly lék stúlkuna sem for-
stjórinn var skotinn i. Hún
segist vera alin upp i guðs-
ótta og góöum siöum, og þar
af leiðandi geti hún ekki
hugsað sé að leika i neinum
ósiðlegum atriðum, en eitt
atriðið i myndinni var þó
tekið i rúminu. Það var þó
allt i sómanum með rúmsen-
una, þetta var maðurinn
hennar Dollyar i myndinni,
sem hún kúrði þarna hjá.
Það var annað, sagði leik-
konan, sem mér þótti dálitið
óþægilegt. Jeffrey Douglas
Thomas sem lék manninn
minn er giftur bestu vinkonu
minni, svo ég var svolitið
feimin við hann.
Það má búast við þvi að
Dolly verði að slaka svolitið
á siðferðiskröfunum í næstu
mynd, sem hún leikur i, þvi
að hún hefur samþykkt aö
leika á móti Burt Reynolds i
mynd sem gerð er eftir söng-
leik, sem heitir á ensku „The
Best Little Whorehouse in
Texas” (Besta litla hóruhús-
iðiTexas). En það er nú ým-
islegt hægt að leggja á sig
fyrir 2 millj. dollara, en
henni hefur veriö boðið það i
kaup.
krossgáta
3503.
Lárétt
1) Kemst við. 5) ört. 7) Brún. 9) Svik. 11)
550. 12) Ætið. 13) Hár. 15) Skán. 16) Strák-
ur. 18) Undnar.
Lóðrétt
1) Stormur. 2) Bylur. 3) Nútið. 4) Sigað. 6)
Skeið. 8) Með tölu. 10) Kona. 14) Ham-
ingja. 15) Málmur. 17) Gylta.
Ráðning á gátu No. 3502.
Lárétt
1) Útgerð. 5) Ata. 7) Lit. 9) Kið. 11) Al. 12)
LL. 13) Glæ. 15) Blá. 16) Lár. 18) Banana.
Lóðrétt
1) Útlagi. 2) Gát. 3) Et. 4) Rak. 6) Óðláta.
8) 111. 10) 111.14) Æla. 15) Bra. 17) An.
bridge
1 úrslitaleiknum milli Bandarikjanna
og Frakklands á ólympiumótinu i sumar
kom fyrir eitt spil sem mun öðlast sæti i
bridgesögunni við hliðina á 7 laufunum
hans Belladonna i heimsmeistaramótinu
1975. Norður. S. 10
H.KD9 T. A109832 L. K98 V/Allir.
Vestur. Austur.
S. D9532 S. AKG876
H.G854 H.A 107632
T. D64 T. -
L. 7 Suður. S. 4 H. - T. KG75 L. ADG106543 L. 2
Þegar þetta spil kom uppá skermana,
en það var spilað samtimis i báðum sölum
ogsjónvarpaðbeint.var keppnin hnifjöfn.
Þetta voru svo sagnseriurnar:
Vestur Norður Austur Suður
Perron Rubin Lebel Soloway
pass ltigull 1 spaði 2lauf
4 spaðar pass 5 lauf 6lauf
pass pass 6 spaðar dobl.
6 spaðar voru 1 niður éftir lauf út og
Bandarikin fengu 200.
Vestur Norður Austur Suður
Wolff Mari Hamman Chemla
pass 1 tigull 2 tiglar 2hjörtu
4spaðar 4grönd 5 spaðar 61auf
pass 6tiglar 6 spaðar 7 tiglar
pass pass dobl
Aumingja Hamman i austur átti út með
tvo ása og hann hafði auðvitað ekki hug-
mynd um hvorn hann ætti að velja. En þar
sem vestur hafði stutt spaðann virtust
vera meiri likur á að ómeldaði ásinn
héldi. Hann spilaöi þvi út hjartaás og
Mari gat lagt upp á 13 slagi. 2330 til
Frakka og 19 impar en það var einmitt
lokamunurinn á liðunum.