Tíminn - 07.02.1981, Side 13
Laugardagur 7. febrúar 1981
13
t
um auðþekkjanlega þörunga i
fjörunni. Lengra úti vaxa viða 4-
6 m háir þaraskógar á botnin-
um, t.d. tegundirnar beltisþari,
hrossaþari og mariukjarni, allt
stórvaxnir þönglaþarar. Þang
og þarar eru hagnýttir til sauð-
fjárbeitar eins og alkunnugt er,
og á Reykhólum er þörunga-
vinnsluverksmiðja.
Litum á myndimar og lesum
skýringar í textanum. Myndin
úr örfirisey sýnir þöngulþara-
hrannir reknar á land eftir
hvassviðri. öldurótið hefur rifið
þarann upp af steinum á botnin-
um. Ef þari er fastur á fremur
litlum steinum, „siglir” þarinn
stundum á stað i ölduróti langt
úti i sjó.
Á öðuskeljum o.fl skeljum
sitja oft hrúðurkallar (sjá
mynd) og einnig þarar. Á
skeljabroti á myndinni sést á
krabbann inni i kalkhúsi sinu.
Þöngulhaus hrossaþara sést á
annarri skel.
Aðan er vel æt og var einnig
höfð til beitu, likt og kræklingur
og kúskel.
Myndirnar flestar hefur Ró-
bert tekið, en undirritaður færði
honum eintökin.
Söl voru mikilsverð matjurt
fyrr á timum og hafa mörgum
bjargað i hallærum. Þótti góð
sölvaf jara mikil hlunnindi, bæði
fyrir menn og skepnur.
Kræklingur var og er hagnýtt-
ur til matar og beitu, kúskel og
öðuskel sömuleiðis, þ.e.
„fiskurinn” i þeim. Kúskelin
var plægð upp af botninum til
beitu.
Vöðvi hörpudisks þykir herra-
mannsmatur og er útflutnings-
vara. Nokkur þúsund ára gaml-
irhörpudiskaro.fl skeljarkomu
i ljós þegar grafið var fyrir
grunni Loftleiðahótelsins. Litu
þeir út sem nýkomnir á fjöru.
Lengi hefur þótt búbót að
kræklingafjöru. Kræklings er
getið i ólikindavisum allgöml-
um á þessa leið:
„Æpti hún Geirlaug þegar
út i tún kom.
Sýndist henni kaupskip
koma að landi,
Þetta var þá krákuskel sem
kurraði á sandi.”
Og þófarakaupið i gamalli
vísu:
„Ég skal gefa þér lóna
innaniskóna —
hörpudisk og gimburskel
og meira ef þú þæfir vel.”.
Hrossaþari með margklofna blöðku. Beltisþari til hægri.
baö boraar sig
aönota
PLASTPOKA
O Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
Ritari
Utanrikisráðuneytið óskar að ráða ritara
til starfa i utanrikisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu i ensku og
a.m.k. einu öðru tungumáli auk góðrar
vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun og starf i utanrikisráðuneyt-
inu má gera ráð fyrir að ritarinn verði
sendur til starfa i sendiráðum íslands er-
lendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
utanrikisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
Reykjavik, fyir 20. febrúar 1981.
Utanrikisráðuneytið.
Aðalfundur
Fiskeldis h/f.
verður haldinn laugardaginn 21. febr. 1981
að Borgartúni 22 3. hæð kl.13.30.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins fyrir árið 1980.
3. Lagabreytingar
a) TiUaga stjórnar til breytingar á sam-
þykktum félagsins um fækkun stjórnar-
manna.
b) Tillaga frá einum hluthafa sem felur i
sér að stjórnarmönnum verði fækkað, for-
maður kjörinn sérstaklega og atkvæða-
fjöldi við stjórnarkjör ráði verkefnaskipt-
ingu stjórnar.
— Nánari grein er gerð fyrir þessum til-
lögum i fréttabréfi. Tillögurnar, skýrsla
endurskoðenda og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
14.-21. feb. 1981. —
4. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
5. Ákvörðun um greiðslur til stjórnar-
manna og endurskoðenda fyrir störf
þeirra á liðnu ári.
6. önnur mál.